Morgunblaðið - 29.09.1994, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ________________________________________________________________FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994 9
FRÉTTIR
^ccirabtiib
PÍSKGÆEMVARA
FYRIR UNGAR
KONUR!
Nýkomið glæsilegt
úrval afvönduðum
tískufatnaði.
Álftamýri 7 • Sfmi 3 55 22
Leitað að
verkefnum
fyrir fanga
FANGELSISMÁLASTOFNUN
hyggst auka atvinnumöguleika
fanga sem vistaðir eru í fangelsum
landsins. Brýnast er talið að fjöiga
atvinnutækifærum í fangelsum á
höfuðborgarsvæðinu. Stofnunin
hefur auglýst eftir verkefnum frá
atvinnurekendum. Haraldur Jo-
hannessen fangelsismálastjóri segir
að tilfinnanlega skorti verkefni fyr-
ir fanga í Hegningarhúsinu á Skóla-
vörðustíg, Síðumúlafangelsinu og
Kópavogsfangelsi.
„Við erum því að leita eftir aðil-
um sem eru reiðubúnir til að taka
upp samstarf um þetta við fang-
elsiskerfið," segir Haraldur.
Fæstir án vinnu á
höfuðborgarsvæðinu
Fangar í Kópavogsfangelsi hafa
fengist við þvotta fyrir fangelsin
auk annarra tilfallandi verka. í
Hegningarhúsinu eru þvi sem næst
engin önnur verkefni nema þrif og
sama á við um Síðumúlafangelsið.
Fangar á höfuðborgarsvæðinu
hafa fæstir vinnu og eru því flestir
á dagpeningum, sem eru 2.100 kr.
á viku. Fangar sem hafa atvinnu
fá hærri greiðslur en þær eru mis-
munandi eftir verkefnum. Fangar
á Kvíabryggju og Litla-Hrauni eiga
flestir kost á vinnu og eru vinnu-
launin hærri á Kvíabryggju. Þar er
unnið við beitningar og aðra þjón-
ustu við fiskibáta á Grundarfirði í
akkorði. Á Litla-Hrauni er unnið
við hellugerð og gerð númeraplatna
fyrir bíla.
Þrefalt öryggi:
Stáltá,
stálþynna í sóla
og það nýjasta er
slithetta á tá!
Vinnuvernd
í verki
Skeifan 3h - Sími 81 26 70 - FAX 68 04 70
Nýja fangelsisbyggingin á Litla-Hrauni er orðin fokheld
Þáttaskilí
sögu fangelsa
hér á landi
Jólin nálgast
Nýttu þér 25 ára afmælisafsláttinn okkar. 15% afsláttur
af silfurhúðun á: Bökkum, skálum og borðbúnaði til 14.
október.
Opið kl. 4-6 virka daga.
Selfossi. Morgunblaðið.
LOKIÐ er uppsteypu og vinnu við
þakvirki nýju fangelsisbygging-
arinnar á Litla-Hrauni. Kynning á
húsinu og stöðu framkvæmda fór
fram í fyrradag, 27 september, í
reisugildi sem haldið var í bygging-
unni sjálfri. Hið nýja hús mun
hýsa 55 fanga og er gert ráð fyrir
að það verði tekið í notkun í maí-
mánuði 1995. Fyrsta skóflustunga
að húsinu var tekin 20. apríl og
hafa framkvæmdir gengið sam-
kvæmt áætlun. Aðalverktaki er
Ástré hf. í Hveragerði.
Tímamótahús
„Þetta hús skapar ekki bara
bætta aðstöðu heldur líka nýja
möguleika í úrræðum um vistun
fanga,“ sagði Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra meðal annars í
reisugildinu. „Ég vænti þess að
þetta hús eigi eftir að móta þátta-
skil í sögu fangelsa á íslandi,"
sagði Þorsteinn ennfremur.
„Við erum mjög ánægðir með
að bygging hússins er á áætlun
bæði hvað framkvæmdir snertir
og kostnaðarlega. Húsið verður
tekið í notkun næsta vor og síðan
verður hafist handa við fjölnota
skála fyrir vinnuaðstöðu og íþrótt-
ir fanga. Síðan eru á áætlun breyt-
ingar á eldra húsi og svæðinu fram
til 1997-1998. Húsið mun þjóna
tvenns konar tilgangi, auknu eftir-
liti og bættri aðstöðu fanga með
möguleika á nýjum vistunarúrræð-
um. Við hönnun hússins er tekið
tillit til sjónarmiða varðandi alþjóð-
legar skuldbindingar í þessum
málaflokki. Nú er unnið að breyt-
ingum á stjórnun og starfsháttum
í húsinu,“ sagði Haraldur Johann-
11 f vt r i|ú ð vm
Framnesvegi 5, sími 19775.
essen forstjóri Fangelsismálastofn-
unar.
Viðbótarrými fyrir 55 fanga
Hið nýja fangelsishús er á þrem-
ur hæðum samtals 1450 fermetrar
og skipt í fimm deildir. Allar fanga-
deildir eru útbúnar með sama
hætti og fangaklefar allir af sömu
stærð, 10,4 fermetrar. Einn fanga-
klefi á fyrstu hæð verður sérútbú-
inn fyrir fatlaða. Upp í gegnum
húsið gengur varðturn sem setur
sterkan svip á húsið og þjónar sem
yfirlitsstaður fyrir allt svæðið og
einnig varðstofunum á fangadeild-
unum.
Fjölnota hús verður byggt á
svæðinu til að leysa úr vanda sök-
um aðstöðuleysis fyrir vinnu og
íþróttir fanga. Um 720 fermetra
stálgrinda- eða límtrésskemmu
verður að ræða og er áætlaður
kostnaður 20-30 milljónir kr.
Jafnframt er ákveðið að endur-
skipuleggja eldra húsnæði og
breyta því eftir þörfum. Samhliða
uppbyggingu á fangelsissvæðinu
verða öryggismál, stjórnun starfs-
hættir tekin til gagngerrar endur-
skoðunar.
Arkitektar hússins eru Finnur
Björgvinsson og Hilmar Þór
Björnsson. Verkfræðistofa Sigurð-
ar Thoroddsen sér um burðarvirki
og lagnir og Verkfræðistofa Suð-
urlands um eftirlit.
Það er þróunarnefnd 1 fangelsis-
málum sem hefur umsjón með
lúkningu framkvæmda á Litla-
Hrauni og undirbúningi að bygg-
ingu nýs fangelsis á höfuðborgar-
svæðinu. Einnig er nefndinni ætlað
að hafa umsjón með þróun ný-
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
HIN NÝJA fangelsisbygging setur sterkan svip á umhverfið
á Litla-Hrauni.
ÚR VARÐTURNINUM er víðsýnt til allra átta. Andrés Valdi-
marsson sýslumaður, Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og
Haraldur Johannessen fangelsismálastjóri virða fyrir sér
útsýnið ásamt öðrum gestum.
mæla sem varða skipulag og starf-
semi fangelsa og gera tillögur til
breytinga á lögum um fangelsi og
fangavist. í nefndinni eiga sæti
Haraldur Johannessen forstjóri
Fangelsismálastofnunar og for-
maður nefndarinnar, Hjalti Zop-
honíasson skrifstofustjóri í dóms-
málaráðuneytinu, Sigurður Jóns-
son kennari og Þór Sigfússon hag-
fræðingur í fjármálaráðuneytinu.
Birgir Karlson hjá Framkvæmda-
sýslu ríkisins er ritari nefndarinn-
ar.
oJKjassískar þykkar dömuúlpur með ekta skinni
Verðjrákr 15.900,-
Autíiélitic
^IKLIEIIINI
SPORTSWEAR
mm\. e i g a n■
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina,
slmar 19800 og 13072.
pmibjuvegi 14 ('ruuðgata) í Kópavogi, sími: //7 70 9()
Á
Eruð þið að leita að góðum slað fyrir haustgleðskap?
NÆTURGALANUM (Kópavogi er tekið á móti alll að 55 manna
hópum í mat hverja helgi. Tilboðsmatseðill hússins eða annað
eftir samkomulagi. Hressileg lifandi danstónlist frá kl. 22.
Stórt bardansgólf og galastuð! Leitið nánari upplýsinga
í síma 87 70 99 eða 87 20 20 með góðum fyrirvara,
o%„
ilboðsmatseðill
Sjávarréttaforréttur
m/ hörptidiski og rœkjum
Grillað lambalœri með parísarkartöflum,
blómkáli, gulrótum og sveppasósu
1200 kr. pr. rnann
Höfúm stóra sali til ráöstöfunar fyrir stærri liópa
Smiftjuvcgi 14 (rauö gata) • 200 Kópavogur • Sfmi: 87 20 20