Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 23 Lengra skólaár Seinni grein NÝLEGA birtist í Morgunblaðinu ágæt grein eftir Maríu Louisu Ein- arsdóttur þar sem hún fjallar um lengingu skólaársins. Við María Lou- isa eigum ýmislegt sameiginlegt, við eigum báðar fjögur börn og höfum báðar fengist við kennslu. Þar af leiðandi höfum við báðar notið þeirra forréttinda að eiga jólafrí, páskafrí og jafnvel sumarfrí um leið og börn- in okkar og geta notið samvista við þau, þegar hinir, sem ekki búa við þennan fjölskylduvinsamlega vinnu- tíma kennara, verða að skilja sín börn eftir í reiðuleysi eða í umsjá eldri systkina. Ég tel það ofurlítið vafasamt fyrir kennara að ganga fram fyrir skjöldu og veija hið langa sum- arfrí í íslenskum skól- um því þeir eru aðilar að því á öðrum forsend- um_ en aðrir foreldrar. Ég er ekki hissa á þeim röddum foreldra að vilja ekki lengja skólaárið. Menn geta eðlilega ekki hugsað sér blessuð börnin bundin inni yfir skruddunum meðan fuglarnir kvaka fyrir utan gluggann. Við erum ekki bætt- ari að fá lengra skóiaár ef það er skipulagt eins og það gatasigti sem við búum nú við. Á hinn bóginn sýnir vaxandi fram- boð og eftirspurn eftir leikjanám- skeiðum, fræðslu, og atvinnubóta- vinnu fyrir börn og unglinga að þörf er á skipulögðu sumarstarfi og löngu tímabært að skoða alla þessa þætti í samhengi. Ég er ósammála Maríu um að það sé bara til leiðinda fyrir börn að lengja skólaárið en vitaskuld kemur ekki til greina að framlengja skólann eins og hann er skipulagður í dag. Innihald og áherslur verða að breyt- ast en þá ættu líka að skapast for- sendur fyrir bættan grunnskóla. Ég held að við ættum samt að byija á því að nýta skólaárið betur. Til þess þarf m.a. að semja við kenn- ara um nýjan vinnutíma þannig að ekki þurfi að fella niður kennslu vegna sérstakra starfsdaga í skólum. Einnig má fækka öðrum leyfisdög- um í skólum. Þannig getum við strax ijölgað kennsludögum um 12-16 innan núverandi marka skólaársins. Hvers vegna eru þriðji í páskum og þriðji í hvítasunnu frídagar í skólum? Gerum 1. desember að sérstökum þjóðernisdegi í öllum skólum lands- ins og bjóðum nemendum upp á fjöl- breytt verkefni með þjóðlegu ívafi og slátur og harðfisk í nesti þann dag. Skólinn starfar ekki í neinu sam- hengi við þjóðfélagið. Hér er fast að orði kveðið en staðreyndirnar tala sínu máli. í sumum skólum voru t.d. 4 dagar nú í febrúar sem nem- endur áttu frí, öskudagur, starfsdag- ur kennara, foreldradagur og úr- vinnsludagur prófa. Sumir skólamenn virðast gera starfsáætlanir án þess að hugsa um það hvað er að gerast annars stað- ar. Það er undarlega tillitslaust að láta sér detta í hug að hafa starfs- dag í skólum 4. janúar, fyrsta virka dag eftir áramótin. Bankar eru á fullu í vaxtaútreikningum og upp- gjöri, verslunarfólk er við vörutaln- ingu o.fl. Það þurfa allir að mæta í vinnu þennan dag og börnin verða að bjarga sér sjálf. Ommurnar eru í félagsmiðstöðvum eldri borgara að spila brids og eiga það svo sann- arlega skilið. Vissulega er það bráðnauðsynlegt að halda fast í samverustundir barna með afa og ömmu en hvernig erum við búin að innrétta okkur? Eldri borgarar, a.m.k. á höfuðborg- arsvæðinu, eru margir hveijir komn- ir í verndaðar íbúðir, jafnvel háhýsi þar sem ekki er gert ráð fyrir börn- um nema í stutt stopp. Það er hugjúfur bjarmi yfir lífinu suður á Krít þar sem hvorki eru dagvistarheimili né elliheimili og allir hugsa vel um sína en það er því miður ekki íslenskur raunveruleiki í dag. Sumarvinna ungl- inga hefur breyst mik- ið. Börnin okkar eru flest að vinna með jafnöldrum sínum í at- vinnubótavinnu undir stjórn sér litlu eldri verkstjóra. Fá þau að upplifa sælu- og þreytutilfinninguna að loknu vel unnu og þörfu dagsverki? Við foreldrar þeirra vorum á sama aldri virkir þátttak- endur á vinnustöðum fullorðinna. Við lærðum að takast á við verkefni Sumir skólamenn gera starfsáætlanir segir Unnur Halldórsdóttir, án þess að hugsa um það hvað er að gerast annars staðar. sem við sáum tilgang í og þá var hægt að tala um raunverulega teng- ingu við atvinnulífið. Ég tel það af hinu góða að tengja meira saman vinnuskólann og grunnskólann og hafa raunhæfa kennslu í vinnubrögðum, meðferð áhalda, og hinu þessu sem börn þyrftu læra í vinnuskóla. Hvað segja bændur? Þeir hafa auðvitað misjafnar skoðanir á leng- ingu skólaársins eins og aðrir for- eldrar. Sumir eru svo lánsamir að hafa nægan kvóta og næg verkefni fyrir öll sín börn heima á búunum og geta jafnvel tekið við fleirum í vinnu. Það er hið besta mál fyrir þá og þeirra börn. Ekki eru allir svo vel settir. Kvóta- lausum jörðum og þurrabúðafólki fjölgar í sveitum og því eru margir hreppar farnir að skipuleggja vinnu- skóla fyrir börn og unglinga allt nið- ur í tíu ára aldur svo öll börn í sveit- inni fái eitthvað að gera. Það er skóli þótt með öðru formi sé en hefð- bundinn „skrudduskóli". Ferðaþjónusta er vaxandi at- vinnuvegur í sveitum. Til að efla þá nýsköpun þarf fólk með góða tungu- málakunnáttu og þekkingu á stað- háttum í sveitinni. Væri ekki vit að styrkja þá kunnáttu með öflugu dönsku- eða enskunámskeiði fyrir börn og fullorðna? Það mætti hugsa sér annars kon- ar skólastarf til sveita sem ekki krefst þess að börn séu daglega keyrð til og frá skóla. Þarna gæti samstarf foreldra og skóla öðlast nýja vídd með skipulögðu vettvangs- námi á heimavelli. Börn yrðu hvött til sjálfstæðra vinnubragða og at- hugana. Það er líka nám að læra að reikna út áburðarmagn á tún, nyt kúnna, hlutfall tví- og þrílemba, skrá örnefni, merkja sögustaði og fara í þarfagreiningu að hætti ný- sköpunarskólans á Ketilsstöðum í Mýrdal. Landgræðsluathuganir skólanema á Haukadalsheiði voru gefandi verkefni fyrir þau, nytsam- ieg fyrir landgræðslu í landinu og byggðina í heild. Ég hvet foreldra og skólamenn í sveitum að taka í eigin hendur þróun skólastarfs og útfærslu skólaárs sem tekur mið af raunverulegum hags- munum hvers byggðarlágs og horfa þá til framtíðar en ekki aftur á bak. Ég skal alveg viðurkenna að ég hef áhyggjur af lengingu skólaársins ef innihald og skipulag skólastarfs- ins breytist ekki um leið. Tortryggni mín beinist kannski að honum líf- seiga latínugrána, sem hefur til- hneigingu til að troða sér inn alls staðar þar sem skólamenn og kenn- arar koma að verki. Börn þurfa að fara á hestbak en ekki aðeins að lesa um hesta, þau þurfa að skoða blóm og dýr en ekki eingöngu að lesa um þau í bókum eða fræðast með hjálp myndbanda. Sumarskóli með flölbreyttu inni- haldi mun án efa eiga fylgi að fagna meðal foreldra fremur en að teygja vetrarskólann fram á sumarið. Hann þarf þá að sjálfsögðu að standa öll- um börnum til boða en ekki bara þeim sem eiga meðvitaða og/eða efnaða foreldra sem geta borgað æfingagjöld í íþróttafélögum, tón- listarnám, reiðnámskeið og tölvun- ámskeið. Trond Viggo Thorgerssen, um- boðsmaður barna í Noregi, hefur bent á að núverandi skipulag skóla- tíma í Noregi tekur mið af þörfum presta og bænda. Þar eru frí í kring- um allar kirkjulegar hátíðir og enn eru karftöfluupptökufrí á haustin þótt engar kartöflur vaxi upp úr malbikinu þar sem flest börn alast upp. Hann vill sjá heilsársskóla sem er opinn frá kl. 8-16 daglega með fjölbreyttum viðfangsefnum. Kenn- arar eru þar allan daginn við vinnu sína, ekki kennslu eingöngu heldur einnig samstarf við foreldra, börn og samkennara. Allir eru öruggir um börnin og þar sem skólinn væri starfræktur allt árið gætu foreldrar tekið börnin sín með sér í frí á þeim tíma sem 'hentaði þeim, því ekki geta allir farið í frí á sumrin. Aðstæður íslenskra barna eru ekki betri en þeirra norsku, hér er hærri skilnaðartíðni, fleiri börn sem alast upp hjá einstæðum foreldrum, fleiri slys á börnum, fleiri sjoppur og fleiri vídeóleigur. Góður og traustur grunnskóli getur dregið úr mörgum neikvæðum uppeldisáhrif- um sem börnin okkar verða fyrir en til þess þarf hann að fá betri starf- skilyrði. Islendingar eru meðal rík- ustu þjóða heims en eru bömin þeirra homrekur hvað varðar menntun? Höfundur er formaður Heimilis og skóla. Unnur Halldórsdóttir - kjarni málsins! 653900 BÆJARHRAUNI 14 • HAFNARFIRÐI Ekki svara í símann

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.