Morgunblaðið - 05.10.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 19
JENNY Holzer: Texti af Lostamorðs-ljósmyndum.
Lostamorð
Svartur „Superman“
KVIKJVIYNDIR
Iláskólabíó
LOFTSTEIN AMAÐURINN
„THE METEOR MAN“ ★
Leikstjóri og handritshöfundur: Rob-
ert Townsend. Aðalhlutverk: Towns-
end, James Earl Jones, Bill Cosby,
Sinbad. Metro Goldwyn Meyer. 1993
ER Þetta fugl? Er þetta flugvél? Er
þetta Súperman? Nú, bara Loft-
steinamaðurinn. Bandaríska gaman-
myndin „The Meteor Man“ eða Lof-
steinamaðurinn fær ekki svo lítið að
láni hjá myndasögunum og bíó-
myndunum um Súperman og notar
það í heilmikinn boðskap til svert-
ingja í fátækrahverfum Bandaríkj-
anna um að snúast gegn eiturlyfjum
og ofbeldi á götum úti. Höfundurinn
er Robert Townsend sem vakti
nokkra athygli fyrir nokkrum árum
með annarri og enn minni (og mun
betri) mynd, „Hollywood Shuffle",
sem fjallaði um það hvernig svörtum
leikara vegnaði í Hollywood þar sem
svertingjar eru aðallega notaðir í
melludólgshlutverk. Loftsteinamað-
urinn blandar af djörfung margt-
uggnum boðskap við framandlega
ofurmennissögu og missir að mestu
leyti marks.
Townsend gerir handritið, leik-
stýrir og fer með aðalhlutverkið svo
hann ber fulla ábyrgð á myndinni
en það er óvíst hvert hann er að
fara með henni. Sagan er í aðra rönd-
ina vísindaskáldskapur sem ekki er
af þessum heimi og full af tæknibrell-
um en í hina saga af vandamálum
svertingja í borgum full af ýktum
búningum og klíkusstælum, sem allt-
af virka hallærislegir. Townsend leik-
ur kennara í hverfinu sínu sem kvöld
eitt verður fyrir grænum loftsteini
(sennilega frá Krypton) og lifir það
af merkilegt nokk en tekur eftir því
að hann er allur orðinn ofurmannleg-
ur og getur flogið. Það kemur sér
einkar vel í baráttu hans við óþokk-
ana í hverfinu, sem er svertingjaklíka
er ræður ríkjum með ofbeldi og eitur-
lyfjaframleiðslu.
Klíkan sú á sjálfsagt að vera
dæmigerð fyrir allar svertingaklíkur
stórborganna og hvernig þær ráða
lífi og örlögum í fátækrahverfunum
og Loftsteinamaðurinn er bjargvætt-
urinn því hann er ekki aðeins ofur-
mannlegur heldur blæs þori í íbúana
til að takast sjálfir á við vandann.
En myndin er ansi furðuleg fantaísa
og stærsti gallinn er sá að Townsend
tekur sjálfan sig og Loftsteinamann-
inn alltaf mjög hátíðlega og það er
kannski mesti brandarinn þegar allt
kemur til alls. Sjálfur er Townsend
geðugur í titilhlutverkinu en misbeit-
ingin á James Earl Jones í versta
hlutverki sínu til þessa verður ekki
fyrirgefin. Bill Cosby fer með lítið
hlutverk og gerir engan skaða.
Arnaldur Indriðason
MYNPLIST
IVI o k k a
LJÓSMYNDIR
Jenny Holzer. Opið alla daga til 17.
október. Aðgangfur ókeypis
ÞAÐ er sjaldnast mikið við haft,
þegar nýjar sýningar eru opnaðar
á Mokka við Skólavörðustíg; frem-
ur má tala um að þar læðist sýn-
ingar inn og oft er ekki ljóst fyrr
en eftir á hversu merkilegt fram-
tak er um að ræða hveiju sinni.
Þetta á vissulega við sýninguna
sem nú er uppi á veggjum kaffi-
hússins, en hér er kominn hluti
af sýningu bandarísku listakon-
unnar Jenny Holzer, sem haldin
var í New York í vor sem leið.
Nafn Jenny Holzer ætti að fá
ýmsa til að sperra eyrun. Þessi
listakona tók fyrst að vekja á sér
athygli í Bandaríkjunum 1977 og
smám saman reis frægðarsól
hennar hærra, jafnt heima fyrir
sem á alþjóðlegum vettvangi. Há-
marki náði frægðin sjálfsagt með
þremur stórum sýningum
1989-90, en síðara árið var hún
fulltrúi Bandaríkjanna á Tvíær-
ingnum í Feneyjum. Hún hlaut þar
eina helstu viðurkenningu sýning-
arinnar, en varð jafnframt fyrir
óvæginni gagnrýni, enda verið
mikið í sviðsljósinu næstu árin á
undan. Listakonan hafði hægt um
sig næstu árin og sýningin í vor
mun hafa verið sú fyrsta sem hún
hafði haldið í New York um fimm
ára skeið.
Verk Jenny Holzer eru texta-
verk í ýmsum miðlum, setningar
sem hún reiðir fram í ljósadýrð
rafmagnstöflunnar, á auglýsinga-
skiltum, plakötum, greiptar í málm
og marmara, meitlaðar utan á
steinkistur o.s.frv. Þessi verk hafa
þróast með ákveðnum hætti í
gegnum árin, frá því að vera
ögrandi sannleikskorn almennrar
lífsspeki („Gerviþarfir eru að fara
með jörðina“, „Sleggjudómar eru
merki um lífsþrótt"), til fullyrð-
inga sem skapa andúð („Byssur
skila árangri", „Þegar þér er farið
að líka við sársauka verða hlutirn-
ir athyglisverðir“) og persónulegra
áréttinga („Fita á mjöðmun mynd-
ast þegar þú liggur eða situr“,
„Njóttu gæsku því það er alltaf
möguleiki á myskunnarleysi síð-
ar“).
Þrátt fyrir að miðlunin hafi
ætíð verið afar opinber — plaköt
límd við hlið auglýsinga um tón-
leika og bjór, flennistór skilti á
íþróttaleikvöngum, garðbekkir —
þá er inntak textanna persónulegs
eðlis, eins og sést af þessum örfáu
dæmum. Þetta byggist á hversu
vel listakonunni hefur tekist að
tengja verk sín mikilvægum um-
ræðuefnum hveiju sinni (umhverf-
ismálum, kynþáttamálum, skot-
vopnaeign o.s.frv.) og gera mynd-
listina þannig virka í þjóðfélags-
umræðu dagsins.
Þetta sést vel á efnivið sýning-
arinnar. Fyrir yfirskrift hefur
Jenny Holzer valið þýska orðið
„Lustmord“, sem einfaldast er að
þýða sem „lostamorð", en sýningin
tengist hinum óhugnanlegu at-
burðum í Bosníu síðustu ár og
notkun nauðgana sem árásar-
vopns gegn konum. Textana samdi
listakonan eftir að hafa lesið mik-
inn fjölda vitnisburða og greina
og setti þá fram þannig að þeir
gætu komið frá þremur aðilum:
illvirkjanum, fórnarlambinu og
loks vitni, sem fylgist með, en fær
ekkert að gert.
Viðfangsefni sem þessi hafa
oftast verið nánast ósnertanleg í
myndlistinni; það má leita allt aft-
ur til Goya og grafíkmynda hans
til að finna umfjöllun um sambæri-
lega hluti. Hér eru setningarnar
ritaðar með bleki á bert hörund,
þannig að áhorfandinn er stöðugt
minntur á þá misþyrmingu líkam-
ans, sem þarna er verið að fjalla
um; það er ekki hægt að gera
nauðgun að fræðilegum eða heim-
spekilegum bollaleggingum þegar
þannig er unnið.
Samkvæmt umsögnum voru
ljósmyndirnar einmitt virkasti
hluti sýningarinnar sem var haldin
í New York; í öðrum þáttum henn-
ar dró hlutur tækninnar í uppsetn-
ingunni vísast úr áhrifunum, þar
sem hann var of ráðandi. Hér er
hin ógnvekjandi eymd orðsins á
beru holdi milliliðalaus og ekkert
sem truflar.
Spurningunni um vægi mynd-
listarinnar í boðskapnum verður
ekki svarað nema menn reyni að
taka textana út úr myndunum; án
þeirra eru myndirnar enn grípandi
og án myndanna missa textarnir
talsvert af sínu afli. Því verður
ekki annað sagt en að þessir tveir
þættir vinni vel saman.
Það er rétt að hvetja sem flesta
til að kynna sér sýninguna hér,
sem þó er aðeins brot af stærri
heild. Hún ætti þó m.a. að gefa
listafólki vísbendingu um, að það
er hægt að taka á þjóðfélagslega
viðkvæmum málum í myndlist;
með því að gera það ekki eru
menn á vissan hátt að skjóta sér
undan þeirri ábyrgð, sem listin ber
í samfélaginu.
Eiríkur Þorláksson
Framleiðum áprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Bolir, húfur og svuntur.
Húfu og tauprent,
sími 91-887911
j
fiíoodo/i
BIRYANI - INDVERSKT:
HRÍSGRIÓN MEÐ GRÆNMETI, KIÚKLING OG KRYDDI.
TORTIGLIONI - ÍTALSKT:
PASTASKRÚFUR MEÐ GRÆNMETI, NAUTAKIÖTI OG KRYDDI.
FARFALLE - ÍTALSKT:
PASTASLAUFUR MEÐ GRÆNMETi, SKINKU OG OST.
Ein msk. smjör á pönnuna,
rétturinn út í og allt tilbúið á 5 mín.
Skyndiréttir sem bragðast og líta út
sem bestu sérréttir!