Morgunblaðið - 29.09.1994, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ákveðið að taka upp olíugjald í stað þungaskatts á dísilbifreiðar
Á að stuðla að umhverfis-
vemd og færri undanskotum
Kostnaður á fólksbíl á ári (1.100 kg) Kostnaður á vöruflutningabíl á ári (16 tonn)
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráð-
herra hefur ákveðið að tekið verði
upp olíugjald af notkun dísilbifreiða
í stað núverandi þungaskatts.
Starfshópur á vegum ráðherra
leggur til að 38,50 króna gjald legg-
ist á verð lítra af dísilolíu, sem yrði
þá með virðisaukaskatti um 70,83
krónur, eða álíka og verð lítra af
92 oktana benzíni. Að mati §ár-
málaráðuneytisins mun þessi breyt-
ing stuðla að fækkun undanskota
frá skatti, og því að rekstur dísil-
knúinna fólksbifreiða verði hag-
kvæmari en nú er. Dísilbílar eru
taldir umhverfisvænni en benzínbíl-
ar, vegna minni brennslu olíu og
minni mengunar í útblæstri.
í flestum Evrópulöndum er nú
tekið olíugjald af notendum dísilbif-
reiða. Hér á landi er hins vegar
þungaskattur í gildi. Eigendur bíla
undir Qórum tonnum geta valið um
að greiða fast árgjald eða að greiða
fyrir ekna kflómetra. Aðrir greiða
fyrir hvem ekinn kílómetra sam-
kvæmt mæli, stighækkandi gjald
eftir þyngd ökutækisins.
Undandráttur
í núverandi kerfi
Starfshópur, sem fjármálaráð-
herra skipaði fyrir tveimur árum
til að kanna hvort rétt væri að
leggja niður þungaskattskerfið,
hefur skilað áliti og leggur til að
tekið verði upp olíugjald. Ekki verð-
ur gripið til þess ráðs, sem sums
staðar er notað, að lita olíu sem
ekki á að bera gjald. Aðjnati hóps-
ins eru kostimir við slíka gjaldtöku
afgerandi. Kostnaður við hana er
lítill, undandráttur á að verða minni
en í núverandi kerfi og eftirlit auð-
veldara.
Hópurinn telur að núverandi
kerfi sé óviðunandi. Það sé flókið
og erfitt í framkvæmd og bjóði upp
á undanskot. Samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins er þar einkum
átt við að ökumælar sýni ekki rétt-
ar tölur við eftirlit. Þetta stuðlar
að mati hópsins að óviðunandi mis-
munun, þegar um atvinnuakstur er
að ræða, á samkeppnisstöðu þeirra,
sem eru skilvísir eða nota benzínbif-
reiðar. Jafnframt hefur undanskot
tekjutap fyrir ríkissjóð í för með sér.
Fjármálaráðherra hefur ákveðið
að samið verði lagafrumvarp og í
því farið eftir tillögum meirihluta
starfshópsins. Friðrik Sophusson
sagði í samtali við Morgunblaðið
að á næstunni yrðu hagsmunaaðil-
um tilkynntar fyrirhugaðar breyt-
ingar. Lögð yrði áherzla á að hraða
breytingum, þannig að þær gætu
gengið í gildi á miðju næsta ári.
Friðrik sagði að við þessar breyting-
ar yrði að hafa nokkur atriði sér-
staklega í huga, þar á meðal að
tryggt yrði að upptaka olíugjalds
íþyngdi ekki búrekstri, að sérleyfis-
hafar og eigendur almennings-
vagna fengju gjaldið endurgreitt
eða aðra styrki, að hækkun rekstr-
arkostnaðar vinnuvéla yrði mætt
með t.d. lækkun gjalda á aðföng
eða tímabundnum endurgreiðslum,
að gjald af olíu til húshitunar yrði
endurgreitt, að útgerðir, sem
keyptu gasolíu á fisklskip, fengju
olíuna án gjalds eða þá endur-
greiðslur og að kannað yrði hvort
rétt væri að hafa fast gjald á
þyngstu dísilbifreiðamar, auk olíu-
gjalds, til að draga úr álagi á vegi.
Kostur fyrir neytendur
Friðrik sagði að veigamikil afleið-
ing upptöku olíugjalds væri að neyt-
endur gætu nýtt sér framfarir í
smíði dísilbifreiða og keypt hag-
kvæma og umhverfisvæna bíla, á
sama hátt og íbúar í nágrannaríkj-
unum. Fjöldi dísilknúinna fjöl-
skyldubíla væri nú hverfandi hér á
landi vegna þungaskattskerfisins.
Alls eru 14.400 dísilknúnar bif-
reiðar hér á landi. Þar af eru um
6.000 fólksbifreiðar, sem eru um
5% af fólksbílaflotanum.
Kvennalistinn vill
að Guðmundur
Árni segi af sér
Boðar ella
vantraust I
á ríkis-
stjórnina
ÞINGFLOKKUR Kvennalistans
ætlar að leggja fram vantraust á
ríkisstjórnin'a á Alþingi segi Guð-
mundur Árni Stefánsson félags-
málaráðherra ekki af sér ráð- |
herraembætti.
Þingflokkur Kvennalistans
ræddi embættisfærslur Guðmund-
ar Árna á fundi í gær og í sam-
þykkt flokksins segir að ráðherrar
ríkisstjórnar Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks hafi ítrekað gert
sig seka um vafasamar embættis- j
færslur og stöðuveitingar. Mál fé-
lagsmálaráðherrans sé kornið sem '
fylli mælinn og ráðherrann eigi i
að segja af sér þegar í stað. Geri
hann það ekki verði ríkisstjórnin
að taka af skarið, vilji hún halda
trausti þjóðarinnar, og láta ráð-
herra, sem gerst hefur sekur um
alvarlegan siðferðisbrest, víkja.
Að öðrum kosti sé ríkisstjórnin
vanhæf og þingflokkur Kvenna-
listans muni þá leggja fram van- |
traust á hana á þingi. j
„Þingflokksfundur Alþýðu- I
flokksins á föstudag kemur til með
að svara þessu,“ sagði Guðmundur
Árni Stefánsson þegar Morgun-
blaðið bar samþykkt Kvennalist-
ans undir hann.
Formaður og varaformaður Alþýðuflokksins
Sammála um tillögn
um lyktír málsius
Vonar að
hann fái
ekki aðdá-
endabréf
KÁRI Gunnarsson, ellefu ára
gamall Hafnfirðingur, leikur
Emil í kvikmyndinni Skýjahöll-
inni sem frumsýnd verður í dag.
Myndin er gerð eftir bók Guð-
mundar Olafssonar, Emil og
Skunda. Kári er búinn að sjá
myndina og hann segir að liún
komi vel út. Honum finnst þó
skrítið að sjá sjálfan sig á tjald-
inu, sérstaklega vegna þess að
„maður er svo rosalega stór!“
Tökur á mynuiuni byrjuðu í
ágúst í fyrra og stoðu í þrjá
mánuði. Á þeim tíma vann Kári
rúmlega fullan vinnudag á
hverjum degi, sem hann sagði
að hefði verið erfitt en jafn-
framt mjög skemmtilegt. Kári
er í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði
en hann gat ekkert verið í skól-
anum meðan hann var að leika
í myndinni og þurfti því að
vinna heilmikið upp.
Aðspurður um það hvort
skólafélagar hans væru ekki
spenntir fyrir því að sjá mynd-
ina sagði Kári svo vera. „Þeir
eru alltaf að spyija hvort þetta
hafi ekki verið skemmtilegt, og
erfitt og hvort þetta sé ekki
skrítið." Og hann vildi meina
að spurningar blaðamanns
væru svona álíka kjánalegar!
Annars sagði Kári að það stæði
til að fara í hópferð á myndina
með skólanum.
Kári hefur haft nóg að gera
að koma fram í fjölmiðlum
vegna frumsýningarinnar og
gerir sér grein fyrir því að hann
er að verða frægur. Hann vonar
þó að ekki komi til þess að hann
fari að fá aðdáendabréf. „En
heldurðu að það sé ekki
skemmtilegt að fá bréf frá sæt-
um stelpum?" - Ekkert svar,
bara gretta og Kári gefur frá
sér hljóð sem líkist
„eðððgghhh“.
Kári segist vel geta hugsað
sér að leika meira og þá helst
í kvikmyndum. „Á leiksviði þarf
maður að muna svo mikið í einu.
í kvikmyndum þarf maður bara
að muna textann meðan á töku
stendur og getur svo bara
gleymt honum!“ segir Kári.
JÓN Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, gerir sér
vonir um að sátt geti tekist um þá
tillögu, sem hann hyggst kynna
þingflokki Alþýðuflokksins á fundi
hans á morgun, með hvaða hætti
ávirðingamál Guðmundar Árna
Stefánssonar, varaformanns
flokksinSj verði til lykta leidd. Guð-
mundur Ámi samþykkti tillögu Jóns
Baldvins fyrir sitt leyti á fundi með
formanninum í gær og sagðist í
samtali við Morgunblaðið vera
ánægður með þessa niðurstöðu og
hafa trú á að um hana næðist víð-
tæk sátt, ekki aðeins í þingflokkn-
um heldur innan flokksins alls.
Jón Baldvin sagðist í samtali við
Morgunblaðið í gær hafa eytt
tveimur .sólarhringum í að ræða við
alla þingmenn flokksins, fjölmarga
trúnaðarmenn Alþýðuflokksins og
óbreytta flokksmenn. „Við Guð-
mundur Árni áttum um hádegisbilið
í dag góðan og gagnlegan fund.
Niðurstaða málsins er þessi, að svo
stöddu: Ég mun leggja fram tillögu
um það hvemig við leiðum málið
til lykta innan flokksins á þing-
flokksfundi á föstudag í hádeginu.
Á morgun munum við taka ákvörð-
un um flokksstjórnarfund, stað og
stund,“ sagði Jón Baldvin.
„Við höfum rætt málið í heild
sinni í okkar hóp, með þá viðleitni
í huga að ráða því til lykta í sátt
og samlyndi innan flokksins. Okkur
Guðmundi Áma kom saman um að
greina ekki frá efnislegum niður-
stöðum fyrr en að þingflokksfundi
loknum," sagði hann.
Aðspurður hvort hann væri bjart-
sýnn á að samstaða gæti tekist inn-
an Alþýðuflokksins um þá niður-
stöðu sem hann og varaformaður-
inn hefðu komist-að í gær, svaraði
Jón Baldvin: „Ég geri mér vonir
um það og er bjartsýnni á það, en
ég hef verið hingað til.“
Jón Baldvin sagði einnig að líkur
væru á að flokksstjórnarfundur
Alþýðuflokksins yrði haldinn um
helgina, án þess þó að geta fullyrt
að ákvörðun um það hefði verið
tekin.
Þegar hann var spurður hvort
ekki bæri nokkra nauðsyn til þess
að niðurstaða lægi fyrir innan Al-
þýðuflokksins áður en Alþingi kem-
ur saman á mánudag, svaraði hann:
„Jú.“
„Engar tilslakanir“
Guðmundur Árni var spurður
hvort tillaga hans og formannsins
gerði ráð fyrir að breyting yrði á
hans högum og svaraði hann að
engin kyrrstaða myndi ríkja, „en
ég geri engar tilslakanir," sagði
hann.
Á opnum stjórnmálafundi með
stuðningsmönnum í Hafnarfirði í
gærkvöldi sagði Guðmundur Árni
að Alþýðuflokkurinn ætlaði ekki að
sitja frammi fyrir fjölmiðlum lands-
ins með stimpilinn spilltasti flokkur
þjóðarinnar. Guðmundur sagðist
ekki geta greint frá sameiginlegri
tillögu sinni og formannsins en
hann væri reiðubúinn að leggja sín
■ mál fyrir dómstól þjóðarinnar og )
Alþýðuflokkurinn ætlaði að leggja |
öll sín spil á borðið. Næstkomandi
föstudag yrði því lýst yfir að Al-
þýðuflokkurinn hefði skýra stefnu
í þessum málum og jafnframt yrði
kallað mjög ákveðið eftir því hvort
aðrir stjómmálaflokkar og stjóm-
málamenn væru tilbúnir að gera
slíkt hið sama.
--------------
Níustarfs- !
mönnum
sagt upp
NÍU starfsmönnum íslandsbanka í
Keflavík var sagt upp störfum í vik-
unni. Starfsmennimir eru allir kon- )
ur, flestar í hálfu starfi, og þeim j
hafa verið boðin samsvarandi störf i
hjá íslandsbanka á höfuðborgar- 1
svæðinu.
Eiríkur Alexandersson útibússtjóri
sagði við Morgunblaðið að engum
starfsmönnum hefði verið sagt upp
þegar Verslunarbankinn og Utvegs-
bankinn í Keflavík sameinuðust við
stofnun íslandsbanka á sínum tíma
þótt starfsmenn bankans hefðu þá
verið of margir. „Við vonuðumst til
þess að fækkun starfsmanna kæmi
af sjálfu sér en hér hefur enginn
hætt í fímm ár í útibúinu og við
gátum ekki haldið áfram þessari yfif'
mönnun," sagði Eiríkur.