Morgunblaðið - 16.08.1994, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra um skýrslu Ríkisendurskoðunar um afkomu ríkissjóðs
Sýnir betri afkomti
en áætlað hafði verið
Ríkisendurskoðun segir að rekstrarhalli ríkissjóðs stefni í
11 milljarðaí ár
REKSTRARHALLI ríkissjóðs stefnir í að verða 11 milljarðar króna á
þessu ári að meðtalinni niðurfellingu lána Atvinnutryggingardeildar
Byggðastofnunar að upphæð rúmlega einn milljarður króna. Þetta
kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem gert hefur athugun á
framkvæmd fjárlaga fyrri helming ársins, en fjárlög voru afgreidd
með 9,6 milljarða króna halla. Þá gerir Ríkisendurskoðun ráð fyrir
að tekjur verði þremur milljörðum meiri en ráð var fyrir gert í fjárlög-
um og útgjöld fjórum milljörðum hærri. Þá er gert ráð fyrir að láns-
fjárþörf ríkissjóðs verði 31 milljarður króna í ár, sem er 3,3 milljörðum
króna hærra en ráð var fyrir gert í fjárlögum, en þessi aukna lánsfjár-
þörf skýrist fyrst og fremst af auknum lánveitingum til Byggingar-
sjóðs ríkisins. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra, segir að í fljótu
bragði virðist sér skýrslan sýna betri afkomu en áætlað hafí verið.
í athuguninni kemur ennfremur
fram að áform í fjárlögum um að
ná fram sparnaði í sjúkratrygging-
um, rekstri sjúkrahúsa og lífeyris-
tryggingum með sérstökum að-
gerðum hafí ekki náðst fram það
sem af er árinu. Það sama gildi
um spamað hjá Atvinnuleysis-
tryggingasjóði og áform í fjárlög-
um um að fækka ársverkum hjá
A-hluta stofnunum.
Tekjur af beinum sköttum 1,1
milljarði hærri
Gert er ráð fyrir að þriggja
milljarða tekjuauki skiptist þannig
að tekjur af beinum sköttum
hækki um 1,1 milljarð króna,
óbeinir skattar hækka um 1,6
milljarða króna og aðrar tekjur eru
300 milljónir. Viðbótarútgjöld rík-
issjóðs upp á fjóra milljarða má
einkum rekja til sjúkra- og lífeyris-
trygginga, 1.100 milljónir, niður-
fellingar lána til Atvinnutrygg-
ingadeildar, 1.032 milljónir, 480
milljóna króna framlags vegna
aðstoðar við Vestfirði, 300 miil-
ljóna króna framlags til Vest-
fjarðaganga, 350 milljóna til At-
vinnuleysistryggingasjóðs, 200
milljóna vegna flutnings fjárheim-
ilda milli fjárlagaára, 500 milljóna
króna vegna sjúkrahúsa og 500
milljóna króna vegna ýmiss ann-
ars.
Tekjur og gjöld í hærri
kantinum
Friðrik Sophusson sagði að
skýrslan byggði á sex mánaða
uppgjöri og það yrði að hafa allan
fyrirvara á varðandi spár síðari
hluta ársins, „en í fljótu bragði
sýnist mér afkoman verða heldur
betri en áætlað hefur verið í fjár-
málaráðuneytinu. Ég tel að mat
Ríkisendurskoðunar bæði á tekj-
um og gjöldum sé heldur í hærri
kantinum, en það er hins vegar
ánægjulegt að afkoman skuli nú
sýnast ætla að vera nálægt því
sem fjárlög áætluðu, ekki síst í
ljósi þess að enginn viðskiptahalli
er og þess vegna engar tekjur í
ríkissjóð af innflutningi umfram
útflutning, en ríkissjóður hefur í
gegnum árin alltaf fengið ýmis
konar veltitekjur af viðskiptahal-
lanum,“ sagði Friðrik.
Hann sagði að í vor hefði því
verið spáð að ríkissjóðsshallinn
yrði 13-14 milljarðar króna, en sér
sýndist á skýrslunni að hann yrði
á bilinu 10-11 milljarðar. Hann
benti á að í skýrslunni kæmi fram
að ársverkum hjá ríkinu hefði ekki
fjölgað á árabilinu 1992-94. Það
væri ábyggilega einsdæmi hvað
það snerti því á árunum þar á
undan hefði ársverkunum fjölgað
stöðugt.
Morgunblaðið/Sigurgeir
OGTÖLVUK
Ævintýraleg títboð ! 21 dag
frá 16. áqúet tíl 6. eeptember '94.
r™.~»***
I Vi-Gir:*;
i09*900c
m.rn
MEÐ Morgnnblaðinu í
dag er dreift 8 síðna
kynningarablaði frá
Tæknivali hf.
Bygging fjölnota íþróttahúss
Istak dustar rykið
af gömium tillögum
Eyjapeyjar
bjarga
lundapysjum
ÓVENJU lélegri lundavertíð lauk
í gær. Lundaveiðimenn hafa velt
upp ýmsum skýringum á lélegri
vertíð. Margir kenna um veðráttu
o g óhagstæðum vindáttum, en
aðrir telja að eitthvað í fæðukeðj-
unni hafi haft áhrif á viðgang
stofnsins. Menn benda á í því sam-
bandi að algjört hrun hefur orðið
í ritustofninum.
Næstu dagar verða annasamir
hjá Ejjapeyjum og Eyjameyjum,
sem keppast við að bjarga lundap-
ysjum frá dauða. Pysjunum hættir
til að villast og fljúga í átt að Ijós-
unum í Vestmannaeyjabæ og
liggja svo ósjálfbjarga á jörðinni.
Börnin keppast við að tína þær
upp og kasta þeim til flugs yfir
sjávarfletinum.
ISTAK sendi borgarverkfræðingi
bréf í gær þar sem þess var farið á
leit að fyrirtækið fengi tóm til þess
að fullvinna tilboð í íþróttahús í
Laugardal.
Jónas Frímannsson, verkfræðing-
ur hjá ístaki, segir að fyrir 3-4 árum,
hafi ístak lagt fram ýmsar hugmynd-
ir um hús sem nýtast mætti fyrir
ráðstefnur, sýningar og íþróttavið-
burði. Það hafí verið varanlegt hús
af svipaðri stærð og það sem núna
sé á dagskrá. Af þeim sökum hafí
rykið verið dustað af gömlum hug-
myndum og tilboðum og þau end-
umýjuð þannig að þau svöruðu til
þeirra krafna sem gerðar væru í dag.
Jónas segir að í áðurnefndu bréfí
hafí verið getið um samstarfsaðua
og ýmis rök færð fyrir því að þennan
kost ætti að skoða. Aðspurður um
það hvort Iðnlánasjóður kæmi að
fjármögnun sagði Jónas að líklegt
væri að hann kæmi inn í málið til
að brúa einhver bil í fjármögnun en
sagði að sér fyndist ólíklegt að hann
yrði aðalfjárfestir.
Hjörleifur Kvaran borgarlögmaður
segir að á föstudag hafí borist bréf
frá Electrolux þar sem frá því er
greint að fyrirtækið þurfí meiri tíma
til að vinna tilboð í húsið. Hann sagði
að bréf Istaks yrði tekið fyrir á borg-
arráðsfundi í dag og þar yrði farið
yfír íþróttahússmálið í heild.
Tók stúlku
í bíl sinn og
nauðgaði í
kirkjugarði
MAÐUR á fertugsaldri hefur
játað að hafa nauðgað 16 ára
stúlku í Fossvogskirkjugarði
aðfaranótt sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins tók maður-
inn stúlkuna upp í bíl sinn á
Laugavegi á þriðja tímanum
aðfaranótt sunnudags, ók
með hana í kirkjugarðinn í
Fossvogi og kom þar fram
vilja sínum við hana.
Stúlkan lagði fram kæru
vegna málsins á lögreglustöð
síðar um nóttina og sam-
kvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins kom maðurinn
þangað einnig og gaf sig
fram.
Maðurinn játaði brot sitt
við yfírheyrslur og var laus
úr haldi lögreglu í gær.
Leitað með
hljóðsjá
í Jökuls-
árlóni
TVEIR bandarískir sérfræð-
ingar eru komnir hingað til
lands með sérstaka hljóðsjá
til leitar í
Jökulsárlóni
á Breiða-
merkur-
sandi.
Landi
þeirra, sem
fórst þar við
köfun á
föstudag,
hét Christ-
opher Stok-
es og var 33
ára, frá Mt. Clemens í Mic-
higan-ríki. Hann var iðnaðar-
maður og hafði starfað í tvö
ár í deild verklegra fram-
kvæmda bandaríska hersins
í Keflavík. Stokes lætur eftir
sig eiginkonu.
Stokes var þjálfaður kaf-
ari.
Fundi banka
og neyt-
endasam-
taka frestað
SAMBAND íslenskra við-
skiptabanka og Samband
sparisjóða hafa farið þess á
Ieit við Neytendasamtökin að
fundi sem bankastofnanir og
viðskiptaráðuneyti voru boð-
uð til 15. ágúst verði frestað
til þriðjudagsins 23. septem-
ber.
Neytendasamtökin sendu
bréf þar sem fyrrgreindum
aðilum var boðið til fundar
til viðræðna um ágreining
um réttmæti ýmiss konar
þjónustugjalda 0g fengust
þær upplýsingar hjá Neyt-
endasamtökunum að beiðni
um frestun yrði tekin til
greina.
Christopher
Stokes