Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Gunnlaugxir Stefánsson fer með staðlausa stafi Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðisráðherra sýnir fram á það með bréfí sínu til ríkislögmanns og öðru frá ríkislögmanni, sem hann afhenti Agnesi Bragadóttur afrit af í gær, að Gunniaugur Stef- ánsson þingmaður fer með staðlausa stafi í Tíman- um í gær, þegar hann heldur því fram að mál Björns Önundarsonar fyrrum tryggingayfirlæknis hafi verið fullrannsakað í fyrri heilbrigðisráðherra- tíð Sighvatar, og hann hafi á grundvelli „lögfræði- legrar álitsgerðar“ ákveðið að tryggingayfirlækn- irinn skyldi sitja áfram í embætti. Sighvatur Björgvinsson Rannsókn málsins ekki lokið þegar ég fór úr ráðuneytinu. Gunnlaugur Stefánsson Ekki hægt að segja upp trygg- ingayfirlækni. Gunnlaugur Claessen Gögn ónóg til að veita lausn um stundarsakir. UPPHAF málsins er það, að Sig- hvatur Björgvinsson, þáverandi heilbrigðisráðherra, ritaði ríkislög- manni bréf, þann 22. janúar 1993, þar sem sagði: Ráðuneytinu hefur borist bréf frá fjármálaráðuneyt- inu, þar sem athygli þess er vakin á því að skattskil tveggja lækna í opinberri þjónustu, þ.e. trygginga- yfirlæknis og aðstoðartrygginga- yfirlæknrs, árin 1988, 1989 og 1990, hafí vikið nokkuð frá þeim greiðslum sem þeir fengu frá tryggingafélögum. Rannsóknar- deild ríkisskattstjóra hefur sent mál þetta til rannsóknar lögreglu- yfirvalda. Vegna þessa fer ráðuneytið þess á leit að ríkislögmaður gefi álit sitt á því hvort og þá með hvaða hætti grípa skuli til aðgerða gagn- vart viðkomandi einstaklingum á meðan lögregluyfirvöld rannsaka mál þeirra." Undir bréfið rita þeir Sighvatur og Páll Sigurðsson ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins. Í svarbréfi ríkislögmanns, þann 13. febrúar 1993, segir m.a.: „Eng- in gögn fylgdu erindi ráðuneytisins önnur en tilvitnað bréf fjármála- ráðuneytisins. Af þeim sökum fór embættið þess á leit, að heilbrigðis- ráðuneytið útvegaði gögn, sem lægju fyrir í ívitnaðri lögreglurann- sókn. Tilraun ráðuneytisins til að afla símleiðis þeirra gagna hjá RLR bar ekki árangur, með því að rann- sókn væri ekki lokið og gögn ekki afhent á því stigi... Samkvæmt framangreindu hef- ur ráðuneytið ekki fengið í hendur nein gögn varðandi rannsókn þá, sem yfir stendur og getið er að framan. Ráðuneytið hefur þar með ekki neinn formlegan grundvöll, byggðan á gögnum, er það gæti reist aðgerðir á, að svo stöddu. Á þessu stigi er málið því svo vaxið, að með skilyrðum fyrir að veita lausn um stundarsakir, skv. 3. mgr. 7. gr. laga nr. 38/1954 er ekki fullnægt. Þau skilyrði lúta að því, að gögn liggi fyrir sem sýni fram á, að starfsmaður sé grunaður um eða sannaður að refsiverðri háttsemi, þannig að telj- ist ekki lengur verður eða hæfur starfans, sbr. 60. gr. almennra hegningarlaga. Ráðuneytið skortir gögn á þessu stigi til að leggja mat á slíkt. Hins vegar hefur í fjölmiðlum þegar verið greint frá því að rann- sókn standi yfir á skattskilum umræddra lækna. Ráðuneytið kann vegna hennar að hafa ástæðu til að beina formlegum erindum til þessara þriggja starfsmanna, sem undir það heyra og óska upplýs- inga um mál þeirra af þessum gefnu tilefnum. í því tilviki væri rétt að krefjast skýrslu um það, að hvaða atriðum í skattskilum þeirra rannsóknin beinist nákvæm- lega að. Einnig að krefjast upplýs- inga um aukastörf þessi, umfang þeirra og hvernig þeim að öðru leyti hafi verið hagað. Er þá m.a. haft í huga, hver fjöldi þeirra ör- orkumata er, sem mál þetta sýnist snúast um og hvort eingöngu sé um að ræða matsgerðir, sem áður hefðu komið til kasta þeirra í starfí. Jafnframt, hvort við þessi auka- störf hafi verið nýtt starfsaðstaða sú, sem þeim er búin á vinnustað." Undir bréfíð ritar Gunnlaugur Claessen, þáverandi ríkislögmaður. Beðið eftir ákæru Sighvatur sagði í gær, að hann hefði í framhaldi þessa rætt við ríkislögmann og sagt að hann teldi það ekki ganga, að krefjast skýrslna af þessum mönnum, á sama tíma og RLR væri í skýrslu- töku af þeim. „Ríkislögmaður benti mér á að ég hefði engar forsendur til þess að víkja tryggingayfirlækn- inum úr starfí, hvorki til skamms tíma né til langs. Þær forsendur fengi ráðherra ekki, fyrr en hann fengi í hendur, annaðhvort ákæru, eða gögn úr rannsókn Rann- sóknarlögreglunnar, sem okkur var neitað um. Okkar niðurstaða varð því sú, að við biðum þar tii ákæra yrði gefín út og ríkislög- maður myndi fylgjast með málinu fyrir mig og gera mér viðvart, þegar hann teldi að það væri fram komið, sem gerði það að verkum, að hægt væri að taka á málinu. Ekkert slíkt hafði gerst þegar ég fór úr ráðuneytinu,“ sagði Sighvat- ur. Sighvátur kvaðst þann 9. júní 1993 þegar hann fór úr heilbrigðis- ráðuneytinu og Guðmundur Ámi Stefánsson tók við starfi heilbrigð- isráðherra, hafa ritað Guðmundi Árna minnisblað um þetta mál og vakið athygli hans á því að mál- efni tryggingayfirlæknisins væru til rannsóknar hjá RLR og ríkislög- maður myndi fylgjast með málinu fyrir hönd ráðuneytisins og gera honum viðvart. Hann hafi gert arftaka sínum grein fyrir gangi málsins og þeim bréfaskiptum sem þegar hefðu farið fram á milli lians og ríkislögmanns. „Ég lagði áherslu á það í þessu minnisblaði mínu, að hann hefði samráð við ríkislögmann um framhald máls- ins,“ sagði Sighvatur. Aðspurður um með hvaða hætti ríkislögmaður hefði gert heilbrigð- isráðherra viðvart, eftir stólaskipt- in í júní í fyrra, sagði Sighvatur: „Ég veit ekki betur, en ríkislög- maður hafi gert Guðmundi Árna . viðvart, eftir að þau gögn voru komin fram í málinu, sem nauðsyn- leg voru, til þess að hægt væri að aðhafast. Ég hef ekki spurst fyrir um þau gögn, sem borist hafa heilbrigðisráðuneytinu frá ríkislög- manni, eftir að ég fór héðan, en þau eru til í ráðuneytinu og þau verða örugglega lögð, því ég reikna með að Ríkisendurskoðun muni við sína rannsókn biðja um öll gögn sem til eru í ráðuneytinu og tengj- ast þessum málum.“ Allt rangt sem Gunnlaugur segir Sighvatur var spurður hvað væri þá hæft í eftirfarandi orðum Gunnlaugs Stefánssonar, alþingis- manns og bróður Guðmundar Árna, sem birtust á forsíðu Tímans í gær: „Þegar málið var fullrann- sakað og allar lyktir lágu fyrir var það tekið fyrir í þingflokknum. Það var niðurstaða Sighvats, að það væri ekki hægt að segja trygginga- yfírlækni upp af því að hann hefði ekki brotið af sér í starfi. Hann hefði lögfræðilega álitsgerð undir höndum, sem segði að ef hann segði honum upp ætti ríkissjóður von á háum skaðabótakröfum.“ „Þetta er allt rangt. Vegna þess að þegar ég fer úr ráðuneytinu, þá er málið ekki upplýst. Málið stóð enn svo að ráðuneytið hafði engin gögn í höndunum, sem gátu réttlætt það, að ráðuneytið hefðist að. Það var ekki skoðun ráðuneyt- isins, heldur ríkislögmanns,“ sagði Sighvatur. Aðspurður hvað hann teldi búa að baki frásögn Gunnlaugs Stef- ánssonar, á forsíðu Tímans í gær, | svaraði ráðherrann einungis: _ „Bara rangminni.“ Enginn „starfsloka- samningur“ gerður MORGUNBLAÐINU hefur borist yf- irlýsing frá Guðjóni Magnússyni, dr.med., sem er svohljóðandi: „í Morgunblaðinu dagana 29. og 30. september og 2. október hefur nafn mitt verið ómaklega dregið inn í umræðuna um námsleyfi Bjöms Önundarsonar fyrrverandi trygginga- yfírlæknis. Af því tilefni er nauðsyn- legt að gefa eftirfarandi yfírlýsingu: 1. Fullyrðingar um að gerður hafi verið við mig starfslokasamningur er ég hætti sem aðstoðarlandlæknir og tók við starfí skrifstofustjóra og stað- gengils ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- °g tryggingamálaráðuneytinu eru rangar. 2. Fullyrðingar um að því sé „samn- ingur" við mig „hliðstæður" eða for- dæmi samnings við Bjöm Önundar- son, fyrrverandi tryggingayfirlækni, eru rangar og úr lausu lofti gripnar. 3. Fullyrðingar um að mér hafí verið greitt fyrir uppsafnað námsleyfi er ég hætti sem aðstoðarlandlæknir eru einnig rangar. Hið rétta er að ég tók með sam- þykki Guðmundar Bjarnasonar, þá- verandi ráðherra, og Páls Sigurðsson- ar, ráðuneytisstjóra, námsleyfí á árinu 1991 og fór samtals 8 ferðir til Gauta- borgar og dvaidist við kennslu og rannsóknir við Norræna heilbrigðis- háskóiann. Ein flugferð var greidd af þessum átta ferðum en dagpening- ar meðan á dvöl stóð ytra, sem var í flest skipti 11-12 dagar í senn í nokkur skipti 3-4 vikur, samtals 145 dagar. Ástæðan fyrir fjölda ferða var að skilyrði ráðuneytisins fyrir leyfínu var að ég sinnti áfram ákveðnum verkefnum í ráðuneytinu og að ekki þyrfti að ráða afleysara. I þessum ferðum sinnti ég einnig skyldum er til féilu vegna norræns samstarfs á sviði heilbrigðismála í Finnlandi, Nor- egi og Svíþjóð með þátttöku á fundum og ráðstefnum fyrir íslands hönd. Mörg dæmi eru um að aðrir stjóm- endur í heilbrigðisþjónustu hafí fengið tækifæri til að auka við þekkingu sína og reynslu með hliðstæðum hætti. Nægir að nefna ráðuneytisstjóra, landlækni, nokkra héraðslækna og heilsugæslulækna sem allir hafa dval- ist erlendis við nám eða störf og nýtt til þess uppsafnað leyfi (allt að einu ári). í öllum tilvikum hafa, að mati ráðuneytisins, verið til þess gildar ástæður. Að leggja að jöfnuði eingreiðslu námsleyfís við starfslok og greiðslu dagpeninga vegna starfa í þágu vinnuveitenda erlendis eins og í mínu tilviki er því rangfærsla á staðreynd- um.“ Morgunblaðið/Sverrir Malbikun að ljúka MALBIKUN sumarsins í Reykjavík er að mestu lokið, að sögn Sigurðar I. Skarphéðinssonar gatna- málastjóra. Reiknað var með að leggja út um 22 þúsund tonn af malbiki og fræsa um 100 þús. fermetra og er það svipað magn og undanfarin ár. Kostnaður er um 150 milljónir auk um 60 milljóna í malbiksviðgerðir. „Það er svipað og undanfarin ár,“ sagði Sigurður. „Götur voru frekar illa farn- ar eftir veturinn en maður hefur séð það verra.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.