Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 22
22 B SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Landsliðið í handknattleik
U ndirbúningnr undir
HM hófst á Blönduósi
Blönduósi - Landsliðið í handknatt-
leik dvaldi við æfingar og leik á
Blönduósi í í]óra daga í sl. viku.
Landsliðsmennirnir léku auk þess
æfingaleik við styrkt KA-lið og
höfðu sigur. Að sögn Þorbergs Aðal-
steinssonar landsliðsþjálfara er að-
staða til æfinga á Blönduósi mjög
*góð, sem byggist fyrst og fremst á
mjög góðri aðstöðu í nýja íþróttahús-
inu.
Þorbergur gat þess einnig að
Blönduósdvölin hefði boðið upp á
meira en handknattleik því menn
gátu m.a. leikið golf og farið í veiði.
Til gamans má geta þess, að Patrek-
ur Jóhannesson fékk sinn fyrsta fisk
í þessari ferð, sem var 4-5 punda
urriði veiddur í Langavatni. Einnig
er rétt að geta þess, að Valdimar
Grímsson setti hraðamet í 230 metra
háum hringstiga í stöðvarhúsi
Blönduvirkjunar, en hann fór upp
stigann á rúmum tíu mínútum.
Landsliðsmennirnir gistu í nýleg-
um sumarhúsum sem htutafélagið
Glaðheimar á í svokölluðum Braut-
arhvammi og létu allir vel af vist-
inni. Þorbergur Aðalsteinsson varp-
aði fram þeirri hugmynd, að upplagt
væri að skipuleggja og markaðssetja
æfíngabúðir á Blönduósi fyrir fé-
lagsliðin í handknattleik í framtíð-
inni.
Morgunblaðiö/Jón Sigurðsson
LANDSLIÐSMENN ásamt fjölskyldum sínum fyrir utan eitt sumarhúsanna á Blönduósi.
Kaffisala i Vindáshlíó
Sumarstarf KFUK í Vindáshlíð hefst í dag kl. 14.30 með guðsþjónustu
í Hallgrímskirkju í Vindáshlíð. Að henni lokinni verða seldar kaffiveitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
ttAMÞAUGL YSINGAR
Frá menntamálaráðuneytinu
Innritun nemenda ífram-
haldsskóla íReykjavík
fer fram í Miðbæjarskólanum við Fríkirkjuveg
dagana 1. og 2. júní nk. frá kl. 9.00-18.00.
Umsóknum fylgi Ijósrit af prófskírteini.
Námsráðgjafar verða til viðtals í Miðbæjar-
skólanum innritunardagana.
Frá Háskóla íslands
Skrásetning nýrra stúdenta
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í
Háskóla íslands skólaárið 1994-1995 fer
fram í Nemendaskrá í aðalbyggingu Háskól-
ans dagana 1.-15. júní 1994. Umsóknar-
eyðublöð fást í Nemendaskrá sem opin er
kl. 10-15 hvern virkan dag á skráningartíma-
bilinu.
Við nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafn-
framt á námskeið á komandi haust- og
vormisseri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eða staðfest afrit af stúdentsprófs-
skírteini (Ath! Öllu skírteininu).
2) Skrásetningargjald kr. 22.975,-.
Ljósmyndun vegna stúdentaskírteina fer
fram í skólanum í september 1994.
Ekki ertekið á móti beiðnum um nýskrásetn-
ingu eftir- að auglýstu skrásetningartímabili
lýkur 15. júní nk. Athugið einnig að skrásetn-
ingargjaldið er ekki endurkræft eftir 20.
ágúst 1994.
Mætið tímanlega til að forðast örtröð.
IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK
Innritun
Innritun fyrir haustönn fer fram í Iðnskólan-
um í Reykjavík, á Skólavörðuholti, dagana
1.-3. og 6.-7. júní, kl. 10.00-18.00. Innritað
verður í eftirtalið nám:
I. Dagnám
1. Samningsbundið iðnnám (námssamn-
ingur fylgi umsókn).
2. Bókagerð (prentun, prentsmíð, bók-
band).
3. Fataiðnir.
4. Hársnyrting (áður grunndeild í háriðnum).
5. Grunndeild í málmiðnum.
6. Grunndeild í múrsmíði.
7. Grunndeild í rafiðnum.
8. Grunndeild í tréiðnum.
9. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði.
10. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun.
II. Framhaldsdeild í hárgreiðslu.
12. Framhaldsdeild í hárskurði.
13. Framhaldsdeild í húsasmíði.
14. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði.
15. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun.
16. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvéla-
virkjun.
17. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði.
18. Almennt nám.
19. Tölvufræðibraut.
20. Tækniteiknun.
21. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi).
11. Kvöldnám) (meistaranám og öldunga-
deild)
1. Meistaranám (auk annarra gagna fylgi
sveinspróf).
2. Almennar greinar.
3. Grunnnám í rafiðnum.
4. Rafeindavirkjun.
5. Tölvufræðibraut.
6. Tæknibraut.
7. Tækniteiknun.
Innritun er með fyrirvara um þátttöku í ein-
stökum deildum og áföngum.
Öllum umsóknum skal fylgja staðfest afrit
prófskírteina með kennitölu.
Nánari upplýsingar eru gefnar í skrifstofu
skólans sem er opin virka daga kl. 9.30-
15.00, sími 26240.
FJÖLBRAUTASKÓLINN VIÐ ÁRMÚLA
ARMULA 12 • 108 REYKJAVtK ■ SIMI 84022
Innritun
Innritun fyrir næsta skólaár stendur nú yfir.
Umsóknarfrestur um almennt nám er til
föstudagsins 3. júní og skal skila umsóknum
á skrifstofu skólans. Hún er opin kl. 8.00-
15.00, sími 814022. Þeir nemendur, sem fá
skólavist, fá sendan gíróseðil fyrir nemenda-
gjöldum, kr. 5.900, sem þeir þurfa að greiða
til þess að staðfesta umsókn sína.
í skólanum eru eftirtaldar þrautir:
Tveggja ára nám:
Uppeldisbraut, íþrótta- og félagsmálabraut
og verslunar- og skrifstofubraut.
Nám til stúdentsprófs:
Hagfræði- og viðskiptabraut, félags- og
sálfræðibraut, íþróttabraut, náttúrufræði-
braut, listdansbraut (í samvinnu við Listdans-
skóla íslands) og nýmálabraut.
Heilsugæslusvið:
Sjúkraliðabraut. Þriggja ára nám. Lögvernd-
uð starfsréttindi.
Námsbraut fyrir aðstoðarfólk tannlækna.
Tveggja og hálfs árs nám í samvinnu við
Háskóla íslands. Lögvernduð starfsréttindi.
Læknaritarabraut. Ars nám í skólanum, sex
mánaða starfsþjálfun á heilbrigðisstofnun-
um. Stúdentspróf eða sambærileg menntun
áskilin. Lögvernduð starfsréttindi.
Lyfjatæknabraut. Tveggja ára nám að loknu
tveggja ára aðfaranámi. Auk þess 10 mán-
aða starfsþjálfun í lyfjaverslunum. Lögvernd-
uð starfsréttindi.
Námsbraut fyrir nuddara. Þriggja ára nám
í skólanum og verklegt nám í Skóla Félags
íslenskra nuddara. Síðan tekur við árs starfs-
þjálfun á launum hjá meistara.
Framhaldsnám sjúkraliða
Framhaldsnám sjúkaliða hefst 9. janúar 1995
og lýkur með prófum í maí 1995.
Umsóknarfrestur um það er til 22. ágúst
næstkomandi.
Að þessu sinni verður fjallað um geðhjúkrun.
Kenndar verða 36 stundir á viku.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu skólans.
Skólameistari.