Morgunblaðið - 09.08.1994, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
A
Léleg aflabrögð á Islandsmiðum
HITINN á Akureyri fór upp
fyrir 20 stig í gær og í fyrradag
fór hitinn upp í 22 stig. Fjöl-
margir bæjarbúar tóku þann
kostinn að njóta sólarinnar á
sundlaugarbarminum og kæla
sig niður með sundspretti inn á
milli. Að sögn veðurfræðings á
Veðurstofu íslands er heitt um
allt land, en þó heitast á Norður-
landi. Ibúar á sunnan- og vest-
anverðu landinu njóta hitans
ekki sem skyldi vegna vætu, en
þar rigndi eða súldaði í mestall-
an gærdag. Spáð er heitu veðri
áfram, en búist er við að lægð
fari yfir landið á morgun og er
gert ráð fyrir að þá rigni víðast
hvar á landinu. Ungi maðurinn
á minni myndinni, Olafur Lárus
Egilsson, hafði ekki áhyggjur
af spánni í gær, þegar hann
borðaði epli sem óx í garði Þor-
valdar Snæbjörnssonar á Akur-
eyri. Þorvaldur segir að eplin
vaxi vel þessa dagana og kveðst
gera ráð fyrir að uppskeran í
sumar verði 60-80 epli.
Fimm togarar frá
Akureyri í Smug'una
Sumarsól
og íslensk epli
Morgunblaðið/Björn Gíslason
Pantanir og
nánari uppiýsingar hjá
Feröaskrifstofunni NONNA
FIMM togarar frá Akureyri eru á leið i Smuguna. Togarar frá
Akureyri hafa frá því Smuguveiðar hófust fyrir ári síðan, ekki far-
ið nema þrjár veiðiferðir í Smuguna og þær gengu allar frekar illa.
Ástæðan fyrir ferð togararnir í Smuguna nú er að þeir eru búnir
með þorskkvótann og léleg veiði hefur verið á miðunum við ísland.
____________________ Togararnir sem eru á leið í
Smuguna eru togarar Útgerðarfé-
lags Ákureyringa, Svalbakur og
Sólbakur, og Samherjatogararnir
Akureyrin, Margrét og Baldvin
Þorsteinsson. Sólbakur hefur ekki
leyfi veiða í íslenskri fiskveiðilög-
sögu. Hinir togararnir eru að
mestu búnir með þorskkvótann.
Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samheija, og
Gunnar Ragnars, framkvæmda-
stjóri ÚA, sögðust báðir gera sér
grein fyrir að það væri happ-
drætti að senda skip í Smuguna.
Að undanförnu hafa skip verið að
fá þokkalegan epa mjög góðan
afla í Smugunni. Á annan tug tog-
ara eru á veiðum þar þessa dag-
ana.
Áhættusamar veiðar
Gunnar Ragnar sagði að mjög
lélegur afli á Islandsmiðum hefði
ýtt undir þá ákvörðun ÚA að senda
skip í Smuguna. Hann sagðí að
ÆVINTÝRASIGLING TIL
GRÆNLANDS
Meö „Leiffi Eiríkssyni“
Siglt verður frá Reykjavík 20. ágúst
tii Scoresbysunds á Grænlandi.
Komið verður til baka 29. ágúst.
Nyrsti bær á Austur-Grænlandi
verður heimsóttur og siglt verður
um óbyggða firði og sund.
Víða verður farið í land og
m.a. rennt fyrir bleikju.
Þetta er ævintýraferð
þar sem aðeins er
rúm fyrir fáa farþega.
Akureyrí sími 96-11841, fax 96-26649
mjög erfitt væri að ná þeim kvóta
sem skipin eiga eftir þegar þorsk-
kvótinn væri búinn. Skipin eiga
eftir nokkuð af ýsu og grálúðu-
kvóta.
Gunnar sagði að þrátt fyrir að
kvótinn væri að verða búinn verði
fiskvinnslu haldið áfram hjá ÚA.
Hann sagði að minna hráefni hefði
borist á iand síðustu daga en vik-
urnar þar á undan, en fyrirtækið
héldi samt uppi fuilri vinnslu m.a.
með því að kaupa fisk af öðrum
skipum.
Rétt að taka áhættuna
Þorsteinn Már sagðist gera sér
grein fyrir að það væri mikið
happadrætti að senda skip í Smug-
una. Aðstæður hér heima væru
hins vegar þannig núna að það
væri rétt að taka áhættuna og
reyna veiðar í Smugunni. Þor-
steinn sagði að þær tvær ferðir
sem Samheijatogarar hefðu farið
í Smuguna í fyrra hefðu ekki
gengið upp. Hann sagðist raunar
vera þeirrar skoðunar að útilokað
væri að stunda áhættusamar út-
hafsveiðar nema geta haft stuðn-
ing af veiðum á heimamiðum.
Mjólkursamlag KEA
Eitthvað greitt
fyrir alla mjólk
Mjólkurfram-
leiðsla í Eyja-
firði svipuð og
í fyrra
ÞÓRARINN Sveinsson, mjólk-
ursamlagsstjóri á Akureyri,
segir að horfur séu á að bændur
á samiagssvæði Mjólkursam-
lags KEA fái eitthvað greitt
fyrir alla þá mjólk sem þeir
leggja inn á þessu framleiðslu-
ári, en því líkur 31. ágúst nk.
Hann segir að framleiðslan í ár
sé mjög svipuð og á sama tíma
í fyrra, þrátt fyrir að heyin hafí
verið léleg í vetur. Horfur eru
á framleiðsla yfir landið allt
fari 1,5-3% fram yfír kvóta.
Léleg hey
Heyskapur gekk mjög illa á
Norðurlandi á síðasta sumri og
hey bænda voru þess vegna lé-
leg. Þetta leiddi til þess að
mjólkurframleiðsla var mun
minni sl. haust og frameftir
vetri en venjulega. Um tíma
óttuðust menn að ekki yrði
hægt að uppfylla eftirspurn eft-
ir mjólk og var þess vegna tek-
in sú ákvörðun að hvetja bænd-
ur til að auka framleiðslu. Fyrir-
heit voru gefín um að greiddar
yrðu 20 kr. fyrir 1,5 milljón lítra
sem fer fram yfir heildarkvót-
ann, en bændur á landinu öllu
mega framleiða 100 milljónir á
þessu framleiðsluári.
Þórarinn Sveinsson sagði að
framleiðsla hefði aukist þegar
leið á árið og nú væru horfur
á að hún verði mjög svipuð og
í fyrra. Hann sagði að bændur
á Norðurlandi hefðu orðið að
gefa mun meira af kjarnfóðri
en venjulegra vegna lélegra
heyja.
Framleiðslan fer 1,5-3%
fram yfir kvóta
Kvótastaðan hjá bændum er
mismunandi eins og gengur og
gerist. Sumir eru búnir með
kvótann, sumir klára hann um
mánaðamótin og nokkrir ná
ekki að klára hann. Þórarinn
sagði að bændur hefðu merki-
lega góða stjórn á framleiðsl-
unni. Á síðasta framleiðsluári
framleiddu bændur í Eyjafírði
um 300 þúsund lítra umfram
kvóta. Þegar búið var að miðla
innan svæðisins stóðu einungis
34 þúsund lítra eftir
Markaður erlendis erfiður
Pálmi Vilhjálmsson, starfs-
maður Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði, sagði flest benda
til að mjólkurframleiðsla á land-
inu öllu fari 1,5-3 milljónir lítra
fram yfir kvóta. Spár fyrr í sum-
ar gerðu ráð fyrir nokkuð meiri
framleiðslu, en Pálmi sagði að
framleiðsla síðustu vikurnar
hefði orðið talsvert minni en
menn hefðu áttu von á. Hann
sagðist ekki geta fullyrt að
bændur alls staðar á landinu
komi til með að fá eitthvað
greitt fyrir þá mjólk sem þeir
framleiða. Þeir komi til með að
fá 20 kr. greiddar fyrir lítrann
af fyrsta 1,5% sem fari fram
yfir kvóta. Annað ráðist af því
hvernig gangi að selja mjólkur-
afurðir til útlanda. Hann sagði
að erléndi markaðurinn væri
erfiður því að mikið væri til af
smjöri og annarri mjólkurfítu í
heiminum. íslendingar hafa að-
allega flutt mjólkurfitu úr landi.
lx Sjálfstæðismenn - fundarboð
Kjördæmisráð sjálfstæðisfélaganna í Norðurlands-
kjördæmi eystra er hér með boðað til fundar í
Kaupangi við Mýrarveg á Akureyri, þriðjudaginn
16. ágúst kl. 20.30.
Fundarefni: Framboð til alþingiskosninga.
Stjórn kjördœmisráðs
sjálfstœðisfélaganna
á Norðurlandi eystra.