Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.06.1994, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Hágangur II hefur veríð við veiðar á Sval- barðasvæðinu frá því í lok maí og hefur skipinu verið stöðugt fylgt eftir af varðskip- um og flugvélum norsku strandgæslunnar NORSKA strandgæslan reyndi nokkrum sinnum að klippa á togvíra Hágangs II, þar sem hann var að veiðum á Svalbarðasvæðinu nýlega, en án árangurs að sögn Eiríks Sigurðssonar skipstjóra og Norðmenn hafí með aðgerðum sínum oft stefnt lífi eigin manna í hættu. Hágangur II kom til Vopnafjarð- ar fyrir hádegi í gær, eftir að hafa verið að veiðum á Svalbarðasvæð- inu frá því í lok maí. Var þetta fyrsta ferð skipsins eftir að það var keypt til Vopnafjarðar, en skipið er skráð í Belize. Eiríkur segir að of mikil harka sé hlaupin í deilum- ar við Norðmenn og tími sé kominn til að íslensk stjómvöld bretti upp ermamar. „Það er orrusta í gangi núna,“ segir Eiríkur. „Það er smá- hlé í einhveija daga en síðan verður haldið áfram.“ Eiríkur segir að ástæða þess að strandgæslunni tókst ekki að klippa á togvírana hafi verið sú að þeir hafi ekki kunnað almennilega á klippumar til að byrja með. „Við höfðum alltaf einhver ráð til að forðast þá,“ segir hann. „Enda var ekki hundrað í hættunni þó þeim hefði tekist að klippa á vírana.“ Það tekur ekki nema í mesta lagi tvo tíma að slæða upp veiðarfærin og gera þau kastfær á ný. Norðmenn hafi hins vegar haldið að ef þeim tækist að klippa veiðarfærin af, þá myndu skipin halda heim. Á laugardag bárust þær fréttir frá Noregi að tekist hefði að klippa á togvíra Hágangs II og segir Eirík- ur að svo virðist sem Norðmenn hafi verið að stæra sig af einhveiju sem ekki tókst. Þegar hann hafí leitað svara hjá einu norsku varð- skipanna hafi fátt verið um svör. Norðmenn stefndu lífi eigin manna í hættu Eiríkur og Sölvi Sölvason, yfir- vélstjóri á Hágangi II, lýsa báðir yfir undrun sinni á aðferðum norsku strandgæslunnar við að klippa á togvírana og segja að þeir hafi oft stefnt lífí eigin manna í hættu. Gæslan hafí meðal annars sent ] [Útl lí 1 til Iboð ðÍARISTON bi/nffai/ól á tilhrtrii Verð áður kr. 72.800 Tilboð kr. 59.900 Staðgreitt kr. 55.700 s Tekur 5 kg af þvotti ■ Stiglaus hitastillir * Sparnaðarrofi Tromla og belgur úr ryðfríu stáli ■ 16 þvottakerfi fyrir venjulegan þvott, viðkvæman þvott og ull. a Stiglaus stilling á vindu, allt að 1200 snúningar pr. mín. BYGCTÖlðlD i KRINGLUNN1103 REYKJAVÍK - SÍMI 689400 _______________________________FRÉTTIR______________________________ I Skipstjórinn á Hágangi II segir aðferðir norsku strandgæslunnar fáránlegar ' menn á litlum 200 kg slöngubáti, líkum og margar björgunarsveitir eiga, til að klippa á togvírana. Eirík- ur segir að mennirnir í bátnum hafí aldrei náð að húkka í vírinn á Hágangi, þeim hafí hins vegar tek- ist það hjá Blika EA, en ekki tekist að klippa á vírinn. Togvírarnir séu sverir og þoli óhemjuátak. „Þeir reyndu að koma á bátnum upp rennuna á skipinu," segir Sölvi. „Maður var orðinn hræddur um að það yrði slys.“ Eiríkur segir að þetta hafi verið stórhættulegt fyrir mennina í bátnum. „Þetta var fár- ánleg aðferð,“ segir Eiríkur. „Það var heppni að bátnum hvolfdi ekki.“ Fylgst með skipinu frá upphafi Hágangur var einn á veiðum fyrstu 10 dagana á Svalbarðasvæð- inu. Var skipið að veiðum vestur af Bjarnarey. Þangað fór hann því engin veiði var í Smugunni. Eiríkur segir að strax í upphafi hafi verið vel fylgst með þessari fyrstu ferð skipsins. „Við náðum hins vegar að snúa þá af okkur fyrstu dag- ana,“ segir Eiríkur. Hágangur II er 18 ára gamall, keyptur frá Kanada og er 500 tonna skip. Þegar hin íslensku skipin sjö mættu svo á vettvang hafi þau stað- ið mjög vel saman í öllum aðgerð- um. Þrátt fyrir að Hágangur II sé skráður í Belize hafí þeir ákveðið að vera í samfloti með íslensku skipunum, enda sé áhöfnin, 18 EIRÍKUR Sigurðsson skipstjóri. manns, íslensk. í athugun er að skrá skipið hér á landi á næstunni. Eiríkur segir að það hafí ekki virst skipta máli hvar skipin voru skráð. Norðménn hafi komið eins fram við íslensku togarana og Hágang II „Þeim finnst skip frá Belize hafa sama rétt til veiða þarna og ís- lensku togararnir,“ segir hann. íslensku skipin vöktuðu hvert annað þegar þau voru að toga eða að slæða upp trollið. Eiríkur segir að fullt samráð hafi verið á milli skipanna og þau hafí verið samstíga í aðgerðum sínum, en ætlunin hafí verið að kanna hver viðbrögð Norð- mannanna yrðu við veiðunum. Hann segir að á þeim rúmum þremur vikum sem skipið hafi verið á veiðum, þar af fóru um sjö dagar í siglinga til og frá svæðinu, hafí þeir séð átta mismunandi varðskip norsku strandgæslunnar á Sval- barðasvæðinu, auk flugvéla. Samskípti góð til að byija með Eiríkur segir að samskiptin við strandgæsluna hafi til að byija með verið góð, þótt stöðugt hafi verið reynt að reka Hágang II til að hífa veiðarfærin og hrekja skipið burt af svæðinu. Undir lokin hafí sam- OLIVESTMANN EINARSSON LÁ TINN ÓLI Vestmann Einars- son, prentari, lést á gjör- gæsludeild Borgarspít- ala 19. júní sl. Óli fædd- ist 25. febrúar 1916 í Reykjavík, sonur Einars Ólafssonar, vélstjóra, og Guðbjargar Gunnlaugs- dóttur. Óli hóf prentnám í ísafoldarprentsmiðju 1934, lauk því 1938 og fékk sveinspróf 1940. Hann starfaði í ísafold- arprentsmiðju til 1943 þegar hann hóf störf hjá Víkings- prenti. Þar starfaði hann til 1946 þegar hann stofnaði ásamt öðrum Borgarprent, þar sem hann starfaði áratugum saman. Óli stundaði fram- haldsnám við Kobenhavn Tekniske Skole 1953 og fór með nokkurra ára millibili í kynnisferðir til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs til að kynna sér stöðu prentskólamála þar og sótti m.a. kennaranámskeið í Noregi 1967. Honum var falið að skipuleggja prent- námsdeild við Iðnskól- ann, sem tók til starfa 1957, og var kennari prentgreina frá upp- hafí. Óli gegndi stöðu yfirkennara hjá Iðn- skólanum frá 1982 en lét af störfum fyrir ald- urs_ sakir 1988. Óli sinnti margvísleg- um trúnaðarstörfum, gegndi m.a. formennsku í Kennarafélagi Iðnskól- ans, Sambandi sérskóla í Reykjavík og fræðslu- nefndar í prentsetningu, sat í stjóm prentskólasjóðs, utanfarasjóðs kenn- ara Iðnskólands, Landsambands fram- haldsskólakennara og í ritnefnd Ás- garðs, tímarits BSRB, og í prófnefnd í setningu, svo fátt eitt sé nefnt. Hann var margsinnis íúlltrúi prentara og Iðnskólans á þingum og í ráðum, hér- lendis og erlendis. Óli kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Jónu Einarsdóttur, árið 1939, og áttu þau þijú böm. skiptin við strandgæsluna hins veg- ar verið orðin mjög stirð. Keyrt hafí um þverbak á laugardag, þeg- ar aðgerðir strandgæslumanna urðu miklu grófari og þeir reyndu að sigla niður íslenskan togará. Hann segir að Hágangur II hafi þá reynt að slíta sig frá strandgæsl- unni meðan á aðgerðum hennar gegn íslensku skipunum stóð, en það ekki tekist. Þá hafi Norðmennimir oft óskað eftir að fá koma um borð, segir Eiríkur, en hann hafi ávallt neitað að verða við því. Friðrik Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Úthafs hf., sem gerir út Hágang I og II, segir að skip- stjórinn hafi fengið þau fyrirmæli að fara varlega. Einnig að ekki kæmi til greina að hleypa norskum strandgæslumönnum um borð. „Við höfum fullan rétt á því að neita þeim að koma um borð,“ segir hann. Eiríkur segir að Norðmennirnir hefðu þurft að hafa fyrir því ef þeir hefðu ætlað sér að koma um borð. „Þeir reyndu það aldrei eftir að ég bannaði það,“ segir hann. Þetta telur Eiríkur athyglisvert, sé haft í huga að skipið er skráð í Belize og liggi því vel við höggi. „Norðmenn vita að stjórnvöld í Belize veita skipum sem em skráð þar enga aðstoð,“ segir Eiríkur. Þetta bendi til þess að Norðmenn álíti réttarstöðu sína veika. Eiríkur segir að það hafi vantað fleiri íslensk skip á svæðið, því nán- ast hafi verið eitt varðskip á hvern togara. Varðskipin eru um helmingi hraðskreiðari en Hágangur II, ná um 25 sjómflna hraða á móti 11 sjómílna hraða togarans. Auk þess eru þau mun stærri. Anægður með aflann i > i i > > l Eiríkur og Friðrik em ánægðir eftir túrinn. Skipið hafí reynst mun betur en þeir bjuggust við og hafí farið fram úr öllum vonum. Há- gangur II veiddi 150 tonn úr sjó, sem gerir um 70 tonn af saltfiski. Þar af hafí þeir fengið um 100 tonn í þremur stuttum hollum á sjó- mannadaginn, en eftir það hafí ver- ið lítill friður til veiða. Aflaverðmæt- ið er um 15 milljónir. Aflinn var nokkuð blandaður en þorskurinn þótti fremur horaður. „Hann virðist ekki hafa nóg að éta þama,“ segir Eiríkur. „Það er æti annars staðar á svæðinu, en þorskurinn hangir þarna einhverra hluta vegna.“ i lífi eigin oftsinnis manna í hættu SÖLVI Sölvason, yfirvélstjóri á togaranum Hágangi II sem kom til Vopnafjarðar í gær. FRIÐRIK Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tangans hf. og Úthafs hf. sem gerir út Hágang I og II. SVEINN Oddsson var að mála bryggjukantá Vopna- firði ásamt félögum sínum úr unglingavinnunni. Norðmenn stefndu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.