Morgunblaðið - 29.09.1994, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Eitt mann-
skæðasta
sjóslys í
sögunni
Lundúnum. Reuter.
FERJUSLYSIÐ í Eystrasalti er eitt
mannskæðasta sjóslys sögunnar á
friðartímum. Allt að 964 farþegar
og skipverjar munu hafa verið um
borð í feijunni og aðeins 141 bjarg-
aðist.
Hér eru önnur mestu sjóslys sög-
unnar á friðartímum tíunduð:
• 20. desember 1987. Ferjan
Dona Paz sökk eftir árekstur við
tankskipið Vector í Sibuyan-hafi
við strönd Filippseyja. Bensín var
í tankskipinu og eldur blossaði upp
í báðum skipunum. 4.375 fórust
um borð í ferjunni, en hún mátti
aðeins taka 1.500 farþega. 11 af
13 manna áhöfn tankskipsins létu
lífrð, þannig að alls fórust 4.386
manns. Þetta er mannskæðasta sjó-
slys sögunnar á friðartímum.
• 15. apríl 1912. Um 1.500
manns drukknuðu í breska far-
þegaskipinu Titanic þegar það
rakst á ísjaka við Nýfundnaland.
Titanic var stærsta skipið á sinni
tíð og var almennt talið vera ósökk-
vandi. Það fórst er það var í jómfrú-
ferð sinni frá Southampton til New
York.
• 22. apríl 1980. Ferjan Don Juan
sökk við Mindoro-eyju á Filippseyj-
um eftir árekstur við stóran flutnin-
gapramma. Að minnsta kosti 1.000
manns létu lífið en talið er, að raun-
veruleg tala hafi verið hærri.
• 25. maí 1986. Að minrísta kosti
600 manns létu lífið þegar feijunni
Samia hvolfdi á Meghna-fijóti í
Bangladesh.
• 15. desember 1991. Rúmlega
470 manns drukknuðu þegar feijan
Salem Express sigldi á kóralrif við
egypsku hafnarborgina Safaga í
Rauðahafi.
• 27. janúar 1981. Eldur blossaði
upp í indónesísku bílfeijunni
Tampomas II við strönd Kalimant-
an. Yfirvöld sögðu að 431 hafi lát-
ið lífið, en talið er að margir farþeg-
anna hafi verið óskráðir og því
hafi fleiri verið um borð í ferjunni.
• 31. ágúst 1986. Sovéskt far-
þegaskip, Nakhímov aðmíráll, lenti
í árekstri við flutningaskip í Svarta-
hafi við borgina Novorossíysk. 425
fórust.
• Mannskæðasti skiptapi á stríðs-
tímum varð 30. janúar 1945, þegar
Wilhelm Gustloff, 24.484 tonna
þýskt farþegaskipi, var sökkt í
Eystrasalti með tundurskeyti frá
sovéskum kafbáti úti fyrir Danzig.
Talið er að um 7.700 manns hafi
látið lífið.
FERJUSLYSIÐ I EYSTRASALTI
Reuter
FERJAN Estonia, sem hét áður Viking Sally, var smíðuð i Papenburg í Þýskalandi 1980. Var hún
15.500 tonn og gat flutt 2.000 farþega. Hún var í eigu eistneska ríkisins og sænsks fyrirtækis.
Lýst yfir þjóðarsorg í Svíþjóð og Eistlandi
Fólk grét á götum
Tallinn-borgar
Stokkhólmi, Tallinn. Reuter.
FJÖLMENNT lið sérfræðinga í áfallahjálp - presta, sálfræðinga og
lækna - var í gær í feijuhöfninni í Stokkhólmi þar sem hundruð
ættingja biðu milli vonar og ótta frétta af afdrifum farþega og skip-
veija feijunnar Estonia. Að sögn finnsku lögreglunnar voru um 500
Svíar og 340 Eistlendingar um borð í feijunni, sem var á leið til Stokk-
hólms frá Tallinn. Lýst var yfir þjóðarsorg í Svíþjóð og Eistlandi og
harmi slegið fólk grét á götum úti í höfuðborginni, Tallinn.
Reuter
Sorg í Tallinn
EISTNESKUR maður ásamt son-
um sínum tveimur við guðsþjón-
ustu í Tallinn í gærkvöldi þar
sem þeirra, sem fórust með Es-
tonia, var minnst.
Feijan átti að koma til Stokk-
hólms klukkan níu um morguninn
og um hundrað manns biðu um það
leyti í biðsal feijuhafnarinnar og
ættingjar héldu áfram að flykkjast
þangað síðar um daginn. „Sumir
grétu hástöfum, en flestir héldu ró
sinni,“ sagði Magnus Magnusson,
einn prestanna sem reyndu að hug-
hreysta ættingjana.
Paolo Thimo sagði að kona sín
hefði verið á meðal farþega feijunn-
ar. „Hún var í klefa neðst í skipinu
þannig að ég tel engar líkur á að
hún hafi bjargast," sagði hann.
„Konan mín vinnur um borð,“
sagði maður á fertugsaldri, sem
hélt utan um gamla konu. Hjón á
sjötugsaldri héldust í hendur og
ráfuðu um stöðina, miður sín af
áhyggjum vegna sonar síns sem
hafði starfað í feijunni í rúmt ár.
Flaggað var í hálfa stöng í feiju-
höfninni, svo og við opinberar bygg-
ingar og þinghúsið í Stokkhólmi.
Þjóðarsorg í Eistlandi
Lennart Meri, forseti Eistlands,
lýsti yfir þjóðarsorg í landinu í út-
varpsávarpi um morguninn. „Við
verðum að styðja hvert annað með
hugsunum og athöfnum," sagði
hann og hvatti starfsmenn sjúkra-
húsa á eistneskum eyjum í Eystra-
salti til að búa sig undir að taka
við fólki sem kynni að bjargast og
jafnvel líkum. Hann fól ennfremur
Andres Tarand umhverfisráðherra
að skipa tafarlaust nefnd til að
rannsaka orsakir slyssins.
Flaggað var í hálfa stöng við
opinberar byggingar í Tallinn og
fólk grét á götunum. Útvarps- og
sjónvarpsstöðvar rufu dagskrána
og sendu aðeins út nýjustu upplýs-
ingar um slysið frá yfirvöldum.
Bosníu-
Serbar
varaðir
við
WILLIAM Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, var-
aði í gær Bosníu-Serba við og
sagði að Atlantshafsbandalag-
ið, NATO, myndi beita loft-
árásum ef nauðsyn krefði til
að koma í veg fyrir að serb-
neska umsátursliðið við
Sarajevo gerði út af við borg-
ina.
• •
Orverur und-
ir sjávarbotni
VÍSINDAMENN hafa uppgöt-
vað bakteríur um 500 metra
fyrir neðan sjávarbotn á
Kyrrahafi, segir í tímaritinu
Nature. Ekkert loft er í um-
hverfi þeirra, þykkum setlög-
um sem eru allt að fjögurra
milljóna ára gömul og næstum
því jafn hörð og gijót. Þær
nýta því metan og eldfornar
leifar af sjávarlífverum sér til
viðurværis. Magn bakteríanna
er sagt gríðarlegt, allt að 10%
af öllum lífmassa jarðar.
Leiðtoga-
fundi lokið
TVEGGJA daga fundi þeirra
Borís Jeltsíns, forseta Rúss-
lands, og Bills Clintons, for-
seta Bandaríkjanna, lauk í
Washington í gær. Haft er
eftir rússneskum embættis-
manni, að náðst hafi sam-
komulag í aðalatriðum um al-
þjóðlega ráðstefnu um Bosníu
en Warren Christopher, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
telur hana þó ekki tímabæra
alveg strax.
Plágan
breiðist út
PLÁGAN í Indlandi er nú kom-
in upp í Kalkútta í austurhluta
landsins en hún kom fyrst upp
í borginni Surat í vesturhlut-
anum. Hafa stjórnvöld fyrir-
skipað aukinn innflutning á
lyfjum og er haft eftir einum
ráðherranna, að brugðist verði
við eins og um stríðsástand sé
að ræða.
pumn^ pumn^ punm' puiuiK puiuu^ puimií puiuu^ puiuuÍ pumnÍ purnu^
Art. 389020 Indoor
St. 32-39 verð 2.990
St. 40-47 verð 3.490
Art 339300 Sky Nubuk
St. 39-47 verð 7.990
Art. 389030 Excite
St. 39-47 verð 4.980
Art. 339520 Sky Express
St. 39-47 verð 7.990
Art. 2464 Handball
St. 39-47 verð 5.490
Art. 389060 Court pro
St. 38-47 verð 6.995
Art. 239030 Liberate
St. 35-47 verð 4.990
Á FÆTUR, Kringlunni, sími 811323 • HUMMEL spoitbúðin, Ármúla 40, sími 813555 • Sportvöruverslunin SPARTA, Laugaveg 49, sími 12024