Morgunblaðið - 25.03.1994, Page 7

Morgunblaðið - 25.03.1994, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 7 Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Til Rússlands Tíu ferðarafeindavogir á leið til Rússlands. Sjávarútvegsráðuneytið í Múrmansk mun sjá um að dreifa þeim í rússnesk rannsóknaskip. Póls-rafeindavörur seldar til Rússlands ísafirði. PÓLS-rafeindavörur á ísafirði eru þessa dagana að senda tíu ferða- skipavogir til rússnesku hafrannsóknastofnunarinnar í Múrmansk. Stöðug sala er á stórum flæðilínum til Noregs og ekki hefst undan við að framleiða hefðbundnar skipavogir, að sögn forráðamanna fyrirtæk- isins. Fólki hefur verið að fjölga þetta árið hjá fyrirtækinu, en nú starfa þar 16 manns. Þá er óráðið í fjögur störf stálsmiða, en þeir hafa ekki fengist fyrir vestan. Útflutningur jókst um 144% á síðasta ári, en á sama tíma dróst innanlandsmark- aðurinn saman um 37%. Að sögn forráðamanna fyrirtækisins var hagnaðurinn á síðasta ári viðunandi. Flæðilínur til Noregs Starfsmaður fyrirtækisins er ný- kominn frá Noregi þar sem hann var við uppsetningu á stórri flæðilínu fyrir saltfiskverkun. Önnur slík er að fara núna um páskana og sú þriðja strax og hún verður fulibúin. Nú er unnið að fullu í samstarfi við fyrir- tækið Formax í Reykjavík að fram- leiða vinnslulínur í frystitogarann Sigli frá Siglufirði. Vogirnar tíu sem eru að fara tii Rússlands eru léttar og færanlegar og ætlaðar til nákvæmrar viktunar við fiskirannsóknir. Þær vega á bilinu frá 1 grammi að 1,5 kg, við velting og aðra hreyfingu skipsins. Að sögn framleiðandanna hafa þessar vogir verið notaðar með góðum árangri við fiskirannsóknir í Noregi, en Rúss- arnir keyptu þær að undangenginni rannsókn á þeim vogum sem eru á markaðnum. Úlfar Tónlistarmenn fá ekki greitt samkvæmt samningum fyrir flutning í sjónvarpi Misjafnt eftir deildum Ríkisútvarpsins hvern- ig samningum er fylgt FELAG íslenskra hljóinlistarmanna, FÍH, segir að félagsmenn sínir hafi fengið of lítið greitt fyrir að koma fram í útvarpi og sjónvarpi miðað við samninga sem í gildi eru fyrir flyljendur tónlistar. Björn Árnason, formaður FÍH, segir að verið sé að gera átak í því að þeir sem noti slíkt efni borgi fyrir það, en misbrestur hafi orðið á því, sér- staklega hjá Sjónvarpinu. Hörður Vilhjálmsson, framkvæmdasljóri fjár- málasviðs Ríkisútvarpsins, segir að misjafnt sé eftir deildum stofnunar- innar hvernig tónlistarmönnum sé greitt fyrir flutning tónlistar, ágrein- ingur sé mestur vegna flutnings í sjónvarpi. Aðilar deilunnar funda nú um þessi mál og segir Hörður vonast til að hún leysist fljótlega. Björn segir að hljóðfæraleikarar séu orðnir áfskaplega þreyttir á því að samningsréttur þeirra sé ekki virt- ur. í gildi séu launasamningar milli FÍH og Ríkisútvarpsins þar sem tek- ið er fram hvað eigi að borga fyrir það þegar hljómlistarmenn koma fram í útvarpi. „Menn hafa fengið borgað," segir Björn, „en allt of lágar upphæðir miðað við okkar samninga." Samn- ingarnir byggjast á útsendingartíma og fá menn greidda ákveðna upphæð fyrir hann, segir hann, og á meðan á upptöku stendur fá menn greitt tímakaup. Sem dæmi má nefna að fimm manna hljómsveit sem flytti þriggja mínútna lag í beinni útsendingu í sjónvarpi ætti að fá rúmar 100 þús- und krónur fyrir, samkvæmt samn- ingum, eða rúmlega 20 þúsund á mann. Hann segir að á sumum deildum Ríkisútvarpsins hefur verið greitt samkvæmt samningum og menn hafí reynt að komast hjá því og þá sérstaklega á Sjónvarpinu. Verktakagreiðslur algengar Hörður segir að tónlistarmenn hafi fengið mjög misjafnlega greitt fyrir flutning iags og talsverður hóp- ur þeirra hafi fengið greitt sem verk- takar. Að hans mati eigi þó samning- ar við FÍH að vera launasamningar áfram, ekki verktakasamningar. Björn segir að menn fái mun lægra greitt sem verktakar og sumir hafi fengið einungis 5.000 krónur á mann fyrir að koma fram. „Við viljum meina að við séum dagskrárefni sem fólk er búið að borga fyrir með sinni áskrift að þess- um fjölmiðlum," segir Björn. Hettupeysur Verð kr. 4.960,- 5% staðgreiðsluafsláttur, einnig af póstkröfum greiddum innan 7 daga. mmúTiLíFPmm GUESIBÆ • SÍMI812922 Aðstoðarforstj óri Olís um skýrslu LÍÚ um olíuverslun hérlendis Otal atriði vantar í skýrslu Lands- sambands íslenskra útvegsmanna HÖRÐUR Helgason, aðstoðarforstjóri Olís, segir að ótal atriði vanti í skýrslu sem Landssamband islenskra útvegsmanna lét gera um olíuverslun hér á landi. Geir Magnússon, forsljóri Olíufélagsins, Esso, vildi ekki segja neitt um skýrsluna að svo stöddu, en sagði að hugsanlega fengju þeir annað verkfræðifyrirtæki til að gera út- tekt á sinni hlið málsins. Hörður Helgason segir að skýrsluhöfundar gefi sér alls konar forsendur sem ekki séu raunhæfar. Til dæmis sé gert ráð fyrir að eitt olíufélag með fimm birgðastöðvum þjónaði öllum fiskiskipaflotanum, ekki sé gert ráð fyrir ýmsum teg- undum svartolíu og gasolíu sem verður að bjóða upp á og forsend- urnar geri ekki ráð fyrir kostnaði sem útgerðin yrði fyrir við að sigla lengri vegalengd til að ná í olíu. Einnig sé ekkert athugað hvað yrði um þau félög sem fyrir eru. Skýrslan gagnrýni á stjórnvöld í skýrslunni, sem unnin er af verkfræðistofunni VSÓ-Iðnmark, er niðurstaðan sú að olíureikningur útgerðarinnar geti lækkað um 650 milljónir á ári, ef byggt yrði upp nýtt olíudreifingarkerfi og flutt inn ein tegund olíu í stórum förmum til fiskiskipaflotans. Hörður segist líta svo á að skýrsl- an sé gagnrýni á stjórnvöld og verð- jöfnunarsjóðinn sem skyldi olíufé- lögin til að seija olíu til sömu nota á sama verði um land allt. Hann segir að ef verðjöfnunarsjóður yrði afnuminn mætti búast við því að olíuverð til stórra notenda lækkaði. Árgerö '94 af SONATA er gjörbreyttur. Nýr bíll, nýtt útlit og glæsilegri og öflugri en áöur. Bfllinn er búinn 2.0 lítra, 139 hestafla vél sem skilar góðri snerpu. SONATA er með vökva- og veltistýri, rafdrifnum rúöum og útispeglum, samlæsingu og styrktarbitum í hurðum. Aö auki eru vönduö hljómflutningstæki með 4 hátölurum. 3ja ára ábyrgö og 6 ára ryðvarnarábyrgð. Komið og setjist undir stýri þessa glæsilega bfls, þá finniö þið það sem við erum að tala uml Verð frá 1.598.000 kr. 1954 - 1994 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36 HYunoni ...tilframtíðar SONATA þolir aílan samanburð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.