Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 11
Skagfjörðsskáli
40 ára
FJÖRUTÍU ára afmælis Skagfjörðsskála í Þórs-
mörk var fagnað á laugardaginn í blíðskapar-
verði. Ferðafélag íslands var með hópferð í Þórs-
mörk og lögðu um 200 manns leið sína þangað.
Þar var afmælinu fagnað með ræðuhöldum, upp-
lestri, söng og lauk með ratleik fyrir yngstu þáttak-
endurna. Skagfjörðsskáli var tekinn í norkun 21.
ágúst 1954 og hefur að minnsta kosti tvívegis ver-
ið byggt við hann síðan. Nú geta um 80 manns gist
í honum í einu, en hann er opinn frá því snemma
á vorin og þar til síðla hausts.
Morgunblaðið/Ingólfur
Alþýðubandalag
með forval á
Vestfjörðum
KJÖRNEFNDIR hafa hafið störf
í þremur kjördæmum til að und-
irbúa val á framboðslista Alþýðu-
bandalagsins fyrir næstu alþingis-
kosningar. Ákveðið hefur verið að
hafa forval á Vestfjörðum en það
hefur ekki verið tímasett. „Við
erum byijaðir að spá í hlutina en
varla neitt ákveðið komið út úr
því,“ segir Einar Karl Haraldsson,
framkvæmdastjóri Alþýðubanda-
lagsins.
Einar segir að kjörnefndirnar á
Norðurlandi vestra, Vesturlandi
og Austfjörðum séu að störfum
og býst við að kjörnefndir verði
skipaðar víðar á næstunni. Flokks-
menn ákveða það heima í héruðum
hvernig staðið verður að ákvörðun
framboðslista og er því misjafnt
milli kjördæma hvernig það er
gert.
Að sögn Einars hefur enginn
núverandi þingmanna flokksins
lýst því yfir að hann muni ekki
gefa kost á sér til framboðs nú.
Viðræður milli vinstri-
manna í gangi
Einar sagði að Alþýðubandalag-
ið hefði lýst því yfir að það styðji
nýsköpun í íslenskum stjórnmálum
og væri vinstra fólk enn að spjalla
saman um þau mál. Ef eitthvað
kæmi út úr þeim samtölum gæti
framboðsundirbúningur skyndi-
lega komist í annan farveg en
hann væri nú í.
Síðborin
tvílemba
ÆR bar á bænum Innri-Múla
á Barðaströnd í fyrradag
tveimur lömbum, hrút og
gimbur. Sveinn bóndi Þórðar-
son sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þetta væri fremur
sjaldgæft á þessum tíma árs,
en eftir að féð kom af fjalli
og var í túninu heima hafi
hann tekið eftir að ein ærin
var með lambi. Þetta hefur
ekki áður gerzt hjá Sveini
Þórðarsyni bónda.
Náttúruverndarsamtök Austurlands
Hugmyndir iðn-
aðarráðuneytis
óásættanlegar
AÐALFUNDUR Náttúruverndar-
samtaka Austurlands (NAUST) tel-
ur hugmyndir iðnaðarráðuneytis frá
ágúst 1994 um virkjanir norðan
Vatnajökuls óásættanlegar. Þær
byggi á samveitu og flutningi stórra
fallvatna milli vatnasviða og lands-
hluta með gífurlegri röskun á því
umhverfi sem fyrir sé.Framkvæmd-
irnar myndu hafa varanleg áhrif á
ímynd og og svipmót Norður- og
Austurlands og nýtingu viðkomandi
landssvæða um leið og um leið
landsins alls til útivistar og ferða-
þjónustu.
F’undurinn, haldinn 10. til 11.
september, vekur athygli á að
hvorki Alþingi eða önnur hlutaðeig-
andi stjórnvöld hafi svarað grund-
vallarspurningum er varða málið,
m.a. hvort heimila eigi að veita stjór-
fljótum, eins og Jökulsá á Fjöllum
og Jökulsá á Dal, austur í Lagarfljót.
Áhrif slíkra framkvæmda varði þjóð-
argersemar eins og Dettifoss og Þjóð-
garðinn í Jökulsárgljúfrum en jafn-
framt víðfem gróðurlendi og dýralíf
svo og setmyndun í lónum og við
strendur. Lögð er áhersla á að úttekt
verði gerð á helstu fallvötnum lands-
ins með tilliti til vemdargildis og
nýtingar áður en lengra verði haldið.
Skorað er á orkuyfirvöld að end-
urskoða útfærslu virkjunar Jökulsár
í Fljótsdal og Náttúmverndarráð að
koma friðlýsingu á Snæfellssvæðið
sem fyrst. I framhaldi af því verði
gert nákvæmt skipulag um umferð
um svæðið, einkum með tilliti til
hreindýraveiða.
Ungmenna- og
íþróttafélag Bakka-
fjarðar stofnað
Bakkafirði - Haldinn var stofn-
fundur Ungmenna- og íþróttafé-
lagsins á Bakkafirði sunnudaginn
2. október sl. en svoleiðis félag
hefur ekki verið starfrækt hér um
árabil og talsverð eftirsjá að því. Á
fundinn komu 33 allt frá fjögurra
ára til sextugs og skrifuðu allir sig
á listann til að gerast félagar í hinu
nýja félagi. Félagið fékk nafnið
Ungmenna- og íþróttafélag Bakka-
fjarðar. Hinu nýja félagi var kosin
5 manna stjórn og var formaður
kosinn Gunnþórun Steinarsdóttir.
Á stofnfundinn var boðið góðum
gestum frá íþróttahreyfíngunni,
Sigurði Magnússyni, framkvæmda-
stjóra ÍSÍ, Sigurjóni Bjarnasyni,
stjórnarmanni í UMFÍ, Sigurði Að-
alsteinssyni, formanni UÍA, og Jón-
asi Þór Jóhannessyni, fram-
kvæmdastjóra UÍA. Þeir tóku allir
til máls í lok fundar og óskuðu íbú-
um til hamingju með nýja félagið
og hvöttu til þess að það gengi í
UIA svo UÍA gæti orðið félaginu
eins mikið innan handar og hægt
yrði til að koma starfínu af stað.
Þökkuðu íbúar Bakkaijarðar fyrir sig
með lófataki, einnig var klappað fyr-
ir Valborgu Jónsdóttur, skólastjóra,
fyrir að rekast í þvi að stofna félagið.
HÚ8gagnahöllin
Tegund 385: Höfðagafl 152cm kr. 25.280,- náttborð kr. 24.150,-
Tapestry Elite millistíf dýna á ramma 152x203 cm kr. 93.760,-
Kommóða 4sk kr. 35.510,- tvöföld kommóða kr.43.720,- spegill kr.11.480,-
Allt settið kr. 232*240,- stgr.
Ef þig langar í amerískt rúm þá skaltu koma til okkar.
Hvergi meira úrval og við hjálpum þér að finna réttu dýnuna.
Einnig mikið úrval til af fallegum rúmteppum og svuntum.
-wmt&wmgM9-
eru Ísíendingar svona hrtfntr af amerískum rúmum ?
Pað eru eflaust margar ástæður fyrir því en þó er ein aðal-
ástæðan sú hvað dýnurnar frá Serta eru sérlega þægilegar.
Eins eru amerísku svefnherbergishúsgögnin falleg, hlýleg
og öðruvísi en við íslendingar eigum að venjast. I Húsgagna-
höllinni getur að líta landsins mesta úrval af amerískum rúmum
og dýnum. Serta dýnurnar fást í mörgum gerðum, stærðum og
stífleikum og þeim fylgir margra ára ábyrgð og eru alltaf til á lager.
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199