Morgunblaðið - 11.09.1994, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994 31
var orðið um okkur í skúmum á lóð
foreldra minna á Holtsgötu 41 og
fluttum því reksturinn í Einholt 6
þar sem við vorum allar götur síðan
þar til við fluttum í eigið húsnæði
í Skeifunni 3e og f, árið 1966. Guð-
mundur Hansen lést árið 1962. Fyr-
ir örfáum ámm seldi Sigurður sinn
hlut í Rafveri en hélt þó áfram starfí
að hluta til þar til hann hafði lokið
dagsverki sínu. Sjálfur hvarf ég að
öðrum störfum og seldi því minn
hlut.
Húseignin er aðskilin frá fyrir-
tækinu og sá Sigurður gjarnan um
ýmsa hluti varðandi hana fyrir okk-
ur félagana. Hann hafði þann eigin-
leika að ná vel til manna og vera
hleypidómalaus í garð annarra og
var því vinsæll meðal sameigenda
sinna í Húsfélaginu Skeifunni 3.
Hann var hamhleypa til verka og
þar var ekkert lát á fyrr en fyrir
rösklega áratug að hann kenndi
sjúkdóms. Eftir hjartauppskurð
gerði hann allt til þess að ná upp
þreki og tókst vel og vann fullan
vinnudag eftir það þar til annar
sjúkdómur sótti að. Óhætt er að
fullyrða að gott lundarfar Sigurðar
hjálpaði honum mikið í hremming-
um sínum, en hann var maður sem
kunni að stjórna skapi sínu og fínna
lausnir á hveiju máli, sá sem þetta
ritar hefur oft sannreynt það. Sig-
urður hafði ákveðnar skoðanir og
fylgdi þeim fast eftir enda vel máli
farinn og hafði alltaf þekkingu á
því viðfangsefni sem um var að
ræða.
Sigurður var kvæntur Sigríði
Magnúsdóttur, mannkosta- og
gæðakonu. Þegar þau kynntust var
hún ekkja með fjögur ung böm, það
elsta rétt að byija sitt grunnskóla-
nám. Hann reyndist þeim góður
faðir og talaði aldrei um þau sem
stjúpbörn, heldur voru þetta börnin
þeirra Sigríðar og hans.
Saman eignuðust þau eina dótt-
ur. Börnin þeirra hjóna hafa öll
komist vel til manns og hópurinn
stækkað með barnabömum og
barnabarnabömum. Það var gott
að heimsækja þau hjón enda var
gestrisni í hávegum höfð á heimili
þeirra.
Það sem einkenndi Sigurð öðru
fremur var umhyggjusemi, hjálp-
semi og greiðvikni. Þessir þættir í
fari hans komu engu síður fram á
verkstæðinu en heimili hans. Jafnt
í verklegum fræðum átti Sigurður
það til að leiðbeina þeim nemum,
sem ekki rötuðu alitaf réttan veg í
frumskógi lífsins, í rétta átt. Okkur
Sigurði varð strax vel til vina, og
eins og fólki sem farið er að fella
af, þá notuðum við mikið símann
til að spjalla saman. Hann fylgdist
vel með öllum landsmálum sem og
heimsbyggðinni allri.
Eg kveð vin minn með virðingu
og þakklæti fyrir að hafa kynnst
- h+1 Krossar é leiði
I viSarlitog málaSir Mismunandi mynsnjr, vönduð vinna. Simi 91-35929 oq 35735
Blómastofa
Fnðfinris
Suðurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sfmi 31099
Opið öli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öii tílefni.
Gjafavörur.
MINNINGAR
honum um leið og ég votta fjöl-
skyldu hans mína dýpstu samúð.
Haraldur Hermannsson.
Sigurður Sveinsson er nú allur,
og er skarð fyrir skildi. Síðasta glím-
an við manninn með Ijáinn var snögg
en hann varð bráðkvaddur á heimili
sínu aðfaranótt 4. september sl.
Siggi hafði marga hildi háð um
dagana og þurfti oft að takast á
við alvarleg veikindi en hafði ávallt
betur þar til nú. Það mun hafa ver-
ið honum að skapi að taka örlögum
sínum heima í faðmi ástvina.
Sporaslóðir okkar Sigga lágu
saman eftir að fjölskylda hans flutti
búferlum úr Skaftárþingi að
Skeggjastöðum i Mosfellssveit
1945. Hann féll strax vel að hópi
jafnaldra sinna og honum var tekið
fagnandi svo sem var um þau systk-
inin öll. Siggi var hægur í fasi og
fámáll en lundin traust með ívafí
dillandi glettni. Hann gaf hvergi
hlut sinn, var þéttur á velli og talinn
með sterkustu mönnum, enda mót-
aður af ættemi sínu og uppruna.
Óvíða hafa náttúruöflin lagt meira
á fólkið hér á landi en í Skaftafells-
sýslu. Þar er víðátta sandanna og
hafnalaus ströndin; beljandi jökul-
vötn og náttúruhamfarir, er hafa
gert öll ferðalög og aðdrætti að
þrekraunum fyrir menn og skepnur.
Annars hafa glöggir menn lýst
Skaftfellingum á þann veg að þeir
mega vel við una. Þeir eru taldir
manna kurteisastir, tillitssamir og
vel treystandi í orði og verki. Sigurð-
ur Sveinsson var búinn þessum
mannkostum og þess naut ég í löngu
og farsælu samstarfí við hann og
fyrirtæki hans.
Siggi eignaðist eina dóttur með
eiginkonu sinni Sigríði Magnúsdótt-
ur og fósturbörnin vom fjögur.
Kærleikar miklir vom með Sigga
og börnunum. Heimilið var hans
helgireitur, og þar naut hann sín
vel í návist við garðinn, húsið og
ekki síst eiginkonuna, bömin og
afkomendur.
Að leiðarlokum vil ég þakka Sig-
urði Sveinssyni samfylgdina og
samstarfíð, sem hann rækti með
drengskap og tryggð. Aðstandend-
um votta ég innilega samúð, og
megi lendingin verða góð handan
móðunnar miklu. Minningin lifír.
Jón M. Guðmundsson.
Okkar góði og gamli vinur er
genginn á vit feðranna, mjög óvænt,
en samt sem kunnugir máttu um
langan tíma raunar búast við sakir
hans langvarandi sjúkleika.
Okkur hjónin langar til að senda
Sigurði litla kveðju og þakka honum
fyrir mjög góð kynni.
Siggi hafði einstaklega stóran
faðm, sem best geta vitnað um
stjúpböm hans fjögur, sem ólust upp
hjá honum með hans konu og móð-
ur þeirra, Sigríði Magnúsdóttur frá
Bæ í Króksfírði og er ekkja eftir
Friðgeir Sveinsson frá Sveinsstöð-
um í Dölum. Hlýjan hans Sigga var
alveg einstök. Alltaf sama prúða
jafnaðargeðið. Sama hvort baslað
var við járningar hrossa, en hann
hafði áður fyrr gaman af hesta-
mennsku, eða hverslags vandamál
sem að steðjuðu, sem eðlilega hljóta
að koma upp á langri lífsleið. Alltaf
sama æðruleysið. Aldrei hallað orði
á neinn. Það er virkilega Guðs þakk-
ar vert að hafa fengið að kynnast
slíkri manngerð og vissulega bæt-
andi. Það er söknuður að slíkum
manni. Við gætum minnst svo
margs, en látum vera, og geymum
með okkur góða minningu.
Siggi hlýtur að hvíla í friði og fá
góðar móttökur. Blessuð sé hans
minning og blessun fylgi hans nán-
ustu og styrki.
Ólöf og Haraldur.
t
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
MARÍA ALDÍS PÁLSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést að kvöldi 8. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn og
barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, amma og systir,
EDDA BORG STÍGSDÓTTIR,
Strom Terrasse 20B
3046 Drammen,
Norge,
lést miðvikudaginn 7. september á sjúkrahúsi í Drammen, Noregi.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélag
(slands.
Magnús Óskar Magnússon,
Gerður Ósk Magnússon, Herdís Erla Magnúsdóttir,
Jóakim Magnús Tómasson,
Jón Stígsson, Heimir Stígsson,
Dagbjartur Stígsson, Þórhallur Stígsson.
t
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og langalang-
amma,
MARIE ERNA WILHELMINE KNOOP,
Lyngbraut 9,
lést 30. ágúst á Garðvangi, Garði.
Útför hennar fór fram 6. september frá Útskálakirkju.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Garðvangi.
Úrsúla Magnússon, ívar Magnússon,
Friðrik Ö. íyarsson, Anna D. Garöarsdóttir,
Guðjón T. ívarsson, Erla Elísdóttir,
Magnea M. ívarsdóttir, Jón R. Ólafsson,
Óskar ívarsson,
barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Lokað
Rafver hf., Skeifunni 3e og f, verður lokað eftir
hádegi mánudaginn 12. september vegna útfarar
SIGURÐAR SVEINSSONAR.
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁMUNDA EYJÓLFSSONAR
húsasmfðameistara,
Hamarsbraut 12, Hafnarfirði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 13. september kl.
13.30.
Gunnar Ámundason, Auður Skúladóttir,
Ingólfur Halldór Ámundason, Ragnheiður Sigurbjartsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför ástkæru móður okkar,
HILDAR E. FRÍMANN,
Hamraborg 32,
Kópavogi,
fer fram frá Fossvogskirkju 13. septem-
ber. kl. 13.30.
Gisli Ásgeirsson,
Sigríður Ásgeirsdóttir,
Ásgeir Ásgeirsson,
Kristín Ásgeirsdóttir.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs bróður okkar
og mágs,
ÓLAFS ÓLAFSSONAR
vélstjóra,
Snælandi 5.
Ásta Ó. Beck, Gyða Ólafsdóttir,
Gunnar H. Ólafsson, Ása Ingvarsdóttir,
Guðrún Ingvarsdóttir.
t
Alúðarþakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóð-
ur, dóttur, ömmu og systur,
GUÐRÚNAR MATTHÍASDÓTTUR,
Maríubakka 26,
Reykjavik.
Matthías Gíslason, Erlen Jónsdóttir,
Stella Gréta Gísladóttir, Ta-Lee Thomsen,
Gunnar St. Gíslason, Sunna Árnadóttir,
Guðrún Kortsdóttir,
barnabörn og systkini.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkur, tengdaföð-
ur, afa og langafa,
SIGURJÓNS JÓNASSONAR,
Ólafsvegi 10,
Ólafsfirði.
Bjarney Bjarnadóttir,
Kristjana Sigurjónsdóttir, Magnús Sigursteinsson,
Bjarni Sigurjónsson, Sigríður M. Jóhannsdóttir,
Jónas Sigurjónsson, Hallfríður Einarsdóttir,
Sigriður Olgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
dóttir, amma, langamma og vinkona,
JÓNBORG SIGURÐARDÓTTIR,
Fellsmúla 2,
Reykjavík,
er lést 4. september, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 13. sept-
ember kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Sigurður Pétur Högnason, Elín Jóhannesdóttir,
Einar Högnason, Sigríður Guðmundsdóttir,
Sigrún Högnadóttir, Jón Á. Stefánsson,
Hilmar Högnason, Ágústa Þórisdóttir,
Sigurður Pétursson,
barnabörn, barnabarnabörn,
Guðmundur Þorgrfmsson.