Morgunblaðið - 11.09.1994, Blaðsíða 46
46 SUNNUDAGUR 11. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
EVRÓPUKEPPIMI MEISTARALIÐA í KNATTSPYRIMU
Bíðum spenntir eftir
enn einum stórleiknum
- sagði SigurðurJónsson um Evrópuleik IA gegn Kaiserslautern
Morgunblaðið/Árni Sæberg
SIGURÐUR Jónsson gnæfir yfir sænsku landsliðsmennina Martin
Dahlín og Hákan Mild, en Guðni Bergsson er einnig í háloftunum.
Á neðrl myndinni er það Skagamaðurinn Sigursteinn Gíslason,
sem hefur betur gegn Tomas Brolin í Svíaleiknum.
að stríða, en vonir standa til að þeir
verði með gegn Kaiserslautern. „Við
stillum upp sterkasta liði, sem völ
verður á, en hvort það verður nógu
gott verður að koma í ljós,“ sagði
Sigurður. „Samkvæmt öllum bókum
eigum við að tapa, en við hugsum
ekki um það heldur einbeitum okkur
að því að gera okkar besta.“
Eins og hjá landsliðinu
Sigurður sagði að Skagaliðið hefði
öðlast dýrmæta reynslu innan lands
sem utan og væri því vel í stakk
búið til að takast á við erfið verkefni.
„Við gerum okkur fulla grein fyr-
ir því að þetta verður mjög erfitt,
en við erum orðnir sjóaðir í þessu
og það er með okkur eins og landslið-
ið — við náum oft toppleik þegar við
leikum gegn sterkari liðum. Við höf-
um náð viðunandi árangri í sumar
og höfum í raun engu að tapa heldur
allt að vinna. Lukkudísirnar voru
ekki með okkur í landsliðinu gegn
Svíum, en við vitum að hveiju við
göngum.“
Stuðningurinn mikilvægur
Áhorfendur geta haft mikið að
segja eins og sást á landsleiknum
við Svía s.l. miðvikudagskvöld og í
Evrópuleik ÍA og Feyenoord fyrir
ári. „Við fengum gífurlega góðan
stuðning í leiknum gegn Feyenoord
og hann hafði góð áhrif á mannskap-
inn um leið og Hann truflaði mótherj-
ana. Sama var upp á teningum gegn
Svíum, en þá sást vel hvað það er
mikilvægt atriði að hafa áhorfendur
með sér.
Við höfum ekki þurft að kvarta
og ég veit að stemmningin verður
góð á þriðjudagskvöld."
SKAGAMENN hafa verið i
sviðsljósinu innan lands sem
utan undanfarin ár. íslands-
meistarar í þrjú ár í röð er ein-
stakt, síðan tekin var upp tvö-
föld umferð, tvöfaldir meistar-
ar ffyrra, sigurgegn Feyenoord
í Evrópukeppni meistaraliða
fyrir ári og fjórir sigrar í síð-
ustu fimm Evrópuleikjum segja
sfna sögu auk þess sem
burðarásar liðsins hafa verið
lykilmenn í íslenska landslið-
inu. „Við bíðum spenntir eftir
enn einum stórleiknum," sagði
Sigurður Jónsson, miðjumað-
urinn snjalli, við Morgunblaðið
aðspurður um Evrópuleikinn
við þýska liðið Kaiserslautern,
sem verður á Laugardalsvelli á
þriðjudagskvöld.
Fáir áttu von á sigri ÍA gegn Fey-
enoord í fyrra, en Skagamenn
vel studdir af tæplega 7.000 áhorf-
endum, áttu stórleik,
komu á óvart og
Steinþór ‘Jnnu 1:0 &æf.
Guðbjartsson jegu skallamarki
Ólafs Þórðarsonar.
„Þetta er án efa eitt fallegasta og
mikilvægasta markið á ferlinum,"
sagði Ólafur við Morgunblaðið eftir
leikinn. „Það er ótrúlegt að þessir
leikmenn skuli vera áhugamenn,“
-sagði Errol Refos, bakvörður hol-
lenska liðsins. „Það eru margir góðir
ieikmenn í liðinu sem ráða yfir góðri
knatttækni."
Hápunkturinn
Sigurður Jónsson var sem hérfor-
ingi á miðjunni i fyrrnefndum leik
eins og svo oft með Skagamönnum
og hann sagði að stemmningin nú
væri svipuð og fyrir ári. „Eftir að
við höfðum tryggt okkur bikarmeist-
aratitilinn og Islandsmeistaratitilinn
var leikurinn gegn Feyenoord á
Laugardalsvelli sem sætur ábætir,
hápunkturinn á tímabilinu. Aðstæður
nú eru mjög svipaðar. íslandsmeist-
aratitillinn er okkar þriðja árið í röð,
við höfum yfirstigið hindrunina í for-
'keppninni með sóma og tökum næst
á móti þekktu stórliði. Feyenoord var
sterkt, en Kaiserslautem er enn
sterkara, jafnari einstaklingar og
öflugri liðsheild. Því eigum við erfítt
verkefni fyrir höndum, en við tökum
á því eins og öðrum.“
Mikið álag hefur verið á Skaga-
mönnum, því nær allt byrjunarliðið
hefur verið með landsliðunum að
undanfömu. Ólafur Þórðarson og
Ólafur Adolfsson hafa átt við meiðsl
Skagamenn byijuðu í Evrópu-
keppni meistaraliða að þessu
sinni með því að vinna Bangor City
frá Wales 2:1 úti og síðan 2:0
heima. Kári Steinn Reynisson og
Sigurður Jónsson gerðu mörkin í
fyrri leiknum, en Haraldur Ingólfs-
son og Ólafur Þórðarson í þeim
seinni, sem var fjórði Evrópusigur
íslandsmeistaranna í síðustu fímm
leikjum.
l^arl Þórðarson lék fyrsta Evr-
ópuleik sinn fyrir Skagamenn
fyrir 19 árum, gegn Omenía frá
Kýpur, og kom inn á í fyrri leiknum
gegn Bangor City. Hann er marka-
hæstur leikmanna Akraness í Evr-
ópukeppni með fimm mörk. Árni
Sveinsson er leikjahæstur í Evrópu-
leikjum ÍA með 22 leiki 1975 til
1986. Guðjón Þórðarson, núverandi
þjálfari KR, er næstur með 21 leik,
Karl hefur leikið 19 leiki, Jón Gunn-
laugsson lék 17 leiki og Jón Alfreðs-
son 16 leiki.
kurnesingar hafa leikið í 17
þjóðlöndum víðs vegar í Evr-
ópu á ferlinum í Evrópumótunum.
Tvívegis í Hollandi, Skotlandi, Belg-
íu og Þýskalandi og einu sinni i
Svíþjóð, Noregi, Rússlandi, Tyrk-
landi, Möltu, Kýpur, Albaníu, Port-
úgal, Wales, Spáni og Ungveija-
landi.
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspyrnufélags ÍA, fór
ekki í fyrstu ferðina, sem var til
Hollands 1970, en hefur síðan fylgt
liðinu eftir í öllum Evrópuleikjun-
um.
Akurnesingar hafa leikið 38
Evrópuleiki. Fimm hafa unn-
ist, þar af fjórir af síðustu fímm,
sjö sinnum hefur orðið jafntefli og
26 leikir hafa tapast. í þessum leikj-
um hafa Skagamenn gert 26 mörk,
en fengið á sig 103 samtals. Marka-
talan í síðustu sex leikjum er hins
vegar 8:4 fyrir ÍA og óvæntustu
úrslitin urðu á Laugardalsvelli í
fyrra, þegar ÍA vann Feyenoord 1:0.
Rfg arkverðir Skagamanna hafa
einnig verið landsliðsmark-
menn á undanförnum árum. Bjarni
Sigurðsson varði mark ÍA 1979 til
1984, Birkir Kristinsson 1985 til
1987, Ólafur Gottskáiksson 1988
til 1989 og Kristján Finnbogason
1991 til 1993.
Cvrópuleikmenn Skagamanna
■■ eru 67 talsins og þar af níu
markmenn. Bjarni lék átta leiki,
Birkir sex leiki, Davíð Kristjánsson
fímm leiki, Einar Guðleifsson fjóra
leiki, Jón Þorbjörnsson fjóra leiki,
Kristján fjóra leiki, Ólafur fjóra
leiki, Þórður Þórðarson, núverandi
markvörður, leikur þriðja Evrópu-
leik sinn á þriðjudagskvöld, og
Hörður Helgason, þjálfari liðsins, á
einn Evrópuleik að baki sem mark-
vörður liðsins.
Nöfn Skagamanna eru áberandi
á meðal þjálfara í 1. deild,
en fimm þeirra eru fyrrverandi leik-
menn IA auk þess sem tveir þjálfar-
ar í 2. deild léku með Skagamönn-
um og einn í 3. deild.
|Y|efndir menn hafa komið mikið
við sögu í Evrópuleikjum fé-
lagsins. Guðjón Þórðarson, þjálfari
KR, lék 21 leik 1975 til 1985. Sig-
urður Lárusson, þjálfari Þórs á
Akureyri, lék 13 leiki 1979 til 1987.
Pétur Pétursson, þjálfari ÍBK, lék
átta Ieiki 1976 til 1986. Kristinn
Björnsson, þjálfari Vals, lék þijá
leiki 1977 til 1979, og Hörður
Helgason, þjálfari ÍA, lék einn leik
1975. Lúkas Kostic, þjálfari Grind-
víkinga, sem eru efstir í 2. deild,
var fyrirliði ÍA í öllum fjórum Evr-
ópuleikjum liðsins í fyrra, og Svein-
björn Hákonarson, sem þjálfaði
Þrótt Neskaupstað þar til nú í viku-
lok, lék 14 leiki 1978 til 1987. Þá
lék Sigurður Halldórsson, þjálfari
Skallagríms í Borgarnesi, sem er í
efsta sæti 3. deildar, níu Evrópu-
leiki með Akranesi 1978 til 1984.