Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.08.1994, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Forsætisráðherra eftir viðræður við forystumenn flokkanna Líkur á haustkosning- um minnkað verulega DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra átti fund með Jóni Baldvin Hanni- balssyni, formanni Alþýðuflokks- ins, í gær að loknum viðræðum við forystumenn stjómarandstöðu. Davíð sagði við fréttamenn að verulega hefði dregið úr iíkunum á haustkosningum og sagði að ein- dregin andstaða Alþýðuflokksins hefði áhrif sem hann yrði að taka tillit til en mikill meirihluti þing- manna og annarra forystumanna Alþýðuflokksins lagðist gegn haustkosningum á fundi sem flokkurinn hélt á Akranesi á laug- ardaginn. Kostirnir fleiri en gallarnir Davíð sagðist sjálfur hafa talið kostina við haustkosningar fleiri en gallana en hefði ákveðið að kanna viðhorf flokkanna til þessa. Á fundum hans með forystumönn- um stjómarandstöðuflokkanna í gær hefði komið fram að stjórnar- andstaðan væri ekki sammála þeim annmörkum sem hann hefði bent á að fylgt gætu kosningabaráttu í febrúar og mars en vildi af öðrum ástæðum að ríkisstjómin færi frá og gengið yrði til kosninga. „Síðan hefur það skýrst að Al- þýðuflokkurinn, sem ég hélt að myndi geta orðið sæmilega sáttur við haustkosningar, hefur á fundi á Akranesi algerlega lagst gegn haustkosningum með mjög afger- andi meirihluta þeirra trúnaðar- manna flokksins sem þar hittust og tóku afstöðu," sagði Davíð. „Nú hefur flokkurinn tekið mjög ein- dregna afstöðu gegn kosningum. Það era veigamikil rök sem ég þarf að horfa á,“ sagði hann enn- fremur. Davíð sagðist nú ætla að ræða Alþýðuflokkurinn lagðist eindregið gegn kosningum þessa stöðu við aðra ráðherra Sjálf- stæðisflokksins, forystumenn þingflokks og hugsanlega einstaka þingmenn áður en hann tæki endanlega ákvörðun fyrir næst- komandi fimmtudag. Davíð sagðist einnig hafa lagt áherslu á að ef ekki yrði kosið í haust yrðu flokkarnir að sýna sam- stöðu í mikilvægustu málum svo menn gætu verið sannfærðir um að unnið verði í ríkisstjórninni af festu og heilindum. Sjálfstæðisflokkurinn yrði einn að axla ábyrgðina Jón Baldvin sagðist hafa greint forsætisráðherra frá ótvíræðri niðurstöðu fundar forystu Alþýðu- flokksins um helgina að ekki væru efni til haustkosninga og að Al- þýðuflokkurinn vildi ekki hlaupast frá verkum sínum í ríkisstjórn. „Við geram okkur grein fyrir því að forsætisráðherra hefur þin- grofsvaldið. Hann hefur hins vegar haft á orði að beita því ekki nema í nánu samráði við samstarfsflokk- inn. Ekki ætti neinum að koma á óvart að það eru háværar kröfur hjá stjórnarandstöðunni, mismun- andi sannfærandi að vísu, um að þeir vilji haustkosningar. Það væri skrítin stjómarandstaða sem vildi ekki kosningar. Spumingin er síð- an sú hvort þetta er ákvörðun þar sem meira tillit verður tekið til samstarfsflokksins heldur en óska stjórnarandstöðunnar,“ sagði Jón Baldvin. Hann sagði að ríkisstjórnin hefði skilað góðum árangri og tryggt stöðugleika og forsætisráðherra sjálfur haldið því fram að bjartara væri framundan. Ríkisstjómin héldi enn meirihluta sínum á þingi og ekki væra uppi ágreiningsmál sem gerðu stjórnarslit óumflýjan- leg. Spumingin væri því sú, hvers- vegna ríkisstjórnin ætti að fara út í kosningar nú og um hvað ættu þær kosningar að snúast. Jón Baldvin sagði að ef vilji al- þýðuflokksmanna yrði sniðgenginn og frekar farið að óskum stjómar- andstöðunnar væru það ákveðin skilaboð og Sjálfstæðisflokkurinn yrði þá einn að axla ábyrgð af því og skýra fyrir kjósendum hvers vegna hann kysi að láta stjómar- samstarfinu lokið. Sagðist Jón Baldvin gera ráð fyrir að hann og Davíð ættu eftir að ræða þetta mál betur áður en forsætisráðherra ákveður hvort gengið verður til kosninga. Jóhanna enn í þingflokknum Aðspurður um stöðu Jóhönnu Sigurðardóttur í þingflokki Al- þýðuflokksins sagði Jón Baldvin að Jóhanna hefði verið í samninga- viðræðum við Alþýðubandalagið, Kvennalistann og leitað eftir samn- ingaviðræðum við Framsóknar- flokkinn um það að mynda ein- hverskonar framboðslista sem stefnt værí gegn Alþýðuflokknum. „Hún er enn meðlimur í þingflokki Alþýðuflokksins. Það er hennar að gera það upp við sig hvenær hún telji af siðferðilegum ástæðum rétt að gera hreint fyrir sínum dyram gagnvart félögum sínum og sam- starfsaðilum í Alþýðuflokknum," sagði Jón Baldvin. Stórkostlegt ævintýri til Egyptalands, vöggu heimsmen- ningarinnar, þar sem þú kynnist umhveríi og menningarverðmæt- um Faróanna sem eiga sér engan líka 1 mannkynssögunni. Töfrar Kaíró í góðum aðbúnaði á 4 stjörnuhóteli og ævintýrasigling á ánni Níl með íslenskum fararstjóra Heimsferða allan tímann. Innifalib í ver&i: Flug. feröir til og frá flugvelli erlendis, gising á 4 stjörnu hótelum, sigling á Níl, morgunveröur f Kairó og fullt fæöi i siglingunni á Níl. Gist á íbúöarhóteli á Benidorm á útleiö og heimleiö og er þá ekki fæði innifalið. Fararstjóri: Þorsteinn Stephensen. ** 99.600 HEIMSFERÐIR Flugvallaskattar kr. 3.660. ekki innifaldir. AUSTURSTRÆT117 SÍMI 624600 FERÐATILHÖGUN — ■■■» 28. sepftember Beint flug með flugi Heimsferða til Alicante. Ekið frá flugvelli til Benidorm þar sem gist er í 2 nætur. ■» 30. september Flug frá Barcelona til Kairó. Lent í Kairó kl. 23.00 að staðartíma þar sem tekið er á móti hópnum og ekið beint heim á hótel Oasis, 4 stjörnu hótel í Kairó. » 1. og 2. okftóber Dvöl í Kairó. Kynnisferð um Kairó og farið til Giza þar sem hinir stórkostlegu pýramidar eru skoðaðir. 1 ■ ■■► 3. október - Luxor, 5 dagar á Níl Að morgni dags er farið með flugi til Luxor. 5 daga sigling niður Níl frá Luxor til Aswan. Helstu áfangastaðir: Luxorhofið og Karnahofið -Dalur konunganna og grafhýsi Ramsesar II og Seti I. Hof Hatsheputs drottn- ingar - Dalur diottninganna. Sigling um Esna, Edfu og Kom Ombo. Hof Hórusar - Kitchener eyjar. Grafhýsi Agha Khans. Stíflan mikla í Aswan. - Abu Simbel. —► 8. oklóber Flug til Kairó og dvöl á Hotel Oasis. —► 9. okftóber Morgunverður og boðið upp á aukaferð til Alexandríu fyrir þá sem vilja. Annars er dagurinn frjáls. ■ ■ » 10. okftóber Morgunverður. Ekið út á flugvöll um kl. 10.45 og farið með flugi til Barcelona kl. 12.45. Lent í Spánar. Dvalið á Benedorm á góðu ibúðarhóteli i 9 daga 19. okftóber Flug heim til íslands i beinu flugi Heimsferöa frá Alicante. Langtímarannsókn Hjartarverndar Erfðaþættir hjartasjúkdóma rannsakaðir hefur 1967 T '■’jartavernd I—I frá árinu -®- unnið að um- fangsmikilli könnun á áhættuþáttum hjarta- og kransæðasjúkdóma hjá 30 þúsund Reykvíkingum. Nú er könnun þessari að mestu lokið og í undirbún- ingi er að hefja rannsóknir á niðjum þessa fólks til að reyna að fínna arf- genga þætti sem stuðla að myndum æðasjúk- dóma. - Hversu margir tóku þátt í könnuninni sem er að ljúka? Áríð 1967 voru valdir einstaklingar af Reykja- víkursvæðinu til þátttöku í rannsókninni, samtals 30 þúsund manns, jafnt af körlum og konum Þau vora þá á aldrinum 34-61 árs. Hópnum var skipt niður Dr. Nikulás Sigfússon var skipt mður i smærri einingar sem við höfum verið að rannsaka í sex áföngum, en nú er í gangi síðasti áfang- inn. í þessum lokaáfanga er fólk- ið orðið það gamalt að við breytt- um og endurbættum rannsókn- aráætlunina og miðum hana meira við eldra fólk. - Hvaða þættir voru rannsak- aðir hjá hópnum? Þetta var nokkuð alhliða heilsufarsrannsókn sem beindist fyrst og fremst að hjarta- og æðasjúkdómum og áhættuþátt- um sem tengjast þeim. - Hvernigkom hugmyndin um niðjarannsóknina til? Við höfum vérið að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera næst. Nú er ofarlega á baugi hvernig sjúkdómar sem þessir erfast og erfðatækni hefur fleygt fram á síðustu árum. Við töldum þetta því vera gott tækifæri til að kanna ýmsa erfðaþætti í tengslum við hjarta- og æðasjúk- dóma. 7 Hvernig eru þeir valdir? Úrtakið er valið þannig að við tökum þá sem hafa fengið krans- æðastíflu úr upphaflega hópnum, en það er á annað þúsund manns, og við boðum afkomendur þeirra til skoðunar. Síðan veljum við til viðmiðunar jafnstóran hóp af- komenda þeirra sem ekki hafa fengið kransæðastíflu. _______________ -Hvemi stór er Dánartíðni hopur mðjanna í rann- sókninni? í fyrsta ættlið frá hópnum sem fékk ►Dr. Nikulás Sigfússon hefur verið yfirlæknir Hjartavemdar frá árinu 1973. Hann er fæddur 1. apríl 1929 og lauk prófi í læknisfræði frá Háskóla íslands árið 1958. Að því loknu hélt hann til Svíþjóðar þar sem hann lagði stund á lyflæknisfræði og faraldursfræði. Hann flutti til íslands árið 1967 og hóf þá störf hjá Hjartavemd. Árið 1986 varði hann svo doktorsritgerð sína við Háskóla íslands. hefur lækkað um 40% kransæðasjúkdóm eru um 1.000 manns og annað eins í öðram ættlið. í hvorum hóp era um 2-3.000 manns og gætu orðið samalagt allt að 6.000 manns. Með því að bera þessa hópa saman þá ætlum við að reyna að fínna hvaða erfðaþættir hafa þýð- ingu varðandi þessa sjúkdóma. - Er til vitneskja um hvernig hjarta- og æðasjúkdómar erfast? Það er nú eitthvað farið að rofa til hvað þetta varðar og menn hafa fundið og staðsett ákveðna erfðavísa sem geta haft áhrif á tíðni hjartasjúkdóma. - Hvaða þýðingu hafa svona rannsóknir fyrir baráttuna gegn hjarta- og æðasjúkdómum? Ég held að þær hafi mikla þýðingu. Enginn kann að lækna þessa sjúkdóma endanlega og það eina sem hægt er að gera er að reyna að koma í veg fyrir sjúkdómana og við höfum náð verulegum árangri í að fyrir- byggja hjarta- og æðasjúkdóma. Við fengum fljótlega upplýs- ingar um helstu áhættuþætti okkar íslendinga út úr þessari rannsókn. Síðan hefur verið rek- inn áróður sem byggist á þessum niðurstöðum, varðandi blóðfitu, blóðþrýsting og annað. Þessi upplýsingastarfsemi og áróður hefur skilað góðum árangri, því dánartíðni hefur lækkað verulega undanfarin 10-15 ár. - Hvernig hefur þessi árangur náðst? Með því að breyta þeim áhættuþáttum í lífi fólks sem við vitum að valda hjarta- og æða- sjúkdómum, eins og hár blóð- þrýstingur, há blóðfíta og reyk- ________ ingar. - Hvemig hefur gengið að fá fólk að mæta í rannsóknirnar? Það hefur gengið vel. Við höfum fengið um 75-80% mætingu, - Hvað hefur komið ykkur á óvart í þessum rannsóknum? Þegar rannsóknin hófst fyrir 27 áram vissum við nánast ekk- ert um áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma hér á íslandi og því var allt nýtt fyrir okkur. Það sem er öðruvísi hér en hjá öðrum þjóðum núna hvað varðar reykingar er að konur hér á landi reykja meira en karla. Þetta er öfugt við það sem maður sér annars staðar. Blóðfitan hjá íslendingum var mjög há, en hún hefur lækkað verulega undanfarin 20 ár. - Hvernig hefur dánartíðnin breyst? Dánartíðnin úr þessum sjúk- dómum hefur lækkað mikið, eða um 40%. Það er mikil lækkun og meiri en á Norðurlöndunum og hjá flestum öðrum þjóðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.