Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 01.02.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994 41 virkur, ákveðinn, jákvæður, glað- lyndur og skemmtilegur. Er furða þótt manni bregði og hugurinn leiti til eftirlifandi ástvina og á vit minn- inganna um hann sem nú er allur? Leiðir okkar Guðmundar lágu saman í Seljakirkju nokkur síðustu árin þar sem hann ásamt konu sinni söng í kirkjukórnum. Mér er minnis- stætt þegar hann hóf starf með kórnum, alls óvanur og hikandi við að stíga fyrstu sporin. Hann átti samt eftir áð verða einn traustasti | hlekkurinn í þeirri keðju sem tengir * saman þennan góða og samstæða hóp. Auðfundið var strax að Guð- mundur vildi leggja sig fram enda mætti hann manna best á æfingar og vildi jafnan hafa allt sitt á þurru. Ef honum fannst hann ekki kunna sína rödd nægilega vel var hann ófeiminn að biðja um aðstoð. Hann vissi þá gjarnan hvar í laginu voru veikir punktar og óskaði að fá að festa þá staði í minni með því að fá að heyra það nokkrum sinnum. í þessu samstarfi kynntist ég Guðmundi, manninum bak við kórfé- lagann. Hann kom til dyranna eins og hann var klæddur, sagði sína skoðun á mönnum og málefnum af | einlægni. Á leið manna til hamingjusams lífs geta leynst blindgötur sem villa ■| og bera menn af þeirri leið. Slíka götu hafði Guðmundur uppgötvað og áttað sig á að nú þurfti að snúa á við til hinnar réttu leiðar. Um það * mál ræddi hann líka opinskátt, það fann ég þegar ég óskaði honum til hamingju með ákvörðun sína. í þeirri viðleitni að breyta um lífsstíl var Guðmundur heill og hygg ég að það hafi hann reyndar verið að hveiju sem hann gekk. í kórstarfinu var hann líka af heilum hug og þoldi illa hálfvelgju. Með slíku fólki er gott að vera. Löngum var stutt í húmorinn hjá Guðmundi svo sem athugasemdir hans oft báru með sér en jafnan var allt slíkt græskulaust. Hann sagði við mig eitt sinn að kórstarfið gæfi sér mikið og hafði um það nokkur orð hve gott það 11 væri þegar hjón hefðu sameiginlegt tómstundastarf á borð við það. Þótt honum þætti það gefa sér mikið þá $ var hann sjálfur líka gefandi. Fyrir hönd okkar allra sem áttum samleið með Guðmundi á þessum 0 vettvangi þakka ég samfylgdina og sendi Sigurlaugu og börnunum ásamt ástvinum öðrum dýpstu sam- úðarkveðjur og bið þann sem öllu ræður að blessa söknuð þeirra og trega. Eftir lifir í hugum okkar allra minningin ljúfa um hinn jákvæða og góða dreng sem allt of stutt fékk að vera okkur samferða. Kjartan Sigurjónsson. í dag kveðjum við tryggan og góðan vin og félaga. Hvern hefði órað fyrir því að Guðmundur sem kvaddi starfsfélaga sína, hress að vanda, að vinnu lokinni, 11. janúar sl., yrði kominn á spítala mikið veik- ur aðeins tveimur tímum seinna? Engum kom í hug að hann færi svo snögglega sem raun varð á og er okkur starfsfélögum hans eðlilega mjög brugðið. Fyrir rétt tæpum 16 árum hóf Guðmundur gjaldkerastarf sitt hjá Heimilistækjum hf. Allar götur síðan er óhætt að segja að hann hafi ver- ið „vinsælasti maðurinn" hjá fyrir- tækinu, „sérstaklega" um mánaða- mót, eins og hann gerði svo oft grín að sjálfur. Hann hafði marga góða kosti til að bera. Samviskusemi var honum í blóð borin, hvort heldur gagnvart foreldrum sínum, fjöl- skyldu, vinnufélögum eða vinnu sinni. Guðmundur var ávallt hress og hlátur hans smitandi. Var hann hrókur alls fagnaðar á Ping Pong- kvöldum, árshátíðum og alstaðar þar sem hann var. Hann hafði mjög gaman af að brydda upp á umræðu- efni í matar- og kaffitímum sem oft leiddi til fjörugra samræðna, en stutt var í stríðni og glettni í fari hans. Guðmundur var söngmaður mikill, sem við fengum oft að njóta, og voru þau hjónin í kór Seljakirkju og höfðu mikla ánægju af því. Guðmundur var barngóður maður og alltaf átti hann gott í poka niðri í skúffu handa afabörnum sínum eins og hann kallaði börn starfsfé- laga sinna. Oft voru hrókasamræður um ungbörn, uppeldi og eldri börn og iá hann ekki á skoðunum sínum og miðlaði af reynslu sinni. Skein þá í gegn hversu hreykinn hann var af sínum börnum, þeim Valgerði, Gísla og fóstursyni sínum Páli. Mikill missir er að Guðmundi fyr- ir fjölskyldu, vini og starfsfélaga. Við sendum Sigurlaugu, Páli, Val- gerði, Gísla og móður hans Mar- gréti innilegar samúðarkveðjur. Sarnstarfsfólk hjá Heimilistækjum hf. Látinn er í Reykjavík ágætur drengur, Guðmundur Gíslason, deildarstjóri. Andlát hans bar brátt að og kom vinum og vandamönnum í opna skjöldu enda var Guðmundur aðeins 41 árs er hann féll frá vegna hjartveiki. Guðmundur var sonur hjónanna Gísla Þorsteinssonar útgerðarmanns í Reykjavík, sem er látinn, og konu hans Margrétar Sigurðardóttur. Hann var þriðji sonur þeirra hjóna. Eftirlifandi bræður hans eru, Sigurð- ur Ingi flugvirki og Þorsteinn loft- skeytamaður. Að hefðbundinni skólagöngu lok- inni hóf Guðmundur nám við Versl- unarskóla íslands og lauk þaðan verslunarprófi 1971 og stúdentsprófi úr hagfræðideild 1973. Námsárang- ur hans var góður. Að námi loknu hóf Guðmundur skrifstofustörf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, en þar hafði hann starfað í sumarleyfum sínum á námsárunum. Árið 1978 var hann ráðinn til Heimilistækja hf., sem aðalbókari og gjaldkeri. Árið 1990 varð hann deildarstjóri í fjárreiðu- deild þess fyrirtækis og gegndi því starfi til dauðadags. Hann var far- sæll maður í sínum störfum og vel liðinn af samstarfsfólki sinu. Guðmundur kvæntist Sigurlaugu B. Gröndal hinn 3. júlí 1982 og eru börn þeirra Valgerður, fædd 1981, og Gísli Bjarki, fæddur 1984. Áður átti Sigurlaug soninn Pál Inga, fæddur 1978, og ólst hann upp hjá þeim. Öll kynni okkar af Guðmundi voru góð og er margs að minnast frá þeim glöðu æskuárum. Einkenni hans voru vinnusemi og greiðvikni. Stundum var greiðviknin það mikil að við óttuðumst að lærifeður okkar sæju vinnubrögð Guðmundar á verk- efnum sem við skiluðum sem okkar eigin, en voru að mestu leyti afrit af hans. Guðmundur var ávallt glaður og hress og lífgaði upp á hópinn. Hann var skynsamur drengur í lífi og starfi og vildi koma skynseminni að hjá skólafélögum sínum þegar honum fannst þeir ganga of langt í galsa- skapnum og hann sagði eitt sinn við undirritaðan þá er fjörið var sem mest: „Sigurður minn, það verður að vera eitthvert vit í vitleysunni." Þannig var hann einfaldlega ávallt heiðarlegur og skynsamur í sam- skiptum. Við skólafélagar hans úr Verslun- arskóla fslands söknum nú góðs drengs. Um leið og við vottum konu hans, börnum og öðrum aðstandend- um okkar dýpstu samúð biðjum við góðan guð að varðveita hann vel. Blessuð sé minning Guðmundar Gíslasonar. F.h. stúdenta V.í. 1973, Sigurður Karlsson. Þau hörmulegu tíðindi bárust okk- ur hjónum að morgni laugardags 22. að systursonur minn, Guðmundur Gíslason, hefði andast þá um nóttina á Borgarspítalanum eftir skyndilegt og banvænt hjartaáfall. Þessi tíðindi snertu okkur mjög og erfitt er að skilja þegar ungir og hraustir menn eru svo skyndilega kallaðir burt frá konu, börnum og þeim viðfangsefnum sem bíða slíkra manna. Guðmundur, sem við kölluðum ávallt Gumma, var okkur hjónum einkar kær, enda nutum við þeirrar gleði að hafa hann á heimili okkar smá tíma er hann nálgast þriggja ára aldur og er þessi vera hans okk- ur ógleymanleg. Gummi var þá þeg- ar farinn að skyggnast um í veröld- inni og taka þátt í umhverfi sínu, enda fór fátt framhjá athygli hans og hann vildi gjarnan vera þátttak- andi í leik og starfi. Gummi var einstaklega glaðlynt barn og allt sem hann tók sér fyrir hendur framkvæmdi hann með gleði og innlifan í hlutverkið öllum til óblandinnar ánægju og skemmtileg- heita. Minnisstætt er okkur er við fórum með hann til kirkju, í fyrstu var Gummi hinn prúðasti en þegar pred- ikun var lokið og söngur hófst þótti honum tími til kominn að láta til sín heyra, hóf upp raust sína og söng dægurlag sem hann hafði lært og hvar hrifinn af. Ekki féll þessi söng- ur Gumma vel að kórsöngnum og nærstaddir kirkjugestir brostu lítil- lega en enginn hneykslaðist, enda söng Gummi af engu minni innlifun en söngkórinn og gleðin og einiægn- in leyndu sér ekki, enda voru gleðin og einlægnin þeir eiginleikar sem einkenndu hann allt lífið og hann miðlaði til allra sem kynntust hon- um. Kannski var þessi söngur Gumma fyrirboði þess sem síðar varð, er hann fór að syngja í kirkju- kór. Guðmundur var fæddur í Reykja- vík 3. júní 1952, foreldrar hans voru hjónin Gísli Þorsteinsson ættaður frá Stykkishólmi og Margrét Sigurðar- dóttir ættuð frá Hjallanesi í Land- sveit. Þau hjón hófu búskap í Reykja- vík og stundaði Gísli lengst af sjó- mennsku sem vélstjóri og síðar út- gerð meðan heilsa hans leyfði, en hann lést fyrir nokkrum árum og átti við mikla vanheilsu að stríða síðustu árin. Margrét, sem sér á eftir syni sínum fyrir aldur fram, býr við heilsuleysi en ber þó harm sinn vel, fyrst fráfall eiginmanns og nú sonar síns. Þau hjón Gísii og Margrét voru mjög samhent og bjuggu sér og börnum sínum gott heimili þar sem gestrisni og samheldni ríkti. Þau hjón Gísli og Margrét eignuðust þijá syni: Sigurð, kvæntur Fanneyju Davíðsdóttur og eiga þau tvær dæt- ur. Þorsteinn, hann kvæntist Hall- dóru Valdimarsdóttur og eignuðust þau þijár dætur, þau slitu samvistir. Guðmundur var yngstur þeirra bræðra, hann kvæntist 1982 Sigur- laugu Berglind Gröndal og eignaðist með henni tvö börn, Valgerði Grétu og Gísla Bjarka. Sigurlaug átti fyrir einn son, Pál Inga Hauksson, sem Guðmundur gekk í föðurstað, sem sínu eigin barni. Guðmundur var ötull og starfsam- ur. Hann lauk stúdentsprófí frá Verslunarskólanum og hóf síðan störf hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur og síðar hjá fyrirtækinu Heimilis- tækjum hf. Guðmundur og Sigurlaug stofn- uðu fyrirmyndar heimili með börnum sínum, heimili sem átti að verða þeim öllum skjól og skjöldur til fram- tíðar. Með skyndilegu fráfalli eigin- manns og föður er höggvið stórt skarð í fjölskylduna sem erfitt er að bæta. Fleiri eiga einnig um sárt að binda, ekki síst heilsulaus og öldr- uð móðir, en henni sýndi Guðmundur meiri umhyggju og alúð en almennt gerist, enda hafði hún orð á því við mig að engin hefði átt betri son. Geta vil ég þess að allir bræðurnir, konur þeirra og börn hafa veitt ómetanlega aðstoð þegar Gísli og Margrét þurftu á aðstoð að halda og veikindi ágerðust. Guðmundur var gæddur þeim eig- inleikum þegar á barnsaldri að það sem hann tók sér fyrir hendur fram- kvæmdi hann af einlægni og dugn- aði. Hann var hrókur alis fagnaðar þar sem gleði ríkti og hann tók einn- ig þátt í hryggð annarra, reiðubúinn að hjálpa ef nokkur kostur var, um hann gilti hin forna mannlýsing: „Hann var drengur góður.“ Við andlát Guðmundar hrannast upp minningar og söknuður ásamt áminningu um hvað stutt er stund- um milli lífs og dauða, en góðar minningar eru þau smyrsl sem helst græða slík sár. Okkar mikla sálmaskáld Hall- grímur Pétursson segir í einum sálmi sínum, að „sálin vaki þótt sofni líf“ og ég trúi því að hið skærasta ljós lýsi þessum góða frænda mínum á vegferð hans til hins eilífa Austurs, þar sem ferð okkar endar. Við hjónin sendum eiginkonu, börnum, móður og öðrum aðstand- endum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Megi góður Guð styrkja ykkur. Unnur. Malmquist, Bergsteinn Sigurðarson. Minning Halla Bergs Fædd 3. febrúar 1922 Dáin 21. janúar 1994 Halla móðursystir mín var glæsi- leg kona, sjálfstæð og framsækin.- Menntun hennar og starfsferill iíkt- ist meira því sem nútímakonur óska sér en því sem títt var um hennar samtímakonur. Hún var óvenju vel menntuð, talaði ijölda tungumála, lék vel á píanó og var víðlesin. Mér er sagt að glæsileiki Höllu hafi ekki farið fram hjá ungu mönnunum sem leið áttu um Skólavörðustíginn í hennar ungdæmi, en hugur hennar stóð ekki til að eignast eigin fjöl- skyldu, heldur ferðast um heiminn fijáls og afla sér menntunar. Mínar fyrstu minningar um Höllu eru frá höfðingjasetrinu Skóla- vörðustíg 30, fyrir um fjörutíu árum þegar ég var barn að aldri á heim- ili afa míns og ömmu. Þar var glað- værð og myndarbragur sem Halla skipaði stóran sess í. Hún bar með sér frískan andblæ utan úr hinum stóra heimi. Halla sat veislur í hinum glæstustu sölum og var málkunnug fremstu mönnum sinnar samtíðar. Með störfum sínum í utanríkisþjón- ustunni ferðaðist hún og dvaldi langdvölum erlendis, en minnis- stæðust er mér af þessum bernsku- minningum það undur þegar Halla ferðaðist í kringum heiminn, um- hverfis jörðina með nóbelsskáldinu, en slíkt var ekki alsiða þá. Frá Ind- landi og Kína flutti hún með sér silki, pappírs- og koparmuni sem báru með sér angan fjarla:gra ver- alda sem mér fannst fylgja henni æ síðan. Störf Höllu í utanríkisþjónustunni urðu farsæl og mikil. Hún starfaði i París, Ósló, London og víðar, fyrst sem ritari en síðar sendiráðunautur. Margir eiga henni greiða að gjalda frá þessum árum. Heimili hennar var oft áningarstaður vina og vandalausra, námsmanna erlendis og félítilla ferðamanna. Við hjónin nutum gestrisni hennar í Stokk- hólmi þegar ég hóf mitt nám þar og þar kynntist ég best þessari frænku sem áður hafði verið svo fjarlæg. En þótt Halla dveldist lang- dvölum erlendis reyndist hún móður sinni mikil hjálparhella, enda voru þær bundnar sterkum tryggðabönd- um, og á efri árum Elínar var Halla hennar stoð og stytta. En eins og við þurfum öll að gangast undir það lögmál að allt sem við eigum best verður einhvern tímann frá okkur tekið, þannig þurfti þessi stórhuga bjartsýni að víkja fyrir eftirsjá og örvæntingu og þessi tígulegi líkami að kreppast af þeim sjúkdómi sem leiddi hana til bana. Síðustu árin þráði hún mest að fá að búa sjálfstæð á eigin heimili sem hún og gerði, en aðeins var urint fyrir hjálpsemi og ótrúlegt vinarþel tveggja vandalausra vin- kvenna, þeirra Guðrúnar Jónsdóttur og Stefaníu Guðnadóttur, sem reyndust Höllu slíkir vinir í raun ,að seint verður til jafnað. Það var eins og eitthvert óskiljanlegt réttlæti til- verunnar vildi launa Höllu alla þá alúð sem hún hafði sýnt móður sinni á efri árum. Sjaldan hef ég séð slíka hryggð sem í augum móður minnar, sem ekki getur tjáð sig með mörgum orðum, við fréttina um lát Höllu systur sinnar. Það er gott að fá að deyja syrgður af öllum sem vel til þekkja. Helgi Kristbjarnarson. Einstaklingar taka örlögum sín- um á misjafnan hátt bæði í gleði og sorg. Vinkona mín, Halla Bergs, tók erfiðum veikindum sínum, Parkinsonveiki, ótrúlega vel. Hún barðist eins lengi og stætt var og í rauninni miklu lengur. Það var sárt að fylgjast með því, hvernig Halla, sú stórglæsilega kona, missti allan þrótt, en samt finnst mér, að hún hafi haldið reisn sinni mjög lengi. Það er erfitt að lýsa eiginleikum vina sinna, þeir verða svo samofnir manni á vissan hátt. Halla var greind kona og góð. Hún var skapst- illt. og lét aðra í friði. Ég get varla ímyndað mér, að hún hafi nokkurn tímann gert nokkrum manni illt. Hún var dama, sem kunni að klæða sig, unni fögrum ljóðum og fögrum tónum. Henni þótti ætíð gott að njóta útiveru. Halla dvaldist mikið erlendis við störf hjá utanríkisþjónustunni, varð því reglulegur heimsborgari, en rammíslenzk var hún líka. Svona mun ég muna vinkonu mína. Fari hún á Guðs vegum. Stefanía Guðnadóttir. Kveðja frá skólasystrum Við vorum ekki margar skólasyst- urnar sem urðum stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1942, aðeins tíu að tölu. Nú þegar við kveðjum Höllu, þá fyrstu sem hverfur úr þessum litla hópi, leita minningarnar á hugann, minningar uin góðan félaga, trausta og heil- steypta manneskju, sem ekki mátti vamm sitt vita og engum lagði illt til. Halla bættist í hópinn í 4. bekk máladeildar MR að loknu prófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík, glæsileg, háttprúð stúlka, sem varð strax vel til vina í bekknum. Að stúdentsprófi loknu skildu leiðir okkar skólasystranna um sinn. Sumar hurfu til náms eða starfa erlendis, eins og raunin varð með Höllu, en aðrar voru uppteknar hér heima við störf og uppeldi barna. Við skólasysturnar áttum þó því láni að fagna að tengja vináttubönd- in aftur og þá jafnvel enn fastar en áður. Síðastliðinn aldarfjórðung, frá því ári sem við áttum 25 ára stúdentsafmæli, höfum við á hveiju sumri átt saman einn sólarhring utanbæjar í faðmi náttúrunnar, þar sem við höfum glaðst, sungið sam- an, rabbað og minnst skólaáranna. Óneitanlega eru það minningar frá samverustundum á þessum oftast björtu og fögru sumarkvöldum sem nú vega þyngst. Á þeim stundum kom glöggt fram næmt auga Höllu fyrir tign og fegurð íslenska fjalla- hringsins og það hve mjög hún naut kyrrðar og friðsældar íslenskrar náttúru. íslensk ættjarðarljóð voru henni hugleikin og var henni tamt að grípa til þeirra þegar svo bar undir. Halla tók alltaf þátt í sumarferð- um okkar, að þeim árum undantekn- um sem hún var erlendis. Þótt heilsu hennar væri tekið að hraka nú síð- ustu árin lét hún sig ekki vanta og sýndi með því ótrúlega þrautseigju og dugnað. Síðasta ferðin var farin í byijun júlí á síðastliðnu ári, og þá sern oft áður glöddumst við yfir að geta allar komið saman, þótt 50 ára stúdentsafmæli væri að baki. Nú hefur skarð verið höggvið í hópinn, en minningin um Höllu mun lifa með okkur um ógengin ár. Blessuð sé minning Höllu Bergs og megi henni vel farnast á leið þeirri ver hún hefur nú lagt út á.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.