Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINIMING + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir afi og langafi, GESTUR GÍSLASON trésmiður, Vogatungu 45, Kópavogi, verður jarðsettur frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 11. ágúst kl. 13.30. Líney Bentsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA A. GUÐJÓNSDÓTTIR, Tómasarhaga 16, er lést 1. ágúst sl., verður jarðsung- in frá Fossvogskapellu miðvikudaginn 10. ágúst kl. 15.00. Móeiður M. Þorláksdóttir, Árni Magnússon, Þorlákur Þorláksson, Elín Þáisdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR JÓNASSON, Grund, Hamarsgötu 8, Fáskruðsfirði, sem lést 3. ágúst, verður jarðsunginn frá Fáskrúðsfjarðarkirkju fimmtudaginn 11. ágúst kl. 14.00. Sigurbjörg Bergkvistsdóttir, Jóna Gunnarsdóttir, Agnar Jónsson, Bjarney Gunnarsdóttir, Sigurður Valgeirsson, Hörður Gunnarsson, Fanný Gunnarsdóttir, Helgi Þór Gunnarsson, Guðlaug Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. JÓN HILDIBERG JENSEN + Jón Hildiberg Jensen fædd- ist í Kaupmannahöfn 15. febrúar 1942. Hann lést í Reykjavík 25. júlí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 3. ágúst. Það er skammt milli lífs og dauða. Á óþyrmilegan hátt erum við minnt á þessi sannindi. Svo virð- ist sem hveijum manni sé skammt- aður sinn tími og oft virðist sem forlög ráði. En jafnilla kemur það við mann hveiju sinni þegar góðir vinir kveðja á góðum aldri og í því sem manni finnst blóma lífsins. Með Jóni Hildiberg Jensen er góður drengur genginn. Kallið kom óvænt en það er í sjálfu sér þakka- vert að honum auðnaðist að lifa líf- inu lifandi fram til síðasta dags. Það hefði ekki verið að hans skapi að heyja langt stríð og vera sjúkur og ósjálfbjarga og upp á aðra kom- inn. Þótt það sé ekki eftirlætisiðja mín að rita eftirmæli, langar mig að kveðja góðan vin með nokkrum orðum. Þegar ég hitti Jón Hildiberg fyrst fannst mér hann vera feiknarlegur heimsmaður. Ætli ég hafí ekki ver- ið tíu ára gamall, þegar til mín sveif ungur maður í strætisvagni á miðjum Laugaveginum og sagði + SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR fyrrverandi hótelstjóri Hótels Hverageröis, Smáratúni 15, Selfossi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. ágúst kl. 15.00. Ferðir með Sérleyfisbifreiðum Selfoss frá Selfossi og Hveragerði kl. 13.00. Haraldur Hálfdánarson, Helga Eiríksdóttir. + Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður, GUÐMUNDAR NIKULÁSSONAR, Grensásvegi 56, Reykjavík. Margrét Ingimundardóttir, Örn Guðmundsson, Petra Gísladóttir, Guörún Guömundsdóttir Peterson, Emil George Peterson, Svava Guömundsdóttir, Erla Guömundsdóttir, Hlöðver Ólafsson, Guðmundur Már Sigurðsson. mér í óspurðum fréttum að hann væri sigldari en ég. „Það getur ekki verið,“ sagði ég, og var all drúgur með mig, „ég hef farið til Danmerkur." „Já“, mælti hann hróðugur, „ég er búinn að sigla með Hamrafellinu til Rússlands." Mér varð orðfall. Tuttugu árum síðar æxlaðist það þannig að með okkur tókst ágæt vinátta. Hann hafði siglt um öll : heimsins höf en. þegar hann kom í land starfaði hann sem innheimtu- maður hjá ýmsum fyrirtækjum og lengst af hjá Ólafi Laufdal sem var mikill vinur Jóns Hildibergs. Drengskapur, er það orð sem ég vil nota fyrst allra orða, þegar ég minnist vinar míns Jóns Hildibergs. Hann var einstakt ljúfmenni, hrekk- laus, einlægur og fullkomlega laus við allt gróm. Hann var öfundarlaus sem er aðalsmerki þroskaðs manns. Hann var laus við smásmygli og neikvæðni í öllu lífsmati- gladdist yfir velgengni vina og kunningja og var sannur vinur vina sinna. Hans vinahópur byggðist áreiðan- lega að miktu leyti á því, hvað hann bar mikla umhyggju fyrir þeim sem honum fannst skipta sig máli. Sé það rétt að hinum megin grafar sé annað líf, þá er víst að vinir hans þurfa ekki að kvíða móttökunum fyrir handan, bestu staðimir verða örugglega fráteknir fyrir þá. Að leiðarlokum þakka ég honum vináttu og tryggð. Megi minningin um góðan dreng lifa. Herluf Clausen. ERFIDRYKKJUR P E R L A N sími 620200 ATVINNI9AUGL YSINGAR Kennarar Kennara vantar við Grunnskóía T álknafjarðar. Flutningsstyrkur. Húsnæðishlunnindi. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 91-35415. Leikskólakennarar Leikskólakennara vantar til starfa á leikskól- ann Hæðarból, Garðabæ. Upplýsingar um vinnutíma, starfsemi og launakjör gefur leikskólastjóri í síma 657670. íþróttakennari Laus er staða íþróttakennara (100%) við Framhaldsskólann á Laugum í Suður-Þingeyja- sýslu. Við skólann er starfrækt íþróttabraut og eru allar aðstæður til íþróttaiðkunar eins og best verður á kosið. Upplýsingar eru veittar í símum 96-43112 og 43113. Skólameistari. Grunnskólinn Hellu Kennara vantar Kennslugreinar, smíði og kennsla yngri barna. Nánari upplýsingarveita aðstoðarskólastjóri í síma 98-75027 og form. skólanefndar í síma 98-78452. Framtíðarstörf Fyrirtækið Örtölvutækni-Tölvukaup hf. ósk- ar að ráða í eftirtalin störf sem fyrst vegna skipulagsbreytinga og aukinna verkefna hjá fyrirtækinu: Sölu- og markaðsfulltrúi Starfssvið: Sala á tölvubúnaði til fyrirtækia og stofnana. Við leitum að einstaklingi sem: ★ Sýnir frumkvæði og framtakssemi. ★ Hefur tileinkað sér sjálfstæði í starfi og góða framkomu. ★ Hefur þekkingu og áhuga á tölvubúnaði. ★ Hefur reynslu og/eða menntun á sviði markaðs- og sölumála. Sölufulltrúi Net- og samskiptabúnaður Starfið felst í ráðgjöf og sölu á staðarnets- og víðnetsbúnaði frá leiðandi framleiðendum í heiminum á sínu sviði, svo sem búnáði frá Cisco System, Digital og Synoptics, jafn- framt því að sjá um samskipti við þessa birgja. Við leitum að manni með góða þekkingu og reynslu á sviði staðarneta og víðneta. Viðkomandi þarf að hafa góða framkomu og eiga auðvelt með samskipti við fólk og geta starfað sjálfstætt. Ritari Söludeild Starfssvið: ★ Umsjón með þjónustusamningum. ★ Reikningsgerð. ★ Móttaka viðskiptavina. ★ Miðlun símtala. ★ Umsjón með verkbeiðnum. ★ Umsjón með tímaskráningum o.fl. Við leitum að ritara með góða framkomu og þjónustulund. Nákvæm vinnubrögð og samviskusemi ásamt kunnáttu í Excel og Word er skilyrði. í boði eru áhugaverð framtíðarstörf hjá framsæknu fyrirtæki þar sem starfar sam- hentur hópur og góður starfsandi ríkir. Upplýsingar veitir Katrín S. Óladóttir. Upplýsingar um ofangreind störf verða ein- ungis veittar á skrifstofu HAGVANGS HF., Skeifunni 19, og skal umsóknum skilað þangað fyrir 19. ágúst. nk. Hagva ngurhf Skeifunni 19 Reykjavík | Sími 813666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.