Morgunblaðið - 16.08.1994, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Aldarfjórðungur frá því breskir hermenn komu tii Norður-Irlands
Adams bjartsýnn
á friðarhorfur
London, Londonderry. Reuter.
ÁTÖKIN á Norður-írlandi gætu
brátt heyrt sögunni til, sagði í skila-
boðum frá Gerry Adams, leiðtoga
Sinn Fein, stjómmálaarms írska lýð-
veidishersins (IRA), til útifundar sem
haldinn var í London á laugardag í
tilefni af því, að aldarfjórðungur er
liðinn síðan breskir hermenn voru
sendir til Norður-írlands. í Londond-
erry fóru um 10 þúsund mótmælend-
ur í kröfugöngu, og lýstu stuðningi
sínum við Bretland.
Trumbur voru slegnar og blásið í
flautur. Það var árið 1969 að kaþ-
ólskir unglingar réðust gegn göngu
mótmælenda, sem voru að minnast
300 ára afmælis sigurs síns á kaþ-
ólskum, og óeirðir brutust út í kjöl-
farið. Lögregla náði ekki að hemja
ólætin og breski herinn kom til að
skakka leikinn. Síðan hafa hermenn
verið á Norður-írlandi.
Adams bjartsýnn
Adams sagðist vera bjartsýnn á
að friðarviðræður færu að skila
árangri. „Ég er sannfærður um að
við erum nú á lokaspretti þessa
langa ófriðar. Ég veit ekki hve lang-
ur þessi sprettur mun verða, en
hugrekki og ákveðni mun leiða til
lausnar," sagði í skilaboðum Adams
til fundarins í London. Adams er
óheimilt að ferðast til Bretlands
samkvæmt tilskipun stjórnarinnar,
og rödd hans má ekki heyrast í
breskum fjölmiðlum.
Látið hefur verið í veðri vaka að
undanförnu að IRA, sem hefur í 25
ár barist gegn breskum yfirráðum á
Norður-írlandi, muni innan skamms
lýsa yfir vopnahléi. Adams lét ekki
í ljósi neinar vísbendingar um hvenær
af því kynni að verða.
Reuter
GERRY Adams, t.v., óg aðstoðarmaður hans, Martin McGuinn-
ess, fara fyrir kröfugöngu í miðborg Belfast á sunnudag, í til-
efni af því að aldarfjórðungur er liðinn síðan breskir hermenn
voru sendir til Norður-írlands.
Manfred Wörner framkvæmdastjóri NATO látinn
Kaldastríðshaukur sem barðist
fyrir nýju hlutverki bandaiagsins
MANFRED Wörner á skrifstofu sinni í höfuðstöðvum Atlantshafs-
bandalagsins í Brussel.
London. Thc Daily Telegraph.
MANFRED Wörner, framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins, sem
lést í Brussel á laugardag, 59 ára
að aldri, hafði orð á sér fyrir að
vera kaldastríðshaukur. Hann lagði
hins vegar mikið af mörkum til að
finna bandaiaginu nýtt hlutverk
utan hemaðarsviðsins, þegar kalda
stríðinu lauk. Banamein hans var
krabbamein.
Áður en Wörner tók við fram-
kvæmdastjóraembættinu árið 1988
gegndi hann embætti vamarmála-
ráðherra Þýskalands um sex ára
skeið. Hann er fyrsti Þjóðveijinn sem
gegnt hefur þessu embætti. Það var
ekki síst vegna þeirra breytinga, sem
fyrirsjáanlegar voru vegna per-
estrojka-steínu Míkhaíls Gorbatsj-
ovs Sovétforseta, sem Wörner varð
fyrir valinu. Var talið tilvalið að hinn
íhaldssami Wörner myndi taka við
af Carrington lávarði til að tryggja
staðfestu og stöðugleika á umbrota-
tímum.
Þá hafði þjóðerni hans táknrænt
gildi og harka hans í afvopnunarmál-
um aflaði honum stuðnings meðal
hershöfðingjanna. Hann var aldrei
óumdeildur. Sumir töldu hann of
sjálfsöruggan, aðrir óttuðust að vin-
fengi hans við Frakka gæti ógnað
bandalaginu í heild. Með tímanum
afiaði hann sér þó mikillar virðingar
og var talin hafa náð mesta hugsan-
lega árangri miðað við hinar erfíðu
aðstæður.
Atlantshafsbandalagið var upp-
haflega stofnað árið 1949 sem varn-
arbandalag Bandaríkjanna og Vest-
ur-Evrópu gegn útþenslustefnu Stal-
íns. Þegar kalda stríðinu lauk var
fótunum hins vegar að hluta kippt
undan bandalaginu. I augum flestra
var NATO hemaðarbandalag en
ekki pólitískt og blasti tilgangsleysi
og upplausn við.
Wörner átti aftur á móti frum-
kvæði að því að fínna bandalaginu
nýtt hlutverk og taldi hann nauðsyn-
legt að NATO aflaði sér efnahags-
legra og pólitískra tengsla í austur-
hluta Evrópu til að tryggja stöðug-
leika í álfunni. Tók Wörner persónu-
lega mikinn þátt í því að efla tengsl
og traust milli Austur- og Vestur-
Evrópu.
Árið 1991 var Norður-Atlants-
hafssamstarfsráðið stofnað sem
formlegur samráðsvettvangur
NATO-ríkjanna og ríkja Austur-Evr-
ópu og Mið-Asiu. I janúar sl. var svo
fyrrum Varsjárbandalagsríkjunum
boðið upp á að taka þátt í Samstarfi
í þágu friðar, eins konar takmark-
aðri aukaaðild að bandalaginu.
Wömer var þeirrar skoðunar að
NATO ætti að láta til sín taka í
Bosníudeilunni. Hann varð undir í
þeirri umræðu þó svo að það hafi
að mestu verið honum að þakka að
NATO greip til fyrstu hernaðar-
London. Thc Daily Telegraph.
RUUD Lubbers, fyrrum forsætis-
ráðherra Hollands, er talinn lík-
legastur til að verða fyrir valinu,
sem eftirmaður Manfreds Wörn-
ers í embætti framkvæmdastjóra
NATO.
Lubbers sóttist fyrr á árinu eftir
embætti forseta framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins en
varð undir í þeirri baráttu. Verði
hann fyrir valinu yrði hann fyrsti
fyrrum forsætiráðherrann er
gegndi embættinu.
Aðrir, sem sterklega eru taldir
koma til greina, eru Thorvald
Stoltenberg, fyrrum varnarmála-
ráðherra Noregs, sem gegnir
embætti sáttasemjara í Bosniu-
deilunni. Stoltenberg er einnig
fyrrum yfirmaður Flóttamanna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
aðgerða sinna frá upphafi er þotur
þess skutu niður fjórar serbneskar
flugvélar, sem brutu flugbann Sam-
einuðu þjóðanna yfir Bosníu.
Manfred Wörner fæddist í Stuttg-
art árið 1934 og nam alþjóðalög við
háskólana í Heidelberg, París og
Munchen. Hann hóf starfsferil sinn
sem embættismaður og gekk árið
1956 til liðs við Kristilega demó-
Þá hefur verið nefndur til sög-
unnar ítalinn Sergio Balanzino,
aðstoðarframkvæmdastjóri
NATO, sem sinnt hefur störfum
Wörners frá því heilsu hans
hrakaði mjög fyrir þremur mán-
uðum. Hann mun einnig gegna
embættinu þar til nýr maður
verður skipaður í það.
Það eru ekki aðeins hæfileikar
viðkomandi einstaklinga sem
skipta máli heldur einnig þjóð-
erni þeirra. Útilokað er talið að
Breti hljóti embættið þar sem
forveri Wörners, Carrington lá-
varður, var Englendingur. Þá er
yfirmaður herafla NATO í Evr-
ópu Bandaríkjamaður og því
ekki hægt að skipa Bandaríkja-
mann yfirmann skrifstofu
NATO.
krataflokkinn. Síðar var hann kjör-
inn á þing fyrir þann flokk og var
þá yngsti þingmaðurinn á þýska
þinginu. Sérhæfði hann sig snemma
í öryggis- og varnarmálum og var
meðal þeirra, sem gagnrýndu Ost-
politik Willys Brandts hvað harðast.
Árið 1982 var Wörner skipaður
varnarmálaráðherra í ríkisstjórn
Helmuts Kohls og taldi hann standa
sig mjög vel. Skrifræðið í kringum
stjórnsýsluna fór samt í taugarnar
á Wörner, sem var fyrrum flugmað-
ur í þýska flughernum. „í klukku-
tíma flugferð tekur maður fleiri
sjálfstæðar ákvarðanir en á heilu ári
í þinginu," sagði hann eitt sinn.
í varnarmálaráðherratíð sinni
lagði hann áherslu á að bæta and-
rúmsloftið innan hersins, efla NATO
og viðhalda góðum tengslum við
Bandaríkjastjórn. Samskipti forvera
hans í embætti, jafnaðarmannsins
Hans Apels, og Bandaríkjamanna
voru sögð hafa verið „eitruð“.
Hann var dyggur stuðningsmaður
tvíþættu ákvörðunar NATO frá 1979
um vígvæðingu og viðræður en í
henni fólst að settar voru upp meðal-
drægar eldflaugar í Vestur-Evrópu,
sem andsvar við uppsetningu SS-20-
flauga Sovétmanna. Taldi hann að
ef þetta yrði ekki gert myndu tengsl-
in milli Vestur-Evrópu og Bandaríkj-
anna rofna. „Hernaðarmátt er ekki
aðeins hægt að nota í stríði. Rússar
vilja vinna friðinn, i friði,“ sagði
Wörner.
Hann lét andmæli friðarhreyfinga
í Þýskalandi ekki á sig fá og í nóvem-
ber 1983 voru fyrstu flaugarnar
settar upp. Taldi hann þær vera
órjúfanlegan þátt af vörnum Þýska-
lands og ættu ekki vera til umræðu
í afvopnunarviðræðunum í Genf.
Mótmælti hann harðlega en árang-
urslaust seinni tíma ákvörðunum um
að taka flaugarnar niður.
Vandræðalegasta málið á ferli
Wörners, að hans eigin mati, var
mál Kiesslings hershöfðingja. Hann
var háttsettur Þjóðveiji í höfuðstöðv-
um NATO en Wörner rak hann úr
embætti eftir að hafa fengið í hendur
leyniþjónustuskýrslu um að hershöfð-
inginn væri tíður gestur á samkomu-
stöðum samkynhneigðra. Kiessling
neitaði ásökununum og málið vakti
mikla athygli í fjölmiðlum. Var Wörn-
er sakaður um að hafa rekið Kiessl-
ing þar sem honum kom illa saman
við bandaríska yfirmenn sína.
Lubbers talinn líkleg-
asti eftirmaðurinn
Afsögn
japansks
ráðherra
Murayama
RÁÐHERRA í ríkisstjórn Jap-
ans tilkynnti um afsögn sína
á sunnudag, vegna þess að
hann hafði
með orðum
sínum móðg-
að ná-
grannaþjóðir
í Asíu. Shin
Sakurai, um-
hverfismála-
ráðherra í
stjórn Tomi-
ichi Muray-
ama, sagðist á fréttamanna-
fundi á föstudaginn, ekki
halda að Japanir hefðu ætlað
sér að heyja árásastríð í síðari
heimsstyrjöld. Sakurai er fé-
lagi í Frjálslynda lýðræð-
isflokknum, sem er stærsti
flokkurinn í samsteypustjórn
Murayama. Suður-Kóreu-
menn og Kínveijar brugðust
ókvæða við orðum Sakurais á
föstudag, og Murayama baðst
bæði ríkin afsökunar og setti
ofan í við umhverfismálaráð-
herrann. Sakurai er annar jap-
anski ráðherrann sem segir
af sér á þessu ári vegna til-
rauna til að hvítþvo hernaðar-
hyggju Japana í fortíðinni.
Leyniskyttur
bannfærðar
SKOTHRÍÐ leyniskyttna hélt
áfram í Sarajevo í gær, þrátt
fyrir samkomulag stríðandi
fylkinga um að stöðva árásir
leyniskyttnanna, sem undirrit-
að var í borginni á sunnudag.
Hétu fulltrúar Bosníu-Serba
og múslima því að gefa út til-
skipanir sem bönnuðu leyni-
skyttum að skjóta á hermenn,
almenna borgara og starfslið
Sameinuðu þjóðanna (SÞ). Þá
hétu þeir því munnlega að
koma í veg fyrir skothríð í
námunda við flugvöllinn í
Sarajevo.
Friðarumleit-
unum neitað
YITZHAK Rabin, forsætis-
ráðherra ísraels, neitaði í gær
fréttum þess efnis_ að Saddam
Hussein, forseti íraks, hefði
leitað sátta við ísraela. Þá bar
íraska upplýsingamálaráðu-
neytið til baka þessar fréttir,
sagði þær ekki á rökum reist-
ar og stærsta dagblað íraks,
Babel sakaði Bandaríkjamenn
um að standa að baki fréttun-
um, til að renna stoðum undir
enn frekara viðskiptabann.
Bjóða
N-Kóreu
kjarnakljúf
STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu
ætla að bjóða Norður-Kóreu-
mönnum nýjan kjarnakljúf, að
andvirði um eins milljarða
Bandaríkjadala, ef þeir geta
fært sönnur á að þeir hafi
ekki reynt að hefja framleiðslu
á kjarnorkuvopnum. Kemur
þetta tilboð í kjölfar ákvörðun-
ar Bandaríkjastjórnar að að-
stoða Norður-Kóreu við að
breyta kjarnorkuiðnaði sínum
og taka upp takmörkuð stjórn-
málasamskipti.