Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994 B 23
KANILL og Cassia eru tvær
plöntur með svipað bragð, enda
er þeim oft ruglað saman. Það
eru helst Bretar sem gera skýran
mun á þessu kryddi. Cassia er
eitt elsta krydd sem til er, var
notað í Kína 2.500 fyrir Krists-
burð og í Egyptalandi um var
eitt þúsund árum síðar. Cassia
kom upphaflega frá Burma en
kanill mun seinna frá Ceylon eða
Sri Lanka eins og það heitir í
dag. Á Ceylon höfðu innfæddir
þó notað kanil í margar aldir
enda óx hann þar villtur. Kanill
er mun ljúfari og bragðmildari
en cassia enda miklu dýrari. Hér
áður fyrr var krydd svo dýrmætt
að menn fóru yfir heilu meg-
inlöndin með úlfaldalestir til
þess að koma því á markað.
Mjög algengt er að kanilduft
sé cassia, en hinn raunveru-
lega kanil er erfitt að mala
fínt og nær ógjörningur í
heimahúsum. Cassiabörkur
er ljósari en kanill. Ef kanil-
börkur er brotinn þvert verð-
ur sárið skörðótt, en sárið á
cassiaberki er hreint. Cass-
iaduft er mjög fínmalað en
agnir eru í kanildufti. Þetta
sést vel þegar sykur er settur
saman við. Það kanilduft sem
við kaupum er oftast cassia.
Cassia eða kanill er oft notað-
ur í karrí, sem er blanda af
mörgum kryddtegundum og
í hinni þekktu 5 krydda-
blöndu Kínvyija er cassia ein
tegundin. Á Vesturlöndum
er kanill líklega þekktastur
sem krydd á alls konar epla-
bökur og kökur. Við íslend-
ingar þekkjum allir kanil-
snúða og kanilsykur út á
gijónagraut. Kanill er ekki
algengt krydd í kjötrétti í
hinum vestræna heimi en í
Arabalöndum er kanilbörkur
mjög oft soðinn með kindakjöti.
Mér finnst kanilbörkur ómissandi
í pottrétti úr lambakjöti en hér
birtist uppskrift að grilluðum
Matur og matargerð
KANILLOG
CASSIA
Að þessu sinni notar Kristín Gestsdóttir m.a.
kanil sem krydd á kljúklingabita áður en þeir
fara á grillið.
Kanilkjúklingur
á útigrilli eða í
bakaraofni
1 kjúklingur
1 -1 'h tsk. fínt salt
2-3 msk. matarolía
1 tsk. kanill
% dl hveiti
1. Klippið eða skerið læri og
vængi af kjúklingnum, einnig bak
frá bringu og bringuna í tvennt.
2. Setjið vængi, bak og innyfli
í pott og sjóðið í litlu saltvatni í
um 1 klst.
3. Hitið glóðarristina á baka-
rofninum eða hitið grillið. Takið
grindina úr meðan grillið er að
hitna.
4. Setjið saltið saman við
matarolíuna og penslið kjúkl-
ingabitana með henni.
5. Blandið saman kanil og
hveiti og þekið kjúklingabitana
með því.
6. Smyrjið grindina á grillinu
eða úr bakarofninum. Setjið síð-
an á grillið eða í bakarofninn og
hitið. Hafið mesta hita. Leggið
kjúklingabitana á heita grindina
og grillið á hvorri hlið í um 10
mínútur. Minnkið þá hitann í
minnsta straum og grillið bitna
á báðum hliðum í 15 mínútur.
Notið sömu aðferð við grillið í
bakarofninum.
7. Síið soðið af kjúklingabein-
um og innyflum. Hrærið síðan
hveitihristing eða sósujafnara út
í og sjóðið við hægan hita í 3
mínútur.
Meðlæti: Sósan, soðnar eða
grillaðar kartöflur og soðið græn-
meti.
Kanileplakaka
kjúklingabitum, sem bara eru
kryddaðir með salti og kanil
(cassia). Til þess að hafa eitthvað
sætt með er hér líka uppskrift
af eplaköku sem að sjálfsögðu
er líka krydduð með kanil (cass-
ia).
Botninn:
3 dl hveiti
1 tsk. þurrger
2 msk. sykur
‘A tsk. salt
rifinn börkur af 'h sftrónu
____________30 g smjör___________
____________1 dl mjólk___________
1. Setjið hveiti, þurrger, sykur,
salt og rifinn sítrónubörk í skál.
2. Bræðið smjörið, setjið mjólk>,»
ina út í, þetta á að vera fingur-
volgt, alls ekki heitara. Setjið út
í og hnoðið saman.
3. Smyrjið kringlótt form
23-25 sm í þvermál. Þrýstið deig-
inu á botninn og upp með börmun-
um. Leggið stykki yfír og látið
lyfta sér á volgum stað í 30 mínút-
ur eða lengur.
Ofan á botninn:
____________30 g smjör___________
2 msk. sykur
_________1 'h dl brauórasp_______^
3 græn eða gul epli
1 dl rúsínur____________
'h dl saxaðar hnetur eða möndlur
1. Bræðið smjörið, hafið meðal-
hita. Biandið saman sykri og
brauðraspi, setjið út í og brúnið
örlítið. Gætið þess að þetta brenni
ekki. Kælið og setjið ofan á botn-
inn.
2. Afhýðið eplin, stingið úr þeim
kjarnann, skerið í báta og raðið
ofan á raspið á botninum. Stráið
rúsínum og söxuðum möndl-
um/hnetum yfir.
3. Hitið bakarofninn í 200°C,
blástursofn 190°C. Setjið neðar-
lega í ofninn og bakið í 20-25 .
mínútur.
Eggjahræra ofan á:
______________2egg ______________
___________1 tsk. kanill______
2 msk. sykur
________1 msk. sítrónusafi_______
________1 dós sýrður rjómi_______
1. Þeytið eggin ásamt kanil og
sykri. Setjið sítrónusafa og sýrðan
tjóma út í.
2. Takið kökubotninn úr ofnin-
um, hellið eggjahrærunni yfír.
Setjið aftur í ofninn og bakið í
um 20 mínútur.
3. Berið kökuna fram heita.
Meðlæti: ís eða þeyttur ijómi.
SMtiauglýsingar
Sófasett til söiu, ódýrt
Er í mjög góðu ástandi, sem
nýtt. Nýyfirdekkt, lausir púðar.
Upplýsingar í síma 39981.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Orð lífsins,
Grensásvegi 8
Almenn samkoma kl. 11.00. Allir
hjartanlega velkomnir! Sjón-
varpsútsending á OMEGA kl.
16.30.
Auðbrckka 2 . Kópavocjur
Sunnudagur: Almenn samkoma
I kvöld kl. 16.30.
Þriðjudagur: Biblfulestur kl. 20.30.
Miðvikudagur: Kveðjusamkoma
fyrir Mike Riordan kl. 20.30.
Laugardagur: Unglingasam-
koma kl. 20.30.
Söfnuðurinn ELÍM,
Grettisgötu 62
Almenn kristileg samkoma
sunnudaga kl. 17.00.
Allir hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 • SÍMI 68253’
Árbók FÍ1994 er komin út:
Titill bókarinnar, Ystu strandir
norðan Djúps, vísar til ysta og
nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans
norðan ísafjarðardjúps. M.a.
nær landlýsingin frá Kaldalóni,
um Snæfjallaströnd, Grunnavík,
Jökulfirði, Aðalvík, Hornstrandir
og strandlengjuna niður í Ing-
ólfsfjörð.
Óvenju glæsileg bók og fróðleg,
prýdd yfir 220 litmyndum. Ár-
bókina fá allir félagsmenn gegn
greiðslu árgjalds sem nú er
3.100 kr., óbreytt frá í fyrra.
Gerist félagar strax!
„Sækjum ísland heim“
með Ferðafélaginu í
sumar.
Fjölbreyttar ferðir fyrir alla
aldurshópa.
Fyrstu sumarleyfisferðirnar:
1. 18.-21. júní Breiöafjarðareyjar
Látrabjarg um sumarsólstöður.
2. 22.-26. júnf Esjufjöll. Biðlisti.
3. 22.-26. júníMeðjaðri Vatna-
jökuls, skíðagönguferð.
4. 23.-26. júní Jónsmessuferð
i Skagafjörð. Málmey o.fl.
Helgarferðir í Þórsmörk um
hverja helgi.
Breiðafjarðareyjar-Purkey 4.-5.
júní.
Nánari upplýsingar og farmiðar
á skrifstofu.
Heiðmörk, fyrsta skógræktar-
ferðin er á miðvikudagskvöldið
1. júní kl. 20.00. Frítt.
Allir velkomnir.
Esja, vígsla útsýnisskífu á Þver-
fellshorni verður laugardaginn
4. júní.
Ferðafélag (slands.
Sálar-
rannsókna-
félag íslands
Tove Rasmussen
er danskur miðill,
sem talar bæði
ensku og dönsku.
Hún er mjög góð-
ur og fjölhæfur
_____________Imiöill og fer í
trans, dáleiðir, fer í fyrri líf, vöku-
miðill og vinnur sem huglæknir.
Tove hefur mikla starfsreynslu
og hefur komið til Islands oft
áður. Hún starfar hjá félaginu frá
2.-21. júní.
Bókanir hafnar í símum 18130
og 618130.
Stjórnin.
\\=77
KFUM
SIK, KFUM/KFUK, KSH
Háaleitisbraut 58-60
Almenn samkoma f kvöld kl.
20.00 í Kristniboðssalnum, Háa-
leitisbraut 58-60. Bænastund
kl. 19.40. „Látiö orð Guös búa
ríkulega á meðal yðar". Kól.
3.16. Upphafsorð: Ingólfur Giss-
urarson. Ræöa: Guölaugur Heið-
ar Jakobsson. Komum saman
og skoðum dáðir Drottins!
Athugið að þetta er síöasta
sunnudagssamkoman þar til 21.
ágúst. Samkomurnar flytjast
yfir á miðvikudaga frá og með
8. júní. Munið kaffisöluna í Vind-
áshlíð í dag.
Almenna kristilega mótið f
Vatnaskógi verður helgina
24.-26. júní. Innritun þeirra sem
þurfa svefnpláss innanhúss
hefst mánudaginn 30. maí á
aðalskrifstofunni.
Kristniboðsfélag karia,
Reykjavík
Fundur verður í kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60, mánu-
dagskvöldið 30. mai kl. 20.30.
Benedikt Arnkelsson hefur bibl-
íulestur.
Allir karlmenn velkomnir.
Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.00. Athugið breyttan sam-
komutíma. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Barnagæsla.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nýja
fiostulakirkjan
slandi,
Ármúla 23,
108 Reykjavik.
Guðsþjónusta sunnudag kl.
11.00. Peter Tege prestur þjón-
ar. ,,..vér óskum að sérhver yðar
sýni sömu ástundan allt til enda,
þar til von yðar fullkomnast"
(Hebr. 6.11).
Verið velkomin f hús Drottins.
§Hjálpræðis-
herinn
y Kirkjustræti 2
Kl. 11.00: Fjölskyldusamkoma.
Lok sunnudagaskólans.
Kl. 16.00: Útisamkoma á Lækj-
artorgi. Kl. 20.00: Hjálpræðis-
samkoma. Kapt. Ann Mereth
Jakobsen og Erlingur Níelsson
sjá um samkomur dagsins.
Mánudag 30. mai kl. 10.00:
Ferðalag heimilasambandsins.
Flómarkaður í Kirkjustræti 2
þriðjudag og miðvikudag kl.
10-17.
Ungt fólk
j^| með hlutverk
tqíSS YWAM - ísland
Samkoma í Breiðholtskirkju i
kvöld kl. 20.30. Mikil lofgjörö.
Eyvind Fröen frá Noregi prédikar.
Fyrirbænaþjónusta.
Allir hjartanlega velkomnir.
fomhjálp
Samkoma verður í dag í Þríbúð-
um kl. 16.00. Mikill söngur. Vitn-
isburðir. Ræðumaöur Brynjólfur
Ólason.
Allir hjartanlega velkomnir.
Samhjálp.
UTIVIST
Hallveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnud. 29.
maíkl. 10.30 Klóarvegur
Brottförfrá BSl bensínsölu, mið-
ar við rútu.
Helgarferðir3.-5.júní
Breiðafjarðareyjar.
Básar við Þórsmörk.
Upplýsingar og miðasala á skrif-
stofu Útivistar.
Dagsferð laugard. 4. júní kl.
13.00 Heiðmörk - Lækjarbotnar.
Þátttakendur mæta við Árbæjar-
safn á eigin bílum.
Ekkert þátttökugjald.
Dagsferð sunnud. 5. júní
kl. 10.30 Stóri-Bolli.
3. áfangi lágfjallasyrpu.
Útivist.
' VEGURINN
v Kristið samfélag
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Á sunnudag: Fjölskylduferð í
Heiðmörk, grill og fieriæ
skemmtilegt. Lagt af stað frá* 1 2 3
Veginum kl. 11.00, áætluð heim-
koma kl. 13.00.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Allir velkomnir.
„Ef þú trúir, munt þú sjá dýrð
Guðs.“ Jóh. 11.40.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Göngudagur Ferðafélagsins
sunnudaginn 29. maí
Fjölskylduganga (1l/2 klst.) kl. 13.
Lengri ganga (3-4 klst.) kl. 10.30.
Göngudagurinn sem haldinn er
í 16. sinn er núna tileinkaður ári
fjölskyldunnar. Vestfjarðaleið
gefur aksturinn og þátttöku-
gjald er því ekkert.
Kl. 13.00 Fjölskyldugangan: Sil-
ungapollur-Heiðmörk. Farið um
lítt kunnar slóðir hjá Silungapolli
og í norðanveröri Heiðmörk.
Sérlega fallegt svæði sem kem-
urverulega á óvart. Um 1,5 klst.
ganga.
Kl. 10.30 Lengrí gangan: Sand-
fell-Selfjall. Ekið inn á Bláfjalla-
veginn og gengið þaðan um
Sandfell og Selfjall i Heiðmörk.
Hóparnir hittast í fallegri laut
innan Heiðmerkurgirðingar við
söng, hljóðfæraleik og veiting-
ar. Mjólkursamsalan gefur
drykkl.
Brottför með rútum frá BSf,
austanmegin og Mörkinni 6 og
við ítrekum að þátttökugjald
er ekkert. Þátttakendur á eigin
bilum mæti við Heiðmerkurhlið
ofan Silungapolls. Fjölmennið
og njótið hollrar hreyfingar og
útiveru með Ferðafélaginu.
Ferðafélag Islands.