Morgunblaðið - 25.03.1994, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 25.03.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994 13 „Varnarsigurinn^ í deilunni um sjómannaafsláttinn Sjómenn fá hærri sjómannaaf- slátt eftir breytingamar 1992 Markvissari reglur, meiri skilvirkni og sérstaða sjómanna varin eftir Árna Johnsen Nú liggur það fyrir svart á hvítu samkvæmt niðurstöðutölum úr fjármálaráðuneytinu að breyting- arnar sem gerðar voru á reglum um sjómannaafsláttinn í harðri rimmu á Alþingi haustið 1992 leiddu til þess að sjómannaafslátt- urinn hefur hækkað hjá sjómönn- um, öfugt við það sem stefnt var að hjá ráðuneytinu. Þessi hækkun kemur til fyrst og fremst vegna þess að nýjú reglurnar skila betur réttinum á afslættinum til sjó- manna, því þótt búið sé að vinsa úr hundruð manna, sem höfðu fengið sjómannaafslátt án eðlilegs réttar, þá hefur heildartalan í út- borguðum sjómannaafslætti ekki lækkað. Við vorum nokkrir stjórnarþing- menn sem börðumst af alefli gegn því að hreyft yrði við þessum hlunn- indum sjómanna og kjörum en frek- ar en að láta keyra yfir okkur, eins og afl virtist til hjá meirihluta Al- þingis, þá sömdum við um ákveðn- ar breytingar innan stjórnarflokk- anna, m.a. til þess að láta aðeins sjómenn njóta þessa réttar, en hundruð dæmi voru um það að sannanlegir landkrabbar nytu sjó- mannaafsláttar í ríkum mæli. Þannig stóðum við vörð um sér- stöðu sjómanna og eyddum tor- tryggni vegna misnotkunar á sjó- mannaafslætti. Eg hef orðið var við það að margir sjómenn hafa ekki áttað sig á því að sjómenn hafa haldið öllum rétti sínum og gott betur, því skil- virknin er betri. Ég hef líka heyrt suma sjómenn halda því fram að þeirra réttur hafi klárlega verið skertur, en þeir hafa einfaldlega ekki kynnt sér niðurstöður málsins og fullt samræmi er nú milli sjó- sóknar og sjómannaafsláttar. Ég orðaði það svo þegar þessum slag lauk í þinginu rétt fyrir jólin 1992 með því að Davíð Oddsson forsætisráðherra tók af skarið, með vilja okkar sem vörðum sérstaklega sjómenn, að það hefði unnist „varnarsigur fyrir sjómenn“ í mál- inu. Margir tortryggðu það, að nú er komin reynsla á heilt ár og niður- staðan Ijós, sjómenn hafa meira út úr sjómannaafslættinum en áður. Við þingmenn, sem börðumst fyrir sjómannaafslættinum og ber- um ef til vill fremur hag sjómanna fyrir btjósti en ýmsir aðrir, fengum bágt fyrir baráttu okkar í ræðu og riti. Nú getum við glaðst yfir því að áhættan sem við tókum skilaði árangri. Fjármálaráðuneytið stefndi að því með breytingum á sjómannaaf- slættinum að lækka hanr. úr liðlega 1.500 milljónum króna í um 1.000 milljónir króna en því er ekki að neita að um árabil hafa verið hug- myndir um það hjá ráðuneytis- mönnum og ýmsum stjórnmála- mönnum að leggja þennan afslátt niður, en hann nemur liðlega 600 kr. á dag á sjómann. Eftir harðvít- ug átök um málið haustið 1992 töldum við talsmenn sjómanna í málinu að því væri borgið með niðurstöðunni sem náðist fram, en ráðuneytismenn gerðu sér vonir um að það næðist a.m.k. 200 millj. kr. sparnaður á ári með nýju reglunum. Vonir þeirra gengu ekki eftir. Sjó- menn fá nú meira út úr sjó- mannaafslættinum en fyrir breyt- ingarnar. Með nýju reglunum fækkaði þeim sem fengu sjómanna- afslátt greiddan um 500 talsins, eða úr 9.600 einstaklingum 1992 í rétt liðlega 9.000 árið 1993. Árinu er skipt í tvö tímabil og á fyrri hluta ársins 1993 fækkaði þeim sem nutu sjómannaafsláttar úr 9.600 í rétt liðlega 9.000 og á seinni hluta ársins úr 9.400 í rétt liðlega 9.000 þannig að meðaltalið er um 500 sjómenn. Samt sem áður er niðurstöðutalan frá 1992 og 1993 í útborguðum sjómannaafslætti nánast óbreytt, eða 1 milljarður og 560 milljónir árið 1992 og 1 millj- arður og 550 milljónir árið 1993. Á árinu 1992 var greiddur sjó- mannaafsláttur fyrir 2 milljónir og 358 þúsund daga, en á árinu 1993 var greitt fyrir 2 milljónir og 322 „Á árinu 1992 var greiddur sjómannaaf- sláttur fyrir 2 milljónir og 358 þúsund daga, en á árinu 1993 var greitt fyrir 2 milljónir og 322 þúsund daga.“ þúsund daga. Niðurstaðan er því einföld. Hlutfallið til sjómanna hef- ur hækkað miðað við heildartöluna og þann fjölda sem nýtur afsláttar- ins. Út úr þessum slag kom enginn sparnaður, en hreinna og skilvirk- ara kerfi fyrir sjómenn, því afslátt- urinn á eingöngu að vera fyrir þá sem stíga ölduna í starfi sínu. Ég ætla ekki að fjalla hér um rökin fyrir sjómannaafslættinum, en þau eru óbreytt og óhrekjanleg á vettvangi mannréttinda- og kjaramála sjómanna, þótt það sé á hinn bóginn enn mikið áhyggjuefni hve kjör fiskverkafólks eru skamm- arleg í okkar landi, en það er ann- að mál. Rík ástæða er til að óska sjómönnum til hamingju með niður- stöðuna. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurlandskjördæmi. Árni Johnsen FLUG & BILL MEÐ OPEL V VECTRA CORSA ASTRA Nú bjóðum við með hverjum nýjum Opel bíl sem pantaður er íyrir páskahátíðina ferð íyrir tvo með Flugleiðum til einnar af heimsborgum Evrópu, Amsterdam^Kaupmannahafnar eða Hamborgar. Verðið á Opel bílunum er jafn hagstætt og það var áður. Henti þér ekki að fá sumarleyfisferð í kaupbæti með nýjum bíl hafa sölumenn okkar aðra spennandi páskapakka að bjóða þér. OPEL - ÞÝSK GÆÐI Á GÓÐU VERÐI. Opið mánudaga - föstudaga 9-18 laugardag 12-17 sunnudag 14-17 BÍLHEIMAR Fosshálsi 1 Reykjavík Sími 634000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.