Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
I-
HAGANGSMALIÐ
Ekkium
neitt að
semja
Tromsö. Morgunblaðið.
NORSK stjómvöld eru ekki
sammála því mati Jens Evens-
en, fyrrverandi hafréttarráð-
herra, að taka beri upp viðræð-
ur við íslendinga um lausn
Svalbarðadeilunnar.
Ekki verða teknar upp póli-
tískar viðræður og diplómat-
ískar leiðir verða heldur ekki
notaðar til að þoka málinu
áleiðis, að sögn Ingvard Havn-
en, blaðafulltrúa í norska utan-
ríkisráðuneytinu. Havnen
heldur því fram að ekki sé um
neitt að semja. „Við höfum
almennt áhuga á góðu sam-
bandi við íslendinga, einnig
um sjávarútvegsmál. Hins
vegar getum við ekki samið
um réttindi, sem augljóslega
tilheyra Norðmönnum. Við lít-
um svo á að þjóðréttarleg
staða okkar sé sterk, og ólög-
legar aðgerðir hafa engin áhrif
á okkur,“ segir Havnen.
Aftenposten
EIRÍKUR Sigurðsson, skipstjóri á Hágangi II, kemur fyrir rann-
sóknarrétt Norður-Troms.
unnar og sagðist treysta á hið nor-
ræna samstarf í lögreglumálum til
að tryggja að Anton mætti fyrir
réttinn á tilsettum tíma.
Sektaðir fyrir að hlýða ekki
skipunum
Eiríki Sigurðssyni skipstjóra var
gert að greiða 50.000 króna sekt,
sem samsvarar um 500.000 íslenzk-
um krónum. Úthaf hf., útgerðar-
félag Hágangs, þarf jafnframt að
greiða 150.000 króna sekt, eða sem
svarar til 1,5 milljóna íslenzkra
króna. Jafnframt verða skipstjórinn
og útgerðin að standa straum af
málskostnaði, sem er um 200.000
íslenzkar krónur.
Norska ákæruvaldið vísar til laga
um efnahagslögsögu Noregs og
vemdarsvæðið við Svalbarða og
sektar skipstjóra og útgerð á gmnd-
velli þeirra fyriráð hafa látið skipan-
ir strandgæzlu um að stöðva skipið
og hleypa strandgæzlumönnum um
borð sem vind um eyru þjóta.
Eiríkur Sigurðsson sagði í gær
að sektimar væm alltof háar miðað
við málsatvik. „Aukinheldur varð ég
fyrir vonbrigðum með að norsk yfir-
völd þorðu ekki að taka upp það,
sem er kjami málsins; fullyrðinguna
um að við séum að ólöglegum veiðum
á Svalbarðasvæðinu," sagði hann.
„Það er augljóst að Norðmenn ótt-
ast að málið geti lent fyrir Alþjóða-
dómstólnum í Haag.“ Eiríkur sagðist
hvetja íslenzka sjómenn til að sigla
nú til Svalbarða og fiska eins og
þeir gætu; ljóst væri að Norðmenn
hefðu engan lagalegan rétt til að
stöðva þá. Hann sagðist spá stórinn-
rás íslenzkra skipa á Svalbarðasvæð-
ið i kjölfar málsins.
Hágangur II lagði úr höfn í
Tromsö klukkan hálfsex í gær-
kvöldi. Að sögn Friðriks Guðmunds-
sonar, útgerðarmanns skipsins, sigl-
ir skipið beina leið til íslands eins
og ætlunin var, en Hágangur var
að ljúka veiðiferð er strandgæzlan
færði skipið til hafnar. Friðrik segir
skemmdir á skipinu ekki miklar eft-
ir skothríð strandgæzlunnar, en
nauðsynlegt sé þó að gera við það
hér heima. Hágangur er væntanleg-
ur til landsins á föstudagsmorgun.
Friðrik segir að sú staðreynd, að
Norðmenn treysti sér ekki til að
ákæra útgerðina fyrir ólöglegar
veiðar, sé stórmál fyrir íslenzku þjóð-
ina. „Nú kemur fram að þeir ráða
alls ekki yfir þessu svæði og viður-
kenna það fyrir sjálfum sér,“ sagði
hann. „Þetta er rosalegur sigur.“
Eltingaleikur við
strandgæzluna
Þrettán íslenzk skip voru að veið-
um á Svalbarðasvæðinu í gær. Tog-
ararnir léku eltingaleik við strand-
gæzluna og skýrði skipherrann á
varðskipinu Andenes yfirboðurum
sínum frá því að íslendingar drægju
upp trollin í hvert sinn sem varðskip-
ið nálgaðist þá.
v eiueus uíiiig
Strandgæzlan leggur til atlögu
MYND sem skipverjar á Hágangi tóku er strandgæzlumenn sigldu að þeim á gúmbáti.
Verdens Gang
Skemmd eftir
skothríð
SKOTGAT í rafmagnstöflu
um borð í Hágangi II. Skotið
fór í gegnum byrðing skips-
ins, lenti svo í netadrasli og
hæfði töfluna af litlum krafti.
Skipsljóri og útgerð sektuð
og stýrimaður enn í haldi
Skipstjórinn spáir innrás íslenzkra
skipa eftir að fallið var frá ákæru
um ólöglegar veiðar
Tromsö. Morgunblaðið.
DÓMARI í rannsóknardómi Norður-
Troms úrskurðaði í gærkvöldi að
ekki væri ástæða til að halda stýri-
manninum á Hágangi II, Antoni
Ingvarssyni, í gæzluvarðhaldi fram
til föstudags, eins og lögreglan í
Tromsö krafðist. Lögreglan áfrýjaði
hins vegar þessum úrskurði og er
Anton því enn í haldi. Mál hans verð-
ur tekið fyrir að nýju í dag. Fyrr
um daginn hafði skipstjóranum, Ei-
ríki Sigurðssyni, verið sleppt úr haldi
eftir að hann hafði verið dæmdur
tii að greiða sekt að upphæð 500.000
íslenzkum krónum og útgerð Há-
gangs, Úthaf hf., dæmd til að greiða
hálfa aðra milljón í sekt. Eiríkur og
útgerðin neita að greiða sektirnar
og verður því höfðað dómsmál á
hendur þeim, en fram að þeim tíma
verður útgerðin að setja bankatrygg-
ingu fyrir upphæðinni. Réttarhöld
munu hefjast 1. nóvember.
Anton Ingvarsson hefur verið
ákærður fyrir ofbeldi gegn opinber-
um starfsmönnum, en norska
strandgæzlan heldur því fram að
hann hafí skotið að þremur strand-
gæzlumönnum á gúmbáti síðastlið-
inn föstudag. Anton er jafnframt
ákærður fyrir ólöglega meðferð
skotvopna. Hámarksrefsing við slíku
afbroti er fjögur ár samkvæmt
norskum lögum.
Anton sagðist í réttinum mót-
mæla því að vera sem íslenzkur ríkis-
borgari handtekinn utan 200 mílna
lögsögu Noregs. „Ég mótmæli
hættulegum og fjandsamlegum að-
gerðum strandgæzlunnar og fer
fram á að verða fluttur til Islands á
kostnað norska ríkisins," sagði hann
í réttinum.
Vildi afstýra hættu
Anton sagðist ekki hafa beint
haglabyssunni, sem hann hleypti af,
að norsku strandgæzlumönnunum.
Ennfremur hefði hún aðeins verið
hlaðin haglaskoti, sem búið var að
fjarlægja höglin úr. Hann sagðist
hafa skotið aðvörunarskoti og ekki
hafa vitað að gúmbátur strandgæzl-
unnar hefði tilheyrt henni, heldur
hefði hann líkzt farkostum umhverf-
isverndarhreyfingarinnar Green-
peace. Strandgæzluskipið Senja
hefði verið 10 mílur í burtu og ekki
ljóst að gúmbáturinn tilheyrði því.
I norska blaðinu Aftenposten var
í gær haft eftir Friðrik Arngríms-
syni, lögmanni Úthafs hf., að Anton
hefði viljað hindra að sjómenn á þil-
fari Hágangs kæmust í lífshættu.
Blaðið hefur eftir Friðrik að
strandgæzlumennimir á gúmbátn-
um hefðu nálgazt skipið með tog-
víraklippur að vopni. Skipveijar
hefðu þá einmitt verið að hífa trollið
og hefði verið hætta á að ef togvír-
inn væri skorinn, skytist hann inn
yfír skipið og ógnaði lífí og heilsu
mannanna á dekki.
Lögreglan í Tromsö fór fram á
gæzluvarðhald yfír Antoni Ingvars-
syni fram á föstudag, til þess að
tryggja að Antoni yrði birt stefna
um að mæta til réttarhalda, sem
eiga að hefjast 1. nóvember. Dómar-
inn hafnaði hins vegar kröfu lögregl-
Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍÚ
Hágangsmálið eykur áhuga ís-
lendinga á veiðum við Svalbarða
■ SÚ STAÐREYND að skipstjóri
Hágangs II var ekki ákærður fyr-
ir ólöglegar veiðar á fiskverndar-
svæði Norðmanna við Svalbarða
er að mati Kristjáns Ragnarsson-
ar, framkvæmdastjóra LIÚ, óbein
viðurkenning á að norsk lög frá
1977 um svæðið styðjist ekki við
alþjóðalög. „Þeir vilja ekki taka
áhættuna af því að lögin verði
ógilt. En þeir hafa komist upp
með þau allan þennan tíma og
greinlega verið að reyna að leita
sér einhvers konar hefðarréttar
með því að láta þetta ganga svona
til í 17 ár. Nú komum við þarna
inn, brjótum þennan hefðarrétt
og þeir standa frammi fyrir því
að dæma okkur eða taka okkur
ekki. Þeir eru hins vegar áfram í
því að hindra veiðarnar með því
að skaða veiðarfæri okkar. Okkur
finnst mikið ósamræmi felast í því
að gera slíkt þegar þeir ekki
treysta sér til að taka skipstjóra
fyrir rétt fyrir að brjóta þessi sér-
stöku lög þeirra,“ sagði Kristján
og ítrekaði að Norðmenn þyrðu
ekki að taka á grundvallaratriði
málsins.
Hann taldi niðurstöðuna í Nor-
egi leiða til meiri áhuga fyrir veið-
um á svæðinu. „Þegar menn sjá
fram á að þeir þurfa ekki að sæta
ákæru og þar með að hlíta dómi
fyrir upptöku afla, veiðarfæra og
sektar eins og algengast er fyrir
fiskveiðilagabrot og eins og við
dæmum aðra og okkar eigin menn
fyrir þegar þessi lög eru brotin."
Krislján lagði áherslu á mikil-
vægi þess að samkomulag næðist
um veiðarnar.„Ég hef lagt áherslu
á að við virðum það sem Norð-
menn og Rússar hafa gert til að
byggja upp þennan stofn með því
að halda verulega aftur af sínum
eigin veiðimönnum og hindra að
þeir geti gengið óheft í stofninn.
Við ætlum okkur ekki að brjóta
niður það sem þeir hafa verið að
gera til að byggja upp þennan
stofn heldur viljum við að nú setj-
ist menn niður í alvöru og reyni
að ná samkomulagi. Þeir hafa
samið um þetta við Evrópusam-
bandið, Færeying;a og Grænlend-
inga, þannig að við einir stöndum
utan við samkomulag við aðra og
nú ætlumst við til að þeir semji
við okkur um rétt okkar til að
veiða þarna.“
Hann sagðist telja að íslensk
stjórnvöld myndu í framhaldi af
atburðunum þrýsta á viðræður um
veiðarnar. „Norðmönnum mun
líka verða illa stætt á því að gera
annað vegna þess að sókn okkar
inn á þessi mið mun aukast og i
því sambandi eru sjö skip að fara
í dag og í kvöld [mánudag] og
fleiri skip munu fara i vikunni."
Tveir yfirmenn á Hágangi II færðir fyrir rétt í Noregi
§
i
í
i
i
i
i
i
i