Morgunblaðið - 01.02.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
39
vögnum en svo hefur reynst.
Breytt vinnubrögð hafa þannig
þýtt verulegan sparnað fyrir launa-
fólk og breytingar á rekstri SVR
nú eiga að þýða afkastameira og
betur launaðra starfsfólk þegar til
lengri tíma er litið.
Útboð auka afköst
og hagræðingu
Útboð í ræstingum á vegum rík-
isins hafa verið gagnrýnd harð-
lega, t.d. af BSRB. Fullyrt er, eins
og áður, að markmið þessara
breytingar sé að lækka laun ræst-
ingarfólks. Markmiðið er að auka
afköst ræstingarfólks, auka hag-
ræðingu í ræstingum og spara
skattgreiðendum. Þetta er einnig
að koma á daginn hérlendis eins
og erlendis.
Ræstingarfólk sem starfar fyrir
danska ríkið, þar sem útboð á
ræstingum hafa verið stunduð um
langt skeið, afkastar að meðaltali
mun meira á klukkutíma en starfs-
systkin þeirra hérlendis og viti
menn, þeim er einnig greitt mun
meira á klukkutímann. Að sjálf-
sögðu eru tengsl á milli afkasta
og launa á þessu sviði eins og
annars staðar.
Útboð á mörgum sviðum má
auka verulega hérlendis og þau
geta sparað verulega fjármuni. Til
þess að svo megi verða þarf þó
skilning og áhuga almennings.
Hagræðing er kjarabót
Það kerfi er rangt sem stuðlar
að stöðugt lækkandi launum en
aukningu á kostnaðarsömum fríð-
indum og óhagræði. Ágætt dæmi
um þetta er rekstur ýmissa ríkis-
mötuneyta. Það er ekki óalgengt
að ríkið niðurgreiði mat í mötu-
neyti ríkisstarfsmanna sem nemur
10-15 þúsund krónum á mánuði
á notanda. Þetta þýðir að margir
ríkisstarfsmenn eru að snæða há-
degisverð fyrir 8-900 krónur á
dag, þ.e. framlag þeirra sjálfra auk
niðurgreiðslu. Fyrir þennan sama
dag fá margir þessara ríkisstarfs-
manna úborguð laun einungis
rúma fjórfalda þessa upphæð.
Á sama tíma og niðurgreiðslur
sem þessar hafa aukist hafa laun
opinberra starfsmanna og annars
láunafólks lækkað. Auðvitað eru
tengsl þama á milli og á þessum
vanda þarf að taka en það gerist
ekki nema í samvinnu við launa-
fólk.
Hagræðing í opinberum rekstri
á að þýða lægri skatta og þegar
til lengri tíma er litið afkastameira
og betur launaðra starfsfólks. í
einu og öllu eiga því þessar tillög-
ur að skapa raunveruleg störf en
ekki fækka þeim og verða launa-
fólki því alvöru kjarabót. Ef svo
verður ekki hafa tilraunir sem
þessar mistekist.
Sparnaður og hagræðing á ýms-
um sviðum hefur alltof lengi verið
feimnismál. Á meðan svo er heldur
sóun á kostnað skattborgara
áfram. Dæmi um raunverulegan
árangur í spamaði og hagræðingu
í ríkiskerfinu liggja fyrir. Nú þarf
að hefja enn frekar á loft hug-
myndir um sparnað og hagræðingu
í ríkiskerfínu. Þar sem samtök
launþega eru einnig samtök skatt-
greiðenda er nauðsynlegt að laun-
þegar hafi framkvæði í slíkri hug-
myndavinnu. Þannig hækkum við
launin og bætum lífskjörin.
Höfundur er hagfræðingur.
■ NÆSTU fjölskyldunámskeið
félagsmiðstöðvarinnar Ilólmasels í
Seljahverfi verða haldin í febrúar
og mars. Að þessu sinni verður for-
eldrum og börnum boðið upp á nám-
skeið í grímugerð. Ennfremur er
boðið upp á flugdrekasmíði og
páskaföndur. Sem fyrr eru þessi
fjölskyldunámskeið eingöngu ætluð
foreldrum og börnum þeirra. Mark-
miðið er að fjölskyldan njóti sam-
verunnar við skapandi og skemmti-
lega vinnu. Þátttökugjaldi er stillt
í hóf. Nánari upplýsingar um tíma-
setningu og íýrirkomulag nám-
skeiðianna eru veittar í símum
677730 og 677732. Skráning er
hafin.
Kristín Halldórs
dóttir - Sjötug
Hún var gerðarleg og kröftug í
fasi konan sem stóð við stjórnvöl-
inn annað hvort í eldhúsinu eða
sem forstöðukona á barnaheimil-
um Vorboðans í Rauðhólum og
Rauða krossins á Silungapolli og
Jaðri og á hvíldardvölum Mæðra-
styrksnefndar í Hlaðgerðarkoti.
Stjómsöm nokkuð, naut tiltrúar
yfirboðara sinna jafnt og starfs-
fólks, barnanna og aðstandenda
þeirra. Hún var á heimavelli,
margra ára reynsla í slíkum störf-
um við hinar margbreytilegustu
aðstæður svo og góð kynni af ólík-
um atvinnuháttum bæði gömlum
og nýjum komu að góðum notum.
Hún naut þess að starfa að þess-
um málum, lagði sjálfa sig alla
fram, hafði mikinn metnað, elskaði
börnin, það er kjarni málsins, þau
voru virt eins og fullgildar persón-
ur, ekki leitað ódýrra lausna á stór-
um vandamálum barnssálarinnar,
þegar smááfall leysti úr læðingi
sorgina yfir því að vera fjarri
mömmu og pabba. Mörg þeirra
eignuðust samastað í hjarta hennar
og eiga enn, man eftir þeim, geym-
ir mynd þeirra í huga sér, þekkir
þau, fylgist með þeim, þar sem þau
eru stödd í lífsbaráttunni. Margir
sem kynntust henni við fyrrnefnd-
ar aðstæður hafa leitað til hennar
síðar á lífsleiðinni til að gera hana
að þátttakenda bæði í gleði og
sorg.
Kristín Halldórsdóttir í Kirkju-
hvoli, Fossvogi, heitir konan, og
er sjötug í dag, 1. febrúar. Þar
eiga margir leið um hlað, þungra
erinda. Ófáum hefur hún, maður
hennar Ole P. Pedersen, garðyrkju-
stjóri, sem nú er látinn, og börn
þeirra, létt þau spor sem þar eru
stigin, með hlýju sinni og greið-
vikni. Hjartað hennar er stórt og
rúmar marga, áhuginn er mikill
og lifandi á annarra högum, fylg-
ist vel með vinum sínum og er
artarleg með afbrigðum.
Hún ólst upp í Reykjavík í mið-
bænum á þeim áram, þegar næst-
um allir þekktu alla. Það er með
ólíkindum, hvað Kristín þekkir ti!
margra fjölskyldna og kann deil:
á ætt og uppruna fólks. Á þessum
tímum var atvinnuöryggi þann veg
farið að menn þurftu að vera reiðu-
búnir til þess að sækja vinnu hvert
á land sem var eftir árstímum, ef
þeir ætluðu sér á annað borð að
hafa ofan í sig og á. Faðir hennar
Halldór Sigurðsson beykir stundaði
iðn sína, en hún tengdist síldinni
drjúgan hluta ársins, tunnusmíði
og önnur beykisverk voru unnin á
verkstæði hér í bæ á vetrum. Mjög
ung fór Kristín í sumardvalir hjá
frændfólki sínu á Þverlæk í Holtum
í Rangárvallasýslu, þaðan var móð-
ir hennar Kristólína Þorleifsdóttir.
Á hún margar góðar minningar
að austan og bast stað og skyld-
mennum traustum böndum.
Ríkur í minningunni er einnig
veturinn á húsmæðraskólanum á
Hverabökkum í Hveragerði og
tíminn á Akranesi, þegar hún að-
stoðaði móðursystur sína við
greiðasölu og vann í fiski, þegar
færri voru gestirnir, atburðaríkir
dagar og gefandi.
Kristín er mjög jarðbundin kona,
Fáanlegt í hylkjum, töflum
og í fljótandi formi.
raunsæ og hagsýn, en hún á sér
miklar hugsjónir, lætur ekki and-
byr slá sig út af laginu, heldur
hefur hug sinn upp úr erli daganna
og ræðir um hugsjónir sínar og
hjartans mál, eins og ljóðin og
sálmana sem hún kann og ann,
flytur mann út fyrir þröng og
amstur brauðstritsins.
Hún hefur ekki látið sitja við
að eiga sér hugsjónir um mann-
rækt og andlega og líkamlega að-
hlynningu ungra sem aldinna,
heldur tekið virkan þátt í starfi
menningar- og líknarfélaga. Það
verður ekki tíundað hér, þó skal
minnt á þátttöku hennar í giftu-
drjúgu starfi Mæðrastyrksnefndar
og blómlegu starfi Grensássafnað- *
ar og kvenfélagsins þar.
Það er gott að eiga hátíð með
Kristínu Halldórsdóttur, hvort sem
er í gleði eða sorg, gjarna mikil
reisn yfir þeirri athöfn, eins og
flestu sem hún tekur sér fyrir
hendur. í dag bregður hún ekki
út af vananum og býður til fagnað-
ar í Lionssalnum, Auðbrekku 25,
Kópavogi, frá kl. 17.00-20.00.
Við í Víðihlíðinni höfum átt stað
í hjarta Kristínar til margra ára.
Við þökkum fyrir það allt og biðj-
um henni og fjölskyldu hennar allr>"
ar Guðs blessunar um ókomna
framtíð.
Tómas Sveinsson.
VZterkur og
k/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
A engann sinn líka
í veröldinni
Kyolic daglega, það gerir gæfumuninn.
✓ Kyolic hvítlaukurinn er lífrænt ræktaður.
✓ Tveggja ára kaldþroskun eykur virkni og fjarlægir lykt.
✓ Kyolic er stöðluð afurð. Trygging kaupenda.
✓ 250 gæðaprófanir í framleiðslu.
✓ Áratuga vísindarannsóknir.
✓ Vinnur gegn oxun, blóðfitu og fl.
✓ Olíu- og vatnsuppleysanlegt. Virku efnin varðveitast.
✓ 12 alþjóðleg einkaleyfi.
Kyolic - Líkami þinn finnur muninn
Ný Lada Samara kostar frá 694,000
Flestir fjölskyldubílar af svipaðri
stærð kosta yfir 1,100,000
ini iangar fjiiskyidaaa
ai foia fpir
mismuninnf
Negld vetrardekk
og sumardekk eru
innifalin i verði
út þorrann!