Morgunblaðið - 25.03.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.03.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 TVÍTUGUR Eskfirðingur var í fyrradag dæmdur í Héraðsdómi í 18 mánaða fangelsi fyrir að hafa ruðst inn á heimili fulltrúa sýslumanns á staðnum, ráðist á hann og slegið í kvið og andlit þannig að fulltrú- inn rifbeinsbrotnaði og varð fyrir alvarlegum innvortis áverkum sem gera þurfti að með bráðaaðgerð á Landspítalanum en þangað var maðurinn fluttur í skyndi smeð sjúkraflugvél. Vegna aðdraganda máls- ins og framkomu fulltrúans í orðaskiptum við árásarmanninn á hóteli í bænum fyrr um kvöldið hafnaði dómurinn því að refsa piltinum fyr- ir árás á opinberan starfsmann. Árásarmaðurinn og tveir félagar hans höfðu hitt sýslufulltrúann á hóteli á Eskifirði kvöidið fyrir árás- ina, sem var framin snemma morg- uns laugardaginn 8. janúar 1994. Mennimir höfðu ræðst við á hótelinu og verið undir áfengisáhrifum. Full- trúinn hafði m.a. áður farið með lög- reglumál sem tengdust piltinum og fengið til meðferðar ákæru á hendur honum. Gegn neitun sýslufulltrúans báru ákærði, félagar hans og fleiri vitni, að fulltrúinn hefði kallað ákærða dópista og sagst vera búinn Skáta- handbókin Skátahandbókin er EIN VANDAÐASTA BOK SEM KOMIÐ HEFUR UT um starf fyrir skata og annað UNGT FÓLK. Leiklist Hnútar SKyNDIH JALP Attaviti Utieldun Ferðamennska OG MARGT FLEIRA Tilvalin FERMINGARGJÖF 304 sí©uR ívðEin5 2.700 Fæst / Skátabúðinni og mörgum bókaverslunum að panta fyrir hann pláss á Litla- Hrauni. Síðar um nóttina knúðu ákærði, tveir félagar hans og stúlka dyra hjá sýslufulltrúanum. I niðurstöðum Amgríms ísbergs héraðsdómara segir að sannað sé að ákærði hafí í heimildarleysi ruðst inn á sýslufulltrúann og slegið hann í kviðinn með þeim afleiðingum að hann hiaut þá áverka að hann var nær dauða en lífí að mati læknis sem gerði að sárum hans. Vísað er til orðaskipta ákærða og fleiri við fulltrúann á hótelinu og seg- ir að sannað sé að þau orðaskipti hafí verið kveikjan að því að ákærði og félagar hans hringdu dyrabjöllunni hjá sýslufulltrúanum en ósannað sé að þá hafí vakað fyrir þeim að ráð- ast á manninn en þeir kváðust ein- ungis hafa ætlað að stríða honum. Þeir báru einnig gegn neitun fulltrú- ans að þegar hann kom til dyra hafi hann viðhaft ummæli við ákærða um Litla-Hraun og þau ummæli hafí ver- ið tilefni árásarinnar. Dómurinn telur sannað þrátt fyrir neitun fulltrúans með tilliti til orðaskipta mannanna á hótelinu að sýslufulltrúinn hafi látið þessi orð falla og að þau hafí orðið kveikjan að árásinni. Þá segir að fulltrúinn og flestir viðmælenda hans hafí verið undir áhrifum áfengis á hótelinu. „Það má öllum ljóst vera hversu óheppilegt það er að menn í þeirri stöðu ræði störf sín eða málefni þeim tengd við slíkar aðstæður, segir í dóminum og einnig að dómurinn geti því ekki fallist á að orðaskipti fulltrúans tengist starfi hans á þann hátt að það falli undir starf hans þannig að með árásinni hafí verið brotið gegn því ákvæði almennra hegningarlaga sem refsi sérstaklega fyrir árásir sem opinberir starfsmenn verði fyrir vegna starfa þeirra. „För ákærða og félaga hans heim til [fulltrúans] verður því ekki talin tengjast starfí hans sem opin- bers starfsmanns. Hér að framan var því slegið föstu að tiltekin ummæli [fulltrúans] um ákærða og Litla- Hraun hefðu verið kveikjan að árá- sinni. Þau voru heldur ekki í tengslum við starf [fulltrúans] sem fulltrúa sýslumanns og verður ákærði því sýknaður af því að hafa brotið gegn 106. grein almennra hegningarlaga," segir í dóminum og er þar vísað til fyrrgreinds ákvæðis hegningarlaga til verndar opinberum starfsmönnum en maðurinn hafði verið kærður fyrir að btjóta gegn því auk þess að ger- ast sekur um húsbrot á heimili mannsins og meiriháttar líkamsárás. ATRIÐI úr Gúmmíendur synda víst sem fræðir fólk um áfengisbölið. Gúmmíendur synda víst komið í skjól Áfengisvarnaráðs Sýnir þverskurð af drykkjusiðum landans FRÆÐSLULEIKHÚSIÐ sem stendur að leikþættinum Gúmmíendur synda víst eftir Eddu Björgvinsdóttur og Súsönnu Svavarsdóttur, hefur fengið aðstöðu hjá Áfengisvarnaráði undir starfsemi sína. Á skrifstofu ráðsins eru veittar upplýsingar um verkið og tekið við pöntunum. Leikþátturinn var frumsýndur í nóvember og hefur verið sýndur víða, alls í um þijátíu skipti. Skólamálaráð hefur nú gert samning við leikhóp- inn um að sýna verkið í öllum skólum, og auk þess verða tíu sýningar á verkinu á Akureyri um næstu helgi í tengslum við dagskrá í tilefni af ári fjölskyldunnar, og fjórar á Akranesi. Gúmmíendur synda víst var upp- haflega ætlað að taka mið af viðtals- bók Súsönnu Svavarsdóttur við eig- inkonur alkóhólista, og setja kafla úr reynslusögum þeirra í leikræna mynd. Edda leikstýrir verkinu og segir að upprunalega hugmyndin hafí gengist undir talsverðar breyt- ingar meðan á samningu verksins stóð. Sýningin sem áhorfendur beija augum sé að miklu leyti sjálfstæðari skáldskapur en stefnt var að. Boðskapur gegnum hlátur Verkið er um 25 mínútna langt og dregur upp níu myndir úr íslensk- um veruleika, sem endurspegla að sögn Eddu þverskurð af drykkjusið- um landans. „Við reynum að skoða alla þætti áfengisneyslu og um- gengni við áfengi og fletirnir á verk- inu eru fleiri en voru í bókinni. Ég vil ekki setia bað á sömu hillu og i//; qontdœtiu verk meistaranna, en leiðin er í anda Dario Fo sem byggist á því að inn- byrða boðskapinn í gegnum hlátur- inn. Hlátur er best til þess fallinn að brjóta niður varnarveggi fólks og koma því á framfæri sem höfundar hafa að segja á beittari og dýpri hátt en hægt er annars," segir Edda og kveðst sakna hérlenclis leikhúss sem hafi skoðanir, leikhúss sem þori að taka afstöðu og notfæra sér sterk meðul til að miðla afstöðunni. „Leik- húsin og leikhóparnir leggja áherslu á listrænu hliðina en þora ekki að æsa fólk gegn sér. List sem „stuðar“ er ekki til á íslandi, nema kannski í bókmenntum, þó að þetta sé leið sem mér þykir mjög vænleg til árangurs." Edda segir að Gúmmíend- ur synda víst og Áhorfandinn í aðal- hlutverki sem Fræðsluleikhúsið sýndi í fyrra í samvinnu við Þjóðleikhúsið, séu fyrstu vísar að því að draumur hennar um leikhús sem tekur afstöðu rætist. Drykkja í samhengi Gúmmíendur synda víst hefst á rauðvínskynningu þar sem maður nokkur heldur „skemmtilega hátíðar- ræðu,“ segir Edda. Persónunni fínnst mikill menningarauki að allri fjöl- breytni í áfengismálum íslendinga, og fagnaði m.a. jólaglöggi, bjór o.s.frv. „Vel getur verið að hann hafi lög að mæla, en við tökum ekki afstöðu til þess, heldur sýnum boð- skap hans í samhengi við næsta at- riði sem segir frá tveimur unglings- stelpum á leið á ball. Á því heimili hefur verið ákveðið að kaupa handa þeim vín til að þær þurfí ekki að sm'kja greiða fyrir utan Ríkið, og aftur setjum við ekki út á þá afstöðu foreldranna. heldur sýnum hana í samhengi. Næst lítum við inn til hjóna sem orðin eru sérfræðingar í að svívirða hvort annað og ryðja út úr sér óborganlega fyndnum fúkyrð- um í því sambandi. Þá komum við inn til lítilla barna sem segjast vera ósköp hrædd og skilja ekkert í þess- um látum, í sömu mund og foreldr- amir tala um að sem betur fer sé drykkjan ekki farin að bitna á böm- unum. Því næst kemur fjöruga parið á sjónarsviðið; engin vandamál á þeim bæ, bara eitt og eitt smáslys eins og framhjáhald og fóstureyðing. Og þannig heldur verkið áfram um víðan völl,“ segir Edda. í fyrstu lék Amar Jónsson karl- hlutverk sýningarinnar, en þar sem hann er kominn í ársfrí til Spánar hefur Jón St. Kristjánsson leyst hann af hólmi á móti Margréti Ákadóttur og Ragnheiði Tryggvadóttur. Fermingar á landsbyggð- inni, pálmasunnudag Metsölublad á hvetjum degi! 20 ára maður dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir árás á sýslufulltrúa á Eskifirði Ekkí refsað sérstaklega fyrir árás á opinberan starfsmann Ferming i Sauðárkrókskirkju kl. 10.30. Fermd verða: Birgir Óli Sigmundsson, Fellstúni 4. Birna Eiríksdóttir, Víðigrund 16. Gunnar Páll Ólafsson, Grenihlíð 28. Jón Marz Eiríksson, Hólatúni 9 Kristinn Tobías Björgvinsson, Brennihlíð 1. Kristrún Ósk Sigurðardóttir, Háuhlíð 8. María Ósk Sigurðardóttir, Háuhlíð 8. Pálmi Jónsson, Háuhlíð 12. Svavar Atli Birgisson, Dalatúni 4. Valberg Már Sveinsson, Víðimýri 8. Þuríður Óttarsdóttir, Aðalgötu 5. Ferming í Sauðárkrókskirkju kl. 14. Fermd verða: Auðunn Blöndal, Jöklatúni 5. Ásgrímur Örvar Jónsson, Fellstúni 15. Bríet Ama Jóhannesdóttir, Jöklatúni 10. Gígja Hrund Stefánsdóttir, Lerkihlíð 3. Hjördís Katla Jóhannesdóttir, Birkihlíð 6. Hrafnhildur S. Kristjánsdóttir, Brekkutúni 9. Hrafnhildur Viðarsdóttir, Hlíðarstíg 4. Ingi Örn Kristjánsson, Jöklatúni 1. Páll Ragnar Pálsson, Birkihlíð 17. Þorsteinn Rúnar Pálsson, Barmahlíð 2. Ferming í Bjarnaneskirkju kl. 14. Prestur sr. Baldur Kristjáns- son. Fermd verða: Arnbjörn Þórberg Kristjánsson, Bjamanesi 1. Ágúst Már Ágústsson, Hæðargarði 18. María Ema Jóhannesdóttir, Lækjarbrekku 2. Ragnar Sigrúnarson, Nesjaskóla. Rakel Ósk Heimisdóttir, Hæðargarði 1.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.