Morgunblaðið - 25.03.1994, Blaðsíða 51
51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 24. MARZ 1993
KORFUKNATTLEIKUR
Brown - Robinson: 1:0
Gíslason þjálfari meistaranna
- sagði Jón Kr.
Við vorum allt of staðir í sókn-
inni í fyrri hálfleik og vörnin
var í molum nema hvað Mike
[Brown] lék vel. í leikhléi ákváðum
við að breyta vörninni þannig að
hver sæi um sinn mann og mætti
ekki búast við hjálp frá öðrum.
Þetta gekk upp og okkur tókst að
stöðva Val og Teit sem höfðu leikið
mjög vel í fyrri hálfleik. Maður
kannaðist við Keflavíkurliðið í síð-
ari hálfleiknum," sagði Jón Kr.
Gíslason þjálfari og leikstjórnandi
ÍBK eftir sigurinn.
„Vörnin var ekki nógu góð í fyrri
hálfleik hjá okkur. Þeir komust allt
of mikið framhjá okkur maður á
mann nema Mike tókst að stöðva
Rondey. í seinni hálfleik var vörnin
fín hjá okkur," sagði Guðjón Skúla-
son fyrirliði ÍBK. „Þegar vörnin
gekk upp small sóknin líka og ég
held það sýni mikinn „karakter" að
ná að vinna Njarðvíkinga eftir
svo'na slæman fyrri hálfleik. Heima-
völlurinn hafði líka sitt að segja og
ég er viss um að næstu leikir verða
jafn spennandi og þessi. Þessi lið
gefa ekkert eftir,“ sagði Guðjón.
„Við lékum ekki nógu vel í fyrri
hálfleik, hvorki í sókn né vöm,“
sagði Mike Brown ánægður eftir
sinn fyrsta leik hér á landi. „Þetta
gekk allt miklu betur í síðari hálf-
leik og þetta var gríðarlega
skemmtilegt.“
Nú lékst þú mjög vel í vörninni,
ertu ánægður með þinn leik?
„Já, já. Körfuknattleikur snýst
um vamarleik og hvað sókninni við-
kemur þá var hún ekkert vanda-
mál,“ sagði kappinn og brosti enda
ekki nema tveir sólarhringar síðan
hann kom til Keflavíkur og því ekki
enn kominn inní leikkerfi liðsins.
„Þeir komu okkur á óvart með
breyttum varnarleik í síðari hálfleik
og það setti okkur út úr okkar leik-
kerfum. Við látum þá ekki koma
okkur á óvart á laugardaginn, það
er alveg á hreinu," sagði Njarðvík-
ingurinn Teitur Örlygsson eftir leik-
inn. „Ég verð að segja að mér
fannst Helgi [Bragason dómari]
alveg út úr heiminum í síðari hálf-
leik. Rondey var haldið allan tímann
og ekkert dæmt. Annars var þetta
okkur sjálfum að kenna. Þeir ýttu
okkur langt út á völl með sinni
vörn og langskotin gengu ekki hjá
okkur af þessu langa færi,“ sagði
Teitur.
11/19
10/18 3ja
25 Villur 22
—*----«---1—
1 Botta tapað 11
y ■w'—«■»»-■ ■■■— ....
5 Stoðsendingar 18
Skúli.Unnar
Sveinsson
skrifar
KEFLVÍKINGAR höfðu betur í
æsispennandi nágrannaslag í
gærkvöldi þegar þeir tóku á
móti Njarðvíkingum í fyrsta,
eða fyrri, leik liðanna í undan-
úrslitum úrvalsdeildarinnar i
körfuknattleik. Keflvíkingar
sýndu hvers þeir eru megnug-
ir, áttu á brattann að sækja í
fyrri hálfleik en tókst með
breyttri vörn og mikilli baráttu
að saxa á forskot UMFN og
sigra, 94:88.
Leikmenn virtust nokkuð tauga-
trektir fýrstu mínútumar því
það gekk hvorki né rak að koma
knettinum rétta
boðleið til að byija
með. En þegar menn
fóru að hitta þá
gekk það líka glatt.
Mikill hraði var í leiknum og sóknir
liðanna sjaldan lengri en 10-15 sek-
úndur. Njarðvíkingar höfðu undir-
tökin allan fyrri hálfleikinn og fór
Valur fyrir sínum mönnum, lék
meistaralega og gerði fyrstu 14
stigin fýrir UMFN.
Keflvíkingar voru steinsofandi í
vörninni og eins og myndastyttur í
sókninni þannig að Njarðvíkingar
þurftu í rauninni ekki að leika neina
meistaravöm til að gæta þeirra.
Þrátt fyrir að Njarðvíkingar væm
miklu betri í fyrri hálfleik munaði
ekki nema 11 stigum í leikhléi.
Teitur átti stórleik undir lok fyrri
hálfeiks þegar hann lét tvívegis
dæma ruðning á Böðvar Kristjáns-
son, ungan og lítt reyndan leikmann
IBK. Teitur gerði einnig mjög
glæsilega körfu á þessum tíma. Það
var furðuleg ráðstöfun hjá ÍBK að
láta ungan og óreyndan mann,
Böðvar, leika síðustu mínútur fyrri
hálfleiks, en hann sannaði á loka-
sekúndunum að hann kann ýmis-
legt, skoraði úr tveimur af þremur
vítaskotum eftir að brotið var á
honum í þriggja stiga skoti.
Breytt vöm ÍBK
Það var á keflvískum áhorfend-
um að heyra í leikhléi að 11 stig
væru ekki nægilega mikið fyrir
Njarðvíkinga, þrátt fyrir að gestim-
ir hefðu leikið miklu betur en heima-
menn. Sá er þetta skrifar var ekki
eins viss. En Keflvíkingar mættu
ákveðnir til leiks og breyttu vörn-
inni. Breytingin var ekki stórvægi-
leg, en næg til að slá Njarðvíkinga
út af laginu. Keflvíkingar hættu að
hjálpa hver öðrum og ákváðu að
hver og einn skyldi bera ábyrgð á
sínum manni. Við þetta efldist vam-
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
Margir biðu eftir einvígi Mike Browns og Rondeys Robinsons til vinstri og það má með sanni segja að Keflvíkingar
hafi unnið aftur í lottóinu, því Brown hafði betur í baráttunni við Rondey.
arleikurinn gríðarlega og Njarðvík-
ingar voru neyddir langt út fyrir
þriggja stiga línu þar sem þeir
reyndu talsvert af skotum án árang-
urs.
Smátt og smátt saxaðist á for-
skotið og þegar 8 mínútur voru
eftir var staðan 61:62. Þá tóku
skyttumar Guðjón og Kristinn til
sinna ráða og gerðu fimm þriggja
stiga körfur á stuttum tíma. Glæsi-
legar körfur þar sem þeir félagar
vora sjaldnast í nokkru jafnvægi,
en niður fór boltinn.
Á þessum kafla kom Kristinn
Guðlaugsson inná hjá ÍBK. Þrátt
fyrir ungan aldur stóð strákurinn
sig frábærlega vel. Lék vörnina af
festu og var óragur við að keyra
upp að körfunni og reyna skot.
Hann var mjög drífandi og hafði
góð áhrif á lið sitt.
Allt var nú í járnum; Keflvíking-
ar þó alltaf á undan. Á lokamínút-
unni reyndu Njarðvíkingar að btjóta
og treysta á að Keflvíkingar misnot-
uðu vítaköstin. Það gekk framan
af en undir lokin urðu gestimir að
reyna þriggja stiga skot sem mis-
heppnuðust og sigur heimamanna
var í höfn.
ÍBK vann aftur í lottóinu
Það biðu margir eftir einvígi
Mike Brown og Rondey Robinson
og það má með sanni segja að
Keflvíkingar hafi unnið aftur í lottó-
inu. Fyrri vinninginn fengu þeir
þegar Foster átti stórleik með liðinu
í bikarúrslitaleiknum og seinni vinn-
Kannaðist loks við
liðið í seinni hálfleik
inginn í gærkvöldi. Mike Brown
hafði betur í baráttunni við Rond-
ey, lék frábæra vöm og í fyrri hálf-
leik gerði Rondey aðeins eitt stig.
Raunar fékk Brown að halda dálít-
ið mikið í Rondey, en engu að síður
er þama á ferðinni frábær vamar-
maður, tók 17 varnarfráköst í leikn-
um. Sóknina lék hann skynsamlega.
Jón Kr. var varla hálfur maður en
hann náði þó að gefa 9 stoðsending-
ar. Kristinn og Guðjón vora „heitir"
á réttum tíma en annars lék allt
liðið ágætlega í síðari hálfleik.
Valur lék frábærlega framan af
hjá Njarðvíkingum og Teitur var
sterkur og það eru ekki margir hér
á landi sem beijast af eins miklum
krafti og hann. Jóhannes lék vel á
köflum og Kristinn var lengstum
sterkur í vörninni. Njarðvíkingar
geta nagað sig í handarbökin að
hafa ekki gert út um leikinn í fyrri
hálfleik. Þá höfðu þeir tækifæri til
þess, en nýttu ekki.
ÍÞRÓfllR
FOLK
■ DALE EIIis hjá San Antonio
Spurs varð fyrsti leikmaður NBA-
deildarinnar til að skora 1.000 stig
úr þriggja stiga skotum. Þessu af-
reki náði hann í leik gegn Sacra-
mento um helgina.
■ ANDERS Limpar var í gær
seldur frá Arsenal til Everton fyrir
1.6 millj. pund áður en frestur til
félagaskipta rann út. Svíinn var
mjög VÍnsæll hjá
Arsenal og stjórinn
Hennessy ^eorge Graham
ÍEnglandi saKðl hann emn
hæfileikaríkasta
mann, sem hann hefði haft, en engu
að síður hefur hann aðeins verið með
í_12 leikjum í vetur.
PETER Beagrie sá þá sæng
sína útbreidda og samþykkti að fara
frá Everton til Manehester City,
sem greiddi 1,1 millj. pund fyrir kant-
manninn.
EVERTON keypti einnig miðju-
manninn Joe Parkinson frá Bour-
nemouth fyrir 800.000 pund.
KEVIN Keegan, stjóri New-
castle, vakti athygli fyrir að greiða
2.7 millj. pund fyrir varnarmanninn
Darren Peacock hjá QPR. Hærri
upphæð hefur ekki verið greidd fyrir
vamarmann í Englandi og þetta er
hæsta upphæð, sem QPR hefur feng-
ið fyrir leikmann.
NEWCASTLE hefur ekki greitt
svo mikið fyrir leikmann, „en ef
menn vilja fá það besta þá kostar
það,“ sagði Keegan.
LIVERPOOL lánaði Stoke
Mark Walters út tímabilið og verður
hann í framlínunni með Þorvaldi
Örlygssyni.
“ CLIVE Allen fór frá West Ham
til Millwall fyrir 75.000 pund og er
Millwall sjöunda félagið í London,
sem hann leikur fyrir.
H ELVIS Stojko frá Kanada átti
hug og hjörtu áhorfenda sem dómara
í listhlaupi á skautum á HM í gær
og sigraði eins og við var búist.
Frakkinn Philippe Candeloro var
í öðra sæti og Viacheslav Zagorod-
niuk frá Ukraínu í þriðja, en ólymp-
íumeistarinn Alexei Urmanov frá
Rússlandi varð að sætta sig við
fjórða sætið.
ÚRSLIT
ÍBK: UMFIM 94:88
íþróttahúsið í Keflavík, úrvalsdeildin í
körfuknattleik, fyrsti leikur i undanúrslit-
um, fimmtudaginn 24. mars 1994.
Gangur leiksins: 0:2, 0:5, 9:18, 20:29,
28:38, 31:45, 36:45, 36:49, 40:52, 50:60,
58:62 64:64, 73:72, 82:80, 90:83, 94:88.
Stig IBK: Kristinn Friðriksson 25, Guðjón
Skúlason 22, Albert Óskarsson 14, Mike
Brown 12, Brynjar Harðason 8, Sigurður
Ingimundarson 7, Kristinn Guðlaugson 4,
Böðvar Þ. Kristjánsson 2.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 32, Teit-
ur Órlygsson 19, Jóhannes Kristbjörnsson
18, Rondey Robinson 12, Rúnar Ámason
5, Friðrik Ragnarsson 2.
Dómarar: Helgi Bragason og Leifur Garða-
son. Dæmdu mjög vel í fyrri hálfleik en
talsvert slakari í þeim stðari.
Áhorfendur: Um 900.
Þór-ÍR.....................105:82
Iþróttahöllin á Akureyri, fyrsti leikur af
tveimur eða þremur um sæti í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik, fimmtudaginn 24.
marz 1994.
Gangur leiksins: 2:0, 14:2, 24:6, 36:16,
44:30, 52:36, 54:44, 57:48, 64:50, 72:58,
76:67, 84:69, 93:77, 105:82.
Stig Þórs: Sandy Anderson 35, Einar Val-
bergsson 15, Konráð Óskarsson 10, Bjöm
Sveinsson 10, Hafsteinn Lúðvíksson 9, Birg-
ir Ö. Birgisson 8, Helgi Jóhannesson 8,
Birgir Guðfmnsson 7, Arnsteinn Jóhannes-
son 3.
Stig ÍR: Chris Brandt 37, Broddi Sigurðs-
son 13, Halldór Kristmannsson 11, Hilmar
Gunnarsson 7, Bragi Reynisson 6, Eiríkur
Önundarson 4, Márus Amarsson 2, Gunnar
Örn Þorsteinsson 2.
■Þórsarar sigruðu mjög sannfærandi f
þessum fyrsta úrslitaleik liðanna um sæti
í úrvalsdeildinni. Þeir vora aðeins fremri á
öllum sviðum og spumingin var í raun að-
eins hvað stór sigurinn yrði. ÍR-ingar eiga
samt hrós skilið fyrir að gefast aldrei upp
og þrisvar náðu þeir að minnka muninn í
minna en 10 stig. Sandy Anderson spilaði
frábærlega fyrir Þór, skoraði grimmt og
hirti aragrúa frákasta. Chris Brandt var
bestur ÍR-inga, lék mjög vel og var hittinn.
Liðin mætast aftur á morgun, en tvo sigra
þarf til að tryggja sætið í úrvalsdeild.
Pálmi Óskarsson.