Morgunblaðið - 23.06.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 23.06.1994, Síða 6
6 FIMMTUDAGÚR 23. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Félag íslenskra stórkaupmanna um úrskurð Samkeppnisráðs Urskurður með fordæmisgildi FÉLAG íslenskra stórkaupmanna fagnar úrskurði Samkeppnis- ráðs þess efnis að sveppaframleiðendum sé skylt að selja dreif- ingarfyrirtækjum afurðir sínar á því tímabili þegar takmarkan- ir á innflutningi grænmetis eru i gildi. Málsvarar félagsins full- yrða að úrskurðurinn hafi víðtækt fordæmisgildi og telja enn- fremur að úrskurðurinn taki af allan vafa um gildissvið búvöru- laga. Þau taki aðeins til framleiðslu búvara en samkeppnislög taki aftur á móti til dreifingar þeirra. Fjöldi reiðhjóla- þjófnaða 249 tilkynningar um þjófnaði á reiðhjólum hafa borist lögregl- unni í Reykjavík á þessu ári, þar af 89 í maí og 74 fyrstu 20 daga júní. í fyrra bárust lögreglunni upplýsingar um 435 reiðhjóla- þjófnaði og 389 árið 1992. Al- gengastir eru þjófnaðir af þessu tagi í maí og júní. Þannig var 16 reiðhjólum stolið í janúar, 15 í febrúar, 25 í mars, 32 í apríl, 89 í maí og 74 hjól hafa horfið það sem af er júní. Lögreglan bendir hjólreiða- fólki á að geyma fararskjóta sína innan dyra á nóttunni og læsa þeim tryggilega við jarð- fasta hluti þegar þeir eru skildir eftir utan dyra. Félag íslenskra stórkaupmanna kvartaði yfir því við Samkeppnis- ráð í maí í fyrra að fyrirtækið Flúðasveppir hafi synjað dreifing- arfyrirtæki innan FIS um viðskipti með sveppi. Félagið taldi þetta varða við grundvallarákvæði sam- keppnislaga og „kærði“ fyrirtækið. Stefán Guðjónsson framkvæmda- stjóri Félags íslenskra --------- stórkaupmanna segir að úrskurður ráðsins marki tvímælalaust tímamót. „Það tók Samkeppnisráð eitt ár “““1“““ að vinna í kvörtun okkar, sem lögð var fram í maí í fyrra. Við erum mjög ánægðir með lyktir málsins og teljum að tekið hafi verið undir öll okkar sjónarmið,“ sagði hann. Gæti átt við um fleira „Úrskurðurinn gefur til að kynna að skýr mörk liggja á milli framleiðslu og vörudreifingar. Vörudreifingin á samkvæmt úr- skurðinum eins og önnur verslun að falla undir samkeppnislög. Við höfum síðan ályktað að þessi niður- staða hafi fordæmisgildi varðandi dreifingu á öllum tegundum græn- metis,“ sagði Stefán. Aðspurður kvaðst Stefán ekki útiloka að sama eigi við um aðrar búvörur, svo sem • mjólk og kjötvörur. Grundvallarmál Birgir Rafn Jónsson formaður Félags íslenskra stórkaupmanna tók það fram að félagið hefði í sjálfu sér ekkert út á búvörulögin að setja. Hins vegar væri það grundvaliarmál að tryggja eðlilega viðskiptahætti og að túlka ekki búvörulögin of vítt eins og ýmsum hafi hætt til. „Við höfum ennfrem- ur gagnrýnt starfsreglur innflutn- ingsnefndar garðagróðurs. Við teljum t.a.m. óeðlilegt að innflutn- __________ ingur sé miðaður við birgðastöðu bænda. Við höfum óskað eftir því við landbúnaðar- ráðuneytið að reglum- ar verði endurskoðað- ar,“ sagði hann. Stefán og Birgir Rafn staðfestu að ekki yrði hikað við að vísa til þessa úrskurðar ef til sams konar deilna kæmi aftur. Þeir telja að aðgengi dreifingaraðila að fram- leiðslu eigi að vera jafnt og að bændur eigi ekki að geta selt af- urðir sínar einungis einum aðila. „Úrskurðurinn er feikna mikill þrýstingur á það að ekki verði lok- að á innflutning grænmetis en aðeins með fijálsum innflutingi er hag neytenda borgið,“ sagði Birgir Rafn Jónsson að lokum. Skýr mörk milli framleiðslu og dreifingar Morgunblaðið/Alfons Hjónavígsla á Jökli SNÆFELLSJÖKULL hefur alltaf haft mikið aðdráttarafl og þótt leyndardómsfullur staður. Brúð- hjónunum Suzanne Rita Frye og hinum íslensk ættaða Harry Michael Engel III frá Lancaster í Kalíforníu þótti a.m.k. svo mik- ið til hans koma að þau ákváðu að láta gefa sig saman uppi á kolli jökulsins á þriðjudaginn var af sr. Agnesi M. Sigurðardóttur sóknarpresti á Hvanneyri. Hin nýgiftu höfðu raunar lengi haft hug á því að láta pússa sig saman á íslandi og komu hingað til lands í fyrra í því skyni að velja sér kirkju. Að lokum breyttist þó kirkjuloftið í beran himinn og kirkjugólfið í jökulbreiðu. Brúð- arkjóllinn var sérhannaður fyrir jöklabrúðkaup en bæði voru þau prúðbúin rnjög. Hjónin og gest- irnir sem voru 73 talsins fóru á upp á jökulinn á 14 snjósleðum en skíðuðu svo niður eftir vel heppnaða athöfn. Það var ferða- skrifstofan Addís sem skipulagði ferðina á jökulinn. Sex milljónum króna úthlutað til 21 verkefnis á sviði landgræðslu Kaupmenn og Landvemd deila um Pokasjóð ÚTHLUTAÐ hefur verið 6 milljónum úr Pokasjóði Landverndar. Flest bendir til að þetta verði síðasta úthlutun úr sjóðnum, en ágreiningur er á milli Landverndar og kaupmanna um sjóðinn. Kaupmenn vilja fá meiri áhrif á úthlutanir úr sjóðnum og eins telja þeir að þeirra framlag til sjóðsins hafi ekki verið kynnt nægilega vel. Morgunblaðið/Ámi Sæberg AUÐUR Sveinsdóttir, formaður Landverndar, gerði grein fyrir úthlutunum Pokasjóðs við hátíðlega athöfn í Sigurjónssafni. íþróttavöllurinn á Laugarvatni Yerkið hafið á ný Pokasjóður var stofnaður árið 1989, en það ár náðist samkomu- lag á milli Landverndar og kaup- manna um að hluti andvirðis hvers plastburðarpoka renni til umhverf- isverndar á vegum Landverndar. Á þessum fimm árum hefur Poka-' sjóður úthlutað um 80 milljónum. Tæplega 50% framlaga hafa farið til einstaklinga og áhugamannafé- iaga, 17% hafa farið til skógrækt- arfélaga og 18% til verkefna með sveitarfélögum. Auður Sveinsdótt- ir, formaður Landverndar, sagðist telja úthlutun margra smárra styrkja rétta stefnu. Flestir styrk- þegar leggja fram mótframlög og sjálfboðaliðastarf sem magna áhrifin af styrknum. Aðeins sex milljónum úthlutað núna Vegna óvissunnar um framtíð Pokasjóðs var einungis 6 milljón- um úthlutað úr sjóðnum í ár, en venjulega hefur um 20 milljónum verið úthlutað. Þessar milljónir fara til 21 verkefnis, en 170 um- sóknir bárust stjóm sjóðsins. Auður sagði enn ekki útilokað að samkomulag náist um áfram- haldandi rekstur Pokasjóðs, en á þessari stundu bendi þó flest til að upp úr samstarfinu slitni. Magnús Finnsson, fram- kvæmdastjóri Kaupmannasam- takanna, sagði að kaupmenn hefðu enn trú á að samningar tak- ist um áframhaldandi samstarf við Landvernd. Hann sagði að áhugi sé hins vegar á því meðal sumra kaupmanna að breyta samstarf- inu. Hann sagði að margir telji vænlegra til árangurs að veita færri styrki en stærri. „Það hefur mikið áunnist með þessu sam- starfi. Kaupmannasamtökin eru líklega þau samtök í landinu sem hafa látið sig einna mest skipta náttúruvernd og endurvinnslumál og við hyggjumst halda því starfi áfram,“ sagði Magnús. FRAMKVÆMDIR eru nú hafnar við fijálsíþróttavöllinn á Laugar- vatni að nýju, en framkvæmdir voru stöðvaðar um miðjan mánuðinn vegna gjaldþrots þýska fyrirtækis- ins Balsam, sem sér um að leggja gerviefni á völlinn. Þórir Jónsson, formaður UMFÍ, segist telja góðar líkur á að völlurinn verði tilbúinn fyrir landsmót UMFÍ 14. júlí. Það fari þó nokkuð eftir veðri næstu daga, en þurrt þarf að vera í veðri meðan verið er að leggja efnið á völlinn. Þórir sagði að stjórn UMFÍ hafí lagt drög að neyðaráætlun ef völlur- inn verði ekki tilbúinn fyrir 14. júlí. Hann sagði að auðvelt sé að leysa vandamál í sambandi við kastgrein- ar, en erfíðara sé að leysa þau hvað varðar hlaupagreinar. Þórir sagðist hins vegar gera sér vonir um að ekki þurfi að grípa til neyðaráætl- unar og íþróttavöllurinn verði tilbú- inn í tíma. Þórir sagði að undirbúningur undir landsmótið gangi að öðru leyti vel. Undirbúningur miði við að hægt verði að taka á móti 15-20 þúsund manns. Hann sagði að fjöldi landsmótsgesta komi til með að ráðast mjög mikið af veðri. Sjúkrahús Siglufjarðar Skurðstof- unni lokað í sumar SKURÐSTOFU Sjúkrahúss Siglufjarðar verður lokað í tæpa þijá mánuði í sumar vegna sum- arleyfa. Valþór Stefánsson lækn- ir sagði að þessi lokun væri baga- leg og hún þýddi óhjákvæmilega minni þjónustu við sjúklinga. Hann sagði að sjúkrahúsið þyrfti, eins og mörg önnur sjúkrahús á landsbyggðinni, að draga saman seglin yfir sumarmánuðina. Skurðlæknirinn við sjúkrahúsið fór í þriggja mánaða námsleyfí og tók sjúkrahússtjórnin þá ákvörðun að ráða ekki lækni til að leysa hann af. Þetta er gert í sparnaðar- skyni. Valþór sagði að út frá ör- yggissjónarmiði mætti segja að þessi lokun sé helst framkvæman- leg yfir sumarmánuðina, þegar samgöngur eru yfirleitt góðar. Hann sagði að ekki verði hins veg- ar horft framhjá því að lokunin þýði minni þjónustu við sjúklinga. Vísa verði ákveðnum hópi sjúkl- inga frá sjúkrahúsinu. Valþór sagði að flest öll sjúkra- hús á landsbyggðinni hafi sömu sögu að segja varðandi minni þjón- ustu yfír sumarmánuðina. Á seinni árum hefði sú þróun átt sér stað á sjúkrahúsunum að starfsemi þeirra sé dregin saman á sumrin samhliða sumarleyfum starfsfólks.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.