Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
51
-mú im=yi;'tá.WM
Frumsýnir spennutryllinn
í KJÖLFAR MORÐINGJA
HX
TIL VESTURS * * * g.e.dv.
Aðalhlutverk: Gabriel Byrne og Ellen Barkin.
Sýnd kl. 5 og 7. Miðav. kr. 350.
BESTI VIIMUR MANNSIIMS
SPEIMNUMYND
Miðav. kr. 350
GEIMVERURNAR
GAMANMYND
Miðav. kr. 350
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Magnús Ólafsson stjórnarformaður Sölufélags A-Hún. afhendir
Braga Árnasyni slökkviliðsstjóra tankinn.
Brunavarnir A-Húnavatnssýslu
Fengu vatnstank að gjöf
Blönduósi.
SÖLUFÉLAG A-Húnvetninga gaf Brunavörnum A-Húnavatnssýslu á
dögunum 8.000 lítra tank úr ryðfríu stáli. Tanknum verður komið fyrir
á framdrifsbíl af M.A.N. gerð sem slökkviliðið hefur nýlega fest kaup á.
Þetta er liður í endurnýjun á tækja-
búnaði Brunavarna A-Hún. Á miðju
síðasta ári eignaðist siökkviliðið nýj-
an 180 hestafla slökkvibíl af gerð-
inni Ford Super Duty. Að sögn Braga
Árnasonar slökkviliðsstjóra á
Blönduósi var orðið tímabært að end-
urnýja tækin því fyrir í eigu slökkvi-
liðsins eru tveir rúmlega þtjátíu ára
gamlir bílar sem ná einungis 40-50
km/klst. hámarkshraða. Bragi gat
þess að þessir gömlu bílar yrðu um
2 klukkustundir á leiðinni ef eldsvoði
yrði í fjarlægasta hluta sýslunnar frá
Blönduósi þannig að með tilkomu
nýrrar slökkvibifreiðar og tankbíls
eykst máttur Brunavarna A-Húna-
vatnssýslu til mikilla muna.
Jón Sig
SÍMI: 19000
KRYDDLEGIN HJÖRTU
MAÐUR AN
ANDLITS
★ ★ ★ A.I. MBL.
Leikstjóri: Mel Gibson.
Sýnd kl. 4.50, 6.50, 9
og 11.10
„Gunniaugssons vag in i
barndomslandet ar
rakare án de flestas."
Elisabet Sörensen,
Svenska Dagbladet.
„Pojkdrömmar ar en
oerhört chármerande
och kánslig film som jag
tycker ár váldigt bra.“
Nils Peter Sundgren,
GomorgonTV
★ ★ ★ ★
íslenskt - já takk!
Sýnd kl. 5, 7,9og11.
„Þeir sem unna góðum ís-
lenskum myndum ættu
ekki að missa af Hinum
helgu véum. Bíógestur.
„Hrífandi, spennandi og
erótisk." ALÞÝÐUBL.
„..Óvenjuleg mynd frá
Hrafni. Yngstu leikararnir
fara á kostum. Hans besta
mynd til þessa, ef ekki
besta islenska kvikmynd
sem gerð hefur verið
seinni árin. MBL.
★ ★★y2„MÖST“
Pressan
Bruce Willis og Sarah Jessica Parker eiga í
höggi við útsmoginn og stórhættulegan fjölda-
morðingja sem leikur sér að lögreglunni eins
og köttur að mús.
STRIKING DISTANCE - 100 VOLTA SPENNUMYND
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Aðsóknarmesta erlenda myndin í USA frá upphafi.
„ Drífið ykkur. Þetta er hnoss-
gæti, sælgæti, fegurð, ást,
losti, iist, matarlyst, þolgæði
og snilld..."
„...Gerið það nú fyrir mig að
sjá þessa mynd og látið ykkur
líða vel...“
„...Fyrsta flokks verk, þetta
er lúxuskiassinn...11
„...Ef það er líf í bíó, þá er það
í hinum sláandi Kryddlegnu
hjörtum í Regnboganum."
★ ★ ★ hallar ífjórar,
Olafur Torfason, Rás 2.
★ ★ ★ ★
Hallur Helgason, Pressan.
★ ★ ★
Júlíus Kemp, Eintak
★ ★ ★
Hilmar Karlsson, D.V.
★ ★ ★ 1/2
Sæbjörn Valdimarsson, Mbi.
Þessi kvikmynd er “möst"
★ ★ ★ 1/2 B.J., Alþýðubl.
Aðalhlutverk: Marco Leonardi (Cinema Paradiso) og Lumi Cavazos.
Leikstjóri: Alfonso Arau.
Sýnd kl. 5,7, 9 og 11. •
Sti
HTfTATJAlilffi
PP'ng
Stórbrotin mynd um reggímeist-
arann Peter Tosh.
Sýnd kl. 9 og 11. Miðav. kr. 350.
PÍANÓ
Sigurvegari Cannes-hátíðarinn-
ar1993
„Píanó, fimm stjörnur af fjórum
mögulegum.1'
★ ★ ★ ★ ★ G.Ó. Pressan
Aðalhlutverk: Holiy Hunter, (Golden
Globe verðlaunin, besta aðalleik-
kona), Sam Neill og Harvey Keitel.
Sýnd kl. 4.50, 6.50,9 og 11.10.
★ ★ ★
A.I.Mbl.
★ ★ ★ ★
Fllm Revlew
★ ★ ★ ★
Screen Intemational
Rómantísk
gamanmynd
Aðalhlutv.
Matt Dillon,
Annabella Sciorra,
Marie-Louise Paker
og William Hurt
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
★ ★ ★
O.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 9 og 11.
Á árvaktinni
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Stjörnubíó og Laugarásbíó:
í kjölfar morðingja - Striking
Distance
Leikstjóri Rowdy Harrington.
Handrit Harrington og Martin
Kaplan. Kvikmyndatökusfjóri
Mac Álilberg. Aðalleikendur
Bruce Willis, Sarah Jessica
Parker, Dennis Farina, John
Mahoney, Tom Sizemore, Bri-
on James. Bandarísk. Columb-
ia Picture 1993.
Tom Hardy (Bruce Willis) er
af fimmta ættlið írskra lögreglu-
manna í stáliðnaðarborginni
Pittsburg. Tveimur árum áður
var faðir hans drepinn við skyldu-
störf og var Hardy þess fuliviss
að rangur maður hefði verið
ákærður fyrir verknaðinn -
morðingjann væri að finna innan
lögregluliðs borgarinnar. Fyrir
bragðið fékk hann flesta sam-
starfsmenn sína á móti sér og
var settur í löggæslu á ármótun-
um mikiu í borginni þar sem þau
mætast fljótin Monogna, Alleg-
hen og Ohio.
í upphafi myndarinnar er svo
annað morð framið og Hardy er
í engum vafa um að sami morð-
inginn sé aftur kominn á kreik.
Fórnarlömbunum, sem öll eru
gamlar vinkonur Hardys, fer
fjölgandi og Hardy veit að þau
snúa að honum persónulega en
engin ljær honum eyra, ekki einu
sinni nýi félagi hans á árvaktinni
(Sarah Jessica Parker).
Efnið er kunnuglegt, enn ein
sagan af ólánsömum lögreglu-
manni, eitiihörðum náunga sem
engin trúir og gerist brennivíns-
þambandi einfari. En Harrington
kann að keyra áfram myndir sem
þessar á fullum krafti frá upp-
hafi til enda. Það bjargar ófrum-
legum söguþræði og sviðið er
nýstárlegt. Harrington og kvik-
myndatökustjórinn Ahlberg nýta
sér umhverfi ármótanna til fulln-
ustu. Margar kappsiglinganna
eru, utan þess að vera ferskar
fyrir sjónum kvikmyndahús-
gesta, æsispennandi og afar vel
kvikmyndaðar og lýstar, en /kjöl-
far morðingja gerist að mestum
hluta eftir sólsetur. Willis er að
sjálfsögðu fæddur í hlutverkið og
ágætir aukaleikaranna þétta
myndina dável. Einkum John
Mahoney og Dennis Farina, en
báðir eru þeir prýðisleikarar sem
hafa haft furðu lítið umleikis í
gegnum tíðina. Brion James
hristir enn eitt fólið fram á sjón-
arsviðið, engin hörgull þar á slík-
um fénaði, en Parker er mélkisu-
leg í aðalkvenhlutverkinu. / kjöl-
far morðingja er fjarri því að
vera nokkur afburðamynd en
verður heldur aldrei leiðinleg,
útkoman vel gerð spennumynd
sem stendur undir þeirri skil-
greiningu. Að lokum vil ég óska
kvikmyndahúsgestum og
Stjörnubíói til hamingju með hina
afbragðsgóðu stóla sem nýbúið
er að setja upp. Þeir fá fjórar
stjörnur! Já, og íslenska heiti
myndarinnar sem er óvenju gott,
mitt í allri nafngiftalágkúrunni.