Morgunblaðið - 15.05.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNA/RAÐ/SMÁ
SUNNUDAGUR15. MAÍ 1994 B 17
ATVINNUAU31YSINGAR
Kennara
vantar í Grunnskólann Djúpavogi.
Kennslugreinar:
Kennsla yngri barna, kennsla raungreina eldri
nemenda, myndmennt, íþróttir og smíðar.
Upplýsingar gefur Anna Bergsdóttir, skóla-
stjóri, í símum 97-88836 og 97-88140.
Kaffihús - verslun
Óskum að ráða skemmtilegt og lifandi fólk
til starfa í hluta- eða heilsdagsstöðu.
Um er að ræða vaktavinnu fyrir aðila á aldrin-
um 20 ára eða eldri.
Einnig óskum við eftir hugmynda- og hæfi-
leikaríkum starfskrafti í eldhús.
Umsækjendur mæti til viðtals mánudaginn 16.
maí á Strandgötu 9, Hafnarf. milli kl. 19 og 21.
Útréttfngar
Starfið felst í ýmiss konar útréttingum og
sendlastörfum, m.a. í banka, pósthús o.fl.
Viðkomandi mun einnig annast innheimtu
að hluta til. Fyrirtækið leggur til bifreið.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu van-
ir innanbæjarkeyrslu, reglusamir og áreiðan-
legir auk þess að vera eldri en 30 ára. Um
heilsdagsstarf er að ræða, hentugt fyrir m.a.
þá aðila sem kjósa að komast aftur út á
vinnumarkaðinn.
Afgreiðsla
Starfið felst í móttöku viðskiptavina, ráðgjöf
við val og afgreiðslu í ritfangadeild verslunar-
innar. Eftirlit með vörulager, uppröðun í hill-
ur auk annars tilfallandi. Góðir framtíðar-
möguleikar verða fyrir áhugasaman og dug-
legan starfsmann.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu
með haldbæra reynslu af sambærilegu,
snyrtilegir og þægilegir í framkomu.
Áhersla er lögð á reglusemi og áreiðan-
leika. Um er að ræða heilsdagsstarf.
Útkeyrsla/samsetn-
ing húsgagna
Penninn, skrifstofuhúsgögn, auglýsir eftir
laghentum starfsmanni til að keyra út hús-
gögn og annast samsetningu þeirra. Starfs-
maðurinn þarf að geta unnið sjálfstætt og
skipulagt útkeyrsluna á sem hagkvæmastan
máta. Fyrirtækið leggur til bifreið.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu þjón-
ustulundaðir og með reynslu af sambærileg-
um störfum. Áhersla er lögð á áreiðanleika
og stundvísi í hvívetna.
Umsóknarfrestur vegna ofangreindra starfa
er til og með 20. maí nk. Ráðningar verða
sem fyrst.
Penninn sf. er 62 ára gamalt verslunarfyrir-
tæki. Fyrirtækið er eitt af rótgrónari verslun-
arfyrirtækjum landsins. Starfsfjöldi er álíka
og árin eða um 60 talsins. Verslanir Pennans
sf. eru staðsettar í Kringlunni, Hallarmúla og
í Austurstræti.
Umsækjendur vinsamiega athugið að um-
sóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar
eru eingöngu veittar hjá Ráðningarþjón-
ustu Lögþings frá kl. 9-13.
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
.fclNf?0
vCrWn yr«
Guðný Harðardóttir
Skipholti 50c, 2. hæð, 105 Reykjavík
Sími 91-628488
Markaðsstjóri
í boði er krefjandi starf markaðsstjóra hjá
þjónustufyrirtæki.
Vinsamlega skilið inn skriflegri umsókn fyrir
föstudaginn 20. maí til auglýsingadeildar
Mbl., merkt: „M - 2723“.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við leikskólann Laufás-
borg við Laufásveg er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 19. maí nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson
framkvæmdastjóri, og Margrét Vallý Jóhanns-
dóttir deildarstjóri, í símá 27277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Tækni-, verk-
og tölvufræðingar
Tölvusamskipti hf. er ungt og framsækið
fyrirtæki, sem framleiðir faxhugbúnaðinn
Skjáfax fyrir einkatölvur og tölvunet. Helsta
verkefni fyrirtækisins er útflutningur á Skjá-
faxi.
Við leitum að traustum einstaklingi með
góða þekkingu á tölvunetum, Windows og
enskri tungu. Tækni-, verk- eða tölvufræði-
menntun áskilin.
Við bjóðum skemmtilegt og krefjandi starf
við þjónustu á Skjáfaxi innanlands sem utan.
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til
Tölvusamskipta hf., pósthólf 5114, 125
Reykjavík, fyrir 28. maí 1994.
Laus störf
Útgáfufyrirtæki í borginni vill ráða í eftirtalin
störf:
Símavarsla
Vaktavinna. Unnið annan hvern laugardag.
Smá tungumálakunnátta nauðsynleg.
Reykingabann í vinnunni.
Pökkun
Um er að ræða starf frá 1. júní til hausts.
Unnið 5 nætur í viku og eftir hádegi á laugar-
dögum. Tilvalið fyrir duglegan námsmann.
Öllum umsóknum í bæði störfin verður svarað.
Umsóknir, merktar: „ Símavarsla - 4799“
eða „Pökkun - 4800“, sendist auglýsinga-
deild Mbl. fyrir þriðjudagskvöld.
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Óskum að ráða fóstrur í fullt starf á eftir-
talda leikskóla:
Álftaborg v/Safamýri, s. 812488.
Efrihlíð v/Stigahlíð, s. 18560.
Lækjarborg v/Leirulæk, s. 686351.
Rauðaborg v/Viðarás, s. 672185.
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leik-
skólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími27277.
Auglýsingahönnun
Stórt útgáfufyrirtæki í borginni óskar að
ráða hönnuði til starfa við auglýsingagerð.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar til 22. maí nk.
QtðntTónsson
RÁÐGJÖF & RÁÐNi NCARÞJÓN USTA
TJARNARGÖTU 14.101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Duglegur
meðeigandi
Eigendur meðalstórrar innflutningsverslunar
á sviði iðnaðartækja í Reykjavík óska eftir
meðeiganda og/eða samstarfsmanni í stjórn-
un og sölu. Æskilegt er að viðkomandi geti
lagt fram allt að kr. 7.000.000 gegn 50%
hlut (gengi 1) í félaginu.
Mjög áhugaverðir framtíðarmöguleikar.
Áhugasamir vinsamlegast sendið nafn og
símanúmertil auglýsingadeildar Mbl., merkt:
„Meðeigandi - 4798“.
Nýtt og spennandi
Við hjá Vöku-Helgafelli erum að setja í gang
nýtt og spennandi verkefni og af því tilefni
óskum við eftir að ráða áhugasamt fólk til
sölu- og kynningarstarfa.
Góð vinnuaðstaða og góð laun í boði fyrir
gott fólk.
Vinsamlegast hafið samband við Sigríði Jón-
asdóttur í síma 91-688300 kl. 12-17.
4»
VAKA-HELGAFELL
Síðumúla 6, sími 688300
Frá Fræðsluskrifstofu
Vestfjarðaumdæmis
Lausar stöður
Umsóknarfrestur til 12. júní 1994.
Staða grunnskólakennara við grunnskólann
í Reykjanesi við Djúp.
Vegna barnsburðarleyfa vantar skólastjóra
við Finnbogastaðaskóli í Árneshreppi tíma-
bilið nóv.-apríl og grunnskólakennara við
sama skóla timabilið okt.-mars næstkom-
andi.
Fræðslustjóri Vestfjarðaumdæmis.
fijúkrobúsíð t Húsdvíb s.f.
Hjúkrunarfræðingar
Óskum að ráða í eftirtalin störf:
Hjúkrunarfræðing
á skurðstofu í 80% starf (viðbótarstarf fyrir
hendi á legudeildum). Bakvaktir.
Hjúkrunarfræðinga
á blandaða 28 rúma deild og 32 rúma öldrunar-
deild.
Ljósmóður
til sumarafleysinga.
Upplýsingar veitir Aldís Friðriksdóttir, hjúkr-
unarforstjóri, í síma 96-40500 og 96-40542.