Morgunblaðið - 09.08.1994, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 9. ÁGÚST 1994 37
BRÉF TIL BLAÐSINS
< HAMRAHLÍÐARKÓRINN
Söngnr kórs MH
Kertafleyting á tjörninni
Frá Ragnhildi Eggertsdóttur:
FRIÐARÖMMUR vilja minna á
hina árlegu kertafleytingu á
Tjörninni í Reykjavík, sem fer
fram í dag þriðjudaginn 9. ágúst.
Þessi athöfn sem að standa friðar-
hreyfingar, er haldin til að minn-
ast fórnarlamba kjarnorkuárás-
anna, sem gerðar voru á hafnar-
borgirnar Hírósíma og Nagasaki
í Japan 6. og 9. ágúst 1945. Jafn-
framt er lögð áhersla á kjarnorku-
vopnalausan heim. Það er talið að
um það bil 200.000 manns hafi
farist í árásinni á Hírósíma og
80-90.000 manns hafi farist eða
særst í árásinni á Nagasaki að
ógleymdum þeim hörmulegu af-
leiðingum sem geislavirkt ryk og
eyðilegging hafði á þá sem eftir
lifðu.
Þegar hernaðarátök og styrjald-
ir eiga sér stað er það jafnan svo
að saklausir íbúar þeirra landa
sem í átökum standa verða ekki
síður að gjalda en þeir sem stjórna
aðgerðum. Atburðirnir sem gerð-
ust í japönsku borgunum tveim
eru engar undantekningar hvað
þetta varðar og mega aldrei falla
í gleymsku heldur verða ungum
sem öldnum sá lærdómur að efla
kröfuna um frið í heiminum. Frið-
arömmur hvetja alla sem tök hafa
á að fleyta kertum á Tjörninni í
kvöld, hlusta á listamenn úr söng-
leiknum Hárið syngja og minnast
fórnarlamba kjarnorkuárásanna á
Hírósíma og Nagasaki.
F.h. Friðaramma,
RAGNHILDUR EGGERTSDÓTTIR
- kjarni málsins!
var hápunktur
Europa Cantat
Frá Herning, Jótlandi,
frá Henry Klausner.
TÓNLEIKAR kóra frá löndum
utan Evrópu vöktu mikla hrifningu
á kórahátíðinni Europa Cantat og
kunnu áheyrendur vel að meta lit-
ríkt, framandi tónmálið. En tón-
leikar norrænu kóranna voru ekki
síður áhrifamikil tónlistarupplifun
og komu sérkenni hvers lands fyr-
ir sig fram í söngnum. Danirnir
streymdu úr áheyrendahópnum á
sviðið með glaðlegum söng.
Svíarnir færðu áheyrendum kímni
og fallegan söng. Norðmenn og
Finnar voru fulltrúar góðrar og
áhugaverðrar kóramenningar. En
hápunktur kvöldsins var framlag
Kórs Menntaskólans við Hamra-
hlíðarog stjórnanda hans, töfra-
konunnar Þorgerðar Ingólfsdótt-
ur.
Engin hástemmd lýsingarorð fá
lýst hinni listrænu hljómaupplifun,
sem þessi stóri kór ungmenna (69
kórfélagar) bauð áheyrendum upp
á. Fyrsta verkið, ísland, farsælda
frón, færði áheyrendur þegar aftur
í forna hljómaveröld Keltanna;
skýrar og tærar laglínur og sam-
hljómar, full krafts og fegurðar.
Heill heimur - ljóðræn tjáning;
dulrænn fjarski; glaðlegir, næstum
villtir kraftar sem sleppt var laus-
um, skemmtileg danshrynjandi;
æskugleði og leikur - auðæfi ís-
lenskrar listar og þjóðlegrar tón-
listar, sem íslensk tónskáld túlka
á sannfærandi hátt með hefð-
bundnu og nýju tónamáli.
Auk þess var sérstök upplifun
að fylgjast með hinu fallega æsku-
fólki syngja. Kórnum er ekki raðað
upp á hefðbundinn hátt eftir rödd-
um heldur er kven- og karlröddum
blandað fijálslega. Hver einstak-
lingur syngur á sinn hátt með ótrú-
legri einbeitingu, allir undir stjórn
töfrakonunnar Þorgerðar Ingólfs-
dóttur. Með nákvæmum, tilfinn-
ingaþrungnum danshreyfingum,
kallar hún fram ólík blæbrigði og
hughrif og lætur þau hljóma.
Aheyrendum var boðið upp á
listræna, tónlistarlega, uppeldis-
lega og manneskjulega upplifun
og þökkuðu þeir frá sér numdir
fyrir. Eins og áður sagt, hápunkt-
ur Europa Cantat.
Þorgerði Ingólfsdóttur og kórn-
um hefur verið boðið að léiða
vinnuhóp í norrænni tónlist á
Zimriya, alþjóðlegri kórahátíð fyr-
ir ungt fólk í ísrael. Fyrri kynslóð-
ir þessa kórs hafa þegar glatt ísra-
ela með söng sínum. Við í Israel
vonum að fá að taka á móti kórn-
um og heyra söng hans á ný.
HENRY KLAUSNER,
Yfirmaður tónlistarmála í Isra-
el og forstöðumaður kórahá-
tíðarinnar Zimriya.
Dauðinn í umferðinni
Frá Jóni Vigfúsi Guðjónssyni
í blaðinu laugardaginn 30. júlí
síðastliðinn skrifar Sigurður Svav-
arsson bréf til blaðsins um mislukk-
aðan hræðsluáróður að hans mati
frá áhugahópi um bætta umferðar-
menningu. Eg undirritaður sé mig
hins vegar tilneiddan til að svara
umræddu bréfi og mótmæla því
harðlega sem þar kemur fram.
Fyrst vil ég láta það koma fram
að ég er ekki frá áhugahópi um
bætta umferðarmenningu, heldur
bara venjulegur þátttakandi í um-
ferðinni og sem betur fer hef ég
ekki valdið neinu slysi í umferðinni
og vona að guð gefi að ég eigi það
ekki eftir.
Hins vegar á ég mér einn perlu-
vin, ég segi á en ekki átti vegna
þess að hann lifir enn í mínum
minningum og mun alla tíð gera,
þar til okkar leiðir liggja saman á
ný. En nú í haust eru liðin 14 ár
frá því að hann lagði bíl sínum bil-
uðum úti í vegarkanti og steig í
hinsta sinn út úr honum.
Þetta var beinn og breiður vegur
og ekkert sem skyggði á útsýni,
nema að það var myrkur. Þessi
elskulegi vinur minn skyldi því eftir
neyðar-blikkljós er hann steig út.
En samt sem áður var annar maður
svo ólánssamur að úr varð banaslys.
Þetta er því miður aðeins eitt af
ótalmörgum banaslysum á Islandi
og á hverju einasta ári deyja nokkr-
ir íslendingar í umferðinni. Þetta
er alveg hrikaleg staðreynd, en sýn-
ir manni svart á hvítu að akstur
er dauðans alvara og aldrei verður
of varlega farið.
En snúum okkur aftur að bréfi
Sigurðar. Hann virðist ekki skilja
innihald auglýsingarinnar, vegna
reiði yfir því að verið sé að skíta
út karlmenn? Eg vil benda honum
á að skoða blöðin betur, því að þess-
ar auglýsingar eru líka til með konu
undir stýri og aðeins hálft andlit.
En við karlmenn ættum að gera
okkur grein fyrir því að konur eru
búnar að vera fleiri en karlmenn í
landinu árum saman. En við karl-
menn í miklum meirihluta í bana-
slysum og umferðaróhöppum al-
mennt, en vissulega geta konur líka
lent í slysum.
Málið er það að mínu mati að
allir bílstjórar, jafnt karlar sem
konur þurfa sífellt að minna sig á
að akstur er og verður alltaf dauð-
ans, dauðans alvara og að flest öll
slys verða vegna kæruleysis og
mistaka ökumanna. Umræddar
auglýsingar vara mig illilega við
og ég vona að þær haldi áfram.
Verið vakandi og lifíð heil.
JÓN VIGFÚS GUÐJÓNSSON,
Ránargötu 5, Flateyri.
Opel Corsa Swing
Verö frá kr. 979.000,-
Meö ryövörn, skráningu og fullan tank af bensíni.
'V'
Fyrir þetta verb færðu bíl sem er með
tvöfalda styrktarbita í hurbum, öryggisbelta-
strekkjara, stillanlega hæb öryggisbelta afturí
og frammí o.fl. o.fl.
5 gíra eba
sjálfskiptur
meb þremur
stillingum.
@ Sparnabar-
stilling
(S)Spyrnu/
sportstilling
@ Spólvörn/
vetrarstilling
□PEL i
Opel Astra
Verö frá kr. 1089.000,-
Meö ryövörn, skráningu og fullan tank af bensíni.
BW'
Fyrir þetta verð færðu bíl sem er
sérstaklega sparneytinn, eyðir
aðeins 6,8 lítrum á hverja 100 km
\ blönduöum akstri.
B í L H E I M A R
Fossháls 1 110 Reykjavík Sími 634000
Opel öryggi,
tvö-
faldir
styrktarbitar
í hurbum.