Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 15
Reuter
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, á blaðamannafundi í Moskvu í gær í tilefni þess að ár er liðið frá
því hann sendi skriðdreka að þinghúsinu til að kveða niður uppreisn andstæðinga sinna.
Ár liðið frá árásinni á uppreisnarmenn í þinghúsinu
Jeltsín ljær máls á
að kommúnistar fái
ráðherraembætti
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sagði í gær að vel kæmi til greina
að fulltrúar kommúnista fengju
sæti í stjóm landsins og boðaði frek-
ari efnahagsumbætur. Jeltsín sagði
þetta á blaðamannafundi í tilefni
þess að í gær var ár liðið frá því
hann sendi skriðdreka að þinghús-
inu í Moskvu til að bijóta uppreisn
andstæðinga sinna á bak aftur.
Forsetinn kvaðst vera að byggja'
upp nýtt Rússland „án böls, blóðsút-
hellinga og blekkinga". Hann sagði
að Rússland væri enn stórveldi og
myndi krefjast þess áfram að fá
að vera með í ráðum um alþjóðamál.
140 manns biðu bana í árásinni
og Jeltsín sagði mannfallið sorg-
legt. „Mestu skiptir þó að ekki varð
önnur Október-bylting," bætti hann
við og vísaði til byltingar bolsévíka
árið 1917 sem leiddi til rúmlega sjö
áratuga alræðis kommúnista.
Jeltsín sagði að ráðgerðar væm
smávægilegar breytingar á stjórn-
inni og kvaðst ekkert hafa á móti
því að stjórnarandstöðuflokkar
fengju fulltrúa í henni. „Endurnýjun
er ósköp eðlileg fyrir lifandi fyrir-
bæri,“ sagði forsetinn þegar hann
var spurður hvort kommúnistar
gætu - fengið ráðherraembætti.
„Stjórnin er lifandi fyrirbæri og
mannaskipti í einu eða tveimur
ráðuneytum koma vel til greina.
Það er engin synd að stjórnarand-
stæðingar gangi til liðs við stjórn-
ina. Slíkt myndi aðeins stuðla að
stöðugleika."
Kommúnistaflokkur Rússlands
varð ein af fjórum stærstu fylking-
unum á þinginu eftir þingkosning-
arnar í desember en hefur ekki
haft fulltrúa í stjórninni. Gennadíj
Zjúganov, leiðtogi flokksins, hefur
beitt sér af hörku gegn Jeltsín og
í síðasta mánuði tók hann þátt í
fundi með leiðtogum þjóðernissinna
þar sem ákveðið var að tilnefna
sameiginlegan frambjóðanda í for-
setakosningunum sem eiga að fara
Villbyggja upp
nýtt Rússland án
„blóðsúthellinga
og blekkinga“
fram í júní 1996.
Nokkrir af ráðgjöfum Jeltsíns
hafa lagt fast að honum að fresta
kosningunum en Jeltsín sagði á
blaðamannafundinum að hann væri
andvígur því.
Vill meiri fjárfestingar
Jeltsín kvaðst vilja meiri erlendar
fjárfestingar í Rússlandi og gaf
stjórninni fyrirmæli um að skapa
betri skilyrði fyrir erlenda og rúss-
neska kaupsýslumenn. Hann sagði
að setja þyrfti nýja skattalöggjöf
og koma skipulagi á hlutabréfa-
markaðinn.
Erlendar fjárfestingar á rúss-
neska fjármagnsmarkaðinum hafa
aukist verulega á árinu. Anatolíj
Tsjúbajs einkavæðingarráðherra
sagði nýlega að útlendingar hefðu
íjárfest fyrir tvo milljarða dala, 136
milljarða króna, á fyrri helmingi
ársins, tvöfalt meira en allt síðasta
ár.
Stöðugleiki í efnahagnum
Jeltsín sagði að stöðugleiki væri
að skapast í efnahag Rússlands og
erlendir fjárfestar myndu njóta
góðs af því. „Efnahagsástandið
gerir okkur nú kleift að leggja fram
nákvæmar spár, ekki aðeins fyrir
næsta ár heldur fyrir næstu þijú
til íjögur árin,“ sagði hann.
Verðbólgan minnkaði niður í 4%
á mánuði í ágúst og hefur aldrei
verið jafn lág frá því verðlag var
gefið fijálst í janúar 1992. Verð-
bólgan mældist 22% á mánuði í
byijun ársins.
Jeltsín sagði þessa þróun „undra-
verða“, en hagfræðingar telja að
verðbólgan eigi eftir að aukist aft-
ur. Þeir segja að peningaframboðið
sé að aukast vegna nýlegra lána
ríkisins til bænda og fyrirtækja.
Stöðugleiki í stjórnmálunum
Nú þegar ár er liðið frá því Jelts-
ín sendi skriðdreka að þinghúsinu
í Moskvu segja fréttaskýrendur á
Vesturlöndum að stöðugleika sé
farið að gæta í rússneskum stjóm-
málum. „Eins og nú er ástatt hefur
Jeltsín unnið langvinna baráttu um
völdin gegn andstæðingum umbóta-
stefnu hans,“ sagði þýska dagblaðið
Frankfurter Allgemeine Zeitung í
forystugrein í gær. „Rússnesk
stjórnmál hafa ekki verið jafn frið-
samleg í langan tíma og síðustu
níu mánuðina."
Jeltsín hefur stafað lítil hætta
af stjórnarandstöðunni vegna óein-
ingar hennar og æ minna ber á
Vladímír Zhírínovskíj, þjóðemis-
sinnanum öfgafulla. „Jeltsín á við
vandamál að stríða en það er erfitt
að sjá hvaðan raunvemleg ógnun
við hann ætti að koma,“ sagði evr-
ópskur stjómarerindreki.
Spumingar hafa þó vaknað um
heilsu forsetans og áfengisdrykkju.
Á dögunum var fullyrt að hann
hefði ekki getað átt fund með Al-
bert Reynolds forsætisráðherra ír-
lands sökum áfengisneyslu en við
komu sína til Moskvu sagði Jeltsín
að hann hefði sofið yfir sig. Hann
sagði að öryggisverðir hefðu ekki
viljað vekja hann og því hefði ekk-
ert orðið af fundinum. Nokkrir við-
staddra fullyrtu að forsetinn hefði
verið drukkinn er hann sneri heim
úr langri ferð til Bandaríkjanna þar
sem hann átti m.a. fund með Bill
Clinton forseta.
Þótt menn óttist ekki lengur að
mannskæð borgarastyrjöld blossi
upp í Rússlandi hafa þeir enn
áhyggjur af átökum við suðurlanda-
mærin, starfsemi skipulagðra
glæpasamtaka og smygli á efnum
í kjarnavopn.
[HflRlEY-DAVIDSOH
HINN
NÝISTÍLL
Blek- og kúlublekpennan, B litin.
Frábaen gaeöi og mjög gott verð.
Sölustaöin:
HALLARMÚLA*KRINGLUNN
SKAKHUSIÐ Sjónvarpsmarkaðurinn
HLEIVIIVII LAUGAVEG l Póstverslun • Sími: 121 I I
AHHA HF • HEILDVERSLUN • SÍMI: 624667