Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 19
 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 19 MORGUNBLAÐIÐ Efnileg söngkona TONOST Hafnarborg SÖNGUR OG PÍANÓ Einsöngur: Hanna Dóra Sturludóttir Píanólcikari: Hólmfríður Sigurðardóttir. Söngverk eftir Schubert, R. Strauss, A. Berg, Jón Asgeirsson og Sigvalda Kaldalóns. Sunnudagurinn 7. ágúst 1994. EINN mikilvægasti vaxtarbroddur íslenskrar tónlistar, er sá fjöldi ungra manna og kvenna, sem leggja fyrir sig söng og hafa á liðnum árum vakið athygli fyrir hæfileika og umfram allt, notið góðrar menntunar hér heima og erlendis og í raun lagt undir sig heiminn, þ.e.a.s. hafa í vaxandi mæli haslað sér völl meðal þeirra bestu, við ýmis erlend óperu- hús og enn er ekki séð fyrir endann á þeirri þróun. Hanna Dóra Sturludóttir hélt sína fyrstu tónleika í Hafnarborg sl. sunnudag, en hún hefur um tveggja ára skeið stundað framhaldsnám í Berlín. Ekki er mikið sagt, að þar sé á ferðinni efnileg söngkona, er hefur hlotið í vöggugjöf góða rödd og mikla tónlistarhæfileika og þó söngur LISTIR hennar væri góður, er ljóst að hún er líkleg til að eiga talsvert eftir til mikilla sigra í átökum við erfið og stór verkefni í framtíðinni, enda skamman veg farið og varla lögð af stað upp þrautaþrepin að Parnassum, helgidómi listagyðjanna. Tónleikarnir hófust á fimm söng- lögum eftir Schubert og voru An Silvia og Heidenröslein mjög vel sungin. Fimm lög eftir R. Strauss voru og mjög vel sungin, sérstaklega Allerseelen og Zueignung. Sjö fyrstu ljóðin eftir Alban Berg eru vandmeð- farin og eiginlega aðeins á færi meiri háttar söngvara að gera þeim góð skil, svo að útfærsla Hönnu Dóru á þessum sérstæðu söngvum er mikill sigur fyrir hana, þó finna megi að því, að á stundum voru lögin „of mikið sungin", þar sem betur hæfði nærri því að tónlesa textann. Varð- andi sönginn í Schubert og Strauss er helst að Hanna Dóra þyrfti að huga meira að líðandi (legato) radd- arinnar. íslensku lögin voru mjög vel sung- in, flutt af sterkri tilfinningu fyrir texta og tónferli þeirra. Hólmfríður Sigurðardóttir lék af öryggi en lögin eftir Strauss og Berg eru krefjandi, bæði er varðar leiktækni og lit- brigði, sem Hólmfríður náði oft að móta fallega. Hanna Dóra Sturlu- dóttir er mjög efnileg söngkona og var þessi frumraun hennar glæsileg í alla staði, er gefur fyrirheit um að hér sé á ferðinni efni í stórsöngkonu. Jón Ásgeirsson er eitthvað bogið við nýju ísskápalínuna frá Whirlpool Bogadregin línan í hurdunum á nýju ískápalínunni frá Whirpool gefur nútímalegt yfirbragd. Um leið er það afturhvarf lil fortíðar og því má segja að gamli og nýi tíininn mætist í nýju Soft Look línunni frá Whirlpool. KOMDU OO ^ Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 69 15 OO Umboðsmenn um land allt. KSI OG COCA-COLA aginn 11. ágúst KL 10:00 -16:00 Eftirtalin félög stilla upp knattþrautum KSÍ og Coca-Cola á æfingasvæðum sínum: Reykjavík og nágrenni: FH - FRAM - KR - VALUR - UBK - STJARNAN - HK - FYLKIR - ÍR - ÞRÓTTUR - VÍKINGUR - HAUKAR - FJÖLNIR - GRÓTTA - LEIKNIR - AFTURELDING I/esturland og Vestfirðir: ÍA - BÍ - SKALLAGRÍMUR - SNÆFELL - VÍKINGUR - GRUNDARFJÖRÐUR Norðurland: ÞÓR - KA- LEIFTUR - VÖLSUNGUR - DALVÍK - TINDASTÓLL - KS - HVÖT - UMFL Austurland: ÞRÓTTUR - HÖTTUR - AUSTRI - HUGiNN - LEIKNIR - NEISTI - SINDRI - VALUR Suðurland og Suðurnes: ÍBK - ÞÓR - TÝR - GRINDAVÍK - SELFOSS - REYNIR - VÍÐIR - ÆGIR - HAMAR - NJARÐVÍK - ÞRÓTTUR RmMiiMiiiiiiimiiiiiimimiiiiiiiiiiiimiHiiimmiiimmiiiiiimiimiiiiiiimiiimiiiimiiiiiiiiiimiiiiMiiimiiiiimiinmiMiiimiiimimiiiiimiiiiimmmiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiniiiiiF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.