Morgunblaðið - 16.08.1994, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994 31
TRÖLLAHNOÐRI
SKESSUHNOÐRI
BLOM
VIKUNNAR
Lnisjón Agústa
Björnsdóttir
ÁRI GARÐSINS má
skipta í 4 skeið líkt
og almanaksárinu.
Þannig má tala um
vor-, sumar-, haust-
og jafnvel vetrargarð.
Aðrir kjósa frekar að
tala um vor-, snemm-
sumars-, síðsumars-
og haustgarð. Hvað
sem þessu líður, er
víst, að þær jurtir,
sem setja svip sinn á
garða á vorin, eru nú
búnar að blómstra.
Laukjurtir, svo sem
krókusar, páskaliljur
og jafnvel túlipanar
eru nú búnar að safna
forða til blómgunar næsta vor og
blöð þeirra farin að visna. Þá er
best að ijarlægja lauf krókusa og
páskaiilja. Aftur á móti eru skiptar
skoðanir um hvað gera skal við
túlipana. Sumir kippa þeim upp
með lauk og öllu saman um leið
og blómblöðin falla og gróðursetja
sumarblóm í þeirra stað. Aðrir
bijóta frævuna af, leyfa laukunum
að safna forða eins og þeir geta
og taka þá ekki upp fyrr en blöðin
taka að sölna. Þá kemur í ljós að
þar sem settir voru niður 5 laukar
síðasta haust koma upp 10-15
stykki, því túlipanar fjölga sér með
því að mynda smálauka, sem síðan
stækka og blómstra að ári eða
eftir nokkur ár. Laukarnir eru
geymdir við herbergishita fram á
haust og þeir stærstu gróðursettir
að nýju en smælkið fer á safnhaug-
inn. Hérlendis er á mörkunum að
túlipanalaukar nái að þroska blóm-
vísi, standi þeir óhreyfðir í moldu
og því undir hælinn lagt að þeir
skili sér með blómgun, sé ekkert
gert.
Mestu máli skiptir að haga svo
til í garðinum að ekki komi í hann
skellur, þótt einhver jurt hafí lokið
297. þáttur
blómgun. Láta t.d.
jurtir með mikinn
blaðvöxt vaxa nálægt
vorblómstrandi lauk-
um. Eins þarf að raða
saman jurtum með
misjafnan blómgun-
artíma, þannig að
alltaf sé eitthvað sem
gleður augað.
Þau blóm, sem
hvað mestan svip
setja á steinbeð síðari
hluta sumars eru
gjarnan af hnoðra-
ættkvíslinni - Sedum.
Þessi ættkvísl tilheyr-
ir helluhnoðraættinni,
sem telur meira en
1300 tegundir. Hnoðrarnir eru nær
500 og vaxa flestir á norðurhveli
jarðar og jafnvel hátt til fjalla sums
staðar á suðurhvelinu. Blómin eru
oftast með 5 bikar og krónublöð-
um, 10 fræflum og einni tvískiptri
frævu. Hnoðrarnir eru þykkblöð-
ungar, þ.e.a.s. blöðin eru safarík
og þykk, en ysta frumulagið er
þétt og oft vaxkennt og lokar þann-
ig safann inni. Flestir hnoðrar hafa
jarðlægan vöxt og greinarnar, sem
oft geta skotið rótum, mynda fljótt
lágvaxnar breiður. Hnoðrar eru
flestir háfjallaplöntur og kjósa sér
sólríkan og ekki of rakan vaxtar-
stað. Þeir eru þó margir mjög
skuggaþolnir og eru oft settir í
vandræða skuggaskot. Steina-
hnoðrinn, sem er líklega algeng-
asti hnoðrinn í íslenskum görðum,
hefur oft mátt líða fyrir hversu
skuggaþolinn hann er, en það kem-
ur líka niður á blómguninni.
íslenskir hnoðrar eru 4 talsins,
burn, helluhnoðri, skriðuhnoðri og
flagahnoðri. Burn, sem er gömul
lækningajurt, og helluhnoðri eru
vinsælar og fallegar garðjurtir.
Hinir tveir íslensku hnoðrarnir, eru
lítt ræktaðir í görðum enda einræn-
ir og ekki eins mikið fyrir augað.
Hnoðrar, sem hér eru ræktaðir í
göðrum eru komnir víðs vegar að
úr heiminum, frá Ameríku, Evrópu
og Asíu. Flestir eru þeir fjölærir
og fremur lágvaxnir, en þó ekki
þeir tveir, sem ég ætla að gera að
umræðuefni. Tröllahnoðri - Sedum
kirilowii var. linifolium - og skessu-
hnoðri - S. semenowii - eru svo
stórvaxnir að þeir eiga heima í fjöl-
æringabeði en naumast steinhæð.
Tröllahnoðrinn er ættaður frá Tí-
bet, Burma og Kína. Hann blómg-
ast óvenju snemma miðað við aðra
hnoðra eða fyrri hluta júní, jafnvel
í maílok. Tröllahnoðrinn minn er
40-60 sm á hæð, blaðstönglarnir
uppréttir eða uppsveigðir, þétt-
setnir aflöngum, nálægt 5 sm
lensulaga blöðum, dökkgrænum á
lit. Blómskipunin, sem situr á
stöngulendanum, er rauð og flöt
og gjarnan um 5 sm í þvermáli.
Síðari hluta sumars verður trölla-
hnoðri dálítið rytjulegur. Þá er í
lagi að klippa hann og láta blað-
mikla nágranna um að loka gatinu.
Skessuhnoðrinn er líka Asíubúi,
frá Turkestan. Hæð skessuhnoðr-
ans er nokkuð breytileg eða frá
30-100 sm. Vaxtarlagið er líkt og
hjá tröllahnoðra, en blöðin fíngerð-
ari og smærri, líklega 3-4 sm á
lengd. Blómleggirnir enda í 10-15
sm langri skipan hvítleitra 5
skiptra blóma, sem taka á sig blei-
kleitan blæ með aldrinum. Hann
blómstrar í lok júlí eða fyrri hluta
ágúst. Skessuhnoðrann er
skemmtilegt að þurrka og nota
skreytingar. Stundum veitir honum
ekki af stuðningi við lengstu legg-
ina svo þeir rétti sem best úr sér.
Báðir þessir hnoðrar hafa fremur
svera og volduga jarðstöngla, sem
eru oft mikið ofanjarðar. Þeir eru
fyllilega harðgerðir. Hnoðrum er
auðvelt að fjölga með skiptingu eða
sáningu.
i
UDDSKÓLI
hefst 1. september næstkomandi.
Hægt er að velja um dagnám
eða kvöld- og helgamám.
Upplýsingar og skráning
í símum 676612 og 876612
Smiðshöfða 10,112 Reykjavík
alla virka daga.