Morgunblaðið - 22.05.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 22. MAÍ 1994 1:7
BÍÐUR
EFTIR
SKÝRSLU
í SAMBANDI við sjúkrahótel
við Borgarspítalann hafði Mbl.
samband við Guðmund Árna
Stefánsson heilbrigðisráð-
herra. Hann kvað sjúkrahótel
fýsilegan kost, enda megi sjá
í nágrannalöndum okkar að
það hafi sparnað í för með sér
og örýggi sé jafn mikið. í okk-
ar dreifbýla landi þar sem fólk
safnast til lækninga á einn stað
sé það kannski enn hagkvæm-
ara. Hann kvaðst nú bíða
skýrslu um málið og ekki geta
sagt um nein tímamörk. En
mikill áhugi sé á málinu og
hann sjái fyrir sér að í þessu
gæti legið stór áherslubreyting
í sjúkrahúsmálum.
breyta einhverju. Fannst það ofur
eðlilegt að fara og sækja þekkingu
og koma með hana heim,“ segja
þau. Kusu að fara til Bandaríkj-
anna af því að þar er svo mikil
hreyfing á öllu og þar er svo op-
inská sjálfsgagnrýni. Rauði þráður-
inn i fræðslu prófessoranna var
gagnrýni og opinskátt tal um allt
það sem breyta þyrfti.
Tæknin komin fram úr sjálfri
sér
„Meðan við vorum í seinasta
hluta námsins var svo spennandi
tími í þessu fagi í Bandaríkjunum
og mikil umræða. Hillary og Bill
Clinton komu fram með sína um-
bótastefnu í heilbrigðismálum,"
segir Helga María. Og í þessum
málum sem mörgum öðrum hefur
á sl. 8 árum orðið svo mikil hugar-
farsbreyting, ekki bara þar heldur
í öllum heiminum. Tæknin er orðin
svo gífurleg að hún er komin fram
úr sjálfri sér og fólk farið að spyrja
sig hvort alltaf eigi að beita henni,
Sjúkrahótelid við Rikisspítalann i Kaupmannahöfn, myndin
tekió frá spitalanum, en undirgöng eru á milli undir stéttinni.
New Haven sjúkrahótelió er tengt vió Yale háskálasjúkra-
húsió meó glerbrú yfir götuna.
aðrar persónulegar breytingar hjá
mér og teningunum var kastað,“
útskýrir Jónas.
Helga María segir að aldrei hafi
verið minnsti vafi á því að hún
ætlaði í framhaldsnám eftir BA-
próf í félags- og fjölmiðlafræði.
„Já, ég fór reyndar fyrst í félags-
fræði. Er svo félagslega þenkjandi.
Finnst samskipti við fólk svo
áhugaverð," segir hún þegar hún
sér undrunarsvipinn á viðmælanda.
En bætir við að hún hafi samt allt-
af stefnt á rekstur af einhvetju
tagi, enda sé rangt að þetta fari
ekki saman. Frá unglingsárunum
hafði hún verið viðloðandi verslun-
arstörf hjá pabba sínum í Gleri &
Postulíni. Og vann víðar með námi,
aðallega í ferðamálum hér og er-
lendis. Hún segir mér að kennarinn
hennar Þorbjörn Broddason hafi
einn góðan veðurdag sagt: „Þú átt
að fara í viðskipti“. Bætir við að
þegar hún ákvað svo að halda
áfram í rekstrarhagfræði, taka
„Master of Business Administrati-
on“ í Ameríku, þá hafi það fallið
mjög vel að því að hafa húmanísk-
an grunn. Hún var sem sagt á leið
utan og Jónas fylgdi henni. Hann
tók fjölmiðla- og hagfræði til BA-
prófs í New York-háskóla og svo
rekstrarhagfræði í Connecticut-
háskóla. Og meðan Helga María
beið eftir honum tók hún heilsuhag-
fræðina og stjórnun og rekstur
heilbrigðisstofnana til viðbótar.
„Við brutum í blað seint, vildum
víkka sjóndeildarhringinn. Vildum
burtséð frá því til hve mikils góðs
það kann að vera. Talað sé um að
nauðsynlegt sé að fara að velja
tækni, bæði vegna manneskjunnar
og þjóðfélagsins í heild. Þetta mið-
ist ekki aðeins við sjúkrahúsin held-
ur eigi það við nær alls staðar í
samfélaginu.
„Ég er að vinna fyrir Rauða
krossinn og var nýverið á ráðstefnu
í Gripsholm í Sviþjóð. Nú eru þess-
ir aðilar farnir að ræða um stefnu-
breytingu. Að fara að líta sér nær.
°g leggja áherslu á að leita uppi
hópa sem minna mega sín og hjálpa
þeim til að hjálpa sér sjálfir. Við
erum þrjú sem myndum þennan
vinnuhóp, tvö frá RKÍ og ég er í
honum sem aðferðaráðgjafi. Við
höfum á hendi könnun í þessu
skyni,“ segir Helga. Og í frekari
umræðu um verkefni þeirra kemur
fram að Framsýnt fólk er með
stjórnunar- og rekstrarráðgjöf,
markaðsrannsóknir og almanna-
tengsl. Er í ráðgjöf við fyrirtæki
út á við og inn á við, bæði stóra
aðila og smáfyrirtæki eða einstakl-
inga, sem að vísu hefur ekki gefist
mikill tími til ennþá. Óskaverkefni
Jónasar og Helgu Maríu eru þar
sem menntun þeirra og ferskir
straumar sem þau hafa sótt út
geta skilað sér til þjóðfélagsins,
segja þau. Blása á þessa svartsýni
sem þeim fínnst alls staðar vera
og segja Island búa yfir gífurlegum
framtíðarmöguleikum ef rétt er á
haldið.
í sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
Utankjörstaðaskrifstofa •
Sjálfstæðisflokksins l
Valhöll, Háaleitisbraut 1,3. hæð.
Símar: 880900, 880901,880902 og 880915. I
Utankjörfundar atkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanninum í Reykjavík, »
Ármúlaskóla, alla daga kl. 10-12,14-18 og 20-22.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá og allt sem lýtur að kosningum. *
Aðstoð við kjörskrárkærur.
Stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins! Vinsamlega látið okkur vita um
alla kjósendur sem ekki verða heima á kjördag, 28. maí n.k.
Almennar
kaupleiguíbúðir
Auglýst er eftir umsóknum um nokkrar almennar kaupleiguíbúðir.
Um er að ræða 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir í fjölbylishúsum við
Engihjalla, Lautarsmára og Arnarsmára.
íbúðirnar geta verið tilbúnar fljótlega.
Umsóknareyðublöð fást afhent í afgreiðslu
Félagsmálastofnunnar, Fannborg 4, Kópavogi.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 15. júní nk.
Kópavogi 20. maí 1994.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
í tile&ii 50 ára lýðveldisafmælisins gefur Morgunblaðið út sérstakt
lýðveldisblað á þjóðhátíðardaginn, 17. júní nk.
Blaðið verður sérprentað og látið fylgja með Morgunblaðinu þennan
hátíðisdag. Auglýsendum gefst kostur á að auglýsa í blaðinu og
bendum við á þann möguleika að koma kveðjum frá fyrirtækjum til
þjóðarinnar í tílefimi 50 ára afmælisins.
Auglýsendum sem vilja kynna sér þessa sérstöku útgáfu er bent á að
hafa samband við starfsmenn auglýsingadeildar, Agnesi Erlingsdóttur,
Helgu Guðmundsdóttur eða Petrínu Ólafsdóttur,
í síma 691111 eða símbréfi 691110.
Jfafgnaiiribifetto
- kjarni málsins!