Morgunblaðið - 16.08.1994, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gallerí opn-
að á Suð-
ureyri
Suðureyri - RÓBERT Schimdt
opnaði gallerí þann 29. júlí sl. að
Aðalgötu 16 á Suðureyri. Róbert
hefur einnig vinnuaðstöðu sína á
sama stað. Þar eru til sýnis blý-
antsteikningar eftir hann sem
flestar eru gerðar á þessu og síð-
asta ári. Myndefnið sækir hann
aðallega úr heimabyggðinni Suður-
eyri við Súgandafjörð. Myndir úr
daglegu amstri hversdagsins auk
andlitsmynda. Þetta er fjórða
einkasýning Róberts.
Á opnunardaginn mætti fjöldi
gesta í galleríið og frá þeim degi
hafa margir kíkt inn til þess að
skoða bæði teikningamar og fjölda
ljósmynda sem eru á staðnum. í
galleríinu er setustofa þar sem
gestir geta tilit sér niður með kaffí
og fylgst með Róberti að störfum.
Á næstunni er fýrirhugað að sýna
ljósmyndir og vera með skyggni-
sýningar í galleríinu. Sýning á
verkum Róberts er fyrirhuguð út
ágúst.
Morgunblaðið/Sturla
RÓBERT Schmidt við hluta
blýantsteikninga sinna í gall-
eríi hans á Suðureyri.
MENN bera regnbogann. Vatnslitir, 1994.
VIÐBÓT VIÐ
TTLVERUNA
Sýning á verkum Karólínu Lárusdóttur í Cambridge
29. JUNI síðastliðinn var opnuð
sýning á verkum Karólínu Lárusdótt-
ur í sýningarsal CCA Galleries í
miðbæ háskólabæjarins Cambridge í
Englandi.
Karólína hóf myndlistarnám sitt
hér á landi en hélt til frekara náms
við Ruskin School of Art í Oxford í
Englandi á sjöunda áratugnum og
hefur hún verið búsett í Englandi
síðan. Hún nam einnig við Barkling
College of Art.
Karólína hefur haldið fjölda einka-
sýninga í Englandi, í London, Cam-
bridge og víðar, og árið 1987 hélt
hún sýningu í Gallery Gammelstrand
í Kaupmannahöfn. Hér á landi á hún
sífellt stærri hóp aðdáenda sem fjöl-
mennt hefur á sýningar hennar; á
Kjarvalsstöðum árið 1982 og 1986,
í Gallerí Nýhöfn árið 1990 og í Gall-
erí Borg árið 1991. Auk þess hefur
hún átt verk á samsýningum í Eng-
landi, Frakklandi, Póllandi og víðar
og unnið til verðlauna fyrir verk sín,
þ.e. Dicks and Greenbury Prize árið
1989 og verðlaun á Premio Biella
Intemazionale per Tlncisione á Ítalíu
árið 1990.
Karólína hefur getið sér gott orð
fyrir list sína, bæði sem málari og
grafíklistamaður, og er- félagi í
nokkrum virtustu félögum myndlist-
armanna í Bretlandi.
Þegar við þetta bætist lofsamleg
umfjöllun um verk hennar í síðustu
tölublöðum þriggja alþjóðlegra tíma-
rita um myndlist, Modem Painters,
Art Review og Second Shift, er engin
furða þó mikillar eftirvæntingar hafí
gætt við opnun sýningarinnar. Stór
hópur fólks var þar viðstaddur og við-
brögð allra voru á einn veg. Endur-
spegluðust þau ekki síst í sölu mynd-
anna því meirihluti þeirra 58 verka
sem á sýningunni vora, bæði olíu- og
vatnslitamyndir, var seldur innan
fárra mínútna. (Einnig vora til sölu
hjá CCA listhúsinu nokkrar graflk-
mynda Karólínu, en þær vora ekki
hluti af sýningunni.) Þó nokkrir Is-
lendingar vora meðal opnunargesta.
Karólína sækir myndefni sitt að
mestu í minningar frá uppvaxtarár-
um sínum. Foreldrar hennar ráku
fataverslun í miðbæ Reykjavíkur og
afi hennar var hinn landsþekkti Jó-
hannes Jósefsson er kenndur var við
Hótel Borg, sem hann byggði og rak
um margra ára skeið.
Margar mynda Karólínu sýna at-
burði og fólk í hinu litríka umhverfi
hótelsins og verslunarinnar - hótel-
gesti, kokka og herbergisþernur og
fólk að skoða og handfjatla ýmsan
verslunarvaming. Það er þó ekki allt-
af innandyra, kokkar renna matar-
vagni á undan sér úti í guðsgrænni
náttúrunni, þjónustufólk bíður við
uppdekkað borð sem stendur úti í
litlum hólma, konur skoða efnis-
stranga í húsagarði.
Sú veröld sem birtist okkur í
myndum Karólínu er iðulega ekki
af þessum heimi - landslagið er ís-
lenskt en fólkið, eins og hún segir
I M P E X
Sterkt • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
- ■
0DEXION
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 ■ SÍMI 62 72 22
Danse Macabre
TONLIST
Ilallgrímskirkja
ORGELTÓNLEIKAR
Hannfried Lucke frá Liechtenstein
lék verk eftir Messiaen, Grigny,
Bach, Mozart og Widor. Sunnudagur-
inn 14. ágúst, 1994.
NÚ LÍÐUR senn að því að tón-
leikaröðinni „Sumarkvöld við org-
elið“ ljúki og sl. sunnudagskvöld
var það Hannfried Lucke frá Liec-
htenstein, sem lék á Klais-orgel
Hallgrímskirkju. Lucke hóf tón-
leikana með kafla úr Fæðingu
Gail flísar
i:
‘i
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 67 48 44
frelsarans eftir Mess-
iaen, nánar tiltekið
þeim með yfirskrift-
inni „Guð á meðal
vor“, sem Lucke lék
mjög vel og nýtti sér
frábærlega radd-
brigði orgelsins.
Tvö næstu verkin
eru samin af Nicolas
de Grigny (1672-
1703), Tierce en taille
du gloria (Þrennd
dýrðarinnar) og Dia-
logue sur les grands
jeux (samleikur á
stórraddir orgelsins),
hreint ágæt tónlist,
sem Lucke lék vel.
Grigny var í miklu uppáhaldi hjá
J.S. Bach og það fór því vel á því
að leika 6. sónötuna, í G-dúr (BWV
530), sem eitt af glæsilegustu org-
elverkum meistarans og er t.d.
miðþátturinn (Lento), einn af
raddferlisgöldrum hans. Fyrir
undirritaðan var verkið í heild
nokkuð um of hratt leikið, því
raddfleygunin vill renna saman í
hröðum leik, jafnvel
þó mótun tónhendinga
sé greinilega útfærð
og raddskipanin hrein,
ein og hjá Lucke.
Leipziger-gikkur-
inn eftir Mozart var
einkennilega leikinn
og í raun engin þörf á
að stæla raddskipan
klukkuorgels. Fantas-
ían í f-moll, einnig eft-
ir Mozart, var frábær-
lega vel leikin og sama
má segja um þætti úr
orgelsinfóníu eftir
Widor, sérstaklega
Cantabile-þáttinn.
Sem aukalag flutti
Lucke orgelútfærslu á Danse
Macabre (Dauðadansinn), eftir
Saint-Saens, sem verður að teljast
nokkuð óvenjulegt, sé tillit tekið
til myndarinnar, sem Saint-Saens
er að tónlýsa, en þar ber fyrir
augu karlar og konur, dansandi
undir stjórn Dauðans.
Jón Ásgeirsson
Hannfried
Lucke
SÆLKERAVEISLA BÆNDA AÐ
LAUGALANDI í H0LTUM 19/8 KL. 20.
KK SEXTETT, RAGGI BJARNA 0G ELLÝ
VILHJALMS. Uppl. og miðasala í síma 98-75199 kl. 16-19 í dag.
3ja daga ævintýri 19.-21. ágúst á Ciaddstaðanötum við Hellu.