Morgunblaðið - 25.03.1994, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. MARZ 1994
17
Dæmdir fyrir að
ætla að veiða rjúpu
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands
hefur dæmt feðga af Akranesi
fyrir að æt!a til fuglaveiða í
Geitlandi í Borgarfirði, sem er
friðland. Ákvörðun um refsingu
mannanna var frestað og fellur
refsing niður haldi þeir skilorð
I 2 ár.
Brotið sem mönnunum var
refsað fyrir var framið í október
1992. Mennirnir ætluðu að ganga
til ijúpna í Hafrafelli og höfðu
að engu ábendingar bónda og
veiðieftirlitsmanns sem þeir hittu
á leið sinni. Hafði hann tjáð þeim
að Hafrafell væri hluti af Geit-
landi, sem væri friðlýst svæði í
eigu Hálsa- og Reykholtshreppa
og skotveiðar væru bannaðar en
heimilt væri að veita ákveðnar
undanþágur til heimamanna. Eft-
irlitsmaðurinn tjáði mönnunum að
hann mundi tilkynna lögreglu um
ferðir þeirra og kom lögregla á
staðinn.
Þá höfðu mennirnir ekki skot-
ið á fugla, en gengið með byssu
í átt að Hafrafelli og snúið við
vegna veðurs. Lögregla ritaði
kæru, málið var tekið til rannsókn-
ar og síðan dómsmeðferðar sam-
kvæmt ákæru sýslumannsins í
Borgamesi.
Náðu ekki að skjóta fugl
í niðurstöðum Inga Tryggva-
sonar dómarafulltrúa, sem dæmdi
í málinu, segir að mennirnir hafí
játað að ætla á ijúpnaveiðar á
svæðinu og þótt þeir hafí ekki náð
að skjóta fugl verði þeim refsað
fyrir tilraun til brots á lögum um
fuglaveiðar og fuglafriðun þar sem
fyrir liggi að Geitland sé landar-
eign í eigu Hálsa- og Reykholts-
hrepps. Hafnað var mótbárum um
að takmarkanir væru á eignarrétti
sveitarfélaganna yfir Geitlandinu,
sem væriafréttur. Því hafí sveitar-
félögin verið til þess bær að ákveða
hveijum væri heimilt að stunda
fuglaveiðar á svæðinu og auglýst
bannið m.a. með áberandi skiltum
sem blöstu við áður en komið var
á landsvæðið og ráðið eftirlits-
mann til að framfylgja banninu.
Dómarinn taldi hæfílegt að
fresta ákvörðun refsingar fýrir
brot mannanna og verður þeim
ekki gerð refsing haldi þeir al-
mennt skilorð í 2 ár.
Innilegt þakklœti sendi ég öllum þeim, sem
glöddu mig og heimsóttu á 90 ára afmœli
mínu þann 8. mars sl.
Skeyti og gjafirnar þakka ég af alhug, en ekki
síst vináttu og drengskap, sem þiÖ hafið sýnt
mér á undanförnum áratugum.
Benedikt Kristjánsson
fráÁlfsnesi.
Rómantík, söngur,
grfn oggleði
fyrii' (h)eldri borgara!
Hótel Saga slær upp ljúfri kvöldskemmtun fyrir (h)eldri borgara
í Atthagasalnum, sunnudagskvöldið 27. mars kl. 20. 00.
Glæsilegur matseðiU:
Rjómalöguð sveppasúpa bætt sérríi |
Lambahryggur gljáóur með rabarbarakompott |
Möndlukarfa fyllt ávöxtum, framreidd, með 2
súkkulaðigóðgæti
Fjörug skenuntidagskrá:
Jónas Þórir leikur „dinnermúsik“
Jóhannes Kristjánsson gerir grín að öllu og öllum
Módehamtökin sýna nýjustu vortískuna
Danssýning á vegum Dansskóla Hermanns Ragnars
Hljómsveitin Þöll leikurfyrir dansi til kl. 01.00
Veislustjóri er Hermann Ragnar Stefánsson.
Miðaverð með mat er 2.700 kr.
Borðapantanir í síma (91) 29900
HÓTELSAGA
Athugið ab sérstakt tilboósveró er ágistingu hótelsins fyrir félagsmenn eldri borgara á landsbyggóinni.
Þá ættir þú að kíkja til okkar og skoða urvaiiðl
Vantar þig ekki bíl
fyrir páska!
Chrysler Saratoga V6 árg.
1991, ek. 51 þús., m/öllu.
Verð kr. 1.580.000.
Renault 19 TXE árg. 1991, ek.
42 þús., einn eigandi, fjarst.
samlæs., rafmrúður.
Verð kr. 920.000.
Daihatsu Cuore árg. 1986,
ek. aðeins56þús.
Verð kr. 220.000.
Jeep Cherokee Laredo árg.
1990, ek. 67 þús., hlaðinn auka-
hlutum, 31" dekk, álfelgur.
Verð kr. 1.990.000.
Renault Nevada 4x4 árg.
1991, ek. 40 þús., fjarst.
samlæs. o.fl. Verð kr. 1.300.000
- Einnig árg. 1992.
Oldsmobile Calais árg. 1985,
ek. 70 þús., ekta amerískur.
Verð kr. 650.000.
-Tilboð kr. 490.000.
MMC Coltárg. 1988, ek. 80
þús. Verð kr. 530.000.
-Tilboð kr. 420.000.
Toyota Tercel 4x4 árg. 1986,
ek. 163 þús. Verð kr. 450.000
-Tilboðkr. 360.000
BMW 316 árg. 1988, ek. aðeins
31 þús. Verð kr. 920.000.
-Tilboð kr. 790.000.
Bílaumboðið hf. Bílasalan, Krókhálsi.
Beinn sími i söludeild notaðra bíla er 676833. Opið: virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16.
TILB0ÐSLISTI ÁRGERÐ STGR- VERÐ TILBOÐS- VERÐ
Renault 11A 1988 450.000 360.000
Daihatsu Charade 1990 650.000 590.000
Lada Sport 1989 400.000 330.000
BMW 323i 1985 700.000 550.000
BMW 325i 1987 1.150.000 900.000
MMC L-300 4x4 Minibus 1988 1.150.000 980.000
Ford Ranger 4x4 1987 850.000 690.000
Citroen Axel 1986 90.000 25.000
Lada Station 1991 410.000 310.000
Renault Express 1990 610.000 550.000
Suzuki Swift GA 1988 310.000 250.000
MMC Galant GLS 1987 640.000 490.000
Skuldabréf tii ailt að 36 mánaöa