Morgunblaðið - 05.10.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
Anand eða Kamsky
skorar á Kasparov
SKAK
Undanúrs1 i t áskor-
cndakcppni PCA
Interpolis útsláttarmótíð í Tilburg
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
GATA Kamsky frá Bandaríkj-
anunum sigraði Nigel Short frá
Englandi og Indveijinn Anand
lagði Michael Adams, Englandi,
að velli í undanúrslitum PCA-
áskorendakeppninnar. Lokatölurn-
ar í báðum einvígjunum gefa til
kynna hrikalegt afhroð ensku
meistaranna, 5V2-V2. Það verða því
Kamsky og Anand sem munu leiða
saman hesta sína í úrslitaeinvíginu
um áskorunarréttinn á Gary Ka-
sparov, heimsmeistara atvinnu-
mannasambandsins PCA.
Það er til mikils að vinna fyrir
Anand og Kamsky að komast í
heimsmeistaraeinvígið, því verð-
launin þar verða væntanlega hund-
ruð milljóna íslenskra króna. Þess
er tæplega að vænta að alþjóða-
skáksambandið FIDE nái að hafa
jafnhá verðlaun í sinni heimsmeist-
arakeppni. Þar eru fjórir skákmenn
eftir og fara undanúrslitin fram á
Indlandi í febrúar, þá mætast ann-
ars vegar Karpov, FTDE-heims-
meistari, og Gelfand, Hvíta-Rúss-
landi, og hins vegar Gata Kamsky
og Rússinn Valery Salov.
Salov sigraði í Tilburg
Það var einmitt Valery Salov
sem sigraði landa sinn Evgení
Barejev í úrslitum á
Interpolis-útsláttar-
mótinu í Tilburg sem
lauk fyrir helgina.
Salov vann fyrri úr-
slitaskákina eftir gróf-
an afleik Barejevs í
betri stöðu og hélt síð-
an jafntefli í þeirri síð-
ari. Það er greinilegt
að Salov .er vaxandi
skákmaður og það
verður ekki létt verk
fyrir Gata Kamsky að
yfirbuga hann í FIDE-
einvíginu í febrúar.
Barejev sló Karpov
út í undanúrslitunum.
Þessi athyglisverða
staða kom upp í fyrri skák þeirra.
Líklega hefur Karpov ekki liðið of
vel í stöðunni, hann hefur sjálfur
mikið dálæti á biskupaparinu (þótt
hann vilji ekki viðurkenna það!) og
hér þarf hann að veijast gegn því:
Svart: Anatólí Karpov
Sjá stöðumynd 1.
26. - g5?
Það er sjaldgæft að sjá Karpov
veikja kóngsstöðuna að óþörfu en
hann gerir sér vonir um að króa
hvíta hrókinn inni. Betra var 26.
- Rf6, þótt hvítur standi betur.
27. axb6 - axb6, 28. Hxa8+ -
Bxa8, 29. Da3!
Þessi leppun setur svart í mikinn
bobba. Skást er nú líklega 29. -
Rc5, en þá gæti hvítur t.d. unnið
peð með 29. Bxc5 -
bxc5, 30. Hc4. í stað-
inn lendir Karpov í
slæmu endatafli.
29. - Da5, 30. Dxa5
- bxa5, 31. f3! - f5,
32. fxe4 - Hxd4, 33.
cxd4 - fxg4, 34. Bd3
- a4, 35. d5 - Ke7,
36. Kf2 - Kd6, 37.
Ke3 - a3, 38. Bbl
Með tvö samstæð
frípeð stendur hvítur
með pálmann í hönd-
unum. Eftir 38. - Ke5
gæti hann flutt kóng-
inn yfir á drottningar-
væng með öruggum
vinningi. Karpov
reyndi í örvæntingu:
38. - g3, 39. hxg3 - Ke5, 40.
Kd3 - Bb7, 41. Kc4 - Bc8, 42.
Kb4 - Bg4, 43. Kxa3 - Be2, 44.
Kb4 - Bfl, 45. Kc5 - Bxg2, 46.
Bd3 - Bf3, 47. d6 - Bg4, 48.
VALERY Salov
sigraði í Tilburg.
MIÐVIKUDAGUR 5. OKTÓBER 1994 33
Kc6 - Bc8, 49. Kc7 - Be6, 50.
Bc4 - Bg4, 51. Be2 - Be6, 52.
Bf3 - g4, 53. Bg2 - h5, 54. d7
og Karpov gafst upp.
Ljótur afleikur Barejevs reyndist
afdrifaríkur í úrslitunum. Þessi
staða kom upp eftir 26. leik Salovs,
sem var De2-f3:
Svart: Evgení Barejev
26. - Rxf4!
Fórnar manni fyrir þijú peð og
sóknarfæri.
27. gxf4 - Dxh4+, 28. Kgl -
Bxf4, 29. Hxc5
Salov gefur manninn til baka
og fær tvö peð í staðinn. 29. Hc2
- Be3+, 30. Kfl - Rd7 var ekki
gæfulegt. Þá hótar svartur bæði
31. - Re5 og 31. - Hb6 og síðan
Hf6.
29. - Be3+, 30. Kfl - Bxd2, 31.
Bxd4 - Rd7, 32. Hd5 - Rf8, 33.
Ke2 - Df4, 34. Hfl
Barejev hefur unnið peð og
möguleikarnir eru hans megin þótt
vinningurinn verði greinilega tor-
sóttur. En nú leikur hann af sér
skiptamun:
34. - Re6??, 35. Be5 - Dxf3+,
36. Bxf3 - Bg5, 37. Bxb8 -
Hxb8, 38. Kf2 - Be7, 39. a4 -
bxa4, 40. bxa4 - Hb2+, 41. Kg3
- Bb4, 42. Bg4 - Rg5, 43. Bd7
- Kh7, 44. Hxg5!
Gefur skiptamuninn til baka en
fær í staðinn tvö samstæð frípeð.
44. - hxg5, 45. Hxf7 - Bel+,
46. Kh3 - He2, 47. Kg4 - He3,
48. Hf3 - He2, 49. Kxg5 - Bd2+,
50. Kf5 - g6+, 51. Ke6 - Bc3,
52. Kd5 - Kg7, 53. d4 - Bb2,
54. Bb5 - Hg2, 55. e5 - g5, 56.
e6 - Hd2, 57. e7
og Barejév gafst upp.
Haustmót Taflfélags
Reykjavíkur
Árlegt haustmót TR hófst á
sunnudaginn. Tveir alþjóðlegir
meistarar eru á meðal keppenda í
A-flokki, Þröstur Þórhallsson og
Sævar Bjarnason. Það er líklegt
að þeir tveir beijist um efsta sætið
ásamt Jóni Garðari Viðarssyni, en
Þröstur verður að teljast sigur-
stranglegastur. Keppendur í A-
flokki eru þessir, taldir upp í röð
eftir íslenskum skákstigum þeirra:
Þröstur Þórhallsson 2.445
Sævar Bjarnason 2.390
Jón Garðar Viðarsson 2.370
Áskell Örn Kárason 2.205
Tómas Björnsson 2.200
Magnús Örn Úlfarsson 2.170
Kristján Eðvarðsson 2.155
Sigurbjörn Björnsson 2.115
James Burden 2.110
Ólafur B. Þórsson 2.110
Jón Viktor Gunnarsson 2.075
Páll A. Þórarinsson 2.070
Úrslit í fyrstu umferð urðu þau
að Þröstur vann Tómas, Sævar
vann Áskel, Ólafur B. vann Jón
Viktor, Jón Garðar vann Pál Agnar
og Magnús Örn vann Kristján.
Önnur umferðin verður tefld á
miðvikudagskvöldið.
Margeir Pétursson
BRIPS
Umsjón Arnór G.
Ragna rsson
íslandsmótið 1
einmenningi 1994
NÚ ER skráningu í íslandsmótið
langt komin, 80 spilarar hafa þegar
skráð sig og hámarkið er 112 spilar-
ar.
Keppnin hefstkl. 11 laugardaginn
8. október nk. í Sigtúni 9 og verða
spilaðar tvær þrjátíu spila lotur á
laugardeginum og lýkur spila-
mennsku um kl. 21. Sunnudaginn
9. október hefst spilamennska einnig
kl. 11 og þá verður spiluð ein um-
ferð og mótinu lýkur kl. 16 með
verðlaunaafhendingu. Keppnisgjald
er 2.500 kr. á mann og greiðist við
upphaf spilamennsku. Spilað er um
gullstig í hverri umferð. Keppnis-
stjóri og reiknimeistari er Kristján
Háuksson.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Spilaður var tvímenningur fimmtu-
daginn 29. september síðastliðinn
og mættu tuttugu pör og spilað var
í tveim riðlum.
A-riðill, 10 pör
Elín J ónsdóttir - Lilja Guðnadóttir 141
Baldur Helgason - Haukur Guðmundsson 123
Ingibjörg Stefánsdóttir - Fróði B. Pálsson 114
Þórarinn Árnason — Bergur Þorvaldsson 112
B-riðill, 10 pör
Lárus Amórsson - Asthildur Sigurgísladóttir 126
Eyjólfur Halldórsson - Hjálmar Gíslason 124
Ragnar Halldórss. - Vilhjálmur Guðmundss. 124
Eysteinn Einarsson - Sigurleifur Guðjónsson 123
Meðalskor 108
Sunnudaginn 2. október 1994 spil-
uðu tuttugu pör í tveim riðlum.
A-riðill
Þorleifur Þórarinsson - Gunnþórann Erlingsd. 144
Ingiríður Jónsdóttir - Jóhanna Gunnlaugsd. 128
Láras Arnórsson - Ásthildur Sigurgísladóttir 123
Þórarinn Árnason - Bergur Þorvaldsson 119
B-riðill
Bergsveinn BreiðQörð - Baldur Ásgeirsson 123
Ragnar Halldórss. - Vilhjálmur Guðmundss. 118
SigurðurÁtnundason - Nanna Ágústsdóttir 115
Eyjólfur Halldórsson — Þórólfur Meyvantsson 114
Meðalskor 108
DAGUR FRÍMERKISINS
FRIMERKJASOFNUN
: • - - ! 3p««. | ÍSI.AND \ 35<M' ** I* '» i //nú’r’H ^IOO00 ■ * M
DAGUR f RÍm'ERKISINS 7.0K1ÓBFR l‘UM - VER'D KR 2 00
FRIMERKI
FRÍMERKJAKYNNING
NÆSTKOMANDI föstudag, 7.
október, er Dagur frímerkisins.
Raunar er hinn rétti dagur 9. októ-
ber, en þar sem hann ber upp á
sunnudag að þessu sinni, var hann
færður fram um tvo daga. Þessi
dagur hefur ævinlega verið haldinn
til þess að kynna frímerki og söfn-
un þeirra meðal almennings. Hann
á orðið þó nokkuð langa sögu
meðal íslenzkra frímerkjasafnara
eða frá árinu 1960. Þá var einnig
haldin lítil frímerkjasýning. En frá
árinu 1961 hefur Félag frímerkja-
safnara oftast haft veg og vanda
af þessum degi í samvinnu við
Póst- og símamálastofnunina. Frá
þeim tíma og allt fram að því, að
póststjórnin hóf útgáfu sérstakra
blokka á þessum degi til að efla
Frímerkja- og póstsögusjóðinn, var
notaður sérstimpill. 1 honum stóð
Dagur frímerkisins. Jafnframt var
myndefni stimpilsins tengt frí-
merkjasöfnun með einum eða öðr-
um hætti. Því miður hefur verið
horfið frá þessum sérstaka stimpli.
Má svo sem segja, að það hafi
orðið samfara því, að heldur dró
úr þeim krafti, sem fylgdi þessum
degi á fyrstu tveimur áratugum
hans. Hin síðustu ár hefur verið
reynt að hressa nokkuð upp á dag-
inn með litlum frímerkjasýningum
og sérstakri frímerkjakynningu í
Kringlunni í nýja Miðbænum. Hef-
ur sú tilraun orðið sæmilega ár-
angursrík og þá einkum fyrir til-
stilli félaga úr Félagi frímerkja-
safnara og að sjálfsögðu í góðri
samvinnu við Póst og síma. í fyrra
lögðu mótífsafnarar þar Sérstak-
lega hönd á plóginn.
Að þessu sinni er Dagur frí-
merkisins aftur einvörðungu helg-
aður frímerkjasöfnun og þá með
útgáfu smáarkar með myndefni,
sem snertir frímerkjasöfnun ungs
fólks, eins og segir í tilkynningu
póststjórnarinnar. Þar segir enn
fremur: „Það er löngu ljóst, að til
þess að tryggja tómstundastarfið
sem nefnist frímerkjasöfnun, þarf
að kenna það æskunni, sem er
framtíð hvers lands. Einmitt frí-
merkjasöfnunin hefir fengið heiti
eins og „Konungur tómstunda-
starfanna", en einnig „Tómstund-
starf konunga“ og hvort tveggja
með réttu.“ Lýsing sú, sem fylgir
útgáfu smáarkarinnar, er á þessa
leið frá hendi póststjórnarinnar:
„Á fyrsta frímerki blokkarinnar
er mynd tveggja unglinga, sem eru
að skoða saman frímerkjasafn. Á
næsta frímerkinu er svo farið
dýpra í athugun frímerkjanna. Þar
sjást nokkur íslensk frímerki.
Teikning og myndefni þeirra er
þarna skoðað með stækkunargleri.
Síðasta frímerki arkarinnar sýnir
svo stúlku og eldri mann draga
lærdóm af þessu öllu saman, með
því að leita uppi löndin, sem frí-
merkin eru frá, á hnattlíkani." Að
vísu þurfa þau ekki að leita langt,
því að þau frímerki, sem sjást á
örkinni, eru öll íslenzk, svo sem
vera ber. En hugmyndin er engu
að síður ágæt.
Hlynur Olafsson hannaði þessa
smáörk, en hann gerði slíkt hið
sama við smáörkina á Degi frí-
merkisins 1993 með Balbó-frí-
merkjunum. Þessi smáörk var
prentuð með offset litógrafískri
aðferð hjá BDT, International
Security Printing Ltd. í Englandi.
Þessi prentsmiðja hefur áður kom-
ið við prentsögu íslenzkra frí-
merkja, og vonandi kafnar hún
ekki undir nafni.
Verðgildi frímerkjánna eru 30,
35 og 100 krónur til burðargjalds,
en söluverð arkarinnar er 200 krón-
ur. Mismunurinn, 35 krónur, rennur
í Frimerkja- og póstsögusjóð, en
hlutverk hans hefur frá upphafí
verið það að efla áhuga á frímerkja-
söfnun. Hefur hann gert það mjög
myndarlega á liðnum árum með
styrkveitingum til ýmissa verkefna.
Fyrir það ber frímerkjasöfnurum
svo sannarlega að þakka.
Sérstakur útgáfudagsstimpill
verður að venju notaður þennan
dag, og minnir myndefni hans á
frímerkjasöfnun, svo sem vera ber.
Frímerkjasala Pósts og síma
efnir til sölusýningar í Kringlunni
í tilefni dagsins. Er þema sýning-
arinnar „ísland sem mótíf“. Teng-
ist dagurinn þannig hálfrar aldar
afmæli íslenzka lýðveldisins. Sýnd
verða flest frímerki, sem gefin
hafa verið út á lýðveldistimanum
ásamt fjölda sérstimpla með skýr-
ingum á myndefni þeirra. Efnt
verður til verðlaunasamkeppni
meðal sýningargesta í tengslum
við sýninguna. Verðlaunin eru allar
frímerkjaársmöppur Pósts og
síma, sem enn eru fáanlegar. Þar
verður enn fremur hægt að fá
keyptar íslenzkar frímerkja-
ársmöppur og frímerki með nýj-
ustu burðargjöldum. Sýning og
kynning póststjórnarinnar verður
einnig opin á laugardaginn. Rétt
er að benda þeim, sem áhuga hafa
á að kynna sér frímerkjasöfnun
öllu nánar, að félagsheimili frí-
merkjasafnara í Síðumúla 17 verð-
ur opið á laugardeginum frá 14 -
17. Þar koma safnarar saman á
hverjum laugardegi, bæði til að
skiptast á frímerkjum og eins til
að rabba saman um hugðarefni sín.
í Kringlunni verður einnig hafð-
ur til dreifingar nýr leiðarvísir Frí-
merkjasöfnun er skemmtileg. Er
þess að vænta, að margir vilji eign-
ast hann og kynna sér þær upplýs-
ingar, sem þar má fá um frímerkja-
söfnun. Þá mun Forsetamappan
svonefnda, sem út kom í sumar,
verða til sölu, en upplag hennar
mun nær þrotið. Þess er getið í
sérstakri tilkynningu frá Frí-
merkjasölu Pósts og síma, að tölu-
verður uppgangur sé í íslenzkri
frímerkjasöfnun um þessar mund-
ir. Þannig hafa um eitt þúsund
safnarar bætzt í hóp fastra áskrif-
enda að íslenzkum frímerkjum.
Fjoldi íslenzkra áskrifenda hefur
aukizt um ■Qórðung. Alls mun
áskrifendum hjá Frímerkjasölunni
hafa fjölgað um 10% á árinu. Er
þetta mikið gleðiefni og ekki sízt
fyrir það, að frímerkjasafnarar,
bæði hér á landi sem erlendis,
hafa haft verulegar áhyggjur af
þeirri fækkun, sem menn hafa
þótzt merkja meðal frímerkjasafn-
ara í kjölfar hins mikla afþreying-
arefnis, sem flæðir yfir heims-
byggðina.
Jón Aðalsteinn Jór.sson