Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ■y VETRARVEIÐAR ISMUGUIMIMI ! Taka míkla áhættu Undir 40 tonnum af ís Áhyggjticfni hve langt er til lands bresti á illviðri MEÐ erindi skipstjóra- og stýri- mannafélagsins fylgdi greinargerð Einars Sveinbjörnssonar, veðurfræð- ings, þar sem segir að yfir 80 skip hafi farist við norðanvert Atlantshaf á 15 ára tímabili. „Eins og kunnugt er eru það þætt- ir eins og vindhraði, lofthiti og sjáv- arhiti sem í sameiningu geta valdið ísingu á yfirbyggingu skipa. Verði frostið meira en 2°C og sjórinn jafn- framt kaldur (um 0°C), þarf ekki mjög mikinn vind svo ísing taki að hlaðast á skip. Við þær aðstæður stóreykst hættan með auknum vind- hraða,“ segir í greinargerðinni. Einar kveðst telja ísingarhættu suhnan hitaskila í Barentshafi áþekka því sem skipstjómendur eiga að þekkja af Vestfjarðamiðum og djúpt út af Norðurlandi. „Skapist hætta er oft- ast reynt að sigla í hlýrri sjó. Hins vegar verður það að teljast áhyggju- efni í Smugunni hve langt er til lands bresti á skyndilegt og langvarandi illviðri. í mestallri Smugunni er kaldi sjór- inn hins vegar allsráðandi og eru aðstæður þar að vetri til allt aðrar. Stjómandi skips stadds djúpt inni á þessu hafsvæði tekur mikla áhættu með vem sinni þar síðla haustsins og yfir vetrarmánuðina, eftir að yfír- borðssjór hefur náð að kólna niður fyrir 0°C. Tiltölulega lítill vindur (6-7 vindst.) getur þá orsakað tals- verða ísingu. Lendi skipið í stormi eða roki (9-10 vindst.) skapast mik- il hætta, og löng sigling getur verið í hlýrri sjó. Úrræði það að leita vars við ísröndina orkar tvímælis, því við- komandi skip á alltaf á hættu að lokast inni í ísbreiðunni." Einar segir að fram eftir hausti sé ísingarhættan í Smugunni óveru- leg, bæði vegna þess að sjór sé ekki orðinn nægjanlega kaldur og lægðir enn í hálfgerðum sumarbúningi. „Kólnun inn yfír heimskautaísbreið- unni hefst hins vegar síðla sumars. Um það leyti sem lægðir fara að sýna haustásjónu sína í Barentshaf- inu berst kalt loft (-i-10 til -í-20oC) út yfír sjóinn, fyrst auðvitað næst ísnum, en mjög fljótlega einnig nokkru íjær. Þetta kalt loft kælir yfírborð sjávar niður í 0°C á ör- skömmum tíma. Sunnan sjálfra straumaskilanna vinna aftur á móti hlýir hafstraumar stöðugt gegn kæl- ingunni og því helst hitinn þar örlítið yfír frostmarki. Að framsögðu má sjá að ástands- breytingin úr sumri yfír í vetur getur tekið mjög skamman tíma þama norðurfrá. Vetur skellur á með full- um þunga fljótlega í kjölfar fyrstu djúpu haustlægðanna, sem alla jafna fara að verða áberandi síðast í sept- ember eða fyrst í október (nokkuð breytilegt frá einu ári til annars). Mitt mat er það að frá u.þ.b. miðjum október allt fram í miðjan apríl, eða lengur, sé skipum stöddum í kalda sjónum norðan straumaskilanna í Barentshafi mikil hætta búin vegna mögulegrar ísingar. Ekki bara að veðurþættir geti orðið mjög óhag- stæðir nær fyrirvaralaust, heldur einnig að talsverð sigling getur verið fyrir höndum í hlýrri sjó, þar sem aðstæður em nókkru skárri. Öðru máli gegnir um allra syðsta hluta Smugunnar. Isingarhættan þar er nokkru minni lengur fram eftir haustinu vegna hlýrri sjávar á þeim slóðum, en jafnvel þar eru þrálátir norðanstormar afar varhugaverðir, ekki síst í ljósi þess að sigling í var tekur margar klukkustundir." Meðal þeirra skipa sem þurftu að Ieita vars við ísbrúnina í fyrravet- ur var Hólmanes sem beið þar á þriðja sólarhring. Már Hólm skip- stjóri sagði frá því í samtali við Morgunblaðið 13. nóvember í fyrra, að veðurhæð hefði verið um 10 vindstig, frost um 18° og sjávar- hiti -1,7°. Isingin þykknaði um 15 cm á klukkustund og taldi hann skipið komið með 30-40 tonn af ís utan á sig þegar mest var. Raunir ; togara í Smugu, í BRÉFI skipstjórnarmanna á Aust- | flörðum til ráðherra er lýst raunum skipa á haust- og vetrarveiðum í Smugunni í fyrra, en um miðjan október gerði „brælu“ og ísing tók að hlaðast á skipin: „Skipin voru á veiðum við ísrönd- ina er veðrið skall á, því náði sjór sér ekki upp eins og á hreinu hafi og því var ísing mun minni (nóg , samt) en ella, en auðvitað er mjög hættulegt að vera svo nálægt haf- ) ísnum í „heimskautamyrkri" því ] mikil hætta er á að skipin lokist inni í honum. A þessum slóðum er birta í október um 3-4 klst á sólar- hring. Á einu skipi varð áhöfnin að log- skera stykki úr rekkverki svo hægt væri að losna við ísinn sem barinn hafði verið af brú og reiða, svo mikið hafði skipið tapað stöðugleika. ] Menn hafa talað um að skut- togarar geti varið sig mun betur ) gagnvart ísingu en gömlu síðutogar- j amir, þar sem ekki séu stög og vír- ar um allt. í þessari umræðu hefur ekki komið fram að öll stög voru felld í ísingu. Það kom einnig í ljós á sl. hausti að hið mikla fríborð sem nútímatogarar hafa var mikið vandamál, því ís hlóðst utan á síður skipanna í eins til tveggja feta þykkt. Þetta olli miklum erfiðleik- j um. „í slíkum kuldum sem eru þar J norður frá þykknar olía mjög mikið | og erfítt getur reynst að ná henni upp úr tönkum skipanna... Að minnsta kosti tvö skip lentu í vand- ræðum vegna þessa og á öðru þeg- ar drapst á vél. Einnig fraus í vatns- leiðslum skipa og þegar tók að þiðna á heimleið tók að leka á ýmsum stöðum, s.s. úr loftum og veggjum í íbúðum.“ Sjávarútvegsráðherra telur að taka þurfi fullt tillit til hættu við vetrarveiðar „Skipstjórar ráða ekki hvert skip- unum er stefnt“ SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær áskorun Skipstjóra- og stýrimanna- félagsins Sindra á Austfjörðum til ráðherra um að banna veiðar í Smugunni frá byijun október og fram á vor, vegna erfiðra veðurskil- yrða á því svæði. Skýrði ráðherra frá því að fljótlega væri vænst um- sagna hagsmunasamtaka sjómanna og útgerða um málið með tiliiti til frekari ákvörðunartöku. Samgöngu- ráðherra, sem fer með öryggismál sjómanna, skýrði jafnframt frá því að sjóslysanefnd og Siglingamála- stofnun hefði verið falið að fjalla um málið. Sturlaugur Stefánsson, for- maður félagsins, segir það ekki á valdi skipstjóra hvert þeir sigla til veiða, útgerðarmenn ráði því í flest- um tilvikum. Ástæða til að brýna hættuna fyrir mönnum Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, sagði í samtali við Morg- unblaðið sl. sunnudag að ekki væru fyrir hendi lagaheimildir til að stöðva veiðar eða sjóferðir í Smugunni eða annars staðar vegna veðurskilyrða. Þorsteinn kvaðst telja meginregluna vera þá að hver og einn skipstjóri ákvæði hvar hann héldi skipi sínu til veiða og tók Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv- ar Þórshafnar hf., í sama streng í blaðinu í gær. „Efni bréfsins og greinargerð veðurfræðingsins eru þess eðlis að ærin ástæða er til að biýna mjög alvarlega fyrir útvegs- mönnum og skipstjórnarmönnum að taka fullt tillit til þess hættuástands sem þarna getur skapast og huga að ákvörðunum um hvort veiðum er haldið áfram,“ segir Þorsteinn. Sturlaugur Stefánsson, formaður Skipstjóra- og stýrimannafélagsins Sindra, segir ljóst að skipstjórar ráði ekki hvert skipum þeirra er stefnt, sú ákvörðun sé tekin af útgerðum skipanna sem séu nú reknar eins og hörð viðskipti með hagnað að leiðar- ljósi, samanber kaup á hentifána- skipum. „Hagur útgerða ræður meiru en hugsun um öryggi skips og áhafnar. Auðvitað ættu skipstjór- ar að ráða alfarið yfir sínu skipi og hvert það fer, en við vitum að í flest- um tilvikum ráða þeir engu og svo hefur aldrei verið. Þegar brestur á mokveiði í Smugunni eða annars staðar eru menn ekkert spurðir, þeir eru sendir af stað," segir Sturlaug- ur. Hann kveðst ekki trúa öðru en að hægt sé að setja tímabundið bann á veiðisvæði eins og Smuguna, og væntir einhverra tilmæla frá ráða- mönnum í þá veru. Sjávarútvegsráðherra kveðst bíða viðbragða hagsmunasamtaka sjó- manna og útvegsmanna og verði hann að meta viðbrögð þeirra þegar þau koma, en fyrst og fremst hvíli málið á herðum þeirra stofnana sam- gönguráðuneytisins sem fara með öryggismál sjómanna. „Það er mjög alvarleg ásökun ef það reynist vera rétt að útgerðarmenn beiti skipstjóra þrýstingi til þess að taka ákvarðanir sem stefnt geta áhöfnum skipa í hættu. Ég vona að það eigi ekki við rök að styðjast, en ef það er rétt er málið mjög alvarlegt og þarf að taka fast á slíku,“ segir Þorsteinn. Útgerðir þvinga ekki skipstjóra Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna, segir það misskilning að útgerðir sendi menn óviljuga á veið- ar á hættuleg hafsvæði, ákvörðunin sé tekin af skipstjórum. „Þeir menn eru ekki hæfír til að vera skipstjórar sem láta einhvem annan segja sér hvar þeir eigi að vera með sín skip, því ábyrgðin á velferð áhafnar og skips er alltaf þeirra. Það kemur ekki til greina að nokkur útgerðar- maður sendi skipstjóra gegn vilja hans með skip á eitthvert tiltekið veiðisvæði,“ segir Kristján. Málið hefur ekki enn verið lagt fyrir stjóm LÍÚ, en Kristján segir það verða gert innan skamms og ráði hann nokkru í málinu muni ákveðin niðurstaða liggja fyrir. „Ég tel það alveg fráleitt að ætla stjórn- völdum að ákveða við hvaða skilyrði skip manna geta verið á sjó,“ segir Kristján. Hann segir að ekki megi ræða um skipin sem þarna em að veiðum í sömu andrá, því þau séu misjöfn að stærð og búnaði. Útgerð- armenn geri sér grein fyrir því að ákveðin áhætta fylgi vetrarveiðum í Smugunni, en hvorki stjómvöld né samtök útvegsmanna séu fær um að gefa mönnum ráð um hvenær þeir eigi að veiða, því verstu veður geti brostið á utan þessa tiltekna tímabils og menn verði alltaf að sækja sjó af varfærni með hliðsjón af því. „Ef stjórnvöld ákveða bann á vetrarveiðar í Smugunni verða þau líka að taka á sig ákveðna ábyrgð um að þær séu í lagi á öðrum tíma, sem þær þurfa alls ekki að vera,“ segir Kristján. Ekki lært af reynslu Hraðfrystistöðin á Þórshöfn gerir út Stakfell ÞH undir íslenskum fána og á helmingshlut í hentifánaskipun- um Hágangi I og II á móti fyrirtæk- inu Úthafi hf. á Vopnafirði, en þessi skip hafa öll verið aðsópsmikil við Smuguveiðar. Jóhtmn hefur lýst því yfír að hann telji áskorun skipstjóra- og stýrimannafélagsins furðulega og kveðst ekki óttast um öryggi sjó- manna á þessum slóðum umfram aðrar. „Við sjáum engin rök fyrir því að setja allsheijarbann við veið- um á þessum slóðum að vetrarlagi, fremur en einhvers staðar hér við land,“ segir Jóhann. Hann segir sjómenn segja að veð- fl ur í Smugu séu almennt ekki eins hörð og hér gerist, lægðirnar séu t.d. miklu grynnri. Hins vegar geti verið að einhver skip eigi ekki erindi þangað allt árið um kring. Hafsteinn Esjar Stefánsson, einn eigenda Skriðjökuls hf. sem gerir út Óttar Birting, segir að sjómenn sem hafa veitt í Smugunni telji veiðar þar að vetrarlagi síst verri en hér við land þegar verst er. Norður af íslandi sé ísing algeng og ölduhæð miklu meiri 1 en í Smugunni. Því sé ekki ástæða til að vera andvígur vetrarveiðum í Smugunni. Sturlaugur Stefánsson segir fráleitt að líkja ástandinu hér við ísland við ástandið norður í Bar- entshafi og beri það vott um algera vanþekkingu. Hann kveðst telja að viðbrögð útgerðarmannanna séu þau sem vænta mætti frá þeim. Sturlaugur segir að skipstjórnar- menn hafi gert sér grein fyrir hætt- unni í fyrravetur, en ekki þorað að f ræða hana opinberlega til þess að vekja ekki ugg hjá aðstandendum sjómanna í Smugunni á þeim tíma- „Árið 1959 fórst togarinn Júlí frá Hafnarfirði á Nýfundnalandsmiðum með allri áhöfn, 30 manns, vegna yfírísingar og ýmis íslensk skip önn- ur lentu í miklum vandræðum. Eftir þessar hörmungar lögðust úthafs- veiðar íslendinga af um áratugi, og ég hlýt að spyija hvort að menn hafí ekki lært af reynslunni og geti stýrt þessum veiðum af skynsemi > ljósi hættunnar,“ segir Sturlaugur. j '1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.