Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 13

Morgunblaðið - 23.06.1994, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 13 LANDIÐ Héraðsdómur Norðurlands eystra Sjópróf vegna afskipta norsku strandgæslunnar SJÓPRÓF vegna afskipta. norsku strandgæslunnar af Blika frá Dal- vík, Drangey og Hegranesi frá Sauðárkrógi við Svalbarða fara fram fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra á Akureyri í dag. Ásgeir Pétur Ásgeirsson, héraðsdómari, sagði að hafist yrði handa við að safna gögnum vegna réttarhaldanna um leið og hægt yrði að ná til skipanna símleiðis síðdegis í gær. Hann sagðist hafa upplýs- ingar um að myndbandsupptökur væru til af atburðum og yrðu þær væntanlega sýndar í réttinum. Jafnframt yrðu leiknar hljóðupptökur af atburðum. Morgunblaðið/Rúnar Þór NEMARNIR frá vinstri er Sævar Helgason, Stefán Sigurðarson, Sigurður Gauti Hauksson, Hákon Gunnar Hákonarson, Hörður Jörundsson kennari, Jón Bragi Skírnisson, Hjördís Stefánsdóttir og Sigurlaug Skaftadóttir, en á myndina vantar tvo nema, þau Ingibjörgu Guðlaugsdóttur og Sigurð Lárus Sigurðsson. Málarar undirbúa sveinspróf MÁLARADEILD var starfandi við Verkmenntaskólann á Akur- eyri í vetur, en þar sem nemend- ur í málaraiðn eru fremur fáir starfar deildin ekki livern vetur. Þeim er því safnað saman þar til nægum fjölda er náð en síð- asta vetur voru nemarnir átta og hafa aldrei verið fleiri. Deildin er til að undirbúa nem- endur undir sveinspróf, en kennd er litafræði og blöndun lita fyrri hluta vetrar en áhersla lögð á málun, lökkun, litasamræmi, skiltamálun og ýmiskonar skreytingar síðari hlutann. DAGSKRÁ vegna útdráttar í riðla í HM 95 hefst með tónleikum sunn- an við íþróttahöllina kl. 17 í dag. Að þeim loknum kastar Valdimar Grímsson, landsliðsmaður í hand- knattleik, sex boltum út úr höllinni og láta 400 til 500 böm úr KA og Þór og aðrir áhugamenn um íþrótt- ir boltana ganga á milli sín út á flugvöll. Með flugvél fara boltarnir til Reykjavíkur og lenda fallhlífa- stökkvarar með þá við Laugardals- höllina kl. 20.30. Hermann Gunn- arsson stjórnar drætti í riðla stund- víslega kl. 21. Benedikt Guðmundssson, úr Þetta er eini skólinn fyrir verðandi húsamálara á landinu að frátöldum Iðnskólanum í Reykjavík og hefur hann í vetur verið til húsa í rúmgóðum húsa- kynnum á Glerárgötu 34 á fjórðu hæð. Góð samvinna er milli VMA og Iðnskólans. Nokkur breyting hefur verið á verkefnum í sveinsprófum málara á undanförnum árum í þá átt að samræma þau nútíman- um. Nemendum eru kynntar gamlar málunaraðferðir og tækni. Kennari málaradeildar er Hörður Jörundsson málari. undirbúningsnefnd fyrir'HM á Ak- ureyri, sagðist hvetja alla foreldra og aðra áhugamenn um handbolta til að taka þátt í að flytja boltana sex út á flugvöll. Boltarnir fara frá íþróttahöllinni kl. 18.30 og ganga manna á milli út Þórunnarstræti, niður Þingvallastræti og gilið, og með Drottningarbraut út á flug- völl. Eftir að boltunum hefur verið komið í flugvélina verða viðurkenn- ingar veittar og boðið upp á léttar veitingar við íþróttahöllina. Strætisvagn fer frá Þórssvæðinu upp í íþróttahöll kl. 17 og til baka kl. 20. Fyrsta skref málsóknar Hann sagði að með sjóprófunum yrði aflað sönnurgagna vegna mál- sóknar í Noregi. Útgerðarmenn Blika og Hegraness hafa ákveðið að stefna norskum stjórnvöldum fyrir dómsstóla í Noregi og krefjast skaðabóta vegna tjóns á veiðarfær- um og afla. Norska strandgæslan skar veiðarfæri aftan úr skipunum í liðinni viku. Reynt var að sigla á Drangey. Ásgeir Pétur sagði að ef rétt reyndist væri um mjög alvar- legt brot að ræða. Sjóprófin eru opin og bera yfir- menn, og aðrir sem að málinu koma.vitni. Réttarhöldin hefjast kl. 13.30 og verður reynt að ljúka þeim í kvöld. Annars verður haldið áfram á morgun. -----♦-------- Dagar Ólafs Bekks DAGSKRÁ á dögum Ólafs Bekks hefst á Ólafsfirði fimmtudaginn 23. júní. Efnt verður til billjardmóts og götubolta við Gagnfræðaskóla og Barnaskóla kl. 20. Mót Skotfélags Ólafsfjarðar hefst kl. 21 og Jóns- messumót Golfklúbbs Ólafsfjarðar klukkustund síðar. Daginn eftir verður Norðurlanda- mót í knattspyrnu kvenna, U-16. íslendingar og Finnar leika kl. 13, Hollendingar og Norðmenn leika kl. 15 og Svíar og Danir kl. 17. KA og Leiftur keppa á Akureyri kl. 20. Sýning listamanna verður opnuð í Gagnfræðaskólanum kl. 20.30 og efnt verður til kaffihúsastemmning- ar með léttri sveiflu í Tjarnarborg frá kl. 22.30 til 01. Á sama tíma verður sjóstangveiði, skoðunarferð- ir, miðnætursigling og hestaleiga. Útiskemmtun og grill Aðaldagskráin verður á laugar- daginn. ðlafs Bekksmótið í golfi hefst kl. 9 um morguninn. Klukku- stund síðar verður Nikulásarmótið í knattspymu sett. Milli kl. 10 og 14 verður sýningin „Leikskólinn minn“ í barnaheimilinu og gróður- setning í Tindaöxl. Náttúrugripa- safnið verður opið milli kl. 13 og 18 og Tröllaskaga tvíþraut, hlaup og hjólreiðar heijast kl. 13.30. Ólafs Bekksmót hestamanna hefst kl. 14 og sama dag verður útimarkaður, grill og útiskemmtun við Tjarnar- borg. Efnt verður til dansleikja um kvöldið. Islandsmótið í skotfimi hefst kl. 9, Nikulásarmótið í knattspyrnu heldur áfram kl. 10, karmelludreif- ing og gönguferð í Fossdal verður kl. 13 á sunnudag. Á eftir verður sigling um fjörðinn og hestaleiga. Dregið í riðla fyrir HM Valdimar kastar fyrstur Mývatnssveit Lífríkið með miklum blóma Mývatn - Silungsveiði í net í Mý- vatni í júní hefur verið víða góð, sumstaðar ágæt, og silungurinn vel feitur. Fjölskrúðugt fuglalíf er á vatninu og lítur mjög vel út með andarvarp. Þess má geta að í síð- ustu göngu fengust yfir 1.000 egg á einni jörð. Þó eru alltaf skilin eft- ir 4 til 5 egg í hvetju hreiðri. Varg- fugl, sérstaklega hrafninn, gerir víða mikinn usla í varplöndum og hirðir mörg egg. Óhemju mikið af rykmýi er við Mývatn og á vatninu. Margt bendir því til þess að fugl og fiskur hafi næga átu, þ.e. lífríkið virðist vera með miklum blóma þrátt fyrir frekar kalt veðurfar í maí og það sem af er júnímánuði. Að kvöldi miðvikudagsins 15. júní var fréttaritari staddur úti á Mý- vatni. Sá hann þá fjórar hávellur í hóp fastar í neti skammt frá landi við Geitey, eina af varpeyjum Mý- vatns. Skjótt var brugðið við og fuglarniv leystir úr netagildrunni. Fullvíst er að þessar hávellur hefðu allar verið dauðar morguninn eftir ef björgun hefði ekki borið svo skjótt að. Brýna verður fyrir veiðiréttar- höfum að leggja net sín fjarri varp- löndum á þessum tíma. Hægt væri með því móti að minnka fugladauð- ann. MorgunWaðið/Jóhannes STARFSMENN Malarvinnslunnar hf. malbika gámavöllinn. Ný vöraflutn- ingahöfn á Reyðarfirði Reyðarfirði - Framkvæmdir við nýja vöruflutningahöfn á Reyðarfirði ganga vel og verð- ur fyrsti áfangi vígður næst- komandi laugardag, 25. júní. Fyrsti áfangi hafnarinnar er 80 metra langur viðlegukant- ur. Á viðlegukantinn hafa ver- ið lagðir jötunsteinar í stað steinsteypu, sem mun henta betur við afgreiðslu vörugáma. Ný hafnarvog hefur verið sett upp og malbikaður hefur verið um 6.000 fermetra gámavöllur þannig að aðstaða til um- skipunar og allrar meðferðar á fragt verður eins góð og best verður á kosið. Stálþilið var sett upp af starfsmönnum frá Vita- og hafnamálaskrifstofunni. Hafn- arkantur og þekja voru unnin af Fjarðaverki hf. á Djúpa- vogi. Jarðvegsvinnu og lagna- vinnu sáu verktakar á Reyðar- firði um, en malbikunarfram- kvæmdir eru samstarfsverk- efni Malbikunarstöðvarinnar í Neskaupstað, verktaka á Reyð- arfirði og Malarvinnslunnar hf. á Egilsstöðum, þannig að segja má að fyrirtæki af öllu Austurlandi hafi komið við sögu hafnargerðarinnar Um leið og höfnin verður vígð verður haldin árleg bryggjuhátíð á Reyðarfirði þar sem boðið verður upp á ýmsar uppákomur eins og galdra, spákonu, fallhlífarstökk, kara- melluregn, tónlist o.fl. Suðurnesjabær Fyrsti fund- ur bæjar- stjórnar Keflavík - FYRSTI bæjar- stjórnarfundurinn í Suður- nesjabæ, nýju sameinuðu sveit- arfélagi Keflavíkur, Njarðvíkur og Hafna, var haldinn á þriðju- daginn í Keflavík. Þar var lýst yfir meirihlutasamstarfi Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar- flokks og að Ellert Eiríksson yrði áfram bæjarstjóri í Keflavík. 1 hinni nýju bæjarstjórn sitja 11 fulltrúar, 4 frá Sjálfstæðisflokki, 2 frá Framsóknarflokki, 3 frá Alþýðuflokki og 2 frá Álþýðu- bandalagi. Á fundinum var gengið frá hinum ýmsum embættum og verður Drífa Sigfússdóttir, Framsóknarflokki, forseti bæj- arstjórnar. Jónína Sanders, Sjálfstæðisflokki, verður for- maður bæjarráðs, sem verður skipað 5 fulltrúum. í bæjarráði sitja, auk Jónínu, Steindór Sig- urðsson, Framsóknarflokki, Björk Guðjónsdóttir, Sjálfstæð- isflokki, Ánna Margrét Guð- mundsdóttir, Alþýðuflokki og Jóhann Geirdal, Alþýðubanda- lagi. Ibúar í hinu nýja sveitarfélagi eru liðlega 10.000 og kom fram á fundinum að við sameininguna hefði bæjarstjórnarmönnum fækkað úr 21 í 11 og að nefndar- mönnum myndi fækka um lið- lega 300. 25 milljónir til upp- græðslu á Haukadalsheiði Hella - OLÍS hf. afhenti sl. mánudag Landgræðslu ríkisins fimm milljónir króna til áfram- haldandi landgræðsluverkefna á Haukadalsheiði í Árnessýslu. Hefur fyrirtækið þá alls fært Landgræðslunni 25 milljónir króna á þeim tveimur árum sem liðin eru síðan ákvörðun var tek- in um að hluti af hveijum seldum bensínlítra færi til landgræðslu. Þáverandi forstjóri Olís hf., Oli Kr. Sigurðsson heitinn, hafði for- göngu um að koma átaki þessu í framkvæmd. Að sögn Sveins Runólfssonar landgræðslustjóra hefur fé þetta verið notað til fjölþættra land- græðslustarfa sem miða að því að stöðva gróður- og jarðvegs- eyðingu á Haukadalsheiði. Að- aláhersla hefur verið lögð á sán- ingu melfræs og annarra harð- gerðra landgræðslujurta og það sé mjög ánægjulegt að sjá árang- ur þess starfs sem lofar vissulega góðu. Það megi t.d. sjá frá elstu sáningunum frá tímum þjóðar- gjafarinnar á árunum 1974- 1979, en þá var dreift áburði og grasfræi, að á þessum svæðum hafa íslensku víðitegundirnar, loðvíðir og gulvíðir, numið land. Sveinn sagði mikið starf óunnið á svæði þessu sem er alls sjö Morgunblaöið/AH. Sveinn Runólfsson land- græðslustjóri tekur við fimm milljónn króna fram- lagi Olís hf. úr hendi frú Gunnþórunnar Jónsdóttur, ekkju Óla Kr. Sigurðsson- ar, fyrrum forsljóra Olís. þúsund hektarar að stærð. „Til viðmiðunar má benda á að allt Stór-Reykjavíkursvæðið er um fimm þúsund hektarar, en sá árangur sem náðst hefur á þessu víðfeðma landsvæði lofar góðu um að takast megi að snúa vörn í sókn. í sumar verður einn- ig unnið að öðrum landgræðslu- verkefnum á heiðinni í samvinnu við nýstofnað landgræðslufélag í Biskupstungum," sagði land- græðslustjóri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.