Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 05.10.1994, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Hugbúnaðurinn Fjölnir verðlaunaður Salan hérjókst um 55% á árinu DANSKA hugbúnaðarfyrirtækinu PC&C, sem er frumhönnuður við- skiptahugbúnaðarins Fjölnis, var í síðustu viku veitt ein æðsta viður- kenning Danmerkur sem hlotnast getur fyrirtækjum í hugbúnaðargeir- anum, IT-price (Information Tec- hnology Price). Verðlaunin komu í hlut PC&C vegna árangurs í sölu á viðskiptakerfinu Fjölni, en hugbún- aðurinn hefur náð mikilli útbreiðslu í löndum Vestur-Evrópu auk þess sem dreifing hans er nú hafin í Bandaríkjunum. Þau eru veitt því fyrirtæki sem skarar fram úr við hönnun og sölu upplýsingakerfa fyr- ir hvers kyns viðskipti og atvinnu- rekstur. Frumkvöðull að IT-verð- laununum er fyrirtækið IDG Scand- inavia, útgefandi tímaritsins Comp- uter World, að því er segir í frétt frá Streng sem hefur umboð fyrir Fjölni hér á landi Strengur hf. hefur umboð fyrir sölu og þróun Fjölnis á íslandi og Fjargæslu- kerfi frá Vista vekur athygli VERKFRÆÐISTOFAN Vista fékk nýlega beiðni um að fjargæslukerfi sem hannað var fyrir gatnamála- stjórann í Reykjavík verði kynnt á stórri notendaráðstefnu hjá banda- riska fyrirtækinu National Instru- ments. Kerfið er notað við eftirlit á fráveitukerfi borgarinnar og hefur verið í notkun í eitt ár. Taldi banda- ríska fyrirtækið fjargæslukerfið bæði fjölþætt og vandað. Vista notaði hugbúnaðinn LabVI- EW frá National Instruments en hér er um að ræða einn stærsta framleið- anda heims á hugbúnaði og vélbún- aði til gagnasöfnunár. LabVIEW er myndrænt forritunarmál, sem eink- um er ætlað til notkunar við gagna- söfnun, greiningu, stýringar, o.þ.h. í fjargæslukerfi gatnamálastjóra er haft eftirlit með 6 dæiustöðvum, 3 regn- og rennslismælistöðvum og 2 hálkumælistöðvum, en upplýsingar eru birtar í 4 skjástöðvum víðs veg- ar um borgina. Það safnar einnig upplýsingum saman sem síðan eru geymdar og hægt er að nálgast með aðgengilegum hætti. samkvæmt upplýsingum Jóns Arnar Guðbjartssonar, markaðsstjóra Strengs, hefur salan gengið mjög vel hér á landi. Þannig nota nú fimm af tíu stærstu fyrirtækjum landsins Fjölni í sínum rekstri en notendur hér á landi eru hátt á áttunda hundr- að. Hefur salan aukist um 55% fyrstu átta mánuði ársins borið sam- an við sama tíma í fyrra. Meðal notenda sem bæst hafa í hópinn á síðustu vikum og mánuðum, eru Bflanaust, Sundco, Hennes & Mau- ritz, Pharmaco, Héðinn hf, Baader og O.Johnson og Kaaber. Strengur hefur hannað ýmsar sér- lausnir í F’jölni fyrir heimsmarkað og er stefnt að því auka útflutning Fjölnis-kerfa frá ísiandi á næstu misserum. Utflutningur á síðustu mánuðum hefur að mestu verið bundinn við EDI-lausnir og SQL- tengingar sem gera kleift að sækja og senda gögn í gagnagrunnana Informix, DB2 og Oracie.“ Komur erlendra • ferðamanna til landsins frá 1985 § 160 þús. ———— -J8 140 120 100 80 60 40 20 0 85 86 87 88 89 90 91 92 93 94 Erlendir ferða- menn í september 1994 eftir þjóðerni 1. Þýskaland 2.411 16,3% 2. Bandaríkin 2.382 16,1% 3. Svíþjóð 2.327 15,7% 4. Danmörk 1.928 13,0% 5. Norepur—- í .282 8,7% 6. Bretland 1.242 8,4% 7. Holland 781 5,3% 8. Frakkland 402 2,7% 9. Finnland 368 2,5% 10. Sviss 189 1,3% Önnur lönd 1.490 10,1,% ERLENDiR ferðamenn sem hingað hafa komið það sem af er þessu ári eru þegar orðnir jafnmargir og á öllu síðastliðnu ári eða alls rösklega 155 þúsund. Á þessu ári stefnir því í verulega fjölgun ferðamanna annað árið í röð eftir nokkra kyrrstöðu að þessu leyti árin 1990-1992. Verði aukningin hliðstæð áfram má reikna með að fjöldi erlendra gesta á ári verði orðinn sá sami og íbúafjöldinn um næstu aldamót. Töluverður árangur hefur náðst í því að laða hingað ferðamenn utan háannatímans og nýlega benti Magnús Oddsson, ferðamálastjóri, á þá staðreynd að erlendir gestir utan háannatímans árið 1993 hafi verið jafnmargir og allir erlendir gestir 10 árum áður. Á sama tímabili hefur hlutfall gjaldeyristekna í ferðaþjónustu af heildargjaldeyristekjum vaxið úr um 5% í 11 %. Orkumál Áliðnaðurinn óttast fríálsan orkumarkað RÓTTÆKAR breytingar eru að verða á raforkuiðnaðinum víða um lönd og má rekja þær til þeirra erfiðleika, sem hann átti við' að stríða um skeið á síðasta áratug. Raforkufyrirtæki hafa verið einka- vædd og sums staðar er verið að ijúfa þá miklu samtengingu, sem einkennt hefur iðnaðinn. Það er með öðrum orðum að skapast fijáls markaður með raforkuna og af því hafa frammámenn í áliðn- aði nokkrar áhyggjur. Kemur þetta fram í nýlegu hefti af Metal BuIIetin en þar segir einnig, að hagstæðustu raforkukaupin í Evr- ópu séu á íslandi. „Það er ekki spurning hvort um verður að ræða fijálsan markað með raforku, heldur hVaða reglur muni gilda um hann,“ sagði Robin Adams, forstjóri Resource Stra- tegies, á ráðstefnu um áliðnaðinn í París í síðasta mánuði og hann Langbestu raforku- kaupin í Evrópu sögð vera í íslandi spáði því, að á næstu 20 árum yrði þróunin í þessa átt á sumum svæðum. Innan áliðnaðarins óttast marg- ir, að hann verði undir í samkeppn- inni um takmarkaða orku við minni notendur en Adams telur þann ótta á misskilningi byggðan. Áliðnaðarmenn óttast einnig, að við fijálsar markaðsaðstæður muni „dýru“ svæðin yfirbjóða þau „ódýru“ en álbræðslurnar eru yfir- leitt á þeim síðarnefndu. Adams segir hins vegar, að flutningur á raforku um langan veg, sérstaklega frá misáreiðan- legum vatnsorkuverum, sé ekki jafn einfaldur og ætla mætti og hann telur, að álverin geti lækkað kostnaðinn með því nota meira af umframorku en venjan hefur ver- ið. Nýjar álbræðslur reistar í Kanada og á Norðurlöndum Frelsi á raforkumarkaðinum mun einnig hafa mikil áhrif á smíði nýrra bræðslna. Líklegt er, að fáar verði reistar í Bandaríkjun- um og Vestur-Evrópu, heldur í orkuríkum jaðarríkjum eins og sums staðar í Kanada og á Norður- löndum. Adams telur, að raforku- verðið verði að vera á bilinu 15 til 20 mills en Quebec í Kanada getur þó ekki lengur boðið orkuna fyrir minna en 20. Mikið framboð er hins vegar af ódýrri orku í Venesúela. í Evrópu er fátt um fína drætti en langbestu orkukaupin eru á íslandi, aðeins undir 20 mills. HÁSKÓLIÍSLANDS ENDURMENNTUNARSTOFNUN Iðntæknistofnunll Námskeið um stofnun fyrirtækja Opinn kynningarfundur 8. októberkl. 9:00- 13:00. Kynnt verður innihald námskeiða um stofnun fyrirtækja, sem Iðntæknistofnun og Endurmenntunarstofnun halda með stuðningi Iðnaðarráðuneytisins. Haldið í Lögbergi. (Háskóla íslands) stofu 101. Stofnun fyrirtækja Námskeið ætlað öllum sem vilja kynnast stofnun og rekstri fyrirtækja. Haldið á Iðntæknistofnun 24. - 28. okt. og 21. - 25. nóv. Skráning og upplýsingar í síma 91-887000 Stofnun fyrirtækja Námskeið ætlað Háskóla- og Tækniskólaf ólki. Haldið ÍTæknigarði 11., 13., 17., 19.,og25. okt. Skráning og upplýsingar í síma 91-694940. Reykj avíkurborg Sala bréfa að hefjast BORGARRÁÐ samþykkti í gær að ganga til samninga við Fjár- festingarfélagið Skandia hf. og Handsal hf. um útgáfu og sölu skuldabréfa Reykjavíkurborgar samtals að nafnverði 950 millj- ónir króna. Bréfin eru til 10 ára með gjalddaga einu sinni á ári, fyrst hinn 17. október 1995. Þau verða seld miðað við meðal- tal kaupávöxtunarkröfu hús- bréfa í 3. flokki 1994, sem nú er 5,34%, að viðbættu 0,03% álagi. Þannig gæti ávöxtun bréfanna breyst á sölutímabil- inu ef breyting verður á ávöxt- unarkröfu húsbréfa. Þá er að finna í bréfunum sérstakt upp- greiðsluákvæði um að hægt sé að greiða þau upp frá og með fimmta gjalddaga þeirra. í samningi borgarsjóðs Reykjavíkur við Skandia og Handsal er kveðið á um sölu- tryggingu 500 milljóna af út- boðinu en 450 milljónir verða í umboðssölu. Söluþóknun til fyr- irtækjanna er 0,4%. Kaupþing sendi í gær erindi til borgarstjóra með athuga- semdum við þá tillögu sem lá fyrir hjá borgarráði. Þar er bent á að ávöxtunarkrafan í tilboð- unum hafi verið sú sama. Tilboð Kaupþings sé hins vegar hag- stæðara en hinna tveggja fyrir- tækjanna svo nemi hundruðum þúsunda króna. Að sögn Eggerts Jónssonar, borgarhagfræðings, hafði tilboð Skandia og Handsals það fram yfir tilboð Kaupþings að ekki var um að ræða svonefnt upp- greiðsluálag. Jafnframt var gert ráð fyrir að Skandia og Handsal . yrðu viðskiptavakar með bréfm. Að mati borgaryfir- valda hafí þetta vegið þyngra en sá 420 þúsund króna munur sem var á tilboðunum. * Kaup Isal á ótryggðu raf- magni gætu tvöfaldast ÍSAL hefur náð samningi við Landsvirkjun um kaup á ótryggðu rafmagni sem felur í sér möguleika á því að tvöfalda slík kaup frá því sem verið hef- ur. Samningurinn gerir ráð fyr- ir að ísal sé heimilt að kaupa alls um 628 GWst af ótryggðu rafmagni á árunum 1995-1997 eða ails um 209 GWst að meðal- tali á ári. Isal greiðir viðkomandi gjald- skrárverð fyrir rafmagnið eins og það verðui; á hveijuiri tíma en miðað við núgildandi gjald- skrá gætu þessi kaup numið að hámarki 137 milljónum ár- lega til viðbótar hámarkskaup- um á forgangsorku, segir í frétt frá Landsvirkjun. O ■ ACO ■ ACO ■ ACO aco SÍMI: 91-627333 ■ FAX: 91-628622 SKIPHOLT117 • 105 REYKJAVlK UÓNSKARPAR Tölvun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.