Morgunblaðið - 23.06.1994, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 23.06.1994, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ 1994 29 SKÚLISIGURJÓN LÁRUSSON + Skúli Signrjón Lárusson var fæddur á Hellis- sandi 23. júni 1911. Hann lést á Sjúkra- húsi Akraness 18. júní síðastliðinn. Foreldrar Skúla voru Lárus Skúla- son hreppstjóri og útvegsbóndi á Ilellissandi, f. 23. ágúst 1844, d. 27. mars 1925, og seinni kona hans Málmfríður Guð- björg Sigurðardótt- ir, f. 1891, d. 1920, ættuð frá Grundarfirði, en Lárus missti fyrri konu sína Guðrúnu Odds- dóttur árið 1895. Systir Skúla Siguijóns er Guðrún Hildur, f. 29. sept. 1912, búsett í Suður- nesjabæ. Guðrún giftist Felix Eðvarðssyni af formannaættum undan Jökli, en hann lést árið 1975. Guðrún og Felix eignuð- ust sex börn. Lárus faðir Skúla Sigurjóns ól auk þess upp tvö fósturbörn, Guðmund Þorvarð- arson og Lárenzínu Lárusdótt- ur. Hinn 8. júlí 1945 giftist Skúli eiginkonu sinni, Björgu Hall- varðsdóttur frá Geldingaá í Leirársveit, dóttur Hallvarðs bónda Ólafssonar Jónssonar hreppstjóra frá Geldingaá og konu hans Önnu Kristínar Jó- hannsdóttur af Víkingslækjar- ætt. Skúli og Björg fluttust til Hellissands þar sem Skúli gerði út eigin bát. Árið 1947 flytjast þau til Akraness og kaupa hús- ið Bræðrapart af Jóni Gunn- laugssyni útvegsbónda og hafa búið þar síðan. Björg og Skúli eignuðust sex börn sem öll eru uppalin á Akranesi. Þau eru: 1) Anna Kristín, fædd 1945, búsett í Reykjavík, maki Jón Ingi Haraldsson bifreiðastjóri og eiga þau fjögur börn, Jón- ínu, Skúla, Harald og Björgvin, og tvö baraabörn, Guðmund Halldór og Hilmar. 2) Lárus, f. 1947, véltæknifræðingur, bú- settur á Akranesi. 3) Málfríður Guðbjörg, f. 1948, búsett á Akranesi, maki Gísli H. Hall- björnsson vélstjóri og áttu þau fjögur böra, Björa Skúla, látinn, Kristínu Birau, Sigrúnu Svövu og Rúnu Björk. Barnabarn An- ita Sif. 4) Skúli, f. 1954, vélfræð- ingur, búsettur á Akranesi, maki Margrét G. Rögnvalds- dóttir og eiga þau þijú böra, Rögnvald, Björgu Önnu og Helgu Maríu. 5) Guðmundur, f. 1959, stýrimaður, búsettur á Akranesi, maki Guðrún ísleifs- dóttir og eiga þau þijú böra, Andreu Katrínu, Bjarka Þór og ísleif Öra. 6) Hallveig, f. 1961, þjúkrunarfræðingur, búsett á Akranesi, maki Stef- án Jónsson trésmiður og eiga þau tvö börn, Arna Frey og Bjarna Má. Barnabörn Skúla og Bjargar eru því alls 16 og barna- bamabömin þijú. Ut- för hans fer fram frá Akraneskirkju í dag. SKÚLI Siguijón missti foreldra sína ungur, móður sína þegar hann var níu ára og föður sinn þegar hann var 14 ára. Eftir það var þeim systkinum Skúla og Guðrúnu komið í fóstur til uppeldisbarna Lárusar sem þá voru bæði gift. Skúli Siguijón fór til Lárenzínu sem gift var Jóhanni Kristni Jó- hannssyni frá Munaðarhóli en Guð- rún Hildur til Guðmundar og konu hans Sigríðar Bogadóttur. Vegna breyttra aðstæðna varð skólaganga Skúla ekki löng og fljótlega eftir fermingu fór hann til sjós á þeirra tíma bátum sem voru opnir segl- og árabátar. Sextán ára gamall fór hann á skútu frá Stykkishólmi und- ir stjóm frænda síns Skúla Skúla- sonar skipstjóra, sem ættaður var úr Fagurey. Upp frá því var Skúli Siguijón á bátum bæði við Breiða- fjörð og Faxaflóa. Árið 1935 fór hann til Reykjavík- ur, þá 24 ára gamall, og tók físki- mannapróf og nokkrum árum síðar keypti Skúli ásamt öðmm 100 tonna bát, Bjöm austræna, og var með hann á sfldveiðum við Norður- land. Eftir lok þeirrar útgerðar réð Skúli sig á togara frá Reykjavík og var m.a. á Agli Skallagríms- syni, Snorra goða og Karlsefni og sigldi þá m.a. á stríðsámnum með físk til Englands. Á Akranesi stundaði Skúli sjó- mennsku og var m.a. með báta fýr- ir Harald Böðvarsson og Fiskiver hf. Árið 1954 lét Skúli smíða fyrir sig sex tonna bát sem hann stund- aði sjóinn á bæði frá Hellissandi og Akranesi eða þar til hann hætti útgerð árið 1978 eftir rúmlega 50 ára sjómennsku. Skúla var veitt viðurkenning fyrir sjómannsstörf á sjómannadaginn 1993. Þar sem lífsbaráttan hafði tiafisi mjög snemma hjá Skúla var hann mjög ósérhlífínn við störf sín og ríkt í honum að standa sig og skulda engum neitt. Hann var sannur fiski- maður, bæði þrautseigur og fískinn, enda átti sjómennskan hug hans allan. Hann var mjög bókhneigður og notaði hveija stund er gafst til bóklesturs. Einnig var hann mjög söngelskur og hafði fallega söng- rödd sem notuð var oft en þó eink- um á hátíðarstundum. Þótt hann væri fiskimaður var hann mikill dýravinur og mátti ekk- MINNINGAR ert aumt sjá, enda nutu m.a. smá- fuglar þess á hörðum vetrum. Skúli hafði mjög gaman af að umgangast böm og nutu börn hans þess og síðan bamabörn þar sem hann bæði söng og las fyrir þau á hnjám sér. Er börn hans uxu úr grasi hvatti hann þau til mennta. Þannig var Skúli Siguijón. Þótt hann virkaði oft harður og hijúfur var hjartað ljúft er undir sló. Ég þakka honum samfylgdina og með virðingu kveð ég hann hinstu kveðju. Blessuð sé minning hans. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Gísli H. Hallbjörnsson. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar sólfagra landinu á lifi og verð mínum lausnara hjá - það verður dásamleg dýrð handa mér. Dásöm það er dýrð handa mér, dýrð handa mér, dýrð handa mér, dýrð handa mér, er ég skal fá Jesú augiit að sjá - það verður dýrð handa mér. (Þýð. L.H.) í dag kveðjum við afa okkar Skúla S. Lámsson sem lést 18. júní. Með þakklæti og hlýhug minnumst við þeirra stunda sem við áttum með afa og ömmu á Breiðinni. Blessuð sé minning afa okkar. Ömmu og öðmm aðstandendum sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur, megi Guð vera með ykkur og styrkja á þessari stundu. Jónína, Karl, Skúli, Ragn- heiður, Haraldur og Björgvin. Þegar ég minnist hans afa míns koma mér í hug hlýjar og skemmti- legar minningar. Afa þótti alltaf gaman þegar ég smápattinn kom í heimsókn til hans og ömmu niður á Breið. Þá fómm við saman í fjör- una og skoðuðum hið margbreyti- lega líf sem þar bjó. Hann fræddi mig um margt sem ég bý enn að, sagði mér sögur af sjósókn fyrr á árum, bæði þegar hann var á togur- um og stærri bátum, þó sérstaklega af sjósókn á trillunni sem hann átti sjálfur og reri á síðustu árin sem hann var á sjó. Ég hefði viljað róa með honum þegar hann gerði út frá Hellissandi, þar sem hann var fædd- ur og uppalinn. Þar þótti honum best að róa, stutt á miðin, og hann þekkti miðin eins og best varð á kosið. En því miður var ég ekki til kominn á þeim tíma. Ég var því ekki lítið rogginn sjö ára gamall þegar ég kom til hans eftir fyrsta túrinn sem ég fékk að fara með pabba á togara sem hann var á. Hafði ég frá mörgu að segja og afí hafði gaman af. Afi gat átt til að vera stríðinn og gat skreytt sögur sínar með til- brigðum, en það gerði hann bara skemmtilegri. Hann gat átt það til að segja að kafbátur væri strandað- ur niðri við vita þegar maður kom í heimsókn til hans og ömmu, þá var strax hlaupið að gá. Náttúrlega var enginn kafbátur strandaður. Þetta var það skemmtilega við hann, maður átti alltaf von á ein- hveiju óvæntu frá honum. Þó afí gæti verið hijúfur á stundum, mátti hann ekkert aumt sjá og var alltaf tilbúinn að rétta hjálparhönd ef hann gat. Nú kveð ég hann afa minn og vona að honum líði vel eftir þau veikindi sem hann hefur þurft að þola. Ég mun aldrei gleyma því hvað það var gott að koma til hans og ömmu minnar, sem ég bið góðan guð að hjálpa í sorg sinni. Elsku afí minn, þegar ég kveð þig með söknuði, er ég þakklátur fyrir þau ár sem við áttum saman og minningarnar ylja mér um hjartarætur. Guð blessi þig. ♦ Rögnvaldur. Láknargjafínn þjáðra þjóða, þú, sem kyrrir vind og sjó, ættjörð vor í yztu höfíim undir þinni miskunn bjó. Vertu með oss, vaktu hjá oss, veittu styrk og hugarró. Þegar boðinn heljar hækkar, herra, lægðu vind og sjó. (J. Magnússon) Guðmundur Halldór. Elsku afí. Það var leitt að þú skyldir fara frá okkur. Þú varst oft svo góður og skemmtilegur. Við munum alltaf muna þegar þú sast í stólnum og reyndir að ná i okkur. Svo varstu alltaf að lauma til okkar nammi þegar við komum í heimsókn þótt það væri ekki laugardagur. Við munum alltaf muna eftir þér þótt þú sért ekki lengur á lífi. Saknaðarkveðja, þín barnaböm. Andrea, Bjarki og ísleifur Guðmundsböm. SIGRIÐUR STEFANSDOTTIR + Sigríður Stef- ánsdóttir var fædd á Brattlandi á Síðu í V-Skafta- fellssýslu 11. 1898. Hún lést á Hjúkrunarheimil- inu Skjóli 14. júní sl. Foreldrar henn- ar voru hjónin Stef- án Pétursson bóndi og Sigríður Jóns- dóttir. Sigríður var yngst systkinanna. Hún átti fjóra bræður, tvíburana Pál (dó ungur) og Þórarin, f. 1890, Matthías, f. 1892, og Valdimar, f. 1893. Þeir eru nú allir látnir. Sigríður giftist 1944 Halldóri Gíslasyni verkamanni, en hann lést 1960. Utför hennar fer fram frá Foss- vogskapellu í dag. ÉG VIL með fáum orðum minnast Sigríðar Stefánsdóttur með þakk- læti og virðingu. Með þakklátum huga minnist ég heim- sóknanna, sem ég sem barn og unglingur fór til þeirra hjóna Siggu og Halldórs á Sjónar- hóli á Vatnsleysu- strönd, þar sem þau bjuggu miklu myndar- búi um árabil. Ég minnist hve ævinlega var tekið á móti manni með miklum hlýhug, hve allt var hreint og fágað, kökuilminn lagði um stóra húsið þeirra og þar ríkti gleð- in ofar öllu og hlátur- inn fyllti húsið. Það er gott að minn- ast slíkra stunda. Sigga og Halldór voru samhent hjón og hugsuðu af stökustu natni um búpeninginn, en þau voru með allstórt kúabú, nokkuð af kindum og fleira. Þrátt fyrir að Halldór væri ekki heilsuhraustur gekk bú- skapurinn með miklum dugnaði, myndarskap og snyrtimennsku, sem hvarvetna sá stað og það svo að Búnaðarfélag íslands sá ástæðu til að heiðra þau hjón sérstaklega af þessu tilefni. Var það þeim bæði til gleði og uppörvunar eins og nærri má geta. Ákaflega kært var á milli þeirra hjóna Siggu og Halldórs og var það Siggu eðlilega mikill missir er Hall- dór féll frá. Hélt hún reyndar bú- skap áfram í fjögur ár eftir lát hans en brá þá búi, eftir 20 ára búskap á Sjónarhóli. Flutti Sigga nú til Reykjavíkur, þar sem hún átti heimili upp frá því og starfaði allmörg ár í eldhúsi Hvíta bandsins og á Elliheimilinu Grund eða meðan aldur og heilsa leyfðu. Síðustu ár^ hafa verið Siggu nokkuð erfíð, enda aldurinn hár og heilsan þverrandi, en umönnun á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þar sem hún dvaldi síðustu árin hefur öll verið á einn veg og ber að þakka slíkt sérstaklega. Ég vil óska Siggu blessunar á nýjum lífsbrautum þar sem ljósið skín ofar öllu, — þar sem við öll öðlumst nýja lífssýn. Matthea Jónsdóttir. LADfl SKUTBILL ■Þegardómam STOR OG STERKUR Lada skutbíllinn hentar vel bændum, iönaöar- mönnum og raunar öllum sem þurfa rúmgóöan, traustan og sparneytinn bíl. Hann er einnig Verð án vsk. 540.000 kr. 647.000 kr. IDsiiF 40 ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.