Morgunblaðið - 25.03.1994, Síða 1
88 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
70. tbl. 82. árg.
FOSTUDAGUR 25. MARZ 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Jeltsín fær-
ir Shokín
aukin völd
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, Rússiandsforseti,
jók í gær völd efnahagsmálaráð-
herra síns, Alexanders Shoklns,
og gerði hann að aðstoðarforsæt-
isráðherra. Shokín er hlynntur
umbótastefnunni og talinn hóf-
samur.
Viktor Tsjernomyrdín, forsætis-
ráðherra, sagði að Shokín myndi
fara með öll efnahagsmál en tiltók
ekki í hverju það fælist eða hversu
mikil völd honum yrðu fengin.
Shokín er 43 ára og félagi í flokki
Sergeis Sjakraís, Flokki sátta og
einingar. A blaðamannafundi Shok-
íns sagði hann að skipun hans í
embætti myndi að sjálfsögðu
styrkja baráttu umbótasinna. Yfir-
lýsingar hans þóttu þó benda til
þess að hann myndi ekki ganga
jafnlangt og forveri hans í embætti
efnahagsmálaráðherra, Jegor Gaíd-
ar.
Sjá: „Jeltsín forseti...“ á bls. 25.
--------*---------
Þing Bosníu-
Serba hafnar
sambandsríki
Pale í Bosníu. Reuter.
ÞING hins sjálfskipaða lýðveldis
Bosníu-Serba samþykkti í gær að
ganga ekki í nýstofnað sambands-
ríki múslima og Króata.Atkvæði
voru sanihijóða.
Sagði í yfirlýsingu þingsins að þar
sem það hefði nú þegar greitt at-
kvæði með sjálfstæðu serbnesku lýð-
veldi, gæti það ekki gengið í sam-
bandsríki.
í yfirlýsingunni var lögð áhersla
á að markmið ríkis Bosníu-Serba
væri að sameinast Serbíu. Þá sam-
þykkti þingið ennfremur að engar
frekari viðræður um vopnahlé í Bosn-
íu kæmu tii greina fýrr en viðskipta-
þvingunum yrði aflétt af Serbíu.
Reuter
Viðbúnaður við kóresku landamærin
BANDARISKIR hermenn í Suður-Kóreu, nærri landamærunum að norðurhlutanum, huga að vélbyssum
hersveitar sinnar. Viðbúnaður herja Bandaríkjamanna, N- og S-Kóreu hefur aukist beggja vegna víglín-
unnar að undanförnu.
Rússar vilja efna til alþjóðaráðstefnu um málefni Norður-Kóreu
Landsmönnum gert
að búa sig undir stríð
Baráttan gegn öfgamönnum í Alsír harðnar
Varalið hersins
kallað út að lilnta
Nikósía. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Alsír, sem eiga í óyfirlýstu stríði við íslamska öfga-
menn, hafa kallað út varalið hersins að hluta en talið er, að í því séu
um 150.000 manna. Hefur það ekki gerst áður og er litið á það sem
mjög örlagaríkt skref og viðurkenningu yfirvalda á því, að í landinu
ríkir neyðarástand.
Erlendir sendimenn segja, að
ákvörðun stjórnvalda sé í raun
stríðsyfirlýsing, sem geti þó reynst
mjög tvíeggjuð þar sem líklegt sé
að sumir varaliðanna séu á bandi
trúarofstækismannanna. Alsírstjórn
hefur mestar áhyggjur af upplausn
innan heraflans enda eru dæmi um
að ungum mönnum og fjölskyldum
þeirra sé hótað dauða sinni þeir
herkvaðningu.
Meira en 3.200 manns, hermenn,
trúarofstækismenn og óbreyttir
borgarar, hafa týnt lífi síðan í jan-
úar 1992 en þá aflýstu yfirvöid þing-
Seoul, Tókýó, Moskvu. Reuter.
YFIRVÖLD í Norður-Kóreu hafa skipað landsmönnum að búa sig
undir stríð að sögn dagblaða í Suður-Kóreu. Segja þau, að höfuðborg-
in, Pyongyang, sé myrkvuð að næturlagi og mikið sé þar um heræf-
ingar og annan viðbúnað. Þá hafi borgarbúum verið sagt að bera
með sér poka með sprengiefni, sem unnt er að gripa til í ófriði.
Rússar hafa lagt til, að efnt verði til alþjóðlegrar ráðstefnu um
Norður-Kóreu og deiluna um eftirlit með kjarnorkurannsóknastöðv-
um í landinu.
Suður-kóresk dagblöð hafa það
eftir kínverskum kaupsýslumanni,
að ástandið í Pyongyang minni helst
á stríð og hafi upplýsingum um
helstu skotmörk óvinanna verið
dreift meðal borgarbúa. Telji þeir
einnig fullvíst, að bijótist út styijöld
muni Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu,
verða eytt í eldi og Alþýðuherinn
n-kóreski vinna frækilegan sigur.
Norður-Kóreustjórn hefur lýst
yfir, að samþykki Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna refsiaðgerðir gegn
henni til að knýja á um eftirlit með
kjarnorkurannsóknastöðvum í land-
inu, muni hún líta á það sem beina
ögrun. William Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gær, að skynsamiegt væri að taka
þá yfírlýsingu alvarlega og auka
varnarviðbúnaðinn í Suður-Kóreu.
Kim Young-sam, forseti landsins,
kom í gær til Tókýó til viðræðna við
japanska ráðamenn um ástandið á
Kóreuskaga og mun fara þaðan til
Peking. Sagði hann við komuna, að
kæmu Norður-Kóreumenn sér upp
kjarnorkuvopnum, væri það ekki
aðeins ógnun við Suður-Kóreu, held-
ur öll nágrannaríkin.
Vítalíj Tsjúrkín, aðstoðarutanrík-
isráðherra Rússlands, sagði í
Moskvu í gær, að Rússar vildu efna
kosningum er ljóst var, að flokkur
öfgamanna myndi sigra. Franski
sagnfræðingurinn Benjamin Stora,
sem er sérfræðingur í alsírskum
málefnum, sagði í gær að Alsírmenn
skiptust í tvo hópa, sem hefðu gjör-
ólíka lífssýn, og útkall varaliðsins
yrði til _að auka enn á átökin milli
þeirra. Útkallið kemur á sama tíma
og miklar verðhækkanir á helstu
nauðsynjum, frá 14 og'upp í 100%,
en á þær er litið sem skilaboð til
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um að tek-
ið verði á efnahagsvandanum og
miklum niðurgreiðslum.
til alþjóðlegrar ráðstefnu um Norð-
ur-Kóreu og deilurnar um kjarnorku-
rannsóknastöðvarnar. Rússland,
Bandaríkin, Japan, Norður- og Suð-
ur-Kórea og Sameinuðu þjóðirnar
ættu meðal annars að eiga þar full-
trúa og þar ætti að ræða um leiðir
til að fjarlægja öll kjarnorkuvopn af
Kóreuskaga.
Fjölmiðlar
fordæma
rannsókná
Berlusconi
Róm. Reuter.
CARLO Azeglio Ciampi forsætis-
ráðherra rauf í gær þögn sína í
hinni hatrömmu kosningabaráttu
á Italíu til að vísa á bug árásum
auðjöfursins Silvios Beriusconis á
ríkisstjórn sína. Berlusconi setti
ásakanirnar fram í sjónvarps-
kappræðum við Achille Ochetto,
leiðtoga Lýðræðisflokks vinstri-
manna á miðvikudagskvöld en
þær þóttu afar illskeyttar. Þá hafa
Berlusconi og fjölmiðlar mótmælt
harðlega lögreglurannsókn sem
gerð var í höfuðstöðvum flokks
hans á miðvikudag.
Þingkosningar fara fram á Ítalíu
á sunnudag og mánudag. í sjón-
varpskappræðunum sakaði Berlusc-
oni vinstrimenn um að standa að
ódrengilegri og ólýðræðislegri kosn-
ingabaráttu. Brást Ochetto hinn
versti við og sagði Berlusconi reyna
að láta líta svo út sem andstæðingar
hans vildu honum illt. „Reyndu ekki
að leika fórnarlamb, því það erum
við, sem erum fórnarlömb," sagði
Ochetto. Þá fullyrti Berlusconi í
kappræðunum að fjármálaráðherr-
ann, Luigi Spaventa, hefði ekki gefið
upp réttar tölur þegar hann kynnti
íjárlagahalla ítalska ríkisins á þingi.
Því mótmælti Ciampi harðlega.
Saksóknari sem fyrirskipaði lög-
reglurannsóknina á höfuðstöðvum
Berlusconis gaf ekki upp ástæðu fyr-
ir henni en hann vinnur að rannsókn
á tengslum frímúrara við glæpasam-
tök. Lögreglumenn höfðu á brott
með sér lista yfir frambjóðendur
flokks Berlusconis. Fjölmiðlar mót-
mæltu harðlega aðgerðinni, sem þeir
sögðu óskammfeilin afskipti af
stjórnmálum. Sagði dagblaðið La
Repubblica sem gagnrýnt hefur Ber-
lusconi hvað ákafast, að slíka rann-
sókn ætti ekki að gera svo stuttu
fyrir kosningar nema grunur léki á
glæpsamlegu atferli. Aðgerð sak-
sóknarans gæti orðið til þess að
Berlusconi sópaði að sér atkvæðum.
Rcutei'
Sómalir undirrita friðarsáttmála
TVEIR helstu stríðsherrar Sómalíu undirrituðu í gær yftrlýsingu um
vopnahlé, sem ætlað er að binda enda á þriggja ára blóðsúthellingar
í landinu. Undirritunin fór fram í Nairobi í Kenýa. Á myndinni undirrit-
ar Ali Mahdi Mohamed friðarsáttmálann en fyrir aftan hann stendur
Mohamed Farah Aideed.