Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 1
VEIÐISÖGUR
AÐ VESTAN
Indverska bókin sem sameinar vísindi og forna dulhyggju
HNYKKURINN
14
SUNNUDAGUR
29. MAÍ 1994
SUNNUPAGUR
BLAB B
efir Guðrúnu Guðluugsdóttur
♦
Bg er fædd á Rauðalæk í
“ Holtahreppi í Rangár-
vallasýslu og var þar eitt ár
með foreldrum mínum, þá
fluttumst við í Djúpadal, þar
sem gamla sláturhúsið var,
rétt hjá Hvolsvelli. Ég er
yngst af fjórum systkinum,
það eru þrettán ár á milli
mín og næstyngstu systur
minnar. Hún fór fljótt að búa
svo ég varð snemma ein með
foreldrum mínum. Elsta
systir mín á strák sem er
jafngamall mér, við vorum
mikið pössuð saman, það
gerðu mamma og elsta systir
min því þær unnu til skiptis
í sláturhúsinu. Mamma var
ráðskona í mörg ár í mötu-
neyti sláturhússins. í
Djúpadal var býli en slátur-
húsið stóð á bökkum Rang-
ár. Pabbi var kjötmatsmaður
í sláturhúsinu og ég fór
snemma að vinna þar á
haustin og endaði sem kjöt-
matsmaður líka, þar var
pabbi minn lærifaðir.“ Það
er Elín Ósk Óskarsdóttir sem
hefur orðið. Hún er ein af
okkar færustu söngkonum,
hin mikla og glæsilega rödd
hennar mun senn hljóma í
sal Þjóðleikhússins, fyrst í
uppfærslunni á Niflunga-
hringnum á Listahátíð í vor,
svo í haust mun hún syngja
hið krefjandi hlutverk Le-
noru í Valdi örlaganna eftir
Verdi. Mótsöngvari hennar
þar verður enginn annar en
sjálfur Kristján Jóhannsson.
SJÁ NÆSTU SlÐU