Morgunblaðið - 16.08.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 9
FRÉTTIR
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
• •
Orlar á smálaxi
í Miðfirði
ÞAU TÍÐINDI hafa borist að norð-
an, að reytingur hefur verið af væn-
um og fallegum smálaxi í Miðfjarð-
ará. Hópur sem hætti þar í gærdag
hélt heimleiðis með 31 lax og var
megnið af því 5-6 punda fiskur og
nýgenginn. Ef til vill er þetta vís-
bending um að batnandi veiði sé í
vændum í ám á Norðurlandi.
Ekki alveg steindautt...
„Þetta er búið að vera erfitt sumar,
en það er þó ekki alveg steindautt
hjá okkur. Hópurinn fór með 31 lax
og megnið af því var nýr smálax.
Þá var það athyglisvert, að nú er að
veiðast vænn og fallegur smálax, 5
til 6 pund, en fyrr í sumar vorum
við að fá hálfgert rusl, fiska allt ofan
í 1,2 kg. Það eru nú komnir 452
laxar á land,“ sagði Böðvar Sigvalda-
son á Barði við Miðfjarðará í sam-
tali við Morgunblaðið í gærdag. Hann
gat þess einnig, að vatn væri mjög
þverrandi í ánum og svæðið „þyldi
vel góða rigningarskvettu“. „Aust-
uráin heldur sínu og Miðij'arðaráin
er vel veiðandi, en Vesturá og Núpsá
eru orðnar ansi vatnslitlar,“ bætti
Böðvar við.
Víðidalsá „vatnslaus"
„Áin er nánast vatnslaus og búin
að vera það lengi. Þá er gengið veru-
lega á stóra laxinn sem gekk í vor
og varla smálax að sjá. Það er að
veiðast einn og einn smálax og jafn-
vel 2-3 dagar á milli. Alls eru komn-
PÉTUR Svavarsson fékk
þennan 18 punda hæng í Núpá
á Snæfellsnesi á dögunum.
ir 402 laxar aland og það er helst
að við séum að reyta lax upp úr Fitj-
ánni. Þar er nokkuð af laxi. Þegar
ástandið er svona, þá skiptir veður
sköpum. Þannigveiddist enginn lax
á síðdegisvaktinni í gær, en svo kom
rigningarskvetta um nóttina og skýj-
að var fram eftir morgni. Þá var
ekki sökum að spytja, það komu 9
laxar á land,“ sagði Hjalti Björnsson
Svæðisskipulag
fyrir miðhálendið
OPNUÐ hafa verið, samkvæmt frétt frá Ríkiskaupum, tilboð vegna út-
boðs á skipulagsráðgjöf við gerð svæðisskipulags fyrir miðhálendi ís-
lands. Eftirfarandi eru bjóðendur og tilboðsupphæðir eins og þær komu
fyrir við opnun tilboða:
1. Alfa hf., Fjarhitun hf., Hag-
vangur hf. kr. 24.707.000,-
2. Landmótun kr. 26.772.000,-
3. Lendis, Skipulag hf. kr.
27.540.000,-
4. Skipulags- arkitekta og verk-
fræðist. kr. 39.333.750,-
5. Nýsir hf. kr. 43.350.912,-
6. Ragnhildur Skarphéðinsd., Ög-
mundur Skarphéðinss., Línuhönnun
hf., L.H. Tækni hf., kr. 49.540.000,-
7. Landsarkitektar R.V. og Þ.H.
Almenna verkfræðist. Ingvi Þor-
steinss. kr. 49.835.000,-
8. Gylfi Guðjónsson/Pétur Jóns-
son kr. 53.949.000,-
9. Vinnust. arkitekta hf.,
Verkfr.st. Sig. Thoroddsen hf. kr.
149.850.000,-
Eftir er að yfirfara og meta tilboð-
in með tilliti til tæknilegra úrlausna
o.fl. Því liggur ekki fyrir hvaða tilboð
telst hagstæðast segir í frétt frá
Ríkiskaupum.
Bflaleigubflar um allan heu..
Sími 91-880880, fax 91-881881.
Betra verð hjá
FráLeTruc
Glœsilegur
haustfatnaður
Ný sending
G u ð r ú n, Rauðarárstíg, sími 615077.
í veiðihúsinu að Tjarnarbrekku við
Víðidalsá í gærdag.
Hjalti gat þess að auki, að tals-
vert væri gengið af sjóbleikju. „Þess-
ar stóru 5-6 punda þleikjur eru ekki
komnar, en það er talsvert magn af
2 til 4 punda fiski og menn þakka
fyrir hana þegar laxinn bregst,“
sagði Hjalti.
Stórir fiskar eystra...
Það gengur alveg hreint þokkalega
víða á vatnasvæðinu Hvítá-Ölfusá
þessa daganna. Tölur eru lægri held-
ur en oft áður, en á móti kemur að
stórir laxar eru í aflanum og sagði
Ágúst Morthens að talsvert hefði
veiðst af 15 til 20 punda löxum víða
á svæðinu og nokkrir væru allt að
29-30 pund. „Sá stærsti kom þó
ekki á stöng, heldur í net fyrir nokkr-
um vikum. Það var 29 til 30 punda
fiskur,“ sagði Ágúst. Þessa daganna
standa yfir veiðidagar sem Veiðifélag
Árnesinga hafa til afnota í Ijáröflun-
arskini. Er þá selt á vel flest veiði-
svæði þessa mikla vatnakerfis. Þó
ekki öll, t.d. ekki á Iðu eða í Ásgarð
í Sogi.
Um viðhorf...
Kristján Kristjánsson, eða KK, einn
af gamalreyndari fluguveiðimönnum
landsins er í viðtali í nýútkomnu
Sportveiðiblaði. Það kennir ýmissra
gi'asa í spjallinu við hann, s.s. við-
horf einstakra veiðimanna til laxa
og silunga. KK segir m.a. þessa eftir-
minnilegu sögu: ^Eg var að veiða í
Laxá í Aðaldal. Ég var að ganga. á
milli hylja og sé þá mann setja í fisk.
Hann er voða spenntur fyrst en spól-
ar síðan afullri ferð inn. Þá kemur
í ljós að þetta er 2 til 3 punda urr-
iði. Maðurinn sleit fiskinn af önglin-
um, sló honum við stein og sparkaði
honum síðan út í ána. Mér ofbauð
svo að ég spurði manninn hvað hann
væri að gera? „Blessaður góði haltu
kjafti," sagði hann og hrækti í áttina
til mín. Auðvitað hlýddi ég og þagði,
en hvílíkt ógeð sem svona lagað er.
Ef maðurinn vildi ekki halda þessum
fiski átti hann að losa hann af ofur
varlega. Sttjúka undir kvið fisksins
í vatninu og sleppa honum.“
Franskar dömubuxur
Verð frá kr. 7.000
TESS
Ne&st vi&
Dunhaga,
s: 622230
Opi& virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14
og EYRNATAPPAR
ÖNDUNARGRÍMUR
ÁRVÍK
ÁRMÚL11 • REYKJAVÍK • SÍMI 687222 • MYNDRITI 687295
Útbob ríkisbréfa
og ríkisvíxla
fer fram mibvikudaginn 17. ágúst
RÍKISBRÉF
Um er aö ræða 3. fl. 1994 til 2ja ára.
Útgáfudagur: 22. júlí 1994.
Gjalddagi: 19. júlí 1996.
Ríkisbréfin eru óverðtryggö og bera 6%
fasta vexti sem leggjast viö höfuöstól á
12 mánaöa fresti. Ríkisbréfin verða gefin út
í þremur verðgildum: 100.000, 1.000.000
og 10.000.000 kr. að nafnvirði.
Ríkisbréfin eru seld með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum
og sparisjóðum gefst einum kostur á að
gera tilboð í ríkisbréfin skv. tiltekinni
ávöxtunarkröfu. Lágmarkstilboð er
kr. 5.000.000 að nafnvirði.
RÍKISVÍXLAR
Um er að ræða 16. fl. 1994 í eftirfarandi
verðgildum:
Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000
Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000
Ríkisvíxlarnir eru til 3ja mánaða með
gjalddaga 18. nóvember 1994.
Ríkisvíxlarnir eru seldir með tilboðs-
fyrirkomulagi. Löggiltum verðbréfa-
fyrirtækjum, verðbréfamiðlurum,
bönkum og sparisjóðum gefst einum
kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana.
Lágmarkstilboð skv. tiltekinni
ávöxtunarkröfu er kr. 5.000.000 og
lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra
tilboða er kr. 1.000.000.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf og ríkisvíxla eru hvattir til að hafa
samband við ofangreinda aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari
upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða ríkisvíxla (meðalávöxtun vegin með fjárhæð), en Seðlabanka Islands er einum
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra tilboða í ríkisbréf.
Ríkisbréfin og ríkisvíxlarnir verða skráðir á Verðbréfaþingi íslands og er
Seðlabanki íslands viðskiptavaki þeirra.
Öll tilboð í ríkisbréf og ríkisvíxla þurfa aö hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14 á
morgun, miðvikudaginn 17. ágúst. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 40 70.
LÁNASÝSLA RÍKISINS
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 40 70.
I