Morgunblaðið - 01.02.1994, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1994
Morgunblaðið/Júlíus
Bjargað úr höfninni
MJOG var af manninum dregið þegar lögreglan náði honum úr sjón-
um við Miðbakka.
Dreginn kaldur o g
þrekaður úr sjónum
MAÐUR féll í Reykjavíkurhöfn aðfaranótt sunnudags og var hann
mjög kaldur og þrekaður þegar lögreglunni tókst að draga hann
á þurrt. Hann var fluttur á slysadeild og varð ekki meint af volk-
inu. Maðurinn var mjög ölvaður.
Það var um kl. 1 um nóttina
sem lögreglu barst tilkynning um
að maður hefði farið í sjóinn við
Miðbakka, á móts við Tollvöruhús-
ið. Þegar lögreglan kom á vett-
HÓTEL
LEIFUR EIRÍKSSON
Skólavörðustíg 45
Reykjavík
sími 620800
Fax 620804
Hagkvæm gisting
í hjarta borgarinnar
Einst.herb.
kr. 2.900
Tveggja m. herb.
kr. 3.950
Þriggja m. herb.
kr. 4.950
Morgunverður innifalinn
Bæjarleiðir Taxi
Flugstöð Leifur Eiríksson
1-4 farþ. kr. 3.900 g
5-8 farþ. kr. 4.700 "
vang var bjarghring kastað til
mannsins. Lögreglumaður fór nið-
ur í stiga og náði taki á mannin-
um, sem þá var mjög dregið af
og skömmu síðar kom annar lög-
reglumaður til aðstoðar. Þeim
reyndist hins vegar ekki mögulegt
að draga manninn upp. Þá bar að
lögreglumann í flotbúningi og
stökk sá út í höfnina og hélt mann-
inum upp úr sjónum. Markúsar-
neti og bjarghring var kastað til
þeirra og þeir dregnir að dýpkun-
arpramma, þar sem tókst að ná
þeim upp.
Rænulítill
Maðurinn var rænulítill þegar
hann var dreginn upp úr sjónum.
Hann var fluttur með sjúkrabíl á
slysadeild, þar sem hann jafnaði
sig fljótlega að mestu. Hann
reyndist vera mjög ölvaður og gat
ekki gefið skýringu á því hvers
vegna hann fór í höfnina.
BÓKHALDSKERFI
|T] KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFEN111 - SÍMI 688055
® TÓÍILflKflP (?)
OUL ÁSKPIfTflPPÖÐ
Háskólabíói
fimmtudaginn 3. febrúar, kl. 20.00
Hljómsueitarstjóri: Petri Sakari
Einleikari: Eugene Sarbu
EfniSSKPfl
Bedrich Smetana: Moldá
Edouard Lalo: Symphonie Espagnole
Edward Elgar: Enigma tilbrigði
Miðasala á skrifstofu hljómsveitarinnar í Háskólabíói
alla virka daga kl. 9 - 17 og við innganginn
við upphaf tónleikanna.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Sími
622255 Hl|ómsveit allra
Sími
slendlnga 622255
Sumargleðin byrjar á fjölum Hótel íslands um næstu helgi
„Höfum svo rosalega
gaman af þessu sjálfiru
- segir Ragnar Bjamason forsprakki Sumargleðinnar frá upphafi
SUMARGLEÐIN skemmtir gestum Hótels íslands á næstunni. Sigga
Beinteins kemur fram með Sumargleðinni og leikur síðan ásamt
hljómsveit sinni fyrir dansi að skemmtun lokinni. Einhverjir meðlim-
ir Sumargleðinnar taka þá einnig lagið með hljómsveitinni. Gunnar
Þórðarson er hljómsveitarstjóri á skemmtuninni og Egill Eðvarðs-
son er leiksljóri. Sumargleðin hóf göngu sína 1971 og kom saman
á hverju sumri og fór um landið, alit til ársins 1986. Otal skemmti-
kraftar og hljómlistarmenn komu við sögu á ferli Sumargleðinnar
en Ragnar Bjarnason hélt utan um starfsemina allt frá byrjun. Nú
hefur hann kallað hópinn saman að nýju að beiðni Ólafs Laufdal
og verður fyrsta skemmtunin 5. febrúar nk.
„Upphaflega komu skemmtan-
imar þannig til að ég var að vinna
fyrir Sjálfstæðisflokkinn á svoköll-
uðum héraðsmótum með Svavari
Gests. Þar skemmtum við á milli
ræða og lékum svo fyrir dansleik
á eftir og gafst þetta vel. Þegar
Svavar hætti, tók ég við hljómsveit-
inni og þegar héraðsmótin voru
aflögð ákvað ég að halda áfram
með skemmtanir í þessum dúr,“
segir Ragnar Bjamason.
Otalmargir skemmtikraftar
„Otalmargir komu við sögu á
skemmtunum Sumargleðinnar,
sumir lengur, aðrir skemur. I
hljómsveitinni vóm Jón Sigurðsson,
Carl Möller, Stefán heitinn Jó-
hannsson, Eyþór Stefánsson, Rún-
ar Georgsson, Halldór Pálsson, Jón
Páll Bjamason, Viðar Alfreðsson,
Guðmundur Steingrímsson og Ámi
Elfar, svo einhveijir séu nefndir.
Skemmtikraftamir stoppuðu éinnig
mislengi. Ómar Ragnarsson var í
samstarfmu manna lengst, öll sum-
urin nema það síðasta, og Bessi
Bjarnason var með í ein tíu ár. Af
öðrum má nefna Karl heitinn Ein-
arsson eftirhermu, Magnús Ólafs-
son, Þorgeir Ástvaldsson, Þuríði
Sigurðardóttur og Hermann Gunn-
arsson. Aðrir fóra með eitt sumar
eins og t.d. Halli og Laddi, Diddú
og Erla Traustadóttir söngkona.
Við fómm út á land sumar eftir
sumar og skemmtanirnar urðu yfír
500 talsins sem er algjört met í
þessum bransa. Segja má að Sum-
argleðin hafi verið fastur liður í
tilverunni hjá fólki á þessu tíma-
bili. Sumir biðu t.d. með að fara í
sumarfríið þangað til eftir að Sum-
argleðin var búin að koma í pláss-
ið.“
Allt efni frumsamið
„Það var mikill söngur í þessu
og við vorum með allt efni fmms-
amið. Ómar bjó t.d. til mikið af
textum. Ég bjó til grind af dag-
skránni og svo unnum við þetta í
sameiningu. Við spiluðum bingó
þar sem bíll var í verðlaun, vorum
með alls konar uppákomur, get-
raunir, skemmtiþætti, grínþætti,
söng og músík og svo var gífurlegt
fjör á ballinu. Við vorum með eftir-
hermur, notuðum nöfn á fólki úr
plássunum og fengum fólkið til að
hjálpa okkur en það hafði mjög
gaman af því. Við vorum með
bamaskemmtanir á sunnudögum
og laugardögum og létum krakk-
ana taka mikinn þátt í þeim.
Ástæðurnar fyrir því hvað þetta
gekk lengi vora nokkrar. Við vorum
ekki popparar í þeim skilningi,
stóðum af okkur allar bylgjur í
músík og höfðuðum þess vegna til
allra aldurshópa. Svo skipti líka
miklu máli hvað við höfðum rosa-
lega gaman af þessu sjálfir. Við
hlóum mikið og tókum þetta aldrei
neitt voðalega alvarlega. Það er
ekkert minna hlegið á æfingum
núna heldur en var í gamla daga
þannig að þetta verður öragglga
ekkert síðra nú.“
Stemmningin rifjuð upp
„Ólafur Laufdal kom að máli við
okkur í vetur og spurði hvort við
væram tilbúnir til að setja Sumar-
gleðina upp aftur. Ég talaði við
strákana og þeir vora allir tilbúnir
og þess vegna var ákveðið að skella
sér í þetta. Þeir sem verða með
núna, fyrir utan mig, eru Bessi
Bjarnason, Hemmi Gunn, Magnús
Ólafsson,_ Ómar Ragnarsson og
Þorgeir Ástvaldsson. Síðan kemur
Sigga Beinteins inn í þetta líka
með hljómsveitina sína. Hún verður
í atriðum á skemmtuninni, syngur
t.d. með okkur dúetta, og síðan
ætlum við Sumargleðimenn að
syngja eitthvað á ballinu," segir
Ragnar.
Ragnar býður alla velkomna á
Sumargleðina og segir verðinu stillt
mjög í hóf. „Það verður gaman
fyrir þá kynslóð sem aldrei hefur
séð Sumargleðina, en hefur
kannski heyrt mömmu og pabba
tala um hana, að kíkja á þetta og
sjá hvernig þetta var. Svo er upp-
lagt fyrir hina að koma og rifja
upp stemmninguna," sagði Ragnar
Bjamason.
Morgunblaðið/Kristinn
SumargTeðin á æfingu
SUMARGLEÐIN á æfingu á Hótel íslandi fyrir nokkrum dögum. Frá vinstri: Magnús Ólafsson,
Ragnar Bjarnason, Hermann Gunnarsson, Bessi Bjarnason, Ómar Ragnarsson, Þorgeir Ástvalds-
son og Gunnar Þórðarson sem verður hljómsveitarstjóri á skemmtuninni.
íþróttafélagið Þór Akureyri liðsinnir atvinnulausum
Iþróttaaðstaða án endurgjalds
ÍÞRÓTTAFÉLAGIÐ Þór á Akureyri býður atvinnulausu fólki upp á
endurgjaldslaus afnot af íþróttaaðstöðu félagsins í Hamri, en með
því vilja þeir leggja sitt af mörkum til að liðsinna fólki sem býr við
atvinnuleysi.
Helgi Pálsson framkvæmdastjóri
Þórs sagði að í kjölfar mikils at-
vinnuleysis í bænum og umræðna
um það hefði kviknað sú hugmynd
að gefa atvinnulausu fólki kost á
að nýta sér líkamsræktaraðstöðu
þá sem er í félagsheimilinu Hamri.
Viljum liðsinna
„Við gerum okkur grein fyrir því
mikla böli sem atvinnuleysinu fylgir
og vildum gjarnan leggja okkar af
mörkum til að liðsinna því fólki sem
við það býr og því var ákveðið að
opna þá íþróttaaðstöðu sem við
höfum yfir að ráða og bjóða at-
vinnulausu fólki að nýta sér hana
endurgjaldslaust," sagði Helgi.
Iþróttaaðstaðan í Hamri verður
opin alla virka daga frá kl. 10 til
16 fyrir atvinnulaust fólk, en starf-
semin byrjaði síðastliðinn mánu-
dag, og verður leiðbeinandi á
staðnum fólki til halds og trausts.
„Við höfum kynnt þetta m.a. fyrir
forsvarsmönnum verkalýðsfélaga,
kirkjunnar mönnum og félags-
málastjóra Akureyrarbæjar og
fengið jákvæð viðbrögð við þessu
framlagi okkar, þannig að við
væntum þess að því verði vel tek-
ið,“ sagði Helgi. Þá var þetta tilboð
félagsins einnig kynnt á opnu húsi
fyrir fólk í atvinnuleit.