Morgunblaðið - 16.08.1994, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAtíUR 16. ÁGÚST 1994 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Gámur til Rúanda
Alfatrú og
vísmdamennska
Frá Frans van Hooff:
ALLIR vita vel um neyðarástandið
í Rúanda. Besta hjálpin eru bænir.
Þær geta ekki aðeins flutt fjöll, held-
ur einnnig breytt hjörtum, sem hata
og drepa, í hjörtu, sem elska og
hjáipa. Þar sem friður kemur aftur,
getur fólk snúið heim til brunninna
heimila sinna og hafið endurreisn
þeirra og endurræktun á litlum ökr-
um sínum. Á meðan er mikil þörf
fyrir hjálpargögn. Óteljandi hafa flú-
ið, m.a. til Kabale í Úganda á landa-
mærum Rúanda.
Þar býr prestur, Frans Tirwonwe
að nafni, sem hefur um árabil séð
um landflótta fólk. Hann er formlega
viðurkenndur af ríkisstjórninni og
biskupnum fyrir hjálparstörf. Hann
sér einnig um þau mörgu munaðar-
lausu börn sem misst hafa foreldra
sína vegna alnæmis. Mig langar að
senda þeim eftir viku 40 feta gám.
Fólk má koma til klaustursins í
Hafnarfirði hvenær sem er, með
fatnað, skó, eldhúsáhöld, reiðhjól,
handverkfæri, sápur, o.s.frv.
Ég þakka innilega Eimskip fyrir
að flytja vörurnar ókeypis til Ham-
borgar, en þar tekur annað fyrirtæki
við, og kostar flutningur um 600.000
krónur.
Fjárframlög eru vel þegin. Þeim
Frá Guðbjarti Sveinbjörnssyni:
EF ÞÚ ert farinn að eldast og styn-
ur yfir ásýnd þinni í speglinum,
mundu þá að Hann hefur látið þig
verða svona í þeim tilgangi að hugs-
anir þínar reiki frá líkamanum og
yfir í æðri verðmæti.
Reyndu að komast að hinu hreina
og tæra fljóti sem þú leynir inni í
sjálfum þér. Okkur er öllum gefið
innra land. Land sem við geymum
innra með okkur, hvert og eitt. Sum-
ir fá sína paradís, með sól og sumri
allt árið. Aðrir eignast eyðiland með
eldgosum og þrumuveðri. Ef þú,
kæri vinur, ert einn af þeim sem
býrð á þannig landi, vertu óhrædd-
sem vildu hjálpa, má benda á reikn-
ing í íslandsbanka nr. 200383: Fata-
flutningar.
Víðar er beðið um hjálp. Systir
Ayogu í Nígeríu bað um hjálp við
blinda og heyrnarlausa. Ég lofaði
henni að senda með pósti hundrað
kíló af sumarfötum.
í Krasnoyarsk í Síberíu er frostið
40 stig á veturna. Þangað sendi ég
reglulega kuldaföt. Hús eru þar í
sveit oft án rafmagns og rennandi
vatns. í Zimbabwe í Afríku sér sr.
Tim Peacock, sem vann á íslandi
hjá Arnarflugi, nú um mjög fátækt
svæði, sumum fatnaði þarf að breyta
þar sem fólk þar er yfirleitt smá-
vaxnara en hér. Til þess þarf sauma-
vélar, hvort sem er rafmagns- eða
handsnúnar, t.d. er gardínum breytt
í pils. Séra Peacock hefur stofnað
vélritunarskóla með gömlum ritvél-
um frá íslandi. Mikill áhugi er fyrir
þessu þar sem þetta opnar leið til
starfa á skrifstofum.
Fyrir leikskóla vantar hann lítil
leikföng og fyrir barnaskóla ritföng
og skólatöskur. í hvert skipti sem
fólk fær gjafir frá íslandi, rís það á
fætur og biður fyrir velgerðarmönn-
um sínum.
Það hefur hvorki heyrt um Geysi
né Gullfoss, ekki einu sinni um ís-
lenskan fisk, en telur dagana ef það
ur. Sestu niður og virtu fyrir þér
óteljandi litbrigðin í hinu fljótandi
eldíjalli. Láttu Ijósglampana (bloss-
ana) frá eldingunum lýsa þér veginn
áfram svo að þú getir ótrauður fund-
ið leiðina að heimkynnum Hans. Þar
finnur þú sjálfan þig, þar hefur þú
alltaf verið. Ef þú vilt finna þig sjálf-
an, hugsaðu þá ekki um hvað aðrir
segja, hugsa eða gera. Það fólk sem
lengst hefur náð í þessum heimi
nýtir tíma sinn, það miklast ekki af
árangri gjörða sinna en lítur á hann
sem lítinn skerf til þjóðfélagsheilla.
Það þekkir sársaukann sem hlýst af
því að uppheíja sjálfan sig, og það
veit að afurðir þjáninganna eru
í RÚANDA skortir mat, fatn-
að, lyf og margs konar hjálp
í sárri neyð!
heyrir að gámur frá íslandi sé á leið-
inni.
Það væri gott að hafa vetrarfatn-
að sér. Við förum ekki yfir fatnað.
Allt fer í gáminn eins og það kemur.
Ég þakka ykkur innilega fyrir,
fyrir hönd hins fátæka, en þakkláta
fólks.
SÉRA FRANS VAN HOOFF,
Karmelklaustrið,
P.O. Box 44, 220 Hafnarfjörður.
skilningur og meðaumkun. Þetta
veit ég því ég hef fallið af tindi fjalls-
ins og niður á botn gryfjunnar. Þar
hugleiði ég orðin sem ég festi á blað-
ið. Herrann heflar og tilsníður okk-
ur, hann stillir og fínpússar okkur.
Margir af þeim sem eru á leið gegn-
um þennan hreinsunareld halda því
fram að það finnist enginn Guð. En
þeir þekkja ekki lokatakmarkið. Þeg-
ar Herrann hefur afhýtt þig eins og
lauk og hvert lagið á fætur öðru er
horfið, munt þú ganga inn í heim-
kynni Hans og þú munt aldrei líta til
baka.
GUÐBJARTUR
SVEINBJÖRNSSON.
Frá Þorsteini Guðjónssyni:
ÁLFATRÚIN hér á landi er ekki
aðeins „skemmtileg" eins og sumir
menntamenn segja góðlátlega,
heldur er hún sprottin af merki-
legri reynslu sem unnt er að skýra.
Stutt dæmi nægir til að varpa ljósi
á þetta. Guðmundur Kjartansson
jarðfræðingur var á ferð í Heklu-
hraunum við rannsóknir (um 1947)
og sá hann þá, að kveldi dags eft-
ir langar göngur, undarlega sjón:
þijá náunga vera að hoppa og
dansa með allskyns tilburðum,
skammt frá honum þarna í miðju
hrauni, þar sem engra mannaferða
var von. Gekk hann nú sem bein-
ast í átt til manna þessara, en
hraunhól bar snöggvast á milli
hans og mannanna. Þegar hann
sá aftur til og var kominn nær,
sá hann, að þarna var dýjamosi
og gufur upp af, og þóttist hann
þar með hafa skýringu á sjónum
þeim, sem fyrir hann hafði borið.
En þó að Guðmundur væri
merkur vísindamaður og færi ekki
a.m.k. ekki í útvarpi (það var í
útvarpsþætti, sem hann sagði frá
þessu), út fyrir mörk hins viður-
kennda, hafði hann einn „ókost“,
frá sjónarmiði þeirra sem allt vilja
hafa fyrirfram skipulagt - hann
var sannsögull. Og þessvegna flaut
það með í frásögn hans, að þegar
hann kom á „dansstaðinn" varð
honum Iitið upp í hlíðar Heklu,
dimmar og miklar, og sá hann þá
þar, í annað sinn, hina sömu
skrípakarla með tilburði sína - en
miklu, miklu stærri.
Sannar þetta ekki, að sýnin var,
þótt hreyfanleg væri og síbreytileg,
bundin við heilastarfsemi Guð-
mundar sjálfs (visio cerebralis)?
En þá var hún ekki í „eternum" né
í „orkusviðum“, „bylgjulengdum",
„víddum" eða öðrum slíkum af-
rakstri gamallar vanþekkingar,
sem sumir grípa til þegar þeir
verða fyrir reynslu af þessu tagi.
Raunveruleg skýring á hinu sér-
kennilega heilaástandi hlýtur að
vera sú að um fjarsamband sé að
ræða við annan athuganda, og að
sýnin sé eins og endurspeglun þess
sem gerist í öðrum stað. Sá annar
staður er stundum í næsta húsi
eða garði, stundum hinum megin
á hnettinum, stundum á öðrum
hnöttum. Af ýmsum álfasögum
má ráða, að raunveruleikinn að
baki þeirra er á annarri jörð, þar
sem skín önnur sól en hér. Sbr.
t.d. álfasögur Eiríks Laxdals, sem
nýlega voru gefnar út.
Stórar fylkingar standa hvor
gegn annarri: Annarsvegar „orku-
sviða- og fimmtuvíddarmenn“ sem
njóta naumast fyllstu virðingar á
hámenntasviði, en hinsvegar þeir
sem segja, að slik hugtök séu óhæf.
Hinir fyrrnefndu fullyrða nokkuð
sem ekki er, en hinir síðarnefndu
hafa lítið um það að segja, hvað er.
ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON,
Rauðalæk 14, Reykjavík.
Gagnasafn
Morgunblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður
framvegis varðveitt í upplýs-
ingasafni þess. Morgunblaðið
áskilur sér rétt til að ráðstafa
efninu þaðan, hvort sem er
með endurbirtingu eða á ann-
an hátt. Þeir sem afhenda
blaðinu efni til birtingar teljast
samþykkja þetta, ef ekki fylg-
ir fyrirvari hér að lútandi.
- kjarni málsins!
Okkar innra land
Botnastaða-
brekka ekki
„Bólstaðar-
hlíðar-
brekka“
Frá Frá Ásgeiri Jónssyni:
VEGNA frétta undanfarið vill und-
irritaður benda á að brekkan sunnan
og ofan við Húnaver í Bólstaðarhlíð-
arhreppi í Austur-Húnavatnssýslu
heitir skv; heimildum Botnastaða-
brekka og Botnastaðafjall þar norð-
an til en ekki Bólstaðarhlíðarbrekka
eins og sums staðar sést ritað. Ör-
nefnið er dregið af eyðibýlinu Botna-
stöðum sem lagðist í eyði upp úr
miðri öld.
Bréfinu fylgja ljósrit úr Árbók
Ferðafélags íslands 1969 eftir Jón
Eyþórsson og segir þar m.a.:.ligg-
ur þjóðbrautin úr mynni Þverárdals
í stórum sneiðingi upp Hreppahornið
og upp á Botnastaðabrún fyrir ofan
Botnastaði. Svartárdalsvegur liggur
af þjóðbrautinni ofan við túnið í
Bólstaðarhlíð og skammt frá Húna-
veri. Botnastaðir eða Bottastaðir er
gömul kirkjujörð frá Hlíð og skammt
milli bæja. Hlíðin upp af bænum er
allbrött en grösug, kallast Botna-
staðabrekkur.“
Auk þessa er hægt að benda á
örnefnaskrá Örnefnastofnunar í
þessu sambandi og að sjálfsögðu
heimafólk í Bólstaðarhlíðarhreppi.
ÁSGEIR JÓNSSON,
Mörk, Rangárvöllum.
Honda Accord
árgerð 1995
__ ö ...:_-
Komdu til okkar í Vatnagarða.
og reynsluaktu þessum glæsilega bíl
-það sannfærir þig!
Verð frá aðeins 1.856.000 kr.
Honda, Vatnagörðum 24, sími 689900