Morgunblaðið - 16.08.1994, Blaðsíða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 16. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
DANSATRIÐI úr Svanavatninu? Kyle
Keyser og Linda Latzlberger dansa í risa-
stórum leðjupolli.
UNGUR friðarunnandi er borinn af þvögunni.
300.000 manns á
forugri Woodstock ’94
HATIÐARGESTIR renna
skriðu.
ser aur-
GRÍÐARSTÓR tónlistarhátíð var hald-
in um helgina vegna þess að tuttugu
og fimm ár eru liðin frá hinni sögu-
legu Woodstock-hátíð. Talið er að
um 300.000 manns hafi mætt á tón-
listarhátíðina, sem' stóð yfír í þrjá
^daga. Alveg eins og Woodstock
fyrir tuttugu og fimm árum, kem-
ur þessi tónlistarhátíð til með að
verða lengi í manna minnum.
Gífurlegt umferðaröngþveiti
myndaðist umhverfist hátíðar-
svæðið og margir urðu að
bíða í fleiri klukkustundir
eftir því að komast inn á
svæðið. Þegar þangað kom
tók ekkert skárra við og
fólk stóð í löngum röðum
eftir að komast á klósett og
að matar og drykkjarföngum.
Tónlistarhátíðin bergmálaði Woodstock frá árinu 1969 að því leyti að
öryggisgæslan annaði hvergi fólksstraumnum, tugþúsundir manna
komust ókeypis inn á svæðið og síðan rigndi eins og hellt væri úr fötu.
Hvorir tónleikarnir voru betri?
Woodstock ’94 gaf upprunalegu tónleikunum lítið eftir hvað varðar
gæði tónleikanna. Þrátt fyrir að Hendrix væri sárt saknað vöktu hljóm-
sveitir og tónlistarmenn eins og Aerosmith, Blind Melon, Peter Gabri-
el, Joe Cocker, Red Hot Chili Peppers, Bob Dylon, Santana, Cypress
Hill og fleiri og fleiri stormandi lukku meðal áhorfenda. Það vakti
eftirtekt hversu hljómgæðin voru miklu betri á Woodstock ’94, enda
hefur tækninni fleygt fram. Rick Danko úr hljómsveitinni „The Band“
spilaði bæði á Woodstock 1969 og núna. Hann sagði „Ég var á síð-
ustu Woodstock-hátíð og þessi var áberandi betri. Þótt einhveijum
tækist illa upp var engin leið að kenna hljóðkerfinu um.“
JESSIE Harrity situr á háhesti.
Fjögur brúðkaup og eitt andlát
Pjögur brúðkaup voru haldin á Woodstock-hátíðinni. Meðal þeirra
sem giftu sig voru rússneski innflytjandinn Viktoría Súkanov og
Maurice Methot. Þau höfðu ráðlagt að gifta sig í heimabæ sínum,
Rhode Island, þegar svaramaður brúðgumans sagðist ekki komast í
brúðkaupið vegna þess að hann yrði á Woodstock. Hjónaefnunum fannst
það þá vera tilvalinn staður fyrir brúðkaupið. Hjónavígslan fór fram
á MTV-sviðinu fyrir framan 300.000 manns og fjölda ljósmyndara.
Brúðurin, sem er þijátíu ára, geymdi brúðarkjólinn í bakpoka allan
daginn. Hún var í hvítum brúðarkjól með kórónu úr plasthaustlaufum
á höfði. Brúðguminn sagði þetta vera mesta ævintýri sem hann hefði
Ient í á Iífsleiðinni og brúðurin sagði brosandi út að eyrum: „Það er
alveg öruggt mál að við komum með börnin okkar á næstu hátíð.“ Á
hátíðinni andaðist einn maður, fjörutíu og íjögurra ára gamall, en
hann hafði átt við sykursýki að stríða um árabil.
Hátíðarsvæðið drullusvað
Urhellisrigning var yfir helgina, sem olli því að hátíðarsvæðið varð
eitt allsheijar leðjusvað og margir leituðu skjóls
og skriðu inn í tjöldin sín eða yfirgáfu tón-
leikasvæðið. Stemmninguna rigndi þó
ekki niður og fjöldi hátíðargesta fagnaði
rigningunni. Fólk dansaði, velti sér um /
og renndi sér niður brekkur í leðjunni /
og afklæddist jafnvel hverri spjör. Eins
og á upprunalegu Woodstock-hátíðinni
létu menn rigninguna ekkert á sig fá
og einn hundblautra hátíðargesta sagði:
„Sú upplifun að skemmta sér með öllu
þessu fólki er þess virði. Á meðal \
200.000 manns hef ég aðeins hitt (
einn fábjána og ég kem til með
að segja bömum mínum söguna
af Woodstock ’94 þegar fram
líða tímar.“
X
/
Ný ögrandi mynd frá Pedro Almodóvar.
KIKA er ein vinsælasta myndin í Evrópu í ár og
fatnaðurinn, sem Jean Paul Gaultier hannaði fyrir
myndina, er heitur tískuvarningur.
Hljómsveitin
Red Hot Chili
Peppers vakti
lukku með líf-
legri sviðs-
framkomu.
LINDA Latzlberger sveiflar hári sínu meðan hún leikur
sér í leðjupolli.