Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994 B 17
ATVIMNUAUGírS/NGAR
Hár - hár - hár
Ég er sextán ára stúlka utan af landi og
óska eftir að komast á námssamning hjá
hárgreiðslumeistara í Reykjavík.
Vinsamlega hafið samband við Unni Höllu í
síma 98-71282.
RAFEINDAVORUR HF.
Stálsmíði
Vegna stóraukinnar sölu á framleiðsluvörum
okkar, óskum við eftir að ráða strax, eða
eftir nánara samkomulagi, í stálsmiðju okkar:
Verkstjóra
Handverksmenn
Leitum að vönum og áreiðanlegum starfs-
mönnum með þekkingu og reynslu í smíði á
ryðfríu stáli.
Fjölbreytt framtíðarstörf.
Upplýsingar um störfin veita Ragnar Ingólfs-
son og/eða Guðmundur Marinósson, alla
virka daga í síma 94-4400.
Sölumaður
Fyrirtækið er rótgróið innflutningsfyrirtæki
sem flytur inn matvörur o.fl.
Starfið felst í sölu til verslana, hótela og
mötuneyta ásamt vörukynningum.
Leitað er að framtakssömum, dugmiklum
og áhugasömum sölumanni sem er tilbúinn
í stjálfstætt og krefjandi starf.
Umsóknarfrestur er til og með 8. júní nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf.
Skólavörðustig 1a - 101 Heykjavik - Slmi 621355
Starfið fyrir Afríku
„Þróunarhjálp frá þjóð til þjóðar" - leitar að sjálfboðaliðum til sam-
vinnu í „Childrens town“ í Zambíu.
Sem sjálfboðaliði vinnur þú í hóp með 12 öðrum, ungu fólki frá
Evrópu, að eftirfarandi verkefnum:
- 6 mánaða undirbúningur í farandháskólanum (Den rejsende Hoj-
skole) f Danmörku.
- 6 mánaða starf í Zambiu, þar sem þú berð ábyrgð á námi og
félagslegri velferð átta fyrrverandi götubarna.
- 2 mánaða upplýsingavinna í Evrópu.
Sjálfboðaliöinn þarf að greiða skjólagjöld. f Afríku er séð fyrir fæði,
húsnæði og vasapeningum. Engrar sérstakrar kunnáttu er krafist.
Starf okkar er sérstaklega miðað við ungt fólk á aldrinum 18 til 25
ára. Kynningarfundur verður á íslandi.
Starfið byrjar 1. júlí 1994 eða 1. janúar 1995. Skrifaðu til okkar og
fáðu nánari upplýsingar: DAPP, Tástrup Valbyvej 122, DK-2635 Is-
hoj, Danmörku, eða sendu okkur heimilisfang þitt í sfmbréfi til: 90
45 43 99 59 82.
DevelopmentAid from People to People.
Íxl
Félagsmálaráðuneytið
auglýsir lausar til umsóknar eftirgreindar
stöður á sviði barna- og unglingamála á veg-
um ráðuneytisins:
Stöðu yfirmanns skrifstofu ráðuneytisins í
barna- og unglingamálum. Skrifstofan ann-
ast yfirstjórn, fjármál og heildarskipulagn-
ingu barnaverndarmála á grundvelli laga um
vernd barna og ungmenna. Umsækjendur
skulu hafa háskólamenntun auk reynslu
og/eða þekkingar á sviði barnaverndar,
stjórnunar og rekstrar.
Stöðu yfirmanns við Móttöku- og meðferðar-
stöð fyrir unglinga (áður Unglingaheimili rík-
isins). Stofnunin sinnir bráðavistun/neyðar-
vistun auk skammtíma- og eftirmeðferðar
fyrir unglinga. Umsækjendur skulu hafa há-
skólamenntun auk reynslu og/eða þekkingar
á sviði meðferðar barna- og unglinga.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist félagsmálaráðuneytinu
fyrir 30. júní nk.
Félagsmálráðuneytið, 26. maí 1994.
„Au pair“ vist og nám
í Bandaríkjunum
Nú er rétti tíminn til að sækja um ársdvöl
fyrir brottfarir í júlí-ágúst-september.
Umsækjendurskulu uppfylla eftirtalin skilyrði:
★ Vera 18 ára til 25 ára.
★ Hafa einlægan áhuga á umönnun barna.
★ Hafa lokið að minnsta kosti 2 árum í
framhaldsskóla, eða unnið á leikskóla.
★ Hafa góða enskukunnáttu.
★ Vera heilsuhraustir.
★ Vera opnir, glaðlegir og eiga auðvelt
með að aðlagast nýjum og breyttum
aðstæðum.
★ Reykja ekki.
★ Vera með bílpróf.
Farið löglega á vegum samtaka með mikla
reynslu.
Samtökin sendu 3500 ungmenni frá yfir 20
Evrópulöndum á síðasta ári.
Félagsráðgjafar
Félagsmálastofnun Kelfavíkurbæjar óskar að
ráða félagsráðgjafa til afleysinga í 6 mánuði
frá 1. júlí.
Upplýsingar um starfið gefur yfirfélagsráð-
gjafi í síma 92-16700.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Félagsmálastjórinn í Keflavík.
HVOLSVOLLUR
Valið var auðvelt hjá okkur. Samtökin Au pair in America eru traust
samtök með mikla reynslu. Ársdvöl í Bandaríkjunum er engu lík.
Lilja Arna Fríöa og Ásta.
/^WÍEIlKA
Sími 91-611183, 96-23112.
Au pair in America starfa innan samtakanna American Institute
For Foreign Study, sem eru ekki rekin í hagnaðarskyni og starfa með leyfi
bandarískra stjórnvalda.
LAUSSTÖRF
□ BARNGÓÐ AMMA
Leltum að barngóðri og ábyggilegri konu til að
koma inn á heimlli og gœta ungabarns eftir hádegi
3-5 daga í viku. Staðsett mlðsvœðis í Reykjavík.
□ MATRÁÐSKONA
Leitum að matráðskonu fyrir lítið bamaheimili í
Reykjavík. Vinnutími frá kl. 14:00 til 20:00 virka daga.
Unnið aðra hvora helgi. Laun samkvœmt taxta. Þarf
að geta hafið störf í byrjun júlí.
□ HEIMILISHJÁLP
Leitum að konu til að annast almenn heimilisstörf 1 -
2 klst. á dag, 4-5 daga vikunnar. Byrja strax.
□ ÞVOnAHÚS
Leitum að starfsmanni til almennra starfa í
þvottahúsi. Vinnutími frá kl. 8:00 - 17:00 Byrja strax.
□ HEIMILISSTÖRF
Leitum að konu til almennra heimilisstarfa á litlu
barnaheimili í Reykjavík. Vinnutími frá kl. 14:00 til
19:00 virka daga. Unnið aðra hvora helgi. Laun
samkvœmt taxta. Þarf að geta hafið störf í byrjun
júií.
Vinsamlegast sœkið um á eyðublöðum sem
liggja frammi á skrifstofu okkar sem allra fyrst.
RÁÐGJÖF OG RÁÐNINGAR
Laugavegi 178 105 Reykjavík Sími (91) 68 90 99
Leikskólastjóri
Hvolsvelli
Laus er til umsóknar staða leikskólastjóra á
leikskólanum Örk, Hvolsvelli. Starfið felst
m.a. í að sjá um, skipuleggja og vinna að
daglegum störfum í skólanum. Hér er um
heilsdagsstarf að ræða. Ráðningartími er frá
1. ágúst nk. Leikskólinn Örk er nýr og full-
kominn leikskóli sem tekinn var í notkun í
mars sl.
Við leitum að leikskólastjöra sem;
★ hefur menntun til starfsins,
★ hefur frumkvæði og stjórnunarhæfi-
leika,
★ á gott með að umgangast fólk,
★ hefur áhuga á að byggja upp nýja starf-
semi á gömlum grunni.
Laun skv. launakjörum Fóstrufélags íslands
og launanefndar Sambands íslenskra sveit-
arfélaga.
Skriflegar umsóknir sendist til sveitarstjóra
Hvolshrepps, Hlíðarvegi 16, Hvolsvelli fyrir
10. júní nk.
Frá Fræðsluskrif-
stofu Austurlands-
umdæmis
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kenn-
arastöður framlengist til 08.06.1994
Seyðisfjarðarskóli:
Meðal kennslugreina; sérkennsla, hand-
mennt, íþróttir og náttúrufræði.
Grunnskólar í Neskaupstað:
Almenn kennsla, meðal kennslugreina; hand-
mennt.
Grunnskóli Eskifjarðar:
Almenn kennsla, meðal kennslugreina; heim-
ilisfræði og smíðakennsla.
Grunnskólinn Bakkafirði:
Almenn kennsla.
Vopnafjarðarskóli:
Meðal kennslugreina; sérkennsla.
Brúarásskóli:
Almenn kennsla og handmennt.
Grunnskólinn Borgarfirði:
Almenn kennsla.
Egilsstaðaskóli:
Meðal kennslugreina; smíðakennsla.
Alþýðuskólinn Eiðum:
Meðal kennslugreina; íslenska, enska,
stærðfræði og viðskiptagreinar.
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar:
Meðal kennslugreina; danska, myndmennt,
handmennt og stuðningskennsla.
Grunnskólinn Djúpavogi:
Kennsla yngri barna, raungreinar eldri barna,
myndmennt, íþróttir og smíðakennsla.
Upplýsingar veita viðkomandi skólastjórar
og ber að skila umsóknum til þeirra.
FræðslustjóriAusturlandsumdæmis.