Morgunblaðið - 22.05.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22: MAÍ 1994 13
skæruhernaði og samstaðan meðal
þeirra er miklu meiri en meðal norð-
anmanna. Þeir munu því ekki gef-
ast upp í bráð og þeir búa enn að
miklum vopnabirgðum, sem Sovét-
menn létu þá fá á sínum tíma. Þar
að auki eru fréttir um, að Saudi-
Arabar, sem áður voru. erkifjendur
marxistanna í Suður-Jemen, hafi
fjármagnað vopnakaup þeirra að
undanfömu. Það vakti verulega at-
hygli í fyrra þegar stjórnvöld í
Saudi-Arabíu buðu til sín Baidh,
leiðtoga sunnanmanna, en neituðu
að taka á móti Saleh.
Stjómin í Riyadh er andvíg sam-
einingu Jemens vegna þess, að hún
óttast pólitísk áhrif hins sameinaða
ríkis, sem hefur jafn marga íbúa
og Saudi-Arabía. Hún hefur líka
mjög illan bifur á Saleh forseta og
leiðtoga norðanmanna, sem studdi
ekki bandalag Saudi-Aaraba og
Bandaríkjanna í Persaflóastríðinu.
Saleh hefur auk þess haidið við vin-
skapnum við Saddam Hussein, for-
seta íraks, og forsetalífvörður hans,
30.000 manns, er sniðinn eftir for-
setalífverði Saddams. íraksforseti
hefur líka stutt Saleh í átökunum
núna og er þar með að kynda und-
ir fjandskapnum við Saudi-Araba.
Þótt norðanherinn sé miklu fjöl-
mennari eru sunnanmenn þjálfaðri
og útsjónarsamari og eftir því sem
Norður-Jemenar sækja lengra,
lengjast einnig aðflutningsleiðir
þeirra um fjalllendið í suðurhlutan-
um. Það verður ekki erfitt að ijúfa
eina fjallveginn á milli Sanaa og
Aden. Líklegast er því, að um ein-
hvers konar þrátefli verði að ræða
og eina færa leiðin út úr því virðist
vera tillaga sunnanmanna um sam-
bandsríki. Dragist stríðið mikið á
langinn getur það hins vegar kynt
undir ólgu annars staðar í ríkjum
araba.
um Berlusconi, s.s. breytingum á
kosningalöggjöfinni.
Afneita fortíðinni
Sjálfir vilja nýfastistar kalla sig
síð-fasista og efast er um fortíðar-
tengsl þeirra. Gianfranco Fini leið-
togi Þjóðarbandalagsins gerir lítið
úr þeim og segist ekki vera fasisti
af gamla skólanum. Forystumenn
flokksins segja og að kjör 148
flokksmanna á þing hafi endanlega
afmáð fortíðarblettinn af MSI.
Þjóðarbandalagið hefur átt full-
trúa það lengi á þingi að flestir
ítalir hafa vanist flokknum og eru
því ekki jafn undrandi á stjórnarað-
ild hans og áhrifamenn erlendis.
Þrátt fyrir allt átti flokkurinn,
bæði leynt og ljóst, um langan ald-
ur samstarf við Kristilega demó-
krata um afgreiðslu íjölda þing-
mála. Maðurinn á bak við það var
Giulio Andreotti sem sjö sinnum
var skipaður forsætisráðherra en á
yfir höfði sér málaferli vegna
hneykslismála og spillingar.
Efnahagsleg uppstokkun
Berlusconi hefur heitið efna-
hagslegri uppstokkun með því að
hlúa sérstaklega að einkarekstri
og afnema alls kyns hömlur og
höft. Ætlar hann að örva fjárfest-
ingar lítilla og meðalstórra fyrir-
tækja sem skila eiga milljón nýrra
starfa með skattaívilnunum. Sams-
konar afslætti eiga fyrirtæki sem
fjölga starfsfólki að fá. Sömuleiðis
lofaði hann skattalækkunum og
einkavæðingu ríkisfyrirtækja.
Hagþróunin virðist honum hagstæð
en stjórnin mun þó tæpast hafa
mikið svigrúm til aðgerða. Ætli
hann sér að draga úr ríkissjóðs-
halla á hann vart annarra kosta
völ en hækka skatta eða draga úr
ríkisútgjöldum.
Tvö af stærstu launþegasamtök-
um Ítalíu gagnrýndu efnahags-
stefnu stjómar Berlusconis í vik-
unni, sögðu hana ruglingslega og
einkennast af óskhyggju. Fjár-
magnsmarkaðurinn virðist hins veg-
ar hafa trú á stjórninni og áformum
hennar því verðbréf hafa hækkað
talsvert í verði undanfarna daga.
Innilegar þakkir til fjölskyldu minnar, vina og
frœndfölks ncer og fjcer sem sýndu mér hlýhug
og vináttu á 85 ára afmceli mínu þann 12.
maí. GuÖ blessi ykkur öll.
Elísabet Kristjánsdóttir,
Hrepphólum.
Hjartans þakkir fyrir þá góðvild og vinarhug
er mér var sýndur með gjöfum og heillaskeytum
á 70 ára afmceli mínu 3. maí.
Ég þakka lífsgönguna og biö guÖ aÖ gefa ykk-
ur góða daga.
Kcer kveðja,
Soffanías Cecilsson.
í tilefni af 100 ára afmceli mínu 12. maí síöast-
liöinn vil ég þakka öllum vinum og venslafólki
mínu sem heimsóttu mig ogglöddu meö kveöj-
um og gjöfum.
Meö léttri og góÖri lund, minntumst viÖ
gamalla, góÖra daga.
Sérstaklega vil ég þakka hreppsnefnd Eyrar-
bakka fyrir rausnarlega veislu mér til heiÖurs.
Gcefa veri með ykkur öllum.
Páll Jónasson,
(Stíghási),
Ljósheimum, Selfossi.
Blab allra landsmanna!
þá er þetta bíllinn
Ford Explorer er vandaður jeppi
og fjölskyldubíll-í einu og sama farartækinu.
Á Ford Explorer eru þér allir vegir færir
og þú nýtur þess til fullnustu
sem landið okkar hefur upp á að bjóða.
Skoðaðu og reyndu Ford Explorer.
Bíll í sérflokki.
Ford Explorer XLT, sjálfskiptur: 3.990.000 kr.
Innifalið i verði er skráning og ryðvörn.
Ford Explorer - og landið er þitt.
G/obusa
-heimur gceða!
Lágmúla 5, slmi 91-6815 55
Ef ísland er landið ...