Morgunblaðið - 15.05.1994, Qupperneq 24
24 B SUNNUDAGUR15. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÍSKLIFURI
^ Texti og myndin Einar Magnús Magnússon
Adögunum héldu fjórir félagar úr Hjálparsveit skáta í Reykjavík sem
jafnframt eru félagar í Alpaklúbbnum upp að Glym, hæsta fossi
^ íslands, til að reyna klifur upp þverhnípt og ísilagt standbergið sem
rís upp af gljúfrinu neðan við fossinn. Botnsáin hefur á nokkrum árþúsund-
um grafíð sig niður í hlíðar Hvalfellsins og skilið eftir sig eitt hrikalegasta
árgljúfur landsins sem sumstaðar nær 220 metra dýpt.
Það var stórfengleg sjón sem blasti við leiðangursmönnum á brúnum
bjargsins. Kuldinn hafði klófest fossinn og gert úr honum myndir ógnar-
stórra grýlukerta og íströlla sem vaxa á syllum þverhnípisins. Fossúðinn sem
á sumardögum mettar loftið í gljúfrinu hafði sest á þverhnípta klettavegg-
ina og breyst þar í klakabrynju sem myndaði kjömar aðstæður fyrir ísklifur.
Þrír þeirra félaga, þeir Páll Sveinsson leiðangursstjóri, Þorvaldur V. Þórs-
son og Magnús Gunnarsson, sigu ofan í gljúfrið rétt neðan við fossinn og
fundu þaðan stað til að klífa ísinn. Geir Gunnarsson varð hinsvegar eftir á
bjargbrúninni til að leiðbeina leiðangursmönnum um leiðina með talstöð auk
þess að aðstoða ljósmyndara við oft erfiðar aðstæður við myndatöku. Það
tók undir í veggjum klettanna og loftþiýstingurin skall á mönnum með
miklum þunga þegar stórar ísskriður féllu úr fossinum ofan í gljúfrið. Vegna
þeirrar hættu sem af þessu stafaði, klifu þeir hamarinn um fjörutíu metra
frá fossinum og máttu þeir sín lítils í greipum gljúfursins.
Eftir sjö klukkustunda klifur hjó Páll Sveinsson ísöxi sinni í efstu brún
bjargsins og hafði hann þá klifið 170 metra leið upp ísinn. Að baki var
hæsta og eitthvert erfíðasta ísklifur sem farið hefur verið á íslandi. Þeir
Þorvaldur og Magnús fylgdu síðan á eftir og minningin um sigur á ófærum
náttúrunnar fékk þá félaga til að gleyma kulda og þreytu sem óneitanlega
hafði látið til sín segja.
X $.
m
tei ■ ki/
- - ‘ ' " ;
ðf;-v S •
WJHhM-
•r, m
íiiii
iii
i
' fp'i
" \ í
w i
L f
; ;
mm
rr
■ fMíii
I
||
JF/ T* -
HIBUl
:f í
Páll heggur öxinni inn í ísinn á síðustu metrunum áður en bjargbrúninni var náð.
Maðurinn má sín lítils í greipum gljúfursins. Þorvaldur að losa trygg-
ingar sem Páll var búinn að leggja.
Þorvaldur V.
Þórsson að
síga niður
140 metra
þverhnípið.
Það voru
ekki þægi-
legar að-
stæður tii að
hvfla sig í á
leiðinni. Hér
sjást félag-
arnir í hvíld-
arstöðu of-
arlega á
myndinni,
búnir að
klífa um 90
metra af
leiðinni.