Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MENNINGARSTRAUMAR
SUNNUDAGUR15. MAÍ 1994 B 13
'"KVIKMYNDIR'"
anna frá Disney
Hvemig eru sumarmyndimar vestraf
Sprengju
veislan
Brátt taka júmbómyndir sumarsins völdin í bíóhúsum
Bandaríkjanna. Arnold Schwarzenegger tapaði eftir-
minnilega fyrir Júragarðinum í fyrra þegar minnstu
munaði að hann yrði í raun Síðasta hasarmyndaheijan
og það er spurning hvernig honum gengur í sumar
með Sönnum lygum þegar Steinaldarmennirnir, Jack
Nicholson í úlfsgervi og ný Disneyteiknimynd taka
að keppa við hann um áhorfendur ásamt mörgu öðru
Iéttmeti.
eftir Arnold
Indriðason
Sumartíminn er gósentíð
kvikmyndaveranna í
Hollywood. Þá flagga þeir
öllu því besta sem þeir eiga
af hreinni og yfírleitt rán-
dýrri afþreyingu fyrir kvik-
myndahúsagesti á öllum
aldri. Besta formúlan höfð-
ar bæði til barna og fullorð-
^mmmmmm^m inna eins
og Júra-
garðurinn
gerði í
fyrra. Þá
fer öll
kjarna-
fjölskyld-
an af stað
en ekki
bara börn-
in eða bara þeir fullorðnu.
Með það í huga má búast
við því að Steinaldarmenn-
irnir raki inn dollurum í
sumar en það er 45 milljón
dollara stórmynd sem
byggir á samnefndum
teiknimyndaflokki úr sjón-
varpinu. Islendingar ættu
að fara í sérstakt steinald-
arstuð því íslenskir tvíbura-
bræður (Marínó og Hlynur
Sigurðarsynir) leika son
Bameys (Rick Moranis)
sem kunnugt er, en hinn
steinaldarlega vaxni John
Goodman fer með hlutverk
Fred Flintstones.
IBIO
Metsölumynd sfðasta
sumars, Júragarð-
urinn, var frumsýnd í bæði
Sambíóunum og Háskóla-
bíói og a.m.k. þrjár stór-
myndir nk. sumars munu
verða sýndar í þessum
tveimur bfóum samtímis.
Þetta eru myndimar
Steinaldarmennirnir, sem
kemur hingað í júlí,„Be-
verly Hills Cop 111“, sem
frumsýnd verður 12. ágúst
og „True Lies“ með
Schwarzenegger, sem
frumsýnd verður 26. ág-
úst.
Alls sáu rétttæp 70.000
manns Júragarðinn í
Reykjavík eingöngu og er
það mesta aðsókn sem
nokkur mynd hefur fengið
í mörg ár. Er freistandi
að hugsa sem svo að
kannski hafi samstarf bfó-
anna átt sinn þátt í þvf.
Veðjað er á að Steinaldar-
mennirnir verði metsölu-
mynd sumarsins í ár en í
henni eru risaeðlur aldrei
skammt undan skapaðar
með sömu tölvutækni og
kveikti líf f risaeðlum Spi-
elbergs.
Nicholson hefur ekki þótt
sérstakt sumarmyndafóður
hingað til en hann leikur
mann sem breytist í úlf í
nýjustu mynd Mike Nichols,
Úlfur, og segir leikstjórinn
að auðvelt hafi verið að
velja hann í hlutverkið því
„hann er eini leikarinn sem
er þegar í tengslum við úlf-
inn í sér... Hann þekkir sitt
dýrslega eðli.“ Úlfur eða
ekki úlfur, Jack veitir ekki
af almennilegri mynd þessa
dagana. Tom Hanks keppir
við hann sem Forrest Gump
í samnefndri mynd Robert
Zemeckis. Hann leikur
mann sem lendir í tíma-
ferðalögum og kemst í
kynni við ýmsar frægar
persónur sjötta, sjöunda og
áttunda áratugarins.
Zemeckis er frægur fyrir
nýjungagirni og brellusmíði
og setur Gump með sér-
stakri tækni hreinlega inn
í sögufræga atburði frekar
en að endurskapa þá. „Við
höfum ekki hugmynd um
hvaða áhrif myndin mun
hafa á heiminn," segir hann
og reynir ekki að bregða
fyrir sig lítillæti.
Kúnninn eftir sam-
nefndri sögu John Gris-
hams mun sjálfsagt raka
Býr íslendingur hér?; annar íslensku tvíburanna í
fanginu á Rick Moranis í Steinaldarmönnunum.
ferðina enn með James
Cameron (T1 og 2) en nú
byggja þeir á franskri smá-
mynd, „La total“, og þenja
hana út í 120 milljón doll-
ara amerískt sprengju- og
brelluævintýri. Ef einhverj-
ir hafa meðfædda hæfileika
til að eyða peningum eru
það þessir tveir en í mynd-
inni bjargar Schwarzeneg-
ger bæði plánetunni og
hjónabandinu. Aðrar
spennumyndir sumarsins
eru m.a. „The River Wild“
með Meryl Streep vasa-
klútalausri í óbyggðun-
um,„Natural Born Killers“
eftir Oliver Stone, „Speed"
með Keanu Reeves í strætó
sem springur í loft upp ef
hann fer niður á leyfilegan
hámarkshraða, „Blown
Away“ með Tommy Lee
Jones og Jeff Bridges í einni
sprengjuveislunni til að
ógleymdum Skugga með
Alec Baldwin, vestranum
Wyatt Earp með Kevin
Costner og „Clear and
Present Danger“, þriðju
Bondmyndinni með Harri-
son Ford.
í miðju atburðanna;
Hanks sem Forrest Gump.
inn dollurum eins og fyrri
Grishammyndir; Joel
Schumacher leikstýrir Sus-
an Sarandon og Tommy
Lee Jones. Og svo er það
Schwarzenegger. í Sönnum
lygum vinnur hann eina
7.500 sáu „Ace“
fyrstu helgina
Alls sáu 7.500 manns
gamanmyndina „Ace
Ventura" í Sambíóunum
fyrstu sýningarhelgina.
Þá hafa 34.000 manns séð
gamanmyndina „Mrs. Do-
ubtfire", 25.000 hafa séð Hús
andanna, 19.500 Pelikana-
skjalið, 15.500 „Beethoven
2nd“, sem einnig er sýnd í
Háskólabíói, 6.500 Hetjuna
hann pabba, 5.000 Fúlan á
móti, 5.000 Óttalaus og
3.000 Fingralangan föður.
Næstu myndir Sambíó-
anna eru Beint á ská 33 1/3,
sem einnig verður sýnd í
Háskólabíói, „Intersection"
með Richard Gere og Sharon
Stone, „What’s Eating Gil-
bert Grape?" með Johnny
Depp, þá gamanmyndin „He-
art and Souls“ og gam-
anvestrinn „Lightning Jack“
með Paul Hogan. Síðan koma
The Beverly Hillbillies",
sem gerð er eftir sam-
nefndum sjónvarps-
myndaflokki og
With Honors"
með Joe
Hún er fyrsta Disney-
teiknimyndin í fullri
lengd, þær eru alls 32, þar
sem engin mannvera kemur
fyrir en búist er við að Kon-
ungur ljónanna eða „The
Lion King“ verði ekkert síð-
ur vinsæl en síðasta Disn-
eymynd, Aladdín. Hún verð-
ur frumsýnd í Bandaríkjun-
um í sumar en er áætluð
jólamynd Sambíóanna í ár.
Það tók þijú ár að gera
hana og meira en milljón
Sýnd á næstunni;
Sharon Stone í „Int-
ersection".
teikningar 600 listamanna.
Matthew Broderick, Jeremy
Irons, James Earl Jones,
Cheech Marin og Whoopi
Goldberg tala inná myndina
sem segir frá litlum ljóna-
unga (Broderick), syni Mu-
fasa konungs ljónanna (Jo-
nes), sem veit að hann mun
ekki geta tekið við af föður
sínum fyrr en hann hefur
háð baráttu við frænda sinn,
hinn illa Scar (Irons).
Enn ein Disneyperlan?; úr „The Lion King“.
Fæddir morð-
ingjar Stones
Nýjasta mynd Olivers
Stones, „Natural Born
Killers", verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í ágúst og
er væntanleg í Sambíóin í
haust. Hún segir af ijölda-
morðingjum sem gula press-
an og ljósvakafjölmiðlar
gera að hetjum. Með aðal-
hlutverkin fara Woody
Harrelson og Juliette Lewis
en handritið gerir ofbeldis-
skáldið Quentin Tarantino.
„Myndin fjallar um sí-
fellda leit óvandaðra sjón-
varpsþátta að rugluðum
hetjum og hrifningu bæði
og andúð Bandaríkjamanna
á ofbeldi," er haft eftir
Stone. Hann sagði það enga
spurningu að Harrelson,
sem leikur yfirleitt nvjúka
manninn, væri sá rétti í hlut-
verk morðhundsins í mynd-
inni. „Hann er með besta
brosið síðan Paul Newman
var í toppformi og þegar
maður veit af geðveikinni á
bak við það fer maður að
ókyrrast."
Ofbeldið er talsvert í
myndinni og kvikmyndað í
brotum „svipað og við
mynduðum JFK. Við dvelj-
um ekki við það en notum
það til að sjokkera". Er sagt
að myndin muni ekki fara
svo auðveldlega í gegnum
kvikmyndaeftirlitið banda-
ríska.
■ Óvíst er hvað Kevin
Costner tekur sér fyrir hend-
ur eftir Wyatt Earp en lík-
legt er að hann leiki Nóa
nútímans í 60 millj. dollara
mynd sem heitir „Waterw-
or!d“. Vinur hans, Kevin
Reynolds leikstýrir.
■Robert Redford hefur
tvær myndir í takinu. Önnur
er um frægt sjónvarpssvindl
á sjötta áratugnum þegar
upp komst um spillingu í
bandarískum spurninga-
þætti. Heitir hún einfaidlega
„Quiz Show“. Mun hann
leikstýra henni. Hin myndin
er „The American Presi-
dent“ þar sem hann mun
fara með titilhlutverkið en
Rob Reinerleikstýrir ef
samningar takast.
WNæsta my/nJJonathans
Deinme, sem á að baki
Lömbin þagna og Fíladelf-
íu, er „Parting t.he Waters"
sem fjallar um fótgöngulið-
ana í mannréttindasamtök-
um svartra.
I Nýjasta mynd Kenneths
Branaghs, „Mary Shelley’s
Frankenstein", verður
frumsýnd t Stjörnubíói í jan-
úar.
Frægðarljómi fjöldamorðingjans; úr nýjustu mynd
Olivers Stones, „Natural Born Killers".