Morgunblaðið - 25.03.1994, Side 37

Morgunblaðið - 25.03.1994, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 25. MARZ 1994 37 Minning Sigríður Guðborg Lárusdóttir Fædd 14. október 1922 Dáin 13. mars 1994 Mig langar að minnast hennar ömmu minnar með örfáum orðum fyrir hönd okkar systkinanna. Eg man eftir mér fyrst í pössun hjá ömmu, þar sem að hún var að vinna við að sauma og ég fékk að leika mér að töluboxinu hennar og þræða tölur á band. Ég fór snemma að fara vestur í dali með ömmu á bílnum hennar „Litlu gulu hænunni". Á leiðinni sungum við og trölluðum alla söngva sem við kunnum, og gott betur. Eitt sumarið tók hún mig Minning með sér í „Jógadalinn“ þar sem við tíndum grös, borðuðum hris- grjón og drukkum fjallate. Það var okkur systkinunum mikið tilhlökk- unarefni að fá að fara til Diddu ömmu og gista. Við fórum í felu- leiki, púsluðum og hún las sögur fyrir okkur. Á kvöldin fengum við alltaf ís. Hin seinni ár hefur ekki verið eins mikill samgangur á milli okkar, ég búin að stofna mína eig- in íjölskyldu, amma búin að kaupa sér þessa fínu íbúð í húsi fyrir aldr- aða, hætt að vinna og farin að spila brids af fullum krafti með vinkonum sínum. Hún var byrjuð aftur í jóga, farin að læra meira í ensku og lifa lífinu. Þá kemur kall- ið, svo óvænt og skyndilega og ekkert okkar viðbúið því. Elsku amma mín, við trúum því að eitthvað mikilvægara bíði þín þar sem þú ert nú. Við sem eftir sitjum hefðum viljað njóta þin leng- ur, en fáum í staðrnn að eiga allar þessar góðu minningar um þig, þökk sé þér. Hvíl þú í friði. Draumur Mig bar í draumi burt frá móður jörð og barst um loftsins straum um vegi nýja, brostið var allt, sem batt við dal og fjörð blómailm eg greindi og veröld hlýja. Hve sæl ég var og söng um þessa dýrð að svífa um og vera ekki í böndum sú unaðskennd hún verður varla skýrð Ég var í himins sólardrauma löndum. (Guðríður Brynjólfsdóttir) Lára Björnsdóttir, Kjartan Gísli Björnsson, Pétur Ingj Björnsson. Stretsbuxur kr. 2.900 Mikift úrval af allskonar buxum Opid ó laugardögum kl. 11-16 I i 12, sími 44433. Þú svalar lestrarþörf dagsins Thor Jón Petersen Fæddur 24. febrúar 1945 Dáinn 17. mars 1994 Mig langar í örfáum orðum að minnast mágs míns Thors Peter- sen sem lést hér úti í Danmörku 17. þessa mánaðar. Mín fyrstu kynni af Thor voru fyrir fjórum árum, er við fjölskyld- an fluttumst hingað til Danmerk- ur, og örlögin höguðu því þannig til að við festum rætur hér í Soro, aðeins 20 km frá Dianalund þar sem Thor hafði þá dvalið í tæplega 12 ár. Thor veiktist sem lítill drengur, aðeins 9 ára gamall, og getur enginn vitað sem ekki hefur reynt, hvílíkt áfall það er fyrir foreldra að standa frammi fyrir þeirri staðreynd að engum bata sé spáð og orsök ókunn. Hvers vegna svo vel gefnum og fallegum ungum dreng voru feng- in þessi örlög veit enginn nema guð einn. Var það til þess að við hin sem eigum falleg og heilbrigð börn, lærðum að virða og njóta þess lífs sem drottinn hefur gefið okkur, og hættum að taka það sem sjálf- sagðan hlut að við öll getum lifað eðlilegu og heilbrigðu lífi? Elsku Thor minn, þú gafst mér mikið þann stutta tíma sem ég fékk til að kynnast þér. Minningarnar um heimsóknir þínar til okkar munu einnig lifa lengi, þú varst barnslega þakklát- ur fyrir allt það sem okkur hinum finnst sjálfsagður hlutur, og gleði- stundirnar og hláturinn sem glumdi í húsinu mun seint gleym- ast. Þitt hlýja bros til mín þegar þú kvaddir og sagðir „kem fljótlega aftur“ mun ég ávallt geyma sem þitt innilegasta þakklæti. Það verður tómlegra hér án þín, Thor minn. Kæru tengdaforeldrar, fátt er eins sársaukafullt og það að missa barn sitt, sorgin er þungbær, en lífið heldur áfram og hvað er þá yndislegra en að ylja sér við minn- inguna um ástkæran son? Þú hefur fengið friðinn bliða fróun harms það getur veitt þú þarft ekki lengur að líða líf þitt er að fullu greitt. Þín mágkona, Berglind Ólafsdóttir. Hjá okkur færðu allt sem á vantar - og meira til. Raðgreiðslur • Póstsendum samdægurs. -SK?iw rRAMÚK Snorrabraul 60 • Sími 61 20 45

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.